Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
NÝR vefur, tjalda.is, hefur verið
settur upp til að hjálpa ferðalöng-
um til að finna tjaldstæði við hæfi.
Á síðunni geta notendur leitað að
tjaldstæðum eftir landshlutum og
sett inn athugasemdir við hvert
tjaldsvæði og miðlað þannig
reynslu sinni. Fyrir erlenda ferða-
menn er slóðin gocamping.is. Þar
verður að finna upplýsingar á
ensku, dönsku, þýsku og ítölsku.
Síðan er rekin af hjónunum Jón-
ínu Einarsdóttur og Geir Gígja.
Tjalda.is
KARLMAÐUR sem var í annarlegu
ástandi vann nokkrar skemmdir á
og við Bessastaðakirkju um miðjan
dag á sunnudag, samkvæmt upplýs-
ingum frá forsetaembættinu. Hann
skemmdi fjóra kertastjaka og braut
samtals sjö steindar rúður í fjórum
gluggum kirkjunnar. Einnig vann
maðurinn skemmdir á bifreið í eigu
embættisins.
Að sögn Örnólfs Thorssonar for-
setaritara var í gær búist við að
hægt yrði að gera við stjakana og
undirbúningur að viðgerð á glugg-
unum var þegar hafinn.
Vann skemmdir í
Bessastaðakirkju
Í TILEFNI af alþjóðlegum degi
hugverkaréttar munu starfsmenn
Einkaleyfastofunnar heimsækja
þátttakendur sem sitja námskeiðið
Nýsköpun og stofnun fyrirtækja í
Háskólanum í Reykjavík 28. apríl
nk. og kynna þeim verndun hug-
verkaréttar. Þá hefur Einkaleyfa-
stofan gefið út bæklinginn „Auð-
kenni fyrirtækja, hagnýtar
leiðbeiningar um skráningar“ sem
má nálgast rafrænt á els.is.
Dagur hugverka
STRANDLENGJA Reykjavíkur er
hrein og hæf sem útivistarsvæði og
til böðunar skv. niðurstöðum Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur.
Ellefu staðir sem eru líklegir til
útivistar eru vaktaðir frá apríl til
október ár hvert og sýni tekin til að
kanna saurkólígerlamengun.
Ylströndin í Nauthólsvík er sér-
staklega vöktuð bæði af Heilbrigð-
iseftirliti og ÍTR.
Sjóböð í lagi
PRESTASTEFNA
hefst í dag með
messu í Kópa-
vogskirkju kl. 18.
Sr. Ásta Ingi-
björg Péturs-
dóttir, sókn-
arprestur í
Bíldudals- og
Tálknafjarðar-
prestakalli, predikar. Biskup Ís-
lands flytur ræðu í kirkjunni kl.
21.
Á dagskrá prestastefnu er m.a.
umræða um stöðu samfélags og
kirkju út frá umræðu í þjóðfélag-
inu um endurmat á öllum sviðum
og nýja framtíðarsýn og sam-
þykktir um innri málefni þjóð-
kirkjunnar, sem einnig voru
ræddar á síðustu prestastefnu.
Staða kirkju og
samfélags
Karl
Sigurbjörnsson
STUTT
@mbl.is
ÞEIR sem komið hafa að fram-
kvæmd kosninga hafa lengi verið
sammála um að kosningalögin
þarfnist endurskoðunar, að sögn
Ástráðs Haraldssonar, formanns
landskjörstjórnar. „Kosningalögin
eru að stofni til gömul og langt síðan
þau hafa verið hugsuð heildstætt,“
segir Ástráður.
Hann nefnir sérstaklega að fram-
kvæmd atkvæðagreiðslu utan kjör-
fundar sé heldur fornfáleg. „Not-
aðar eru aðferðir sem hugsaðar voru
við allt aðrar þjóðfélagsaðstæður og
aðra tækni en nú tíðkast,“ segir Ást-
ráður og getur þess að það gerist að
utankjörfundaratkvæðagreiðsla
hefjist áður en fyrir liggi hverjir séu
í framboði. Þá segir hann að það
myndi skapa möguleika á öruggari
framkvæmd ef opnað yrði fyrir
heimild til að færa rafræna kjörskrá.
Þá segir Ástráður að þótt fram-
kvæmd kosninga sé í föstum farvegi
væri gott að hafa í lögunum sjálfum
svör við ýmsum álitaefnum sem upp
koma. Þá mætti einfalda stjórn-
sýsluna og skýra. helgi@mbl.is
Þörf á að endur-
skoða kosningalög
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmdin Yrði öruggari ef möguleiki væri á að færa rafræna kjörskrá.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fornfáleg
Str. 38-56
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Fallegur hörfatnaður
Ný merki
Bæjarlind 6 sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Sumarpils
Verð 4.900 kr.
Hverfisgötu 6 • 101 Reykjavík • Sími 562 2862
KYNNINGAR-
DAGAR
24. apríl - 2. maí
15% AFSLÁTTUR
Stærðir 42-54
Hebron-Vinnufatnaður
Smiðjuvegi 1, Grá gata
www.hebron.is
s. 567-6000
20%
kynningAr
afsláttur
til 8. maí
V INNUFATNAÐUR
FÆST NÚ Í HEBRON
FRÁBÆR BUXNASNIÐ
NÝ SENDING
KVARTBUXUR, GALLABUXUR (margir litir)
SPARIBUXUR, MÖRG SNIÐ, 2 SÍDDIR
BREIÐARI OG GRENNRI MJAÐMIR (Slim style)
HANNES Þor-
steinsson, fyrrverandi
aðalféhirðir Lands-
banka Íslands, lést á
dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Grund 25.
apríl.
Hannes fæddist í
Reykjavík 7. desember
1918 og ólst þar upp.
Foreldrar hans voru
Þorsteinn Þorsteinsson,
hagstofustjóri í Reykja-
vík, og eiginkona hans,
Guðrún Geirsdóttir
Zoëga.
Hann stundaði nám
við Verslunarskóla Íslands og lauk
þaðan prófum árið 1936.
Sama dag og Hannes útskrifaðist úr
VÍ hóf hann störf við Landsbanka Ís-
lands og vann þar allan sinn starfsferil
í 52 ár. Hann starfaði í flestum deild-
um bankans, m.a. á Ísafirði 1937-39,
varð útibússtjóri Vesturbæjarútibús
við stofnun þess 1962 og síðan aðalféh-
irðir Landsbankans 1968-1988, er
hann lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Ásamt aðalstarfi sínu við Lands-
bankann rak Hannes um árabil fjölrit-
unarstofu og kenndi vélritun við versl-
unardeild Gagnfræðaskólans við
Hringbraut og Haga-
skóla. Eftir að Hannes
fór á eftirlaun vann
hann um nokkurra ára
skeið sem sjálfboðaliði
við að tölvusetja ýmis
handrit Þjóðskjalasafns-
ins.
Hannes var alla tíð
mikill áhugamaður um
útivist. Sjötugur gekk
hann á skíðum frá Þing-
völlum að Skjaldbreið
og niður í Bisk-
upstungur, með næt-
urdvöl á Hlöðuvöllum.
Ungur hjólaði hann um
landið og það eru aðeins fá ár síðan
hann lagði af skíðagöngur, hjólreiðar
og reglulegar sundferðir. Hannes var
einn eftir úr skátaflokki sem kallaði
sig Jukkarara og byggði skátaskálann
Þrymheima undir Skarðsmýrarfjalli á
Hellisheiði nálægt stríðslokum. Hann
sat í stjórn Skátasambands Reykja-
víkur og var formaður þess 1974-76.
Hann var félagi í Oddfellow-reglunni í
Reykjavík.
Eiginkona Hannesar til 65 ára var
Anna Steinunn Hjartardóttir. Hún
lést 8. október á síðasta ári. Þau eign-
uðust þrjú börn sem öll eru á lífi.
Andlát
Hannes Þorsteinsson
HUGVÍSINDASVIÐ Háskóla Íslands býður haustið 2009 upp á tvær nýjar
hagnýtar námsleiðir í MA-námi. Annars vegar er um að ræða MA-nám í
Norðurlandafræðum og hins vegar MA-nám í þýsku í ferðaþjónustu og
miðlun.
Í MA-náminu í Norðurlandafræðum er lögð áhersla á norræn tjáskipti og
menningu, en námið er ætlað nemendum sem dvalið hafa í einu Norður-
landanna og lokið þar námi á BA-/BS-stigi. MA-nám í hagnýtri þýsku í
ferðaþjónustu og miðlun er hins vegar ætlað þeim sem þegar starfa eða
hyggjast starfa í ferðaþjónustu og við menningarmiðlun, eða á öðrum svið-
um þar sem upplýsingamiðlun og kynningar fyrir þýskumælandi hópa og
einstaklinga skipa ríkan sess. Umsóknarfrestur er til 1. maí.
HÍ býður upp á hagnýtt meistaranám
í þýsku og Norðurlandafræðum