Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
Sumarútgáfa Senu er nú að taka
á sig mynd og ljóst að fjölmargar
skemmtilegar plötur munu líta
dagsins ljós á næstu vikum og mán-
uðum. Meðal þess sem kemur út má
nefna safn helstu laga og „sketsa“
Tvíhöfða sem gefið verður út í tvö-
faldri geislaplötu á þjóðhátíðardag-
inn 17. júní en heyrst hefur að þeir
Jón Gnarr og Sigurjón Kjart-
ansson muni senda frá sér nýtt
Tvíhöfðaefni í tilefni útgáfunnar.
Tvíhöfða-safndiskur
væntanlegur
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
TÓNLISTIN tröllríður flestu og í ljósi úrslita
undangenginna kosninga er ljóst að hið háa Al-
þingi er komið þétt undir væng hennar. Nýliðun
á Alþingi hefur aldrei verið meiri og í þeim hópi
eru dýrkendur tónlistargyðjunnar allnokkrir.
Þannig flaug inn ein af meginsprautum póst-
módernísku poppsveitarinnar ske, sjálfur Guð-
mundur Steingrímsson (xB) en í hans tilfelli má
segja að enginn flýi örlög sín. Salt jarðarinnar á
þá sinn fulltrúa í höfuðsnillinginum Birni Val
Gíslasyni (xV), skipstjóra á frystitogaranum
Kleifabergi frá Ólafsfirði en hann leiðir hljóm-
sveitina Roðlaust og beinlaust sem sam-
anstendur að mestu af áhöfn nefnds togara. Þá
er Skúli Helgason (xS) kominn inn en hann er
ábyrgur fyrir framsæknu rokkuppeldi margs Ís-
lendingsins í gegnum þætti sína Rokk og ný-
bylgju sem útvarpað var á Rás 2. Nú þá er
Tryggvi Þór Herbertson (xD), hagspekingur
dottinn inn á þing. Hann starfaði eitt sinn hjá
Stúdíó Mjöt og tók meðal annars upp Bubba
Morthens, Greifana og Skriðjöklana. Hann
stýrði t.a.m. upptökum á meistarastykki Bubba,
Konu (1985). Það er ágætt að vita til þess að
þessir fulltrúar stærstu flokkanna geta sest nið-
ur í ljúfmannlegum, innblásnum samsöng eftir
innhaldslaust argaþras dagsins. Nú þarf bara að
henda Ómari, Bubba og Jakobi Frímanni inn og
þá er þetta orðið nokkuð skaplegt.
Alþingi hljómar bara býsna vel!
Morgunblaðið/ Jim Smart
Pólitískur söngvaseiður Björn Valur Gíslason.
Spurningakeppnin Bubba-
sérfræðingurinn fór fram á föstu-
daginn á Classic Rock en keppnin
var nú haldin í annað sinn. Töluvert
færri öttu kappi í ár en í fyrra en
meðal þeirra sem stóðu að skipu-
lagningunni var sigurvegari síðasta
árs, Bárður Örn Bárðarson.
Eftir að keppendur höfðu þreytt
skriflegt próf kepptu fimm stiga-
hæstu keppendurnir til úrslita og
var sú umferð munnleg. Skemmst
er frá því að segja að Birkir Hrafn
Jóakimsson hlaut nafnbótina
Bubbasérfræðingurinn 2009 og
hlaut að launum glæsileg verðlaun í
boði Hótel Keflavíkur, Rizzos, Aski
við Suðurlandsbraut, Senu og
geisladiskabúðar Valda auk bikars
ásamt áritaðri mynd af Bubba.
Fámennt á Bubba-
sérfræðingnum
Kaffihúsið á horni Frakka- og
Kárastígs er nú orðið helsta bó-
hema-kaffihús bæjarins og þar af-
sannast á hverjum morgni sú goð-
sögn að listamenn séu framlágir.
Árrisulir listamenn
á Kaffismiðjunni
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„MAÐUR þarf að fara að dusta flös-
una af smókingnum,“ segir Rúnar
Rúnarsson kvikmyndagerðarmaður
sem er nú kominn með mynd inn á
Cannes-hátíðina í annað skiptið.
Tilkynnt var í gær að stuttmyndin
Anna eftir Rúnar hefði verið valin til
þátttöku á Cannes kvikmyndahátíð-
inni í ár. Þar mun hún keppa um
SFR-verðlaunin
fyrir bestu stutt-
myndina innan
41. „Directors’
Fortnight-
dagskrárinnar“
og verður heims-
frumsýnd við það
tækifæri.
„Það er mjög
gaman að byrja
með myndina á
Cannes og er ég
núna að vinna í því að klára hana
fullkomlega. Ég var með Smáfugla á
Cannes í fyrra í aðalkeppninni en
Anna er hálfgerður bastarður hvað
varðar tímalengd, hún er alveg 35
mínútur að lengd og setur það mér
ákveðnar hömlur. Miðað við hvað
það eru margar kvikmyndahátíðir í
heiminum fyrir stuttmyndir eru ekki
mjög margar fyrir þetta milliform.“
Rúnar segir óvinsælt að hafa
stuttmyndir svona langar. „Direc-
tors’ Fortnight er eini vettvang-
urinn á Cannes sem sýnir svona
millilangar myndir eins og mína en
innan þessa flokks eru líka styttri og
lengri myndir. Inn í aðalkeppnina á
Cannes eru til dæmis bara teknar
stuttmyndir upp að fimmtán mín-
útum.“
Fær enga tíu
Anna fjallar um unga stúlku á við-
kvæmu tímabili lífs síns. Hún býr í
sjávarplássi úti á landi og upplifir
sig á krossgötum í lífinu, umhverfi
hennar er að breytast og það á einn-
ig við um hana.
Myndin er tekin upp í Danmörku
og er útskriftarmynd Rúnars frá
hinum Konunglega danska kvik-
myndaskóla en Rúnar lýkur þaðan
námi í vor. „Það hefur ekki gerst áð-
ur í skólanum að mynd nemanda
hafi verið frumsýnd á virtri hátíð
fyrir útskrift,“ segir Rúnar sem á
samt ekki von á neinni tíu. „Nei, við
fáum ekki einkunnir, Dönum finnst
svo gaman að tala saman að verk-
efnin eru bara rædd.“
Rúnar segir að fleiri kvik-
myndahátíðir hafi sýnt áhuga á
Önnu en ekkert sé enn ákveðið í
þeim efnum. „En hún á eftir að fara í
eitthvert ágætis ferðalag um heim-
inn.“
Fyrsta kvikmynd Rúnars í fullri
lengd er nú á vinnuborðinu og er
stefnt að tökum á henni 2010. Hún
verður líklega tekin á Íslandi og
fjallar um mann sem fer á eftirlaun.
Rúnar fór ekki með Gullpálmann
heim af Cannes í fyrra en aldrei er
að vita hvað gerist í ár. „Það er gam-
an þegar vel gengur en sigurmyndin
er mat nokkurra manneskja sem
skipa dómnefnd í hvert skipti svo
þetta kemur bara í ljós. Annars er
bara eintóm gleði að vera kominn á
Cannes.“
Anna keppir í Cannes
Rúnar Rúnarsson fer með sína aðra stuttmynd til Cannes Myndin er
útskriftarverkefni Rúnars frá hinum Konunglega danska kvikmyndaskóla
Anna Myndin gerist í sjávarþorpi í Danmörku og er söguhetjan tólf ára stelpa. Anna er á viðkvæmu tímabili í lífi sínu
og fylgst er með breytingum sem verða á henni sjálfri og í umhverfi hennar. Myndin er útskriftarverkefni Rúnars.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
JÓHANN Jóhannsson nýtur mik-
illar farsældar í alþjóðlegum heimi
nútímatónlistar og ekkert lát er á
eftirspurn eftir kröftum hans þar ef
svo mætti segja. Síðasta hljómplata
hans, Fordlândia, kom út í fyrra og
treysti nafn hans þar enn frekar í
sessi. Þannig leggur Jóhann upp í
tónleikaferð um Bandaríkin í júní og
í júlí leikur hann á blásturs-
hljóðfærahátíð í Englandi en með-
fram þessu er hann að vinna tónlist
fyrir kvikmyndir, m.a. ljóðræna og
heimspekilega heimildarmynd um
Kaupmannahöfn eftir einn helsta
leikstjóra Dana af yngri kynslóðinni,
Max Kestner og svo mynd eftir
mexíkóska leikstjórann Alejandro
Molina.
Það helsta
Nú í maí kemur Jóhann þá fram á
hinn virtu Futuresonic-hátíð í Man-
chester, sem tekur á nútímatónlist í
sem víðustum skilningi. Hátíðin hef-
ur verið keyrð síðan 1995 og nýtur
mikillar virðingar sem slík. Stendur
hún í fjóra daga, frá 13. til 16. maí.
Aðalnúmerið í ár er sjálfur Philip
Glass, eitt áhrifamesta nútíma-
tónskáld sem uppi hefur verið og
mun hann leika úrval verka sinna á
píanó og mun aukinheldur spjalla á
milli laga og gera grein fyrir tilurð-
inni. Í greinargerð Manchester
Confidential um hátíðina er Jóhann
dreginn fram sem eitt af því helsta
sem hátíðina prýðir, ásamt Glass,
dómsdagsrokksgoðsögnunum í
Electric Wizard, lo-fi undrinu Ariel
Pink og jaðarhipphopphópnum Anti
Pop Consortium.
Jóhann Jóhannsson
á hátíð með Philip Glass
Ljósmynd/Magnús Helgason
Stór Vegur Jóhanns Jóhannssonar breikkar sífellt.
Tónskáldið er einn af risum nútímatónlistarinnar
„Ég er að vonast til að koma
Smáfuglum á undan einhverri
mynd á næstunni og mér skilst
að framleiðendurnir séu í við-
ræðum við Sjónvarpið um sýn-
ingu. Ég veit ekki á hvaða stigi
þær viðræður eru,“ segir Rúnar
spurður hvort landar hans fái
ekki að sjá hina farsælu stutt-
mynd Smáfugla bráðlega.
Myndin hefur nú hlotið yfir
fjörutíu alþjóðleg verðlaun.
Smáfuglar
Rúnar
Rúnarsson