Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA hefur gengið rosalega vel,“ segir myndlistarmaðurinn Curver Thoroddsen um gjörning sinn, Sliceland – Vestustu pizzur í Evrópu, sem stendur nú yfir í Bjargtangavita á Vestfjörðum. Cur- ver hefur breytt vitanum í pizzu- stað þar sem hann bakar lundapizz- ur í gríð og erg, gestum vitans til mikillar gleði. „Það hafa bæði ferðamenn og heimamenn komið að skoða og flestum hefur litist vel á, og flestir hafa prófað lundapizzur. Að vísu komu tveir bandarískir dýravernd- unarsinnar, og þeir vildu ekki þannig pizzu,“ segir Curver og hlær. Aðspurður segir listamaðurinn að flestir þeir sem hafi fengið sér pizzu hafi verið mjög hrifnir af þessari nýstárlegu uppskrift að ítölskum flatbökum. „Lundakjöt er náttúrlega mjög gott. Það er mikið kjötbragð af því og það mætti segja að það væri mitt á milli nautakjöts og túnfisks. Það passar hins vegar einstaklega vel á pizzur með ostinum og tómatsós- unni.“ Ekkert samviskubit Gjörningurinn hefur staðið yfir frá því Listahátíð í Reykjavík hófst, hinn 15. maí, og stendur til sunnu- dags, 31. maí. Verkið er hluti af verkefninu Brennið þið, vitar! þar sem fjórir myndlistarmenn voru fengnir til að setja upp verk í jafn- mörgum vitum í hverjum lands- fjórðungi. Curver segir að fjöldi gesta á sína sýningu sé kominn vel yfir hundrað og fjöldi pizzusneiða sé eftir því. „Mér finnst annars alveg magnað hvað ferðamennirnir eru kaldir á því, þeir koma til að skoða lundann, fara út að bjargi og stúdera fuglinn og koma svo og fá sér heita og ljúf- fenga lundapizzu án þess að vera með nokkurt samviskubit,“ segir Curver sem ætlar að baka pizzur í dag, á morgun og á sunnudaginn, frá kl. 13 til 20. Sýningin sjálf stendur hins vegar til 2. ágúst, en þar verður hægt að skoða innrétt- ingar listamannsins, auk mynd- bands og ljósmynda frá gjörn- ingnum. Bakarinn „Lundakjöt er náttúrlega mjög gott. Það er mikið kjötbragð af því og það mætti segja að það sé mitt á milli nautakjöts og túnfisks,“ segir Curver Thoroddsen sem sést hér baka gómsæta lundapizzu. Lundapizzur rjúka út  Gjörningur Curvers Thoroddsen í Bjargtangavita hefur gengið vel  Bandarískir dýraverndunarsinnar vildu þó engar pizzur Tveir vildu ekki lundapizzur mbl.is | SJÓNVARP Illu er best aflokið. Best aðfjalla fyrst um það neikvæðaá tónleikum Tríós Nordica íListasafni Íslands á þriðju- dagskvöldið. Fullmikil glymjandi var í salnum, sem gerði að verkum að veikt spil magnaðist upp. Út- koman var því einhæf, það var eins og spilað væri sterkt allan tímann. Megnið af efnisskránni samanstóð af rómantískri tónlist, sem er öfga- full í báðar áttir. Hún einkennist af andstæðum, ekki síst í styrkleika. Túlkunin var því ekki eins sann- færandi og hún hefði getað orðið. Það er synd, því spilamennskan var að öðru leyti frábær. Skemmti- legt tríó op. 7 eftir hinn finnska Toivo Kuula (1883-1918) var nota- lega síðrómantískt, með léttum Skrjabín-blæ. Samleikurinn var hárnákvæmur og hver hljóðfæra- leikari spilaði hreint, af gífurlegum krafti. Sömu sögu er að segja um grípandi Allegró í D-dúr eftir Sib- elius. Hvorugt verkið hefur heyrst hér áður. Ein tónsmíð var frumflutt á tón- leikunum, Scherzo eftir Þórð Magn- ússon. Það er glæsileg músík, form- ið einfalt, nánast þráhyggjukennt. Áberandi voru áleitnar hendingar, nett fyndnar. Orðið scherzo þýðir brandari. Brandarinn var frávik, pása frá ofsafengnum tilfinningum sem annars gegnsýrðu dagskrána. Þórður er auðheyrilega gott tón- skáld. Tónleikunum lauk með hinu ljúfa tríói nr. 1 í d-moll eftir Mendels- sohn. Tríóið var snilldarlega leikið, fyrir utan það sem nefnt var í byrjun. Rómantíkin var aftur alls- ráðandi, full af skemmtilegum lag- línum og safaríkum blæbrigðum. Hún var í furðulegri mótsögn við kuldaleg myndverkin eftir Krist- ján Guðmundsson sem skreyttu veggina! Sennilega hefði mátt hugsa staðsetningu tónleikanna aðeins betur. Rómantík á röngum stað Listasafn Íslands Kammertónleikar – Listahátíð í Reykjavík bbbmn Tríó Nordica (Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Mona Kontra) flutti verk eftir Kuula, Sibelius, Mendelssohn og Þórð Magnússon. Þriðjudagur 26. maí. JÓNAS SEN TÓNLIST Sk ar tg rip ir C O N C E P T S T O R E Laugavegi 7 • 101 Reykjavík Sími 561 6262 • www.kisan.is Servane Gaxotte – meira fyrir áskrifendur Glæsilegt sérblað fylgir með Morgunblaðinu 6. júní Garðablað Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Meðal efnis verður : • Skipulag garða • Garðblóm og plöntur • Sólpallar og verandir • Hellur og steina • Styttur og fleira í garðinn • Garðhúsgögn • Heitir pottar • Útiarnar • Hitalampar • Útigrill • Matjurtarækt • Kryddrækt • Góð ráð við garðvinnu • Ásamt fullt af spennandi efni Garðablaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumarhúsgögn og grill. Garðablaðið verður stílað inn á allt sem viðkemur því að hafa garðinn og nánasta umhverfið okkar sem fallegast í allt sumar. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569-1105 eða kata@mbl.is Tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 14.00, þriðjudaginn 2. júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.