Morgunblaðið - 28.04.2009, Síða 30

Morgunblaðið - 28.04.2009, Síða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 ✝ Tonny MargretheMuller var f. 19. júlí 1916. Hún lést 20. apríl sl. Foreldrar hennar voru Lorentz Holan Muller f. 7.7. 1879 í Værdalen í Noregi, d. 27.4. 1952 og Marie Muller (fædd Bertel- sen) f. 29.9. 1886 í Rygge á Moss í Nor- egi, d. 16.11. 1963. Þau fluttust til Ís- lands 1906 og stofn- uðu herrafata- og sportvöruverslunina L.H. Muller 1917. Systkini Tonnyar voru Gerd Muller, f. 13.8. 1913, d. 2.2. 1992 og Leifur Muller, f. 3.9. 1920, d. 24.8. 1988. Eftirlifandi eiginmaður Tonnyar er Kristinn Guðjónsson, smiður f. 27.8. 1913. Þau giftust 2.8. 1941. Börn þeirra: Tryggvi Anton, f. 30.1. 1942. Snorri Lorentz, f. 29.11. 1945, kvæntur Önnu Grétu Arngrímsdóttur. Börn þeirra eru Anna María, Jón Trausti, Örvar Þór, Ölnir Ingi og Katla Þöll. Reyn- ir, f. 1.4. 1947, kvæntur Lilju Guð- mundsdóttur. Börn þeirra eru Pét- ur Vignir, Lísa Björk, Eva Margrét og Kristinn Már. Ingvi Guðjón, f. 15.10. 1950. Barna- barnabörnin eru 11. Tonny ólst upp á Stýrimannastíg 15 í Reykjavík og gekk í Landakotsskóla. Það- an lá leiðin í Kvenna- skólann þaðan sem hún útskrifaðist 1933. Eftir Kvennaskólann fór hún til náms í myndvefnaði, fyrst í Den kvindelige Ind- ustriskole í Oslo 1935 og síðan í Slöjdföreningens Konst- hantverksskola í Gautaborg 1936- 1937. Við komuna til baka 1937 stofnaði hún ásamt vinkonu sinni Ernu Ryel frá Akureyri vefstofu að Laufásvegi 19 í Reykjavík sem hún rak þar til hún fluttist í Hafnarfjörð 1941. Hún hélt áfram vefnaði fyrstu árin eftir komuna til Hafnarfjarðar. Hún var mjög dugleg við hann- yrðir alla sína tíð og eftir hana ligg- ur mikið af fallegu handverki. Tonny Margrethe verður jarð- sungin frá Fríkirkjunni í Hafn- arfirði í dag, 28. apríl og hefst at- höfnin kl. 13. Elsku Tonny amma, Það er alltaf einkennilegt að kveðja. Þó að maður viti að fólk sé tilbúið til að hefja sína för frá þessu lífi. Það hlýjar manni um hjartarætur að vita að þú skildir sátt við þitt og hafðir átt gott líf. Þú áttir margar mjög fallegar minningar frá þínum yngri árum sem þú deildir með okkur, þessar minningar voru með ævintýralegum blæ bæði frá Noregi og miðbæ Reykjavíkur. Þegar litið er til baka áttirðu eflaust mun viðburðaríkara líf en flestar konur frá þínum tíma en samt varstu alltaf svo yfirveguð og róleg þótt þú hafir upplifað margt. Afi við samhryggjumst þér vegna andláts ömmu okkar og lífsförunaut- ar þíns. Þið áttuð langt og viðburða- ríkt hjónaband saman. Eins og þú sagðir sjálfur og orðaðir svo fallega eftir andlát ömmu að þú værir „svo heppinn að hafa verið giftur bestu konu í heimi“. Þessi fallegu orð um ömmu eru þau sem við munum minnast. Þín barnabörn, Pétur, Lísa, Eva og Kristinn, makar og langömmubörn. Elskulega Tonny amma, það er með söknuði sem ég kveð hana. Hún, sem hefur alltaf verið til staðar, hef- ur loks fengið hvíldina löngu. Minn- ingin um ömmu er falleg og góð. Við systkinin fengum svo oft að fara til ömmu og afa á Tjarnarbrautina og líka upp í Dalsel og þar var ýmislegt brallað. Mjög gjarnan fórum við krakkarnir með afa út á bát og veiddum í soðið, svo matreiddi amma handa okkur silung með nýupptekn- um kartöflum og smjöri með gras- lauk og salati úr matjurtagarðinum hennar. Þetta fannst mér svo ljúf- fengt og gott. Amma var alltaf eitt- hvað að matreiða eða baka og allt var það svo gott. Þegar ég var orðin eldri kom ég gjarnan sjálf á Tjarnarbrautina, sníkti kandís og eitthvað gott með kaffinu. Og við spjölluðum um heima og geima. Ég man ekki eftir ömmu öðruvísi en með bros á vör og alltaf svo þolinmóð, sama hvað gekk á. Afi vildi að allt gengi svo hratt og vel fyrir sig en hún bara brosti og sagði hlæjandi: „Þetta kemur nú allt með kalda vatninu Diddi minn.“ Og meira að segja núna seinustu árin þeirra á Hrafnistu hefur amma brosað við lífinu þótt á brattann hafi verið að sækja. Á annan í páskum fór ég til ömmu og afa og hún brosti svo fallega til mín þegar ég kvaddi hana í hinsta sinn og hún sagði: „Bless Anna mín og takk fyrir komuna.“ Miklu fremur ætti ég að þakka henni fyrir sam- fylgdina og stuðninginn öll þessi ár sem við höfum áttum saman. Hvíl í friði. Anna María Snorradóttir. Tonny Margrethe Muller Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Selhellu 3 Hafnarfirði Sími 517 4400 • www.englasteinar.is LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGVELDUR HÓLMSTEINA RÖGNVALDSDÓTTIR, Skagfirðingabraut 25, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki föstudaginn 24. apríl. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 2. maí kl. 11.00. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Heilbrigðis- stofnunina Sauðárkróki. Sigríður Guttormsdóttir, Pétur Skarphéðinsson, Ragnheiður Guttormsdóttir, Sigurður Frostason, Elísabet Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg mágkona mín, föðursystir okkar og frænka, VIGDÍS MAGNÚSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Herjólfsgötu 40, Hafnarfirði, lést á heimili sínu laugardaginn 25. apríl. Jarðarför verður auglýst síðar. Soffía Júlíusdóttir, Eygló Einarsdóttir, Sigríður Snorradóttir, Þorsteinn Sigurðsson, Elín Snorradóttir, Einar, Soffía, Snorri, Sigurður, Magnús og Vigdís. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, LILJA GUÐVÖR GUÐMUNDSDÓTTIR, til heimilis að Furugrund 12, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítala Landakoti föstudaginn 24. apríl. Hún verður jarðsungin frá Digraneskirkju miðviku- daginn 6. maí kl. 15.00. Hallvarður S. Guðlaugsson, Guðmundur J. Hallvarðsson, Anna Margrét Jónsdóttir, Lilja Dögg Guðmundsdóttir, Elvar Már Ólafsson, Hallvarður Jón Guðmundsson, Elfa Rún Guðmundsdóttir. ✝ Elskulegur bróðir okkar, BJÖRN HJALTASON, Hátúni 10a, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 23. apríl. Birgir Hjaltason, Helgi Hjaltason, Kolbrún Hjaltadóttir Lovell og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir okkar, LÁRA ÞORSTEINSDÓTTIR frá Geldingsá, andaðist á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 23. apríl. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 30. apríl kl. 13.30. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda, Sigfús Árelíusson, Guðný Árelíusdóttir, Lilja Árelíusdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÚLFAR STÍGUR HREIÐARSSON, Grísará 2, Eyjafjarðarsveit, sem lést föstudaginn 17. apríl, verður jarðsunginn frá Grundarkirkju Eyjafirði fimmtudaginn 30. apríl kl. 13.30. Hildur Gísladóttir, Ragnheiður María Pétursdóttir, Katrín Úlfarsdóttir, Jóhann Ólafur Halldórsson, Hjördís Úlfarsdóttir, Fjóla Björk Jónsdóttir, Gísli Brjánn Úlfarsson, Þorgerður Hauksdóttir, Úlfhildur Úlfarsdóttir, Baldvin Ingi Símonarson, afa- og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug í veikindum og við andlát okkar ástkæra ÆVARS RÖGNVALDSSONAR frá Blönduósi. Sérstakar þakkir til Hlyns Grímssonar læknis fyrir umhyggju hans og vináttu. Hjartans þakkir til starfsfólks Landspítalans við Hringbraut, Land- spítalans í Kópavogi og heimahlynningar Landspítalans fyrir góða umönnun. Guð veri með ykkur öllum. Elín Sólveig Grímsdóttir, Svavar Geir Ævarsson, Sigríður Inga Elíasdóttir, Jóhann Þór Ævarsson, Guðrún Dagbjört Guðmundsdóttir, Helga Sigríður Ævarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN M. GUÐMUNDSSON, Reykjum, Mosfellsbæ, lést miðvikudaginn 22. apríl. Málfríður Bjarnadóttir, Sólveig Ólöf Jónsdóttir, Pétur R. Guðmundsson, Guðmundur Jónsson, Þuríður Yngvadóttir, Helga Jónsdóttir, Magnús Guðmundsson, Bjarni Snæbjörn Jónsson, Björg K. Kristjánsdóttir, Eyjólfur Jónsson, Auður Þórisdóttir, Jón Magnús Jónsson, Kristín Sverrisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.