Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 29

Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 Ég vil byrja þessa grein á fal- legu ljóði eftir Davíð Stefánsson sem heitir Blómasaga. Um engi og tún og ásinn heima ég aftur reika, sezt í brekkuna silkimjúka og sóleyjarbleika. Milt var sunnan við moldarbarðið og melinn gráa. Þar fagna mér ennþá fífillinn guli og fjólan bláa. Engan leit ég mót ljósi himins ljúfar brosa en dúnurt fríða, sem dagsins bíður í döggvuðum mosa. Hverju sem ár og ókomnir dagar að mér víkja, er ekkert betra en eiga vini sem aldrei svíkja. (Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi.) Mér finnst þetta svo fallegt og viðeigandi, gamli bóndinn kominn aftur heim, horfir yfir sveitina sína, sem honum þótti svo vænt um og hann þekkti svo vel, já hverja ein- ustu þúfu, hverja lækjarsprænu, hraunið og móana. Hreinn var mikið náttúrubarn, og mikið úti við, ég veit að hann hefur þekkt öll þessi blóm sem nefnd eru í ljóðinu hér á undan og svo miklu, miklu fleiri. En nú er Hreinn farinn að hvíla sig, en hann gerði nú ekki mikið af því, bless- aður, hér á árum áður. Hann vann mikið og lét það ekki eftir sér að sofa lengi í einu. En hann hefur verið líkamlega sterkur, að þola þetta mikla vinnuálag öll þessi ár, en nú er hann genginn til hvílu í hinsta sinn. Hreinn var okkur alltaf ljúfur, okkur þótti mjög vænt um hann og honum þótti vænt um litlu frænkur sínar, dætur mínar þrjár. Hann færði þeim oft gjafir, þegar þær fæddust færði hann þeim öllum silfurskeið, síðar kom hann í heim- sóknir með harðfisk í poka, því hann vissi það væri miklu hollara fyrir þær en nammi í poka, og núna stuttu áður en hann lést, sendi hann þeim fallega röndótta sokka í glaðlegum og hressandi lit- um. Hann var hugulsamur, uppá- tækjasamur og stríðinn, en með hjarta úr skíragulli. Það var gott að tala við Hrein, því það var hægt að tala við hann um alla skapaða hluti, hann var gamansamur, víð- lesinn, minnugur, skarpgreindur, og áhugasamur um allt og alla. En Hreinn Þórhallsson ✝ Hreinn Þórhalls-son fæddist 6. maí 1927 á Húsavík. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga miðvikudaginn 15. apríl síðastliðinn. Út- för Hreins fór fram frá Þorgeirskirkju við Ljósavatn 24. apr- íl síðastliðinn. Mistök urðu við birtingu eftirfarandi minningargreina í blaðinu sl. föstudag og eru þær því birtar hér aftur. Beðist er velvirðingar á mistökunum. það sem átti hug hans allt tíð, voru hinar ýmsu fram- kvæmdir, og þá stór- framkvæmdir, hann byggði mikið og byggði stórt, þessar byggingar verða minnismerki um stór- huga mann um ókomna tíð. Við þökkum fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning Hreins Þórhallssonar frá Ljósavatni. Aðalheiður Kjartansdóttir (Heiða). Hreinn bóndi á Ljósavatni var eftirminnilegur maður og á margan hátt óvenjulegur. Það má segja að hann væri engum líkur. Hreinn var ljóshærður, bláeygur og skarpleit- ur. Horfði beint í augu manns og sagði sína meiningu eins og honum einum var lagið. Honum var stund- um þungt niðri fyrir, en oftar var hann glettinn og á stundum stríð- inn. Hann hafði gaman af að gefa Þórhalli bónda mínum í nefið af því að hann vissi að ég hafði skömm á því, en gaman af stríðninni. Þegar við Þórhallur fluttum í Landamótssel kom Hreinn fljót- lega og bauð okkur velkomin heim í sveitina og sýndi okkur velvild og umhyggju á sinn hátt. Mörg atvik þar að lútandi koma upp í hugann nú þegar ég sest niður og minnist hans. Hreinn hafði margt til brunns að bera enda átti hann til þeirra að telja. Hann var maður fram- kvæmda, stórhuga og athugull, en á stundum var kappið honum of- viða á seinni árum. Allt handverk lék í höndum hans, smíðar á tré og járn, nýsmíðar og viðgerðir. Marg- ir leituðu til Hreins og ekki stóð á hjálpsemi hans og greiðasemi. Hann var gestrisinn og var gaman að koma í Ljósavatn þar sem mikill myndarskapur var í öllum veiting- um. Iðulega buðu þau hjón öllum kirkjugestum í kaffi og þar var veitt aðstaða í kringum kirkjulegar athafnir. Stuttu eftir að við komum í Landamótssel og fórum að búa um okkur þar á efri hæðinni kom Hreinn að máli við mig um að það væri ómögulegt að hafa svalirnar án handriðs, þetta væri stórhættu- legt, ekki síst þar sem krakkar væru. Ekki leið langur tími þar til Hreinn mætti á traktornum sínum, hvítum David Brown, það voru hans vélar, eldsnemma um morg- un, áður en nokkur var vaknaður í Seli, með grind á svalirnar á upp- moksturstækjunum. Hafði hann laumast til að mæla fyrir handrið- inu og var þarna kominn með þessa fínu grind sem auðvitað smellpassaði á svalirnar. Hann var ekki lengi að koma grindinni fyrir og nokkrum dögum síðar kom hann með handriðið og smellti ofan á. Þessi smíði hefur ekki haggast síðan og mun ekki gera um ókomin ár. Hann var algjörlega ófáanlegur til að taka borgun fyrir. Svona var Hreinn. Þegar kom að því að byggja nýja kirkju á Ljósavatni, Þorgeirskirkju sem reist var í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi í minningu Þorgeirs Ljósvetninga- goða, þá stóð Hreinn fyrir því að gefa land undir kirkjuna og víst var að ef heilsan hefði leyft þá hefði hann lagt byggingunni lið eins og honum einum var lagið. Hreinn átti sér marga stóra drauma um hinar ýmsu fram- kvæmdir á Ljósavatni og víðar. Veikindi sem ágerðust síðustu ár komu í veg fyrir að hann gæti framfylgt þeim. Sumir þessir draumar voru of stórir fyrir okkar litla samfélag og jafnvel stærri samfélög. Mörg síðustu ár hefur Hreinn búið á Hvammi, dvalarheimili aldr- aðra á Húsavík – en hugurinn var heima á Ljósavatni. Við Þórhallur minnumst Hreins með þakklæti fyrir þann hlýhug og velvilja sem hann sýndi okkur fjöl- skyldunni í Landamótsseli. Helga A. Erlingsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minn- ingargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á grein- um sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning- argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar                          ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BJÖRG HALLVARÐSDÓTTIR, Höfðagrund 10, Akranesi, áður Bræðraparti við Breiðargötu, lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 23. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 30. apríl kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Akraness. Anna K. Skúladóttir, Jón I. Haraldsson, Lárus Skúlason, Málfríður G. Skúladóttir, Gísli H. Hallbjörnsson, Skúli Skúlason, Margrét G. Rögnvaldsdóttir, Guðmundur Skúlason, Guðrún Ísleifsdóttir, Hallveig Skúladóttir, Stefán Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, ÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Austurbrún 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 24. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. apríl kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarfélög. Haraldur Axel Guðbergsson, Steinn Haraldsson, Inga Rut Ómarsdóttir, Diljá Steinsdóttir, Máni Steinsson, Hafliði Helgi Jónsson. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÓSKAR HJÖRLEIFSSON, Lindargötu 61, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 27. apríl. Þuríður Ingibjörg Jónsdóttir, Guðfinnur G. Johnsen, Guðbrandur Jónsson, María Maríusdóttir, Hjörleifur Magnús Jónsson, Laufey Jónsdóttir, Magnús A. Lúðvíksson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala Landakoti sunnu- daginn 26. apríl. Hildur Pálsdóttir, Hafsteinn Garðarsson, Gísli Pálsson, Katrín Pálsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir, Steinar Berg Ísleifsson, Birna Pálsdóttir, Helgi Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HANNA INGÓLFSDÓTTIR JOHANNESSEN, Reynimel 25A, Reykjavík, lést á kvennadeild Landspítala að kvöldi laugar- dagsins 25. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkju og verður auglýst síðar. Matthías Johannessen, Haraldur Johannessen, Brynhildur Ingimundardóttir, Ingólfur Johannessen, Matthías H. Johannessen, Saga Ómarsdóttir, Kristján H. Johannessen, Lísa Margrét Sigurðardóttir, Anna H. Johannessen, Svava H. Johannessen og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.