Morgunblaðið - 28.04.2009, Side 16

Morgunblaðið - 28.04.2009, Side 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 Þetta helst ... ● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á Íslandi lækkaði um 1,0% í gær og er lokagildi hennar 641 stig. Viðskipti með hlutabréf námu einungis um 80 millj- ónum króna. Viðskipti með skuldabréf námu hins vegar um 5,2 milljörðum. Hlutabréf Marel lækkuðu um 3,4% í gær og bréf Össurar lækkuðu um 1,3%. Hins vegar hækkuðu hlutabréf Bakka- varar um 0,9%. gretar@mbl.is Lækkun í Kauphöllinni ● ENGINN Íslend- ingur, búsettur í Bretlandi, er leng- ur á lista breska blaðsins Times yfir ríkustu íbúa Bret- landseyja. Í fyrra var Björgólfur Thor Björgólfsson í 29. sæti listans og bræðurnir Ágúst og Lýður Guð- mundssynir voru í 213. sæti. Voru eignir Björgólfs metnar á rúma tvo milljarða punda (um 380 milljarða króna á núvirði) árið 2008 og eignir Ágústs og Lýðs á 410 milljónir punda. bjarni@mbl.is Björgólfur Thor Björgólfsson Björgólfur dottinn af lista yfir auðmenn Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is GJALDÞROTUM fyrirtækja hefur fjölgað mikið á umliðnum árum. Fjölgunin var samfelld frá árinu 1998 til 2003. Þá fækkaði gjaldþrot- um í tvö ár en fjölgaði síðan á tíma- bilinu frá 2005-2008, samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Ef fram heldur sem horfir má gera ráð fyrir að fjöldi gjaldþrota fyrirtækja í ár verði meiri en nokkru sinni fyrr. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs voru samtals 259 fyrirtæki tekin til gjald- þrotaskipta samanborið við 175 fyr- irtæki á sama tímabili í fyrra og svip- aðan fjölda næstu tvö ár þar á undan. Aukningin í ár er nærri 50% í sam- anburði við fyrstu þrjá mánuði ár- anna 2006-2008. Í mars 2009 voru 98 fyrirtæki tek- in til gjaldþrotaskipta. Í mars 2008 var fjöldinn 78 og svipaður í sama mánuði næstu tvö ár þar á undan, eða annars vegar 77 fyrirtæki og hins vegar 76 fyrirtæki. Flest gjaldþrot í ár hafa verið í byggingarstarfsemi og mannvirkja- gerð og í heild- og smásöluverslun. Aukningin hátt í 50% frá fyrra ári Mikil fjölgun í gjaldþrotum fyrirtækja #%%" #%%: $""" $"": $""% )2               !  " #"" $"" ("" &"" :"" '"" ;"" !"" FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is RÚMLEGA 70 prósent þeirra bréfa sem Íslandsbanki, áður Nýi Glitnir, keypti úr peningamarkaðssjóðnum Sjóði 9 í október á um þrettán millj- arða króna eru útgefin af fyrirtækj- um sem eru í gjaldþrotaskiptum, greiðslustöðvun eða glíma við alvar- lega rekstrarerfiðleika. Um er að ræða bréf útgefin af Baugi Group, Atorku, Milestone, Eimskip, Kaup- þingi, Samson, Styrk Invest, Bakka- vör og Landic Property. Þetta kem- ur fram í eignarsamsetningu sjóðsins sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Tæpur helmingur sjóðsins var í skuldabréfum þegar honum var slitið. Bréfin voru keypt úr sjóðnum á um 70 prósent af markaðsvirði þeirra á sínum tíma til að hægt væri að greiða sjóðsfélögum út úr Sjóði 9. Þeir fengu um 85 prósent af eignum sínum til baka. Íslandsbanki, sem er í eigu ríkisins, staðfesti í byrjun apríl að hann hefði tekið virði bréfanna eitthvað niður en hefur ekki viljað segja hversu mikið. Miðað við sam- setningu sjóðsins þegar uppkaupin áttu sér stað má ætla að endurheimt- ir verði litlar. Í ársreikningi Sjóða Glitnis, sem nú heita Íslandssjóðir, segir um upp- kaupin úr Sjóði 9 að „við mat á verð- mæti safnsins var lagt til grundvall- ar mat óháðs aðila á skuldurum safnsins auk mats Glitnis sjóða á bréfunum.“ Heildarverðmæti fjárfestinga í Sjóði 9 var tæplega 111 milljarðar króna um mitt ár 2008. Sjóðurinn minnkaði hins vegar mikið í aðdrag- anda bankahrunsins vegna gífur- legrar innlausnarhrinu. Auk þess voru öll skuldabréf Stoða/FL Group, sem þá var stærsti eigandi bankans, keypt úr sjóðnum. Þau uppkaup voru framkvæmd áður en neyðarlög- in voru sett og því fellur tap vegna þeirra á skilanefnd Glitnis, og þar með kröfuhafa bankans. Sjóðirnir helmingast Sjóðir Glitnis birtu ársuppgjör sitt í gær. Þar kom fram að alls var tap fært á hlutdeildarskírteini þeirra sem áttu í verðbréfa- og fjárfestinga- sjóðum félagsins um 68 milljónir króna. Hagnaður ársins 2007 hafði hins vegar verið um 19,3 milljarðar króna. Alls nam fé í sjóðunum um 133 milljörðum króna í árslok 2008 en var 255 milljarðar króna um mitt síðasta ár. Því lækkaði virði eigna í stýringu Sjóða Glitnis um 52 prósent á seinni hluta ársins 2008. Í ársreikningnum kemur einnig fram að Sjóðir Glitnis hafi lagt fram beiðni til að skuldajafna við skila- nefnd bankans þau skuldabréf útgef- in af Glitni sem eru í sjóðunum og af- leiðusamninga. Í skýringum reikningsins stendur orðrétt að „veruleg óvissa ríkir um kröfu sjóð- anna á Glitni Banka hf. vegna af- leiðusamninga í kjölfar yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á rekstri bank- ans í október 2008“. Samkvæmt upp- lýsingum frá Íslandssjóðum var unn- ið lögfræðiálit sem segir að sjóðirnir eigi rétt á þessari skuldajöfnun. Nið- urstaða liggur þó ekki fyrir um hvort af henni verði. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, segir að farið verði með beiðnina eins og allar aðrar beiðnir. „Þeir fá enga sérmeðferð heldur fara í röðina. Það er ekki úti- lokað að þeir fái að skuldajafna enda hefur það verið gert með þessa af- leiðusamninga í vissum tilvikum. Til þess þarf að uppfylla ákveðin skil- yrði, til dæmis að það sé gert miðað við gengi Seðlabanka Íslands ef um gjaldeyrissamninga er að ræða. Ef menn eru ósáttir við það og vilja nota gengi Seðlabanka Evrópu þá verða menn bara að fara með það fyrir dómstóla.“ Flestir útgefendur bréfa í Sjóði 9 í alvarlegum vanda Fyrirtæki í þroti, greiðslustöðvun eða vanda gáfu út 70 prósent bréfa í sjóðnum Höfuðstöðvar Íslandsbanka Þegar Sjóði 9 var slitið voru 54 prósent hans í formi innlána hjá Glitni, Straumi, MP banka og Kaupþingi. Restin var skuldabréf fyrirtækja á borð við Baug, Atorku, Milestone, Samson og Existu. Morgunblaðið/Kristinn <6=2 <6=   ( )   <6=3 4>=  ( (   ?.@A.  B    ( (   C ?      ) )   <6=5' <6=6&"    ( )   HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur féllst í gær á beiðni Eglu hf. um að leita nauðasamninga við lán- ardrottna sína. Egla hf. er í eigu Kjalars, sem er í eigu Ólafs Ólafssonar, sem oft er kenndur við Samskip. Hol- lenskt dótturfélag Eglu var annar stærsti eigandi Kaupþings banka fyrir fall hans með 9,88 prósenta eignarhlut og gaf auk þess út töluvert magn af skuldabréfum. Umsjónarmaður með nauðasamn- ingsumleitunum Eglu var skip- aður Eiríkur Elís Þorláksson hæstaréttarlögmaður. thordur@mbl.is Egla leitar samninga ● HP ER enn með stærsta markaðs- hlutdeild í Evrópu meðal framleiðenda einka- og fartölva. Samkvæmt bráða- birgðatölum greiningarfyrirtækisins IDC er markaðshlutdeild HP nú 21,5% þrátt fyrir að sala hafi dregist saman um 4,6% á fyrsta ársfjórðungi sam- anborið við sama tímabil í fyrra. Sala á Dell-tölvum dróst saman um 25,3% á tímabilinu miðað við fyrsta fjórðung 2008 og fór markaðshlutdeild Dell úr 11,8% í 9,8%. Sala á Toshiba- tölvum jókst hins vegar um 7,6% og Acer um 2,7% og er Acer nú með næst- mestu markaðshlutdeildina í Evrópu, eða 17,6%. Alls voru seldar rúmar 21,5 milljónir einka- og fartölvur á fyrsta fjórðungi 2009 í Evrópu. bjarni@mbl.is Forskot HP í Evrópu eykst milli ára SPARISJÓÐUR Mýrarsýslu (SPM) hefur fengið greiðslustöðvun í þrjár vikur. Héraðsdómur Vest- urlands féllst á beiðni þar um í gær. SPM mun í kjölfarið ganga til nauðasamninga við helstu lán- ardrottna sjóðsins. Ef þeir skila ár- angri er stefnt að því að sameina SPM við Nýja Kaupþing. Í tilkynningu frá sparisjóðnum kemur fram að lánardrottnum hans verði kynnt drög að nauðasamning á allra næstu dögum. Umsjón- armaður í greiðslustöðvun SPM er Sigurður Arnalds hæstarétt- arlögmaður. thordur@mbl.is SPM fékk greiðslustöðvun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.