Morgunblaðið - 28.04.2009, Side 2

Morgunblaðið - 28.04.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 segðu smápestum stríð á hendur! Fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HVER man ekki eftir að hafa misst tímaskynið í góðum brenniboltaleik sem krakki? Það er hins vegar ekkert sem segir að brennibolti sé bara fyrir börn líkt og Brenniboltafélög Reykjavíkur og Hafnarfjarðar eru til vitnis um. Öll mánudagskvöld hittast konurnar í Reykja- víkurfélaginu á Miklatúni og iðka leikinn af miklum móð. Stofnendur félagsins eru hópur kvenna sem stunduðu brenniboltaæfingar í Kaupmannahöfn sér til gamans um miðbik þessa áratugar. Aðsókn í boltann á Miklatúni hefur verið með miklum ágætum og eru æfingarnar öllum konum opnar. Það er því um að gera að skella sér á næstu æfingu og rifja upp gamla skottakta. annaei@mbl.is Morgunblaðið/Golli Brennibolti er ekki bara fyrir börnin HÆKKUN yfirborðs sjávar gæti orðið þrefalt meiri í lok þessarar aldar vegna bráðnunar íss en áður var talið. Þessi niðurstaða verður kynnt á ráðstefnu norðurskauts- ráðsins í Tromsö í Noregi á morgun fyrir Al Gore, friðarverðlaunahafa Nobels, og utanríkisráðherrum tólf landa, m.a. Íslands. Hefur NTB-fréttastofan eftir dr. Dorthe Dahl Jensen, við Niels Bohr-stofnunina, að loftslagsbreyt- ingarnar séu farnar að hafa áhrif á stóra ísmassa á borð við Græn- landsjökul og íshellu Suðurskauts- landsins. Þrefalt meiri hækk- un sjávar Morgunblaðið/Ómar Hækkar hratt Bráðnun íss hefur áhrif á yfirborð sjávar. Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is „ÉG býst við að öllum sé létt að heyra að þessi vá er ekki lengur yf- irvofandi,“ sagði Jón Hannesson læknir, sem varð fyrir hrottalegri árás á laugardagskvöldið, eftir að hafa frétt að lögreglan á höfuðborg- arsvæðinu hefði í gær handtekið tvo karla og tvær konur vegna málsins. Tveir grímuklæddir menn vopnaðir hnífum réðust inn á heimili Jóns og konu hans í Mávanesinu á Arnarnesi og héldu þeim í gíslingu í hátt í hálfa klukkustund og hótuðu þeim lífláti á meðan þeir létu greipar sópa. Þrjú þeirra sem lögregla handtók hafa þegar játað og gert er ráð fyrir að krafist verði gæsluvarðhalds yfir fólkinu í dag. Komið við sögu lögreglu áður Mennirnir, sem eru á tvítugs- og þrítugsaldri, hafa játað að hafa fram- ið ránið. Hafa þeir áður komið við sögu lögreglu m.a. vegna ofbeldis- og fíkniefnabrota. Önnur konan, sem er á tvítugsaldri, hefur þá einnig játað aðild að málinu. Hún hefur einnig lít- illega komið við sögu lögreglu áður. Undir kvöld í gær var enn óljóst hver aðkoma hinnar konunnar að málinu væri, en hluti þýfisins hefur náðst. Lögreglan lítur málið mjög alvar- legum augum og setti, að sögn Stef- áns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, mikinn kraft í að upplýsa það. „Við fengum strax mikið af góðum vísbendingum sem byrjað var að vinna úr,“ segir Stefán. Voru það ábendingar frá almenningi sem urðu til þess að fólkið fannst. Lögreglan hefur hins vegar ekki viljað gefa upp hvort fólkið hafi þekkt til í Mávanesi. Rannsóknin sé enn á frumstigi og yfirheyrslur ekki hafnar nema að litlu leyti. Málið er engu að síður með alvar- legri ránum sem lögreglan hefur séð. „Þetta er algjörlega ólíðandi og ekki það samfélag sem við viljum búa í,“ segir Stefán og kveðst sannfærður um að dómstólar eigi eftir að taka hart á málinu. Refsiramminn fyrir brot á borð við þetta sé 16 ár. Hann segir Jón og konu hans bera sig vel, en hún er með nokkra áverka eftir árásina „Ég heimsótti hjónin í dag og flutti þeim þessar góðu fréttir [af handtökunni].“ Og Jón segir gott að réttlætið sigri. Líðan þeirra hjóna sé ágæt og þau að jafna sig eftir atburði helg- arinnar. „Við vonum þó að við þurf- um aldrei að sjá svona gjörning aft- ur.“ „Býst við að öllum sé létt“  Vonum að við þurfum aldrei að sjá svona gjörning aftur  Hafa játað húsbrot og rán  Refsiramm- inn heimilar allt að 16 ára fangelsisvist  Leyst með þátttöku almennings  Hluti þýfisins er fundinn Morgunblaðið/Júlíus Lögreglan Þeir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsókarlögregl- unnar, og Stefán Eiríksson lögreglustjóri segja málið nánast fordæmalaust. Í HNOTSKURN »Allt kapp var lagt á aðleysa málið sem fyrst og barst lögreglu fjöldi vísbend- inga. »Fá fordæmi eru fyrir málisem þessu hér á landi og telur Friðrik Smári Björg- vinsson, yfirmaður rannsókn- arlögreglunnar, 20-25 ár síðan svipað atvik hafi komið upp. »Lögreglan vonast til aðdómstólar taki hart á mál- inu, en refsiramminn er sex- tán ár. ALSÍRBÚINN Manfre Hecum er á sjötta degi í hungurverkfalli. Hann er einn þeirra flóttamanna sem dvelja í flóttamannahælinu Fit á Reykjanesi. Manfre, sem er 33 ára gamall og starfaði við verslunar- rekstur í heimalandi sínu, hefur beðið hér á landi hátt á annað ár eft- ir úrlausn sinna mála. Hann er orð- inn þreyttur á sinnuleysi hérlendra yfirvalda. „Ég fékk síðast einhver svör fyrir mánuði. Þeir eru alltaf að biðja um ný og ný gögn og svo gerist ekkert,“ segir Manfre sem flúði frá Alsír til Tyrklands og svo hingað til lands eftir að hafa lent upp á kant við stjórnvöld í heimalandi sínu. „Það er erfitt í Alsír,“ segir hann og bendir á þann mikla fjölda sem ár- lega flýr frá Alsír sjóleiðina til Ítal- íu. Manfre finnst lítið hafa gerst í sínum málum frá því hann óskaði eftir flóttamannahæli á Íslandi og er orðinn leiður á einangruninni á Fit og að geta hvorki unnið né gengið í skóla. „Ég er að verða vitlaus. Þeir hafa látið mig bíða í tvö ár eftir svörum. Biðja alltaf um ný og ný gögn sem ég læt þá fá og samt veit ég ekki hvað er að gerast.“ Hann kveðst ekki vita hversu lengi hann verður í hungurverkfall. „Kannski þar til ég dey. Ég mun ekki hætta, þeir verða að fara að svara mér.“ „Kannski þar til ég dey“ TÖLUVERT var um útstrikanir og endurröðun á kjörseðlum í Suðvest- urkjördæmi en þó ekki nóg til að hafa áhrif á uppröðun í þingsæti. Þórunn Sveinbjarnardóttir fékk flestar útstrikanir hjá kjósendum Samfylkingarinnar, 1.168, en þurft hefði 1.959 til að það hefði áhrif. 909 kjósendur Sjálfstæðisflokksins strik- uðu yfir Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur en hefðu þurft að vera 1.683. Kjósendur Framsóknar strik- uðu oftast út Siv Friðleifsdóttur, eða 359 sinnum, en þurft hefði 1.876 og hjá Vinstri grænum fékk Ögmundur Jónasson 150 útstrikanir. Þórunn oft- ast strikuð út

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.