Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
SVEIT Grant Thornton sigraði
úrslitakeppni 12 sveita um Íslands-
meistaratitilinn sem stóð í fjóra daga
og lauk sl. sunnudagskvöld. Í sigur-
sveitinni spiluðu Sveinn R. Eiríks-
son, Hrannar Erlingsson, Sigur-
björn Haraldsson, Magnús E.
Magnússon og bræðurnir Hrólfur og
Oddur Hjaltasynir.
Sveit Eyktar varð í öðru sæti og
sveit Karls Sigurhjartarsonar
þriðja.
Keppnisformið er með þeim hætti
að 12 sveitir hefja keppnina um 4
sæti sem spila síðan til úrslita.
Sveitir Grant Thornton, Eyktar,
Lyfjavers og Karls Sigurhjartarson-
ar spiluðu sig af öryggi inn í úrslitin
þar sem sveit Grant Thornton leiddi
með 212 stig, Eykt hafði 201 stig,
Lyfjaver 200 og sveit Karls 196.
Fyrir lokaumferðina hafði sveit
Grant Thornton 252 stig og sveit
Eyktar 243 stig og svo skemmtilega
vildi til að þessar sveitir áttust við í
lokaumferðinni. Þurfti sveit Eyktar
að vinna leikinn 20-10 til að hampa
titlinum. Sveit Grant Thornton gaf
hins vegar engan höggstað á sér og
endaði leikurinn 15-15 og sveit Grant
Thornton hampaði titilinum. Sveit
Karls Sigurhjartarsonar hafði betur
í slagnum um þriðja sætið.
Lokastaðan:
Grant Thornton 267
Eykt 258
Karl Sigurhjartarson 235
Lyfjaver 225
Þorsteinn Berg, forseti BSÍ, af-
henti verðlaun í mótslok. Ólöf Þor-
steinsdóttir var mótsstjóri og keppn-
isstjóri var Vigfús Pálsson.
Sveit Grant Thornton Íslandsmeistari
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson | norir@mbl.is
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Íslandsmeistarar Þeir sigruðu á Íslandsmótinu í sveitakeppni sem lauk um
helgina Frá vinstri: Sigurbjörn Haraldsson, Oddur Hjaltason, Sveinn R. Ei-
ríksson, Hrólfur Hjaltason og Hrannar Erlingsson. Í sveitinni spilaði einnig
Magnús E. Magnússon.
Ég ætla að skrifa
nokkur orð um móður-
bróður minn sem féll
frá 3. apríl síðastliðinn.
Hann bjó mestan hluta
ævi minnar í Svíþjóð, þannig að það
voru fjölmargar ferðirnar sem farnar
voru yfir hafið til að heimsækja Dóra
frænda. Margar góðar minningarnar
eigum við börnin mín fjögur frá
heimsóknum okkar til hans. Margt
kemur upp í hugann þegar ég hugsa
til baka, en ein minning er mér afar
hugleikin. Þegar ég var 17 ára og var
í skóla í Svíþjóð um tíma fór ég oft til
Dóra og man ég vel þegar við sátum á
kvöldin og borðuðum kvöldsnarl fyrir
framan sjónvarpið. Kvöldsnarlið
hans frænda var engu líkt. Það var
alltaf gott að heimsækja hann og
Ingu konuna hans á Skáni þar sem
þau bjuggu síðustu æviár hans og
minnast stelpurnar mínar oft atvika
frá heimsóknum okkar til Dóra og
Ingu. Ég og börnin mín komum alltaf
til með að minnast frænda sem góðs
og greiðvikins manns. Megi hann
hvíla í friði.
Harpa og börn. Það var alltaf gott
að koma til Dóra og Ingu. Aldrei
gleymi ég því, þegar endajaxlarnir
voru teknir úr mér unglingnum. Þá
átti ég athvarf hjá Dóra og Ingu sem
hjúkruðu mér og dekruðu við mig,
eins og ég væri á fimm stjörnu hóteli.
Halldór Hermannsson
✝ Halldór Her-mannsson tækni-
fræðingur fæddist í
Vík í Mýrdal 14.1.
1931. Hann lést í Sví-
þjóð 3. apríl síðastlið-
inn. Útför Halldórs
fór fram frá Vídal-
ínskirkju í Garðabæ
27. apríl síðastliðinn.
Þau stjönuðu við mig
til að láta mér líða sem
best og væntumþykjan
var augljós. Það var
alltaf svo mikið gott i
kringum þau, að ein-
hvern veginn virtist
allt betra þegar þau
voru nálægt. Ég mun
sakna Dóra frænda en
minningarnar um
hann mun ég geyma í
hjarta minu. Blessuð
sé minning hans.
Sigrún María.
Það var alltaf gott að koma til Dóra
og Ingu. Aldrei gleymi ég því, þegar
endajaxlarnir voru teknir úr mér
unglingnum. Þá átti ég athvarf hjá
Dóra og Ingu sem hjúkruðu mér og
dekruðu við mig, eins og ég væri á
fimm stjörnu hóteli. Þau stjönuðu við
mig til að láta mér líða sem best og
væntumþykjan var augljós. Það var
alltaf svo mikið gott í kringum þau að
einhvern veginn virtist allt betra þeg-
ar þau voru nálægt. Ég mun sakna
Dóra frænda en minningarnar um
hann geymi ég í hjarta mínu. Blessuð
sé minning hans.
Harpa Brynjarsdóttir, Sigrún
María Brynjarsdóttir.
Við Hannes hittum Halldór Her-
mannsson fyrst stuttu eftir að þau
kynntust, hann og Ingveldur Hösk-
uldsdóttir besta vinkona okkar. Þau
féllu hvort fyrir öðru og giftust í des-
ember 1985 í Hveragerðiskirkju.
Fyrstu árin bjuggu þau í Reykja-
vík en í ársbyrjun 1994 fluttu þau til
Svíþjóðar þar sem Halldór hafði búið
í mörg ár áður. Þau settust að í
Klågerup á Skáni og komu sér þar
upp alveg yndislegu heimili.
Við komum fyrst til þeirra til Sví-
þjóðar sumarið 1995 og það var sko
dekrað við okkur á allan hátt, Halldór
grillaði flest kvöld í „Halldórs Steak-
house“ og Inga sá um allt hitt. Það
var mjög gestkvæmt hjá þeim öll
sumur enda gat manni hvergi liðið
betur.
Við fórum yfirleitt til þeirra annað
hvert ár. Sérstaklega er sumarið
1997 minnisstætt, en þá ætluðum við
eiginlega að sleppa því að fara vegna
60 ára afmælis Hannesar, en nei
takk, það skyldi sko hvergi haldið
upp á það afmæli annarsstaðar en í
Klågerup. Þetta varð frábær veisla,
13 réttir búnir til af húsbóndanum og
dessert eftir Ingu. Þá buðu þau einn-
ig Jóhannesi bróður mínum og hans
konu en þau búa í Lundi. Frábært
kvöld. Síðast fórum við hjónin saman
til þeirra árið 2003.
Þá er ógleymanlegt hve elskuleg
þau voru við mig sl. vor þegar Hann-
es minn dó. Ég fór til þeirra í ágúst
og var í hálfan mánuð og hafði mjög
gott af. Það var bara ekki hægt að
hugsa sér betri vini og gestgjafa.
Alltaf var jafn gaman að fá þau
hingað til okkar í Hveragerði eða
fara saman í sumarbústað. Síðast í
janúar sl. áttum við þrjú saman ynd-
islegan sólarhring hér hjá mér. Hall-
dór vildi endilega elda, en það gerði
hann oft, sagði okkur Ingu bara að
fara inn í stofu og rabba saman. En
ég fékk að gera dessertinn.
Elsku Inga, mín besta VINKONA.
Ég er svo þakklát fyrir allar yndis-
legu stundirnar með ykkur, bæði á
Íslandi og í Svíþjóð. Guð gefi þér
styrk á þessum erfiðu tímum, þetta
gerðist svo skyndilega og óvænt.
Guði sé lof fyrir börnin þín yndislegu,
tengdabörnin, barnabörnin og barna-
barnabörnin. Og svo áttu náttúrlega
okkur öll að, vini ykkar Halldórs.
Guðrún.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Barnagæsla
,,Au pair” á Englandi
Íslensk læknahjón á Englandi óska
eftir barngóðri stúlku til að gæta 2
drengja, 1 og 3ja ára, báðir í leik-
skóla. Upplýsingar á:
DrMatthildur@msn.com.
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins 6
mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega
einfaldur og öflugur. Engin örvandi
efni. Dóra 869-2024 www.dietkur.is
lr-dora@internet.is
Léttari á fæti með Smart Motion
Viltu læra að hlaupa á léttari máta?
Hlaupa með minna álagi á fætur, liði
og mjóbak? Komdu á Smart Motion
hlaupastílsnámskeið. www.smart-
motion.org, s. 896 2300.
Reiðhjól
Rafmagnsreiðhjól
Rafmagnsreiðhjól, verð 98.900,-
engin tryggingariðgjöld/bensín-
kostnaður. Allt að 25 km/klst. án
þess að stíga hjólið, ca. 20 km á
hleðslunni. www.el-bike.is
Tómstundir
STÓRT FRÍMERKJAUPPBOÐ
30. apríl kl. 20, Síðumúla 17, 2 hæð.
Félag frímerkjasafnara
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
Skagafirði
sími 453 8245
www.bakkaflot.com
www.riverrafting.is
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618 2800.
Ferðalög
Smáauglýsingar augl@mbl.is
Farðu inn á mbl.is/smaaugl
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför elskulegrar systur, mágkonu og frænku,
SÓLRÚNAR KJARTANSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Eir fyrir hlýlega og góða umönnun.
Kormákur Kjartansson, Hólmfríður Fríðsteinsdóttir,
Ingvi Þór Kormáksson, Dagrún Ársælsdóttir,
Þórður Kormáksson,
Ársæll Þór Ingvason.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
Barmahlíð 36,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti föstudaginn
24. apríl.
Viðar G. Elísson,
Guðrún Elsa Elísdóttir,
Þorsteinn Elísson, Ásta Fríða Baldvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HANNES ÞORSTEINSSON
fyrrverandi aðalféhirðir Landsbanka Íslands,
áður til heimilis að Melhaga 6,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar-
dagskvöldið 25. apríl.
Hjörtur Hannesson, Sigrún Axelsdóttir,
Guðrún Hannesdóttir, Vilhjálmur Þór Kjartansson,
Una Hannesdóttir, Geir Ingimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HELGA JÓNSDÓTTIR,
áður á Rauðalæk 36,
Kleppsvegi 62,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
21. apríl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
29. apríl kl. 15.00.
Aðalbjörg Sigríður Gunnarsdóttir,
Björg Gunnarsdóttir, Finnbogi Sigurðsson,
Ágústa Gunnarsdóttir,
Þorvarður Gunnarsson, Þórlaug Ragnarsdóttir,
Jón Gunnarsson, Sigríður Guðný Sverrisdóttir,
Helga Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.