Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 2
MAÐURINN
sem lést í um-
ferðarslysi á
Grindavíkurvegi
að morgni sl.
miðvikudags hét
Sigurfinnur
Jónsson, til heim-
ilis í Grindavík.
Hann var 48 ára.
Sigurfinnur lætur eftir sig eiginkonu
og þrjú börn.
Lést í um-
ferðarslysi
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BORGARSTARFSMENN settu í gær upp skilti til að benda ökumönnum
sem aka af Vesturlandsvegi upp í Grafarholt eða Grafarvog á að gæta að
hraðanum svo þeir aki ekki yfir fuglana sem sækja í tjörnina við veginn.
Gætum að andarungunum
Morgunblaðið/Heiddi
UM 350 krakkar sungu inn lista- og menning-
arhátíðina Bjarta daga á Thorsplani í Hafn-
arfirði í gærmorgun. Síðar um daginn söng Jó-
hanna Guðrún Jónsdóttir Evróvisjón-lagið sitt
„Is it true?“ fyrir gesti á hátíðinni en Jóhanna
var útnefnd bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í
gær. Kristján Tryggvi Martinsson tónlist-
armaður og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir fengu
hvatningarstyrki bæjarins. Á hátíðinni, sem
stendur í 11 daga, verða fjölbreyttir tónleikar,
myndlistarsýningar, bíó- og leiksýningar, rat-
leikir, fuglaskoðun og fleira.
Morgunblaðið/Ómar
FRÁBÆR STEMNING Á BJÖRTUM DÖGUM
FIMMTÁN ára stúlku, sem ekið var
á á Breiðholtsbraut um fjögurleytið í
gær, er haldið sofandi í öndunarvél á
gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi. Stúlkan var á hjóli þegar
ekið var á hana á móts við Ögur-
hvarf. Læknir á gjörgæsludeildinni
vildi lítið segja um ástand stúlkunn-
ar, en samkvæmt lögreglu var hún
mjög alvarlega slösuð.
Eftir slysið í gær varð um tíma
mikil umferðarteppa á Breiðholts-
brautinni um Víðidal í vestur.
Ekið á
fimmtán
ára stúlku
Henni er haldið
sofandi í öndunarvél
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
átta ára fangelsisdóm yfir manni
sem beitt hafði stjúpdóttur sína kyn-
ferðisofbeldi í níu ár. Mun þetta vera
þyngsti dómur sem fallið hefur hér á
landi í kynferðisbrotamáli.
Maðurinn var dæmdur fyrir að
hafa á árunum 2004 til 2007, þegar
stúlkan var 11 til 14 ára, nauðgað
henni tvisvar til þrisvar sinnum í
viku. Brotin, sem áttu sér stað á
heimili stúlkunnar og mannsins, hóf-
ust með þukli og kossum þegar hún
var fimm ára.
Sigríður Björnsdóttir, formaður
félagsins Blátt áfram, fagnar dóm-
inum. „Ég fagna því að það skuli
vera tekið harkalegar en áður á kyn-
ferðislegu ofbeldi gegn börnum.
Vonandi verður þessi dómur um-
hugsunarefni fyrir þá menn sem
hafa slíkt í huga svo að þeir leiti sér
hjálpar. Vonandi verður þessi dómur
einnig til þess að þeir sem hafa orðið
fyrir ofbeldi beri fram kæru. Þolend-
ur hafa í allt of mörgum tilfellum
ekki séð neinn tilgang í því að kæra,“
segir Sigríður.
Stúlkan, sem nauðgað var af
stjúpföður sínum, sagði skólastjóra
sínum frá ofbeldinu haustið 2007 og
hann hafði þá samband við lögregl-
una.
Fullsannað þótti, með trúverðug-
um framburði stúlkunnar, vitnis-
burði og vottorði læknis um líkam-
legt ástand hennar, og
forstöðumanns Barnahúss um and-
legt ástand hennar, auk vitnisburðar
móður stúlkunnar um andlegt
ástand hennar og samskipti hennar
við stjúpföðurinn, að hann hefði
framið þann verknað sem lýst var í
ákæru.
Héraðsdómur Suðurlands hafði
áður dæmt manninn í átta ára fang-
elsi og til að greiða stúlkunni 3 millj-
ónir í bætur. Hæstiréttur lækkaði
upphæðina um hálfa milljón en tveir
dómarar töldu ekki ástæðu til þess.
ingibjorg@mbl.is
Þyngsti dómur í
kynferðisbrotamáli
Fékk átta ára fangelsi fyrir ítrekað ofbeldi gegn stjúpdóttur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8
FULLTRÚAR
Samfylkingarinnar í
borgarráði lögðu til
á fundi ráðsins í
gær, að gerð yrði út-
tekt á hraðakstri og
kappakstri í borg-
arlandinu og gerðar
tillögur að úrbótum
og frekari stefnu-
mörkun borgarinnar um hraða um-
ferðar innan borgarlandsins.
Er í tillögunni vísað til umferðarör-
yggisstefnu borgarinnar, m.a. með
hliðsjón af slysum og slysablettum og
reynslu af 30 kílómetra hverfum.
Gert er ráð fyrir, að úttektin verði
unnin í samráði við lögreglu, Rann-
sóknarnefnd umferðarslysa og trygg-
ingafélög, íbúa og aðra hags-
munaaðila, eftir atvikum.
Vilja úttekt
á hraðakstri í
borgarlandinu
Dagur B.
Eggertsson