Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 21

Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 Kastljós fjölmiðla Enn beinast augu heimsins að Íslendingum. Erlendir blaða- og fréttamenn fylgja Jóhönnu Sigurðardóttur hvert fótmál og myndavélarnar suða hvar sem hún kemur. Golli Gunnar Gunnarsson | 27. apríl 2009 Bækur í gallabuxum Ég hef fylgzt með Kilj- unni, þætti Egils Helga- sonar, frá því hann fór fyrst í loftið. ... Það sem ég setti fyrir mig, svona framan af, var að þátta- stjórnandi og annar álits- gjafinn mættu gjarnan í stofuna hjá mér klæddir gallabuxum. Maður er ekki í nankinsfatnaði á hátíðarstundum, vilji maður láta taka sig alvarlega. ... Bækur eru til þess að lesa og njóta og það á að fara vel með þær. Betri bækur koma íklæddar kápu, þó oft virð- ist kápan helzt til þess gerð að fela flausturslega unnin spjöld. Þá eru það kiljurnar. Hvað mig varðar, eru kiljur bækur í gallabuxum. Ekki má skilja mig sem svo að ég hafi neitt á móti galla- buxum, þvert á móti, enda um að ræða traustan klæðnað, sem unnt er að nota við flest tækifæri. Þó ekki í heimsókn- um til ókunnugra. Og nú er hægt að fá Kiljan í kilju. Rakst á Sjöstafakverið ný- útkomið í bókabúð, á spottprís, sem maður gæti búizt við að sjá á rýming- arsölu í Perlunni. Einhvern veginn held ég að meiri reisn hefði nú verið yfir Kilj- an í bandi. Meira: gunnargunn.blog.is Jón Ármann Steinsson | 27. apríl 2009 Sama og að vera pínulítið óléttur … Hvaða máli skiptir hvort Árni Johnsen er fyrsti eða annar eða þriðji þingmað- ur í sínu kjördæmi? Er út- strikunaraðferðin einhvers konar lýðræðislegt „ulla bjakk“ á frambjóðendur eða alvöru kjós- endavald? Hvað ef frambjóðandi er út- smoginn loforðasölumaður sem smalar vildarvinum sínum í prófkjör? Ef fram- bjóðandi veit að fólk muni strika hann út í kosningum þá snýst „kosningabaráttan“ um að troða sér nógu ofarlega á lista svo útstrikanir nái ekki að koma viðkomandi út af þingi. Svona system gerir prófkjör að aðalatriðinu og kosningarnar verða auka- atriði, nánast formsatriði. Það er búið að setja atburðarásina í farveg sem próf- kjörið ákveður. Lítið brot flokksbundinna kjósenda getur stjórnað því hverjir kom- ast á þing og frambjóðandinn veit jafnvel hverjir það eru og getur ráðið sínum ráð- um og útbýtt loforðum til að komast á lista. Eins og gamli heimilislæknirinn minn sagði: „Það er ekki hægt að vera pínulítið óléttur.“ Annaðhvort er þetta lýðræði eða ekki. En ég held að þetta „prófkjörskerfi“ sé séríslensk útgáfa af pólitískri spillingu. Meira: jas.blog.is Ómar Ragnarsson | 27. apríl 2009 Arfur Kvennalistans … Kvennalistinn var merkilegt stjórnmálalegt fyrirbæri í fleiri efnum en kvennabaráttunni. Hann setti fram mörg nýmæli í stjórnmálastarfsemi. Þau hristu upp í stjórnmál- unum og gerðu mörg hver gagn þótt sum orkuðu tvímælis, eins og til dæmis það að þingmenn mættu ekki vera nema tvö ár í einu á þingi …Það eru 26 ár síðan Kvennalistinn kom fram. Stundum tekur tíma að ná góðum málum fram, allt of langan tíma, og lengi vel held ég að jafn- réttisfólk hafi dæst yfir því hve hægt gekk. Nú vil ég senda brautryðjendunum frá 1983 árnaðaróskir með það að geta horft með ánægju á árangur baráttu þeirra, þótt seint sé. Meira: omarragnarsson.blog.is VÆNDI er nánast eina persónulega þjónustan, sem virkar í Hollandi. Ekki er hægt að komast í handsnyrtingu í Amst- erdam án þess að bóka með tveggja vikna fyr- irvara, en karlar geta keypt sér kynlíf hvenær sem er – og við hagstæðu verði. Lögleiðing vændis í október árið 2000 var aðeins birtingarmynd langrar hefðar umburðarlyndis í Hollandi gagnvart því að kaupa og selja kynlíf. En er lögleiðing rétta nálgunin? Meira að segja í Hollandi er kon- um og stúlkum, sem selja líkama sinn, reglulega hótað, þær eru barðar og þeim nauðgað og hór- mangarar og viðskiptavinir hóta þeim. Í nýlegum glæparétt- arhöldum voru tveir þýsk- tyrkneskir bræður sakaðir um að neyða meira en hundrað konur til að vinna í rauða hverfinu í Amst- erdam (De Wallen). Samkvæmt lögfræðingnum, sem flutti mál eins af fórnarlömbunum, komu flestar þessara kvenna úr fjölskyldum, sem eru þjakaðar af sifjaspellum, misnotkun áfengis og sjálfsvígum foreldra. Eða þá að þær komu frá löndum í Austur-Evrópu eða Suð- austur-Asíu og voru fórnarlömb mansals, lokkaðar með fyrirheitum um sómasamleg störf, eða foreldrar þeirra seldu þær einfaldlega. Þessar konur eru helsta aðdrátt- arafl ferðamanna í Amsterdam (næst koma kaffihús, sem selja marijúana). En talið er að í raun séu 50-90% þeirra kynlífsþrælar, sem er nauðgað daglega á meðan lögreglan stendur aðgerðarlaus hjá. Það er óskiljanlegt að við- skiptavinir þeirra skuli ekki kærðir fyrir nauðgun, en hollenskir stjórn- málamenn halda því fram að ekki sé hægt að skera úr um það hvort vændiskona starfi af fúsum og frjálsum vilja. Lögregluþjónar, sem ofbýður sitt daglega starf í siðgæð- isdeildinni, hafa beðið um að vera fluttir í aðrar deildir. Á þessu ári hafa yfirvöld byrjað að loka sumum vænd- ishúsum vegna tengsla þeirra við glæpasamtök. Samkvæmt könnun, sem birt- ist í American Jo- urnal of Epidemo- logy, eru meðallífslíkur vændiskvenna í Bandaríkjunum 34 ár. Tíðni morða á vændiskonum í vinnunni er 51 sinni meiri en þar sem næsthættu- legast er fyrir konur að vinna – í áfengisbúðum. Aðrar kannanir sýna að níu af hverjum tíu vændiskonum vildu helst sleppa úr starfinu. Nán- ast helmingur þeirra hefur reynt að fremja sjálfsmorð að minnsta kosti einu sinni. Árið 1999 tóku sænsk yfirvöld glæpinn úr sölu kynlífs en gerðu hórmang og kaup á kynlífi refsi- verð. Samkvæmt hinum svokölluðu „kynlífskaupalögum“ í Svíþjóð má refsa fyrir kaup á kynlífi með sekt- um eða allt að sex mánuðum í fang- elsi auk niðurlægingarinnar, sem fylgir opinberri afhjúpun. Sam- kvæmt sænskum yfirvöldum hefur fjöldi vændiskvenna í Svíþjóð dreg- ist saman um 40% fyrir vikið. Man- salshringir reyna nú að sniðganga Svíþjóð vegna þess að viðskiptin hafa verið eyðilögð. Norðmenn hafa orðspor að verja í kvenréttindamálum. Þeir báru sænska og hollenska módelið ræki- lega saman og komust að þeirri niðurstöðu að það sænska ætti að vera fyrirmyndin. Nú hafa þeir breytt lögum sínum í samræmi við það. Árangur sænsku nálgunarinnar kemur ekki svo mjög á óvart. Sam- kvæmt könnun, sem gerð var í Kaliforníu, myndi það letja flesta karla, sem kaupa sér kynlíf, ef hætt væri á því að það yrði á vitorði al- mennings. Til dæmis kváðust 79% hætta við ef líkur væru á því að fjölskyldur þeirra yrðu látnar vita. Og heil 87% sögðu að það myndi fæla þá frá ef þeir ættu á hættu að lögregla birti mynd af þeim eða nafn þeirra í staðarblaðinu. Flestir þessara karla sýndu sjúk- lega hegðun gagnvart konum. Einn af hverjum fimm játaði að hafa nauðgað konu og fjórir af hverjum fimm sögðu að það væri fíkn að fara til vændiskonu. Vændi er oft kallað „elsta at- vinnugreinin“. Það er aðeins leið til að réttlæta misnotkun kvenna, sem flestar eru veikar fyrir (það er einnig mun minni fjöldi af karlhór- um í Hollandi, en hórmang er ekki stundað með þá eins og vænd- iskonur). Það þarf forustu og hug- sjón um raunverulegt jafnrétti kynjanna til að binda enda á vændi. Hin sænska leið nafnbirting- arinnar og skammarinnar er vissu- lega óhollensk. En fyrir suma karla er ánægjan af því að kaupa sér kynlíf ef til vill niðurlægingin, sem konan, sem í hlut á, verður fyrir. Fyrir aðra, eins og Eliot Spitzer, fyrrverandi ríkisstjóra New York, er fyrirheitið um launung og nafn- leynd ef til vill það sem helst heillar við að kaupa kynlíf. Hvað sem því líður er niðurlæging við- skiptavinarins bæði sanngjörn refs- ing og skilvirk fæling. Eftir Heleen Mees »… meðallífslíkur vændiskvenna í Bandaríkjunum eru 34 ár. Tíðni morða á vænd- iskonum í vinnunni er 51 sinni meiri en þar sem næsthættulegast er fyr- ir konur að vinna … Heleen Mees Höfundur er hollenskur hagfræð- ingur og lögmaður. Í nýjustu bók sinni, Weg met het deeltijdsfem- inisme!, skoðar hún þriðju kynslóð femínisma. Hún er einnig höfundur bókar um lög Evrópusambandsins og stofnandi aðgerðanefndarinnar Kon- ur ofan á. ©Project Syndicate. Virkar lögleiðing vændis? BLOG.IS Stefán Gíslason | 26. apríl 2009 Ég keypti tyrkneskt vatn í gær … Tappinn var sem sagt settur á þessa flösku í Izmir í Tyrklandi 29. apríl 2008. Einhvern tímann eftir það var settur miði á flöskuna með merki fyr- irtækisins Pinar Water í Danmörku. Þaðan hefur flaskan svo haldið áfram ferðalagi sínu alla leið í Mosfellsbæ – og þaðan í Borgarnes í gær. Núna er ferðalögum flöskunnar kannski að mestu lokið, því að hún er nefnilega að nálgast síðasta söludag, sem er nánar tiltekið nk. miðvikudag, 29. apríl 2009, á ársafmæli flöskunnar … Ég ætla alla vega aldrei að drekka þetta ársgamla tyrkneska vatn, jafnvel þó að það standi á flöskunni að þetta sé „Kilden til DIN sundhed …“. Meira: stefangisla.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.