Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 118. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SKOÐANIR»
Staksteinar: Svipurinn á VG
Forystugrein: Önnur verkefni
Pistill: „Ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokksins“
Ljósvaki: Einstakt efni um
ljósmyndun
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-,.
*/,-00
*1.-2/
++-,+3
*,-3,0
*0-,11
**4-33
*-430.
*,4-,0
*21-2/
5 675 +2# 869 +11,
*41-+2
*,1-1*
*12-1,
++-,,*
*,-00+
*0-,32
**4-2.
*-43,0
*,3-04
*2*-+.
++4-113.
&:8
*41-0/
*,1-32
*12-31
+4-10/
*,-.1,
*0-,,3
**3-1/
*-4043
*,0-**
*2*-23
Heitast 12°C | Kaldast 5°C
8-13 m/s og rigning
eða súld vestan til.
Hægari og skýjað norð-
austan- og austanlands.
Hvessir vestan til síðdegis. »10
Syngjandi skip-
stjóri, nikkari, upp-
tökustjóri, útvarps-
maður. Það er fullt
af tónlistarfólki
komið á þing. »36
ALÞINGI»
Býður upp á
samsöng
TÓNLIST»
Gestur á hátíð þar sem
Glass er í forsæti. » 36
Tuskuleg föt, kögur,
laxableikt og rifnar
sokkabuxur. Hvers-
konar sumartíska er
það eiginlega sem
boðið er uppá? » 41
TÍSKA»
Er þetta eitt-
hvað flott?
FÓLK»
Þrátt fyrir grímurnar
þekktust stjörnur. » 40
FÓLK»
Nei, hann vill alls engar
reykingar! » 37
Menning
VEÐUR»
1. Skeindi sig með kjörseðli
2. Kynþroska sjö ára
3. Búist við að helmingur geti sýkst
4. „Skrítnasta helgi lífs míns“
Íslenska krónan hélst óbreytt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
ÞAÐ fór vel á með þessum þremur þar sem þau
sátu saman í kosningakaffi hjá Framsókn á Ísa-
firði um helgina. Þetta var þó nokkuð merkileg
stund hjá heiðurskonunni Herdísi Albertsdóttur
því hún hefur aldrei áður á sinni hundrað ára
ævi farið í kosningakaffi. Hún hefur heldur aldr-
ei kosið og lét það líka vera í þetta sinn. En hver
veit hvað hún gerir næst, fyrst hún er farin af
stað. Henni til halds og trausts voru barna-
barnabarnið Sigurður Jónsson og barnabarna-
barnabarnið Ragnar Óli Sigurðsson, sem sátu
stoltir með ættmóðurina á milli sín.
Aldargömul og skellti sér í fyrsta sinn í kosningakaffi
Hefur aldrei kosið en þótti kaffið gott
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
HAUKAR og Valur áttust við í
fyrsta leiknum í úrslitum Íslands-
mótsins í handknattleik karla í gær
og þar höfðu Haukar betur, 29:24.
Haukar hafa titil að verja en það lið
sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Ís-
landsmeistari. Aron Kristjánsson,
þjálfari Hauka, var ánægður með
niðurstöðuna. „Ég er fyrst og
fremst gríðarlega ánægður með
sigurinn. Spennustigið var rétt því
við skiluðum góðri frammistöðu,“
sagði Aron en næsti leikur fer fram
á morgun, miðvikudag. | Íþróttir
Haukar sterkir
á heimavelli
Öflugur Kári Kristján Kristjánsson
skoraði 5 mörk fyrir Hauka.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„ÞETTA var nú svolítið sérstakt því
froskurinn hafði á einhvern hátt
komist í handfarangur ferðalangs á
leið frá Taílandi. Farþeginn varð
ekki var við froskinn fyrr en hann
kom heim til sín,“ segir Erling Ólafs-
son skordýrafræðingur. Komið var
með froskinn á Náttúrufræðistofnun
fyrir helgi og þar drapst hann um
helgina.
„Ég var feginn að þurfa ekki að
aflífa hann, það er alltaf erfitt þegar
svona falleg kvikindi eiga í hlut,“
segir Erling. Hann segir að enginn
ásetningur hafi verið með þessum
innflutningi. Ekki sé hins vegar ráð-
legt annað en að aflífa svona gesti
„því maður veit aldrei hvað getur
borist með svona kvikindum“.
Ekki hafði Erling upplýsingar um
hvernig eiganda handfarangursins
varð við þegar froskurinn bærði á
sér. Froskurinn var tæplega 10
sentímetra langur og á heimasíðu
Náttúrufræðistofnunar er greint frá
heimsókn þessa myndarlega og
skrautlega frosks, eins og það er
orðað.
„Þetta er hin snotrasta skepna og
það er líkast því að bleik rönd hafi
verið máluð á hliðar hans. Tegundin
er útbreidd í Suðaustur-Asíu, frá
Nepal og NA-Indlandi um Myanmar
og Taíland til S-Kína, Singapore, Sú-
mötru, Borneó og Súlawesi.“
Froskur laumufarþegi
Fannst óvænt í handfarangri „Hin snotrasta skepna og
það er líkast því að bleik rönd hafi verið máluð á hliðar hans“
Ljósmynd/Erling
Skrautlegur Froskurinn endaði líf-
daga sína á Íslandi um helgina.
Í HNOTSKURN
»Þessir froskar lifa ekki ívatni. Þeir dyljast í rökum
gróðri og mosa, m.a. í skóg-
arbotnum og á hrísgrjónaökr-
um, jafnvel inni á frumstæðum
heimilum.
»Tegundin er vinsælt gælu-dýr og fara fram umtals-
verð viðskipti með hana á
þeim oft vafasama markaði,
segir m.a. á ni.is
Skoðanir
fólksins
’Sem dæmi um fyrirtæki semstendur sig vel í að halda í þekk-ingu á þessum umrótatímum er ToyotaMotor Company. Stjórnendur þarþurftu að draga verulega úr framleiðslu
vegna minnkandi eftirspurnar. » 24
INGRID KHULMAN
’ Hvað gerðu eftirlitsstofnanir, Fjár-málaeftirlit (FME) og Seðlabanki,þegar bankarnir þöndust út og söfnuðuótakmörkuðum erlendum skuldum?Þær gerðu ekkert. Þær sátu með hend-
ur í skauti. » 25
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
’ Lánveitendur þurfa ekki að metaáhættuna á rýrnun eigna sinna þvíþeir eru með belti, axlabönd og örygg-isnælu. Gagnrýni og ótti fjármagnseig-enda við að tapa fé á verðbólgu er
nauðsynlegt aðhald á stjórnvöld til að
þau sýni ráðdeild í rekstri. » 26
SVERRIR ÖRN SIGURÐSSON
’ Við einhliða upptöku US$ er þaðkostur að mikilvægar innflutnings-vörur, eins og t.d. olía, eru verðlagðar ídollurum, eins og mikilvægar útflutn-ingsvörur eins og ál. Þá hafa ýmis ríki
tekið upp US$ einhliða án refsiað-
gerða. US$ er jafnframt enn útbreidd-
asti gjaldmiðill heims. » 27
BELINDA ÞURÝ THERIAULT,
EYSTEINN JÓNSSON
BJÖRG KJARTANSDÓTTIR
Eins og ástandið er núna þarf bjargráð
sem duga en ekki einhverjar innfluttar
skyndilausnir. Samfylkingin eins og
reyndar ríkisstjórnin öll þyrfti að hysja
upp um sig buxurnar og grípa til að-
gerða sem duga í efnahags- og at-
vinnumálum nú þegar. » 27
STEFÁN S. GUÐJÓNSSON
’ Til þeirra sem málið varðar bið égþá vinsamlegast að setja hug-myndir sínar um fyrningarleið í nefndog vinna málið betur. Í þeirri vinnu á aðkalla á hagsmunaaðila þar sem leitað
verði að niðurstöðu sem efla mun
helstu atvinnugrein Íslendinga, sjávar-
útveginn, enn frekar. » 28
ÖRN PÁLSSON