Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
Það kom svipur á formenn stjórn-arflokkanna þegar Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, greindi frá
„leynilegri“ skýrslu frá alþjóðlegu
ráðgjafarfyrirtæki þar sem fram
kæmi að afskriftirnar sem grípa
þyrfti til í bönkunum væru mun
meiri en áður hefði verið gefið til
kynna. Hann gagnrýndi ríkisstjórn-
ina fyrir að deila þeim upplýsingum
ekki með kjós-
endum.
Steingrímur J.Sigfússon
fjármálaráð-
herra brást
ókvæða við,
sagðist ekki hafa
séð skýrsluna
sjálfur og að í
henni væru trún-
aðargögn sem ekki mætti greina
frá. Þar vógu hagsmunir lán-
ardrottna gömlu bankanna þyngra
en upplýsingagjöf til almennings.
En athyglisvert var að Stein-grímur var kominn í óþægilega
varnarstöðu, svipurinn og talsmát-
inn minnti óþyrmilega á framkomu
Geirs H. Haarde í bankahruninu í
haust. Þá var Geir gagnrýndur
harðlega af Steingrími fyrir að sitja
á upplýsingum um stöðu mála.
Þannig verða hlutverkaskiptin oftá leiksviði stjórnmálanna. Ann-
ar stjórnmálamaður úr röðum
Vinstri grænna, Svandís Svav-
arsdóttir, setti upp sama svip í kjöl-
far REI-málsins. Hún hafði gengið
fram með harðvítugum hætti í því
máli og krafist þess að allar upplýs-
ingar kæmu upp á borðið, en eftir
að hún tók við völdum og var sett
yfir frægan stýrihóp, byrjaði hún
að tala í gátum og það fékkst ekki
botn í REI-málið fyrr en tími 100
daga meirihlutans var liðinn.
Kannski er þetta sá svipur semþjóðin mun þurfa að venjast hjá
Vinstri grænum eftir að þeir kom-
ast til valda?
Steingrímur J.
Sigfússon
Svipurinn á Vinstri grænum
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 7 heiðskírt Lúxemborg 13 skýjað Algarve 19 léttskýjað
Bolungarvík 5 skýjað Brussel 14 skýjað Madríd 16 heiðskírt
Akureyri 6 alskýjað Dublin 9 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað
Egilsstaðir 5 skýjað Glasgow 10 skýjað Mallorca 17 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað London 10 léttskýjað Róm 20 léttskýjað
Nuuk 1 skýjað París 15 skýjað Aþena 16 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 15 léttskýjað Winnipeg 6 skýjað
Ósló 18 þrumuveður Hamborg 17 skýjað Montreal 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt New York 22 heiðskírt
Stokkhólmur 17 heiðskírt Vín 19 léttskýjað Chicago 22 skýjað
Helsinki 15 heiðskírt Moskva 22 léttskýjað Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
28. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.15 0,3 8.20 3,6 14.27 0,3 20.43 4,0 5:09 21:42
ÍSAFJÖRÐUR 4.29 0,1 10.22 1,8 16.39 0,1 22.43 2,1 4:59 22:02
SIGLUFJÖRÐUR 0.16 1,3 6.35 0,0 13.04 1,2 18.46 0,2 4:42 21:45
DJÚPIVOGUR 5.23 2,0 11.34 0,3 17.53 2,2 4:35 21:15
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Suðaustanátt, 8-15 m/s, hvass-
ast suðvestan til. Rigning eða
súld, en þurrt og víða bjart norð-
austan- og austanlands. Hægari
suðvestanátt vestanlands um
kvöldið. Hiti 5 til 10 stig.
Á fimmtudag
Fremur hæg sunnanátt og skúrir
um sunnan- og vestanvert land-
ið, annars skýjað með köflum.
Hiti breytist lítið.
Á föstudag
Ákveðin austanátt með rigningu,
en úrkomulítið norðanlands. Lítil
breyting á hitastigi.
Á laugardag og sunnudag
Útlit fyrir norðlægar eða breyti-
legar áttir með vætu.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
8-13 metrar á sekúndu og rign-
ing eða súld með köflum á vest-
anverðu landinu. Hægari og
skýjað eða skýjað með köflum
norðaustan- og austanlands.
Hvassari og úrkomumeira vest-
anlands síðdegis. Hiti 5 til 12
stig að deginum, en nærri frost-
marki norðaustanlands í nótt.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
HERFUGL hefur gert sig heima-
kominn í Stöðvarfirði að und-
anförnu, en hann er ekki algengur
gestur hér á landi, hefur sést 10-
15 sinnum. Fuglinn er glóbrúnn á
lit með miklar fjaðrir, á vængjum
og stéli eru breiðar svartar rend-
ur og ryðrauður fjaðraskúfurinn
setur síðan mikinn svip á þennan
skrautlega fugl, sem væntanlega
hefur borist hingað frá meg-
inlandi Evrópu. Algengt er að
smáfuglar setjist á skip suður af
landinu. Í fyrravor settist herfugl
á Hákon EA og dvaldi hann í
nokkra daga í góðu yfirlæti um
borð í skipinu, en var síðan sleppt
í Neskaupstað. Ekki er líklegt að
sá fugl hafi lifað veturinn og nú
sést í Stöðvarfirði.
Brynjúlfur Brynjólfsson á Höfn
í Hornafirði segir þennan tíma
ársins spennandi fyrir fugla-
áhugamenn. Auk herfuglsins á
Stöðvarfirði hafi sést hér á landi
tvær fáséðar andategundir,
hjálmönd í Hornafirði í febrúar
og síðan bláendur á Snæfellsnesi
og í Hornafirði, en báðar séu
þessar andategundur amerískar.
Þrjár hjálmendur hafi nú sést
hér á landi.
Einnig megi nefna bókfinkur
og fjallafinkur, þrjá kjarnbíta,
krossnefi sem verptu hér í haust
og vetur og trjátittlinga, sem
séu nauðalíkir þúfutittlingi. Frá
þessum flækingum og fleira for-
vitnilegu er greint á fuglar.is
Herfugl og hjálmönd meðal gesta
Ljósmynd/Marri
Herfugl Fuglar setjast oft á skip,
herfugl um borð í Hákoni EA.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Þyrluflug var meðal
þess sem stóð gestum Ásbrúar til
boða á opnum degi sl. laugardag.
Kynnt var sú margþætta uppbygg-
ing sem hefur átt sér stað á svæðinu
eftir að herinn yfirgaf það. Auk þess
að fá nýtt nafn eru margvíslegar
nýjungar fyrirhugaðar á svæðinu, til
viðbótar við þá starfsemi sem nú
þegar er.
Í frumkvöðla- og orkusetrinu Eld-
ey er verið að byggja upp rannsókn-
arsetur í orkuvísindum og verður
setrið nýtt sem kennsluaðstaða í
orkuvísindum við Keili – miðstöð vís-
inda, fræða og atvinnulífs, Háskóla
Íslands og aðrar innlendar skóla- og
kennslustofnanir. Í Eldey fer auk
þess allt flugnám fram og tengt nám,
svo sem flugumferðarstjórn og flug-
þjónusta.
Í samstarfi við heilsu- og uppeld-
isskóla Keilis er einnig fyrirhugað að
reisa heilsuþorp á Ásbrú. Frum-
greinadeild Keilis hefur opnað fjöl-
mörgum möguleika til háskólanáms.
Samhliða opnum degi var árleg
Handverks- og frístundahátíð
Reykjanesbæjar haldin á Ásbrú.
Gestum og gangandi var boðið að
skoða og kaupa handverk og list-
muni og í Listasmiðjunni kynntu
listahópar hússins starfsemi og voru
með sýnikennslu. Unga fólkinu þótti
ekki leiðinlegt að athafna sig á Tóm-
stundatorginu en þar er stór yf-
irbyggður leikvöllur og línu-
skautahöll.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Einstakt Nemendur í handverkshópnum Einstakir sýndu útskurðartækni.
Tækifæri og nýsköpun