Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
Sumarferðir...
Benidorm-Albir
Portugal
Rimini
Tenerife
sumarferdir.is
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Mesti ávinningur verkefnisins eru þau
góðu tengsl sem orðið hafa bæði milli kennara og nem-
enda. Það er yndislegt að sjá hvað leikskólabörnin eru
örugg innan veggja skólans og það á sannarlega eftir að
koma þeim til góða þegar þau hefja grunnskólagöngu.
Eldri nemendurnir blómstra líka,“ sögðu stjórnendur Co-
meniusarverkefnisins sem leikskólinn Gimli og Njarðvík-
urskóli vinna að í sameiningu ásamt fimm öðrum Evr-
ópulöndum. Blaðamaður settist niður með
leikskólakennurunum Guðrúnu Sigurðardóttur, Hafdísi
Helgu Þorvaldsdóttur og Sólveigu Bjarnadóttur og
grunnskólakennurunum Hörpu Magnúsdóttur, Helenu
Rafnsdóttur og Katrínu Baldvinsdóttur við undirbúning
Comeniusarráðstefnu í Reykjanesbæ dagana 26.-30. apríl.
Leikskólinn Gimli er fyrsti leikskólinn í Reykjanesbæ
sem tekur þátt í Comeniusarverkefni en Njarðvíkurskóli
hefur nokkrum sinnum tekið þátt. Comeniusarverkefnið
er innan menntaáætlunar ESB en markmið þess er að
styrkja samstarf milli evrópskra skóla með því að koma á
sambandi milli nemenda, styrkja kennaraskipti og auka
þekkingu á menningu, lífsháttum og tungu annarra þjóða.
Þátttökulönd verða að vera a.m.k. þrjú og skólarnir jafn-
margir. Verkefnið stendur yfir í tvö ár og geta samstarfs-
verkefnin verið af ýmsum toga.
Kynslóðabilið brúað
Áherslan hjá Gimli og Njarðvíkurskóla er að brúa bil á
milli kynslóða með samvinnu undir kjörorðinu „Side by
side in education“. Nafnið kom frá Hörpu Magnúsdóttur í
Njarðvíkurskóla og aðdraganda þátttökunnar má einnig
rekja til hennar. „Þannig var að kennari í spænska skól-
anum C.E.I.P., José María del Campo í Sevilla, vildi kom-
ast í samstarf við skóla á Íslandi en fyrir var íslensk stúlka
í skólanum. Hann hafði samband við foreldra stúlkunnar
sem töluðu við frænku mína sem benti á mig þar sem hún
vissi að ég talaði spænsku,“ sagði Harpa.
Í ársbyrjun 2008 fór Harpa ásamt Guðrúnu Sigurð-
ardóttir frá Gimli í undirbúningsferð til Spánar og eftir
rúmlega hálfs árs undirbúningsferli var hægt að hefja
verkefnið síðastliðið haust. Leikskólinn Gimli var drifinn
með þar sem samstarfsskólinn á Spáni er fyrir börn 2 til
12 ára og Gimli er í sama hverfi og Njarðvíkurskóli. Önnur
lönd eru Ítalía, Wales, Frakkland og Ungverjaland.
Bætt ofan á þekkingu
Leikskólabörn í Gimli og grunnskólabörn í Njarðvík-
urskóla koma í reglulegar heimsóknir hvor til annars og
vinna að sameiginlegum verkefnum, auk þess sem hver
skóli fyrir sig vinnur að verkefnum um þátttökulöndin og
sýnir afrakstur vinnunnar innan skólans.
„Við byrjuðum á því að hengja þjóðfána hvers lands upp
á vegg og höfum svo bætt ofan á þekkinguna smám sam-
an. Oft búa foreldrar barnanna yfir þekkingu um löndin og
eru þá tilbúin til að heimsækja okkur í skólann og segja
frá,“ sagði Sólveig Bjarnadóttir leikskólakennari. Hún
sagði börnin hafa verið mjög fljótlega meðvituð um þjóð-
irnar og ýmis vitneskja hefur komið þeim á óvart.
„Börnin voru sérstaklega hissa á því að það væri bara
einn jólasveinn í hinum löndunum,“ sagði Helena. Siðir og
venjur jólanna eru meðal verkefna sem þátttökulöndin
hafa unnið að í sameiningu og fyrirhugað er að vinna með
tómstundir og matarhefðir næst. Þátttökulöndin halda úti
bloggsíðu þar sem efni frá öllum þátttökulöndum er birt
og sameiginlegt fréttabréf er gefið út fjórum sinnum á ári
með fréttum úr starfi verkefnisins.
Gimli hefur auk þess búið til anga innan verkefnisins
þar sem kynslóðabil er brúað með reglulegum heimsókn-
um og samstarfi milli leikskólans og eldri borgara á Nes-
völlum.
Yndislegt að sjá hvernig börnin nálgast
Leikskólakennararnir Guðrún, Hafdís og Sólveig segja
engan vafa leika á því að samstarf leikskólans og grunn-
skólans eigi eftir að auðvelda leikskólabörnunum upphaf
grunnskólagöngu þar sem þau séu orðin mjög örugg inna
veggja skólans og þekki vel bæði innviði skólans og kenn-
arans.
„Þau heilsa okkur mjög kumpánlega þegar þau mæta
okkur á förnum vegi eða í búð,“ sagði Helena og nefndi
auk þess að grunnskólabörnin græddu ekki síður á sam-
vinnunni. „Í heimsóknum leikskólabarnanna förum við á
skólabókasafnið og lesum. Grunnskólanemendurnir lesa
fyrir leikskólabörnin og þessi lestur hefur hjálpað þeim
börnum sem rög eru við að lesa í tímum. Þau finna til ör-
yggis með leikskólabörnunum sem líta upp til þeirra og
meta lesturinn.“ Í heimsóknunum til leikskólans vinna
börnin saman í ýmsum stöðvum og sögðu þeir yndislegt að
sjá hvernig börnin nálguðust.
Í Íslandsheimsókninni munu þátttökulöndin meðal ann-
ars fá að kynnast samvinnu barnanna, en vinnuferðin
stendur í fjóra daga. Auk verkefnatengdrar vinnu fá gest-
irnir að kynnast Reykjanesskaganum og vera við opnun
Listahátíðar barna sem hefst í Duushúsum 30. apríl.
Næsta ráðstefnuland verður Ungverjaland.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Stýrihópurinn Þær stjórna samstarfsverkefni skólanna: Frá vinstri Guðrún Sigurðardóttir, Hafdís Helga Þorvalds-
dóttir, Sólveig Bjarnadóttir, Katrín Baldvinsdóttir, Harpa Magnúsdóttir og Helena Rafnsdóttir.
Hlið við hlið í námi
Comeniusarverkefnið
í framkvæmd á Gimli og
í Njarðvíkurskóla
Ljósmynd/Úr myndasafni Gimlis
Góð tengsl Mestur ávinningur Comensiusarverkefnisins
eru þau góðu tengsl sem hafa myndast milli skólastiga, að
sögn stýrihópsins sem er ánægður með afraksturinn.
Í HNOTSKURN
»Comenius miðar að því að koma á gæðastarfi ískólum og tryggja Evrópuvitund í menntun,
en ekki síður auka möguleika til endurmenntunar
og starfsþjálfunar kennara. Styrkt eru fjölþjóðleg
samstarfsverkefni við skóla víðs vegar í Evrópu.
»Á heimasíðu Menntaáætlunar Evrópusam-bandsins kemur fram að Landsskrifstofunni á
Íslandi berist reglulega fyrirspurnir frá fólki um
alla Evrópu sem er að leita sér að samstarfs-
aðilum fyrir Comeniusarverkefni.
»eTwinning er áætlun um rafrænt skóla-samstarf í Evrópu. eTwinning heyrir undir
Comenius-hluta Menntaáætlunar Evrópusam-
bandsins, Lifelong Learning Program (LLP).