Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 35
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
KIRKJULISTAVIKA hefst næst-
komandi sunnudag, 3. maí, í Ak-
ureyrarkirkju. Hún stendur í viku
og degi betur, raunar. Eyþór Ingi
Jónsson og Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir organistar hafa tekið við
stjórn hátíðarinnar og segir Eyþór
Ingi viðburðina fleiri nú en áður, til
að mynda sé boðið upp á sex tónleika
þessa átta daga.
Segja má að hátíðin sé römmuð
inn með tvennum stórtónleikum;
fyrri sunnudaginn kemur fram
kammerkórinn Hymnodia ásamt
kammersveit og henni lýkur sunnu-
daginn 10. maí með tónleikum Kórs
Akureyrarkirkju og kammersveitar.
Á fyrri tónleikunum verða flutt
ítölsk og þýsk tónlist; verk eftir Ant-
onio Lotti, Antonio Vivaldi og Jo-
hann Sebastian Bach. Einleikarar á
fiðlu eru Lára Sóley Jóhannsdóttir
og Peter Hanson, frábær breskur
tónlistarmaður, sem var einmitt
kennari Láru Sóleyjar ytra.
Á hátíðartónleikunum, seinni
sunnudaginn, verða leikin verk eftir
G.F. Händel og Felix Mendelssohn
þar sem fram koma einsöngvararnir
Marta Guðrún Halldórsdóttir, Bragi
Bergþórsson og Benedikt Ingólfs-
son. Hvorirtveggju stórtónleikarnir
hefjast kl. 16.
Kirkjulistavikan verður sett í Ak-
ureyrarkirkju strax eftir lokahátíð
barnastarfsins í kirkjunni sem hefst
kl. 11. Þar flytur barnakór kirkj-
unnar lög úr söngleiknum Mamma
mia undir stjórn Heimis Bjarna
Ingimarssonar.
Klukkan 15 sama dag verður opn-
uð sýning Bryndísar Kondrup Ef-
faþa í Safnaðarheimilinu.
Fyrri hluta vikunnar verða hádeg-
istónleikar í kirkjunni og er aðgang-
ur ókeypis á þá alla. Á þeim fyrstu
flytja negrasálma þeir Haukur
Ágústsson söngvari og Daníel Þor-
steinsson píanóleikari. Daginn eftir
kom fram í hádeginu Eydís Úlfars-
dóttir sópran, Helena Guðlaug
Bjarnadóttir sópran og Guðný Erla
Guðmundsdóttir og á miðvikudeg-
inum ætla þeir að spinna Eyþór Ingi
Jónsson orgelleikari og Hjörleifur
Örn Jónsson slagverksleikari.
Af nógu er að taka á Kirkju-
listavikunni; mánudagskvöldið 4.
maí verður kvikmyndin To verdener
(Worlds apart) sýnd á Amts-
bókasafninu og flytur Bjarni Rand-
ver Sigurvinsson guðfræðingur,
stuttan inngang um myndina fyrir
sýningu og stjórnar umræðum að
henni lokinni.
Listakonan Arna Valsdóttir verð-
ur með vídeósýninguna Upp, upp
mín sál, fyrst kl. 18 þriðjudaginn 5.
maí og síðan nokkrum sinnum í vik-
unni.
Á miðvikudagsmorgninum, á
mömmumorgni, verður kynning á
námskeiði í magadansi en nám-
skeiðið sjálft um kvöldið.
Vert er að geta þess að á fimmtu-
deginum verður vorferð eldri borg-
ara að Möðruvöllum í Hörgárdal í
fararstjórn Þórunnar Sigurbjörns-
dóttur og Rafns Sveinssonar og að
kvöldi sama dags kemur Stúlknakór
Akureyrarkirkju fram í kirkjunni
þar sem meðleikarar verða Að-
alheiður Þorsteinsdóttir, Stefán Ing-
ólfsson, Kristján Edelstein og Hall-
dór G. Hauksson.
Laugardaginn 9. maí verður dr.
David Porter, dómkirkjuprestur í
Coventry, með fyrirlestur um friðar-
og sáttargjörðarstarfið sem óx upp
úr eyðileggingunni í Coventry eftir
loftárás Þjóðverja í nóvember árið
1940.
Tónlist, danslist, myndlist
Listamenn úr heimabyggð bera uppi dagskrá Kirkjulistaviku Akureyrarkirkju
Mjög fjölbreytt atriði í boði, meðal annars sex tónleikar á átta daga hátíð
Syngja af list Kirkjukór Akureyrar ásamt stjórnandanum, Eyþóri Inga Jónssyni. Hann stjórnar einnig Hymnodiu.
TENGLAR
..............................................
http://akirkja.is
Menning 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
Gaman væri að vita af hverjueinmitt barokktónlist þyk-ir henta jafn vel í sambúðvið nútímaverk og raun
ber vitni, eins og Sumartónleikar í
Skálholti eru eitt af mörgum dæmum
um á seinni áratugum. Gæti það staf-
að af þörf á rækilegum stílrænum
andstæðum og fjölbreytni – eða
kannski líka af sögulegum nöpum ný-
klassísks snemmmódernisma við síð-
rómantík?
Hvað sem veldur útilokar það eng-
an veginn að sköpunarskeið önd-
verðrar 19. aldar geti ekki myndað
jafnæskilega andstæðu við módern-
ísku verkin og barokkið. Enda stend-
ur afþreyjandi kammertónlist Boil-
dieus (1775-1834), Ludwigs Spohrs
(1784-1859) og Gioacchinos Rossinis
(1792-1868) álíka fjarri afstraktari
anda Haustlaufa og Serenu, þótt sé
50-100 árum nær en hárkolluöldin.
Umfram allt er umrædd skífa hin
áheyrilegasta, og nánast sérsniðin
fyrir ljóðræna kyrrðarstund. Fyrstu
þrjú verkin, s.s. af snemmróm-
antískum toga, runnu fyrirsjáanlega
ljúft niður þrátt fyrir talsverðar tæki-
kröfur, þó maður saknaði ársetninga
ópusa. Íslenzku nútímaverkin komu
hins vegar meira á óvart, ekki sízt
Haustlauf [11:23] Mistar Þorkels-
dóttur frá 1994, er laðaði fram nærri
erótíska dulúð með m.a. draugalegum
einstrengsglissum hörpunnar og Ar-
abíulegum lagfrumum. Tókst höfundi
þar að magna upp óvænta tilfinningu
fyrir framvindu á milli annars kyrr-
stæðra þrástefjaflata.
Serena [14:31] frá 1995 gæti verið
meðal síðustu verka Leifs Þórarins-
sonar (1934-98; fæðingarár rangfært
1945), er sumir telja meðal frumleg-
ustu tónskálda af fyrstu kynslóð ís-
lenzkra módernista. Áferðin er kyrr-
látt hægferðug og afar sparneytin en
leynir samt á sér, og pentatónískt
lagferli síðasta þriðjungs ljær hörp-
unni nærri japanskan kótókeim. Hér
sem endranær er leikið af yfirvegaðri
íhygli og þokka, og dreymandi heild-
arblærinn gerir diskinn kjörinn fyrir
síðkvöldahlustun – ef ekki á milli
svefns og vöku.
Kyrrðar-
stund á síð-
kvöldum
Íslenzkur hljómdiskur
Serena bbbmn
Sónötur eftir Boieldieu og Spohr; And-
ante con variazioni eftir Rossini. Mist
Þorkelsdóttir: Haustlauf. Leifur Þór-
arinsson: Serena. Laufey Sigurðardóttir
fiðla, Elísabet Waage harpa. Upp-
tökustjórn: Halldór Víkingsson, Fer-
mata. Heildarlengd: 66:36. Smekkleysa
(nr. ótilgreint), 2009.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
LJÓSMYNDASÝNINGIN
Bus Stop verður opnuð í dag,
þriðjudag, í Borgarbókasafni
Reykjavíkur í Tryggvagötu 15
kl. 17.
Ljósmyndinar, sem eru eftir
Sigurð Gunnarsson, eru af tíu
strætóskýlum á höfuðborg-
arsvæðinu og Akranesi og sýna
fjölbreytileikann í hönnun og
gerð skýla í borginni. Enn-
fremur hvernig uppsetning
þeirra getur verið háð umhverfinu.
Sigurður hefur starfað sem ljósmyndari síðustu
þrjú ár, aðallega við blaðaljósmyndun. Þetta er
hans önnur einkasýning. Áður hélt hann sýn-
inguna Goðar Íslands á Kaffi Mokka 2006.
Ljósmyndir
Sýnir strætóskýli
í borginni
Hluti eins verks
Sigurðar.
KVENNAKÓR Hafnarfjarðar
heldur vortónleika í kvöld,
þriðjudag, kl. 20 í Hásölum,
safnaðarheimili Hafnarfjarð-
arkirkju.
Dagskráin er fjölbreytt. Til
að mynda nýtt verk, Stökur,
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur
við ljóð Lilju Sólveigar Krist-
jánsdóttir. Tónverkasjóður
Gígjunnar fékk Hildigunni til
að semja verkið.
Kórfélagarnir syngja um vorið og birtuna. Lög-
in eru úr ýmsum áttum, íslenskar og erlendar vor-
vísur, madrigali, kirkjuleg verk og söngleikjalög.
Stjórnandi kórsins er Erna Guðmundsdóttir og
píanóleikari er Antonia Hevesi.
Tónlist
Kvennakór Hafn-
arfjarðar syngur
Hafnarfjarð-
arkirkja.
ALÞJÓÐLEGI dansdagurinn
er á morgun, miðvikudaginn
29. apríl. Í tilefni dagsins
stendur Félag íslenskra list-
dansara fyrir danssýningum, í
Kringlunni kl.15.30 og í Ráð-
húsi Reykjavíkur kl.17.
Á sýningunum verða ýmis
atriði frá dansskólum höf-
uðborgarsvæðisins. Félagið
hvetur sem flesta til að koma á
sýningarnar og samgleðjast fé-
lagsmönnum á degi dansins. Þá eru skólastjórn-
endur eru hvattir til að virkja nemendur í dansi á
morgun og á „Facebook“ er auglýstur alheims-
viðburðurinn Hug a Dancer þar sem fólk er hvatt
til að grípa næsta dansara og knúsa hann.
Dans
Sýningar á alþjóð-
lega dansdeginum
Allir eru hvattir til
að dansa á morgun.
Hefur Kirkjulistavikan
oft verið haldin á Akureyri?
Þetta er í ellefta skipti sem hátíð-
in fer fram. Hún var fyrst haldin
vorið 1989 og er annað hvert ár.
Er hátíðin svipuð og áður?
Fleiri viðburðir eru á dagskránni
en áður og þá er stefnan hjá nýj-
um stjórnendum, að hampa sem
mest listamönnum í heimabyggð.
Er höfðað til sérstaks hóps að
þessu sinni?
Nei, til allra. „Yngsti markhóp-
urinn er nýfædd börn!“ segir Ey-
þór Ingi Jónsson organisti. Þar á
hann við krílasálma, sem svo eru
kallaðir, en það er samheiti yfir
kirkjuleg tónlistarnámskeið fyrir
ungbörn og foreldra þeirra.
S&S
Við fáum ekki ein-
kunnir, Dönum
finnst svo gaman að tala
saman … 36
»
Ég gat þess fyrir sex árum án ut-
ankomandi andmæla að hermt sé
upp á Mozart að hafi verið flautuhat-
ari. Spurður að gefnu tilefni hvaða
hljóðfæri gæti verið falskara en
flauta kvað hann hafa sagt: Tvær
flautur!
Sé nokkuð hæft í því [af einhverri
ástæðu var flautan löngum eina ein-
skipaða blásturshljóðfærið í hljóm-
sveitarverkum hans og Haydns]
hefði þáverandi hópur á við hinn Ís-
lenzka 14 manna flautukór (nú 13
kvenna og eins karls) átt að vera
honum hreinasta martröð.
En tæpast í dag. Burtséð frá um-
deilanlegu sannleiksgildi sögukvitts-
ins hafa orðið miklar framfarir síðan
þá í flautusmíði. M.a. njóta „upphaf-
legar“ barokktréflautur nútímans
góðs af nákvæmari smíðatækni, og
spilamennskan af tilkomu tónlistar-
skóla sem voru óþekkt fyrirbrigði á
18. öld.
Alltjent var næsta vonlítið að
greina misdægra inntónun í hópleik
ÍFK á tónleikum hans í Neskirkju
fyrir allt frá fimm manna grúppu
upp í 14, enda hver einstaklingur
lokaprófshafi í flautuleik og margir
með viðbótarnám að baki. Þvert á
móti var samhljómurinn undratær,
og eftir fyrsta númerið, þríþættan
Vínarklassískan Concerto Boismor-
tiers, mátti varla greina rytmíska
ósamstæðu svo orð væri á gerandi.
Tilefni tónleikanna var för kórsins
á alþjóðlega ráðstefnu í New York
nk. ágúst í boði þarlendrar „Nation-
al Flute Association“ með verkum
eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Huga
Guðmundsson og Þuríði Jónsdóttur
ÍFK-meðlim. Þau voru ekki á boð-
stólum að sinni, en hinn sænskætt-
aði kórlimur Maria Cederberg átti
hins vegar snotran lítinn „Op. 1“,
Rolling Flutes, er beitti klasa-
hljómatækni af sannfærandi eleg-
ans. Eftir landa hennar Erland von
Koch og Malin Bång voru hið stutta
en dýnamískt bráðfallega Cantilena
og síðan Ljómi, öllu langdregnara og
effektaskotnara hljóðverk, sagt inn-
blásið af Tíma og vatni Steins Stein-
arr. Heimsfrumflutt var Frammenti
di acqua („Vatnsbrot“), gizka áheyri-
legt djassskotið naumhyggjuverk
fundið á netinu eftir G. Scarvaglieri,
nýútskrifaðan kompónista frá Bol-
ogna, og annað ítalskt verk, styttra
og rómantískara eftir N. Piovani, La
vita e bella, rann sætlega niður áður
en fjörug einþætt Cassation J. Felds
lauk kvöldi með skemmtilegu sam-
blandi af hrynfast austrænni penta-
tóník og Hollywood.
Hallfríður Ólafsdóttir sýndi hér
vaxandi stjórnarhæfileika, og þó að
fullmikið ítarefni væri eftirlátið mis-
skýrum munnkynningum þátttak-
enda, þ.m.t. upplýsingar um höf-
unda, ártöl og mismunandi áhafnir
C-fl., alt-, bassafl. & pikkóló, mátti
samt vænta þess að álíka fjölbreytt
dagskrá í jafngóðri túlkun ætti eftir
að gera það gott þar vestra.
Neskirkja
Kammertónleikar bbbb
Verk eftir Boismortier, Scarvaglieri
(frumfl.), Piovani, Malin Bång, Erland von
Koch, Mariu Cederberg (frumfl.) og J.
Feld. Íslenzki flautukórinn; stj. Hallfríður
Ólafsdóttir. Sunnudaginn 19. apríl kl. 20.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Viðsnúin martröð