Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is ÖRLYGUR Karlsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands, segir skólann ekki eiga sök á því að stúlka, sem er nemandi við skólann, lenti í sjálfheldu í Vífilsfelli í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargaði henni úr hlíð- um fjallsins. Stúlkan segir fjallgönguna hafa verið hluta af skóla- verkefni í fagi þar sem nemendur fara saman í göngur. Eina ferð hafi þeir átt að fara í á eigin vegum þótt mælt væri með því að hafa með sér göngufélaga. Örlygur staðfestir þetta. „Það var hennar ákvörðun að fara ein en það var ekki ætlast til þess,“ segir hann. Kennari hafi lagt að nemendum að fara ekki einir þrátt fyrir að um einstaklingsverkefni væri að ræða. „Þannig að skólinn á enga sök á þessu.“ Hann telur ólíklegt að fyrirkomulag ferðanna verði endurskoðað. „Þetta á að vera skýrt en það verður tekið enn skýrar fram ef það hefur ekki dugað.“ Áhersla lögð á að fara ekki ein í fjallgönguna Björgunarmenn áttu erf- itt með að finna stúlk- una þar sem hún var dökkklædd. Hins vegar getur verið þrautin þyngri að finna útivist- arfatnað í áberandi lit- um, og tekur Jón Gauti Jónsson fjallaleiðsögu- maður undir það. Það sé ekki einhlítt að skærlitur fatnaður sé alltaf betri í fjallgöngum. T.d. sé dökkur fatnaður áber- andi að vetrarlagi þegar snjór er yfir og í myrkri dugi áberandi litir jafn- vel ekki til. „Það eru ýmsar leiðir til að vekja athygli á sér, s.s. að hafa með sér lítið vasaljós eða blikkljós sem auð- veldar þyrlumönnum að sjá fólk í myrkri. Eins er gott að hafa end- urskinsrendur á fatn- aðinum og svo má ekki gleyma grundvallarbún- aði á borð við GPS- staðsetningartæki.“ Lítið ljós í farteskinu Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is EKKI er útilokað að Frjálslyndi flokkurinn boði til nýs landsþings fyrr en lög flokksins kveða á um, sem er á tveggja ára fresti. Þetta segir Hanna Birna Jóhannsdóttir, ritari flokksins. „Það er miðstjórnarfundur næst- komandi fimmtudag,“ segir hún. Hann sitji níu miðstjórnarmenn, varamenn, fulltrúar kjördæmanna, framkvæmdastjóri og formaður fjármálaráðs. „Farið verður yfir stöðu flokksins og hvað við gerum í framhaldinu,“ segir hún, en flokk- urinn missti alla þingmenn sína af Alþingi í kosningunum, hlaut 2,2% fylgi á landsvísu. Magnús Þór Hafsteinsson sem bauð sig fram gegn Guðjóni Arnari Kristjánssyni formanni á síðasta landsþingi í Stykkishólmi, ritar á blogg sitt að aldrei hafi verið brýnna að boða til landsþings en nú. „Nú liggur fyrir að Frjálslyndi flokkurinn hefur beðið algert skip- brot í alþingiskosningum með 2,2% fylgi á landsvísu. […] Það þarf að velja að nýju í stjórnir Frjálslynda flokksins svo fólk geti sem fyrst með endurnýjuðu umboði hafið end- urreisn hans sem stjórnmálahreyf- ingar.“ Guðjón segir miðstjórnina eina geta ákveðið hvort boðað verði til nýs landsþings og hvenær það þá yrði. Hann tjáir sig ekki um að hvort honum finnist það skyn- samlegt. En hefur áhuga á að starfa áfram fyrir flokkinn. „Ég var kosinn formaður fyrir stuttu og ég dreg mig ekki undan ábyrgð ef fólk vill að ég vinni störf- in,“ segir hann. Guðjón segir að flokksmenn þurfi nú að skoða málin með algerlega nýju hugarfari. Meðal annars starf- semi flokksins, fjármál og allt hans umhverfi. „Flokkurinn er dottinn út af þingi og er ekki í sömu stöðu og hann var. Hvorki fjármálalega né sem tals- maður á opinberum vettvangi á þinginu. Það er þó ekki það sama og að menn verði mállausir eða missi niður pennann. Nú gefst meira að segja meiri tími til þess,“ segir for- maðurinn, Guðjón A. Kristjánsson. Útiloka ekki annað landsþing Frjálslyndi flokkurinn skoðar stöðu sína Morgunblaðið/Kristinn Formaðurinn í beinni Guðjón Arn- ar Kristjánsson fer yfir stöðuna. VINKONURNAR sex í vesturbænum sem tóku sig til og bjuggu til parís sem innihélt 600 reiti, voru í heila tvo daga með sköpunarverkið. Enda þurfti líka að búa til þrautir, gildrur og hvíldarstaði. Þær hringdu gal- vaskar í Morgunblaðið og tilkynntu afrekið og hoppuðu fúslega fyrir ljós- myndarann. Þær sögðu að vegfarendur hefðu verið frekar feimnir við að hoppa, en þó hefðu tvær konur látið freistast. Snædís Edwald Einarsdóttir fer hér fremst í flokki en fast á hæla henni koma þær Fríða Björg, Birta Ósk, Svava, Salka og Bryndís. Morgunblaðið/Ómar Sex hundruð parísarhopp Vorið vekur ungviðið „ÞAÐ er renni- blíða og klukkan sjö í morgun streymdu hand- færabátarnir út úr höfninni, með- an veðrið er svona eru það bara forréttindi að fá að vera á sjó,“ sagði Arnfinnur Antonsson hafnarvörður í Grindavík í gær. Hann sagði að flest skip væru á sjó og afli væri væri ágætur, enginn landburður, en þokkalegt í flest veiðarfæri. Hann sagði að frá Grindavík reru bátar með dragnót, línu, net og á handfæri. Fyrst eftir að hrygning- arstoppinu lauk hefði hátt verð feng- ist á fiskmörkuðum, en það hefði lækkað með auknu framboði síðustu daga. Í gær fór kíló af óslægðum þorski á undir 160 krónum. Mikið væri um það á snurvoðinni að menn forðuðust þorskinn vegna kvóta- stöðu og lágs verðs. „Menn eru í staðinn að eltast við ýsu og einhver kolablöð.“ Arnfinnur sagði að talsvert væri rætt um fyrirhugaðar strandveiðar og hvað yrði úr þeim. „Þessi umræða ýtir ábyggilega undir að eitthvað verð fæst fyrir báta sem legið hafa kvótalausir í höfnum og erfitt hefur verið að selja. aij@mbl.is „Forréttindi að fá að vera á sjó“ Verð lækkaði með auknu framboði ÞOKKALEGUR afli hefur verið síðustu daga á kolmunnamiðum suður og suðvestur af Færeyjum. Nokkur skip eru búin með kol- munnakvótann en landað hefur ver- ið um 82 þúsund tonnum af 96 þús- und tonna kvóta. Allmörg skip, rússnesk, færeysk og íslensk, voru suður af Fær- eyjum í gær en nokkur skip voru norðar og vestar. Þeirra á meðal var Hákon EA og fengust þær upplýsingar um borð að afli væri þokkalegur. Kolmunninn er heil- frystur og fer einkum á markaði í E-Evrópu. Frystigeta skipsins er um 100 tonn á sólarhring. Talsvert meira fæst fyrir frystan kolmunna heldur en bræðslufisk. Hákon er í sinni síðustu veiðiferð á vertíðinni. Tvö önnur vinnsluskip, Aðalsteinn Jónsson og Vilhelm Þorsteinsson voru á landleið í gær. aij@mbl.is Þokkalegt á kolmunna Það er mat manna að ein helsta ástæða þess að Frjálslyndi flokk- urinn tapaði fylgi sínu séu inn- anflokkserjur. Tryggvi Agnarsson, formaður Kjördæmafélags Frjáls- lynda flokksins í Reykjavík norður, sagði sig úr flokknum í febrúar. Í bréfi sem hann ritaði til formanns flokksins og Morgunblaðið hefur undir höndum tíundar hann að yf- irstjórnin sé ónýt, skrifstofan óstarfhæf og þingflokkurinn óstarfhæfur. Hann teldi flokkinn óbreyttan ekki eiga sér von: „Ekk- ert skipulagsstarf hefur verið unn- ið, engin uppbygging af hálfu hennar farið fram svo mér sé kunnugt um. Nauðsynlegur stuðn- ingur við grasrótarstarf og hvatn- ingu vantar. Mál veltast áfram án niðurstöðu. Ekki er tekið af skarið. Úlfaldar verða að mýflugum. Öll hefðbundin stjórnun eins og hún þekkist í félögum eða fyrirtækjum sést ekki. Á meðan áhöfnin skips- ins, sem rekur stjórnlaust um ólgusjó úti á ballarhafi, rífst og skammast yfir því að skipstjóri, stýrimaður og vélstjóri geri ekki neitt til að reyna að stýra fleyinu eða veiða í soðið, borðar skips- stjórnin áhyggjulaust kökur í messanum og skilur ekkert í þess- um látum.“ Féll á innanborðserjum H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 ÞÝSTIJÖFNUNARSVAMPUR • Lagar sig að líkamanum • Veitir fullkomna slökun • Það er engin hreyfing milli svefnsvæða • Hefur óviðjanfnanlega þyngdardreyfingu • Kemur líkamanum í rétta stellingu til hvíldar • Þarf ekki að snúa • 10 ára ábyrgð 35% AFSLÁTTUR! Þrýstijöfnunar-svampsrúmQueen size (153x203)Verð 165.500 kr. NÚ 107.575 kr. A R G H !0 40 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.