Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Þingsályktun-artillagasjálfstæð- ismanna og fram- sóknarmanna um undirbúning um- sóknar um aðild að Evrópusambandinu ætti að geta orðið grundvöllur að tals- vert víðtækri pólitískri sátt um málið. Samstöðuleysi ríkisstjórn- arflokkanna um þetta mik- ilvæga mál og margvíslegir ágallar á þingsályktun- artillögunni, sem Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra mælti fyrir á þingi í gær, opn- uðu stjórnarandstöðunni leið til að ná frumkvæði í málinu. Flestar af tillögum sjálfstæð- ismanna og framsóknarmanna eru skynsamlegar. Þeir vilja fela utanríkismálanefnd Al- þingis annars vegar að setja saman greinargerð um mik- ilvægustu hagsmuni Íslands í viðræðum við ESB og hins veg- ar vegvísi vegna mögulegrar umsóknar, sem taki til álita- mála vegna upphafs aðild- arviðræðna og hvaða ráðstaf- anir þurfi að gera vegna staðfestingar aðildarsamnings- ins. Fyrra atriðið er fljótunnið verk. Upplýsingar um hags- muni Íslands í viðræðum við ESB liggja fyrir í ótal skýrslum utanríkisráðuneytis og Evrópu- nefnda, sem starfað hafa und- anfarin ár. Ísland hefur auk þess tekið þátt í meiripartinum af öllu samstarfi ESB-ríkjanna í gegnum EES- og Schengen- samningana undanfarinn einn og hálfan áratug. Líklega hefur ekkert ríki verið betur undir að- ildarviðræður búið eða vitað betur að hverju það gengur með aðild að Evr- ópusambandinu. Hvað vegvísinn varðar eru stærstu álitaefnin væntanlega hvernig standa skuli að þjóðaratkvæða- greiðslu um aðildarsamning og hvaða stjórnarskrárbreytingar séu nauðsynlegar vegna ESB- aðildar og hvernig þær skuli gerðar. Á þessu sviði hefur einnig verið unnin mikil vinna í stjórnkerfinu og af hálfu fræði- manna, auk þess sem marg- vísleg fordæmi frá nágranna- löndunum liggja fyrir. Sá frestur til að ljúka þessari vinnu, sem í þingsályktun- artillögu stjórnarandstöðu- flokkanna er miðaður við ágúst- lok, er því rúmur ef eitthvað er og sennilega má ljúka þessu verki á mun skemmri tíma ef viljinn er fyrir hendi. Í Samfylkingunni vilja sumir leggja inn aðildarumsókn strax í júní eða júlí. Nokkurra vikna eða mánaða frestun á því skiptir miklu minna máli en það að ná víðtækri, pólitískri samstöðu um málið. Og nú gefst færi á því. Össur Skarphéðinsson áttar sig sennilega á þessu. Alltént fagnaði hann tillögu stjórn- arandstöðunnar er hann mælti fyrir sinni eigin á þingi í gær. Nú virðist liggja beint við að hann gangi til viðræðna við stjórnarandstöðuna um breyt- ingar á annarri hvorri tillög- unni, sem tryggja um hana víð- tæka samstöðu, eða þá nýja tillögu, sem getur fengið góðan meirihluta á Alþingi. Nú liggur beint við að stjórn og stjórn- arandstaða gangi til viðræðna} Sátt um ESB-umsókn? Knattspyrnufer-ill Eiðs Smára Guðjohnsen er með ólíkindum og náði hann nýjum hæðum þegar hann hóf verðlaunabikarinn í Meist- aradeild Evrópu á loft í Róm á miðvikudagskvöld eftir yf- irburðasigur Barcelona á Man- chester United. Eiður Smári hefur komið víða við á ferli sínum. Hann hefur leikið með tveimur knatt- spyrnuliðum á Íslandi, einu í Hollandi, tveimur á Englandi og er nú hjá FC Barcelona, sem sennilega er besta knatt- spyrnulið heims um þessar mundir. Eiður Smári lék stórt hlut- verk í liði Chelsea þegar það varð enskur meistari í tvígang, 2005 og 2006. Hann hefur ekki gegnt sama hlutverki hjá Barcelona, en þó komið reglu- lega við sögu þrátt fyrir að keppa við marga af bestu knatt- spyrnumönnum heims um að komast í lið. Hjá Barcelona er nú að baki eitt glæsilegasta tímabil í sögu fé- lagsins. Aldrei áður hefur liðið orðið spænskur deild- armeistari, spænskur bik- armeistari og Evrópumeistari. Það er ekki lítið afrek að eiga þátt í þeirri sögu. Eiður Smári hefur einnig gegnt mikilvægu hlutverki í íslenska landsliðinu og skorað 23 mörk í 57 leikjum, en næstur kemur Ríkarður Jónsson með 17 mörk. Þegar Eiði Smára tekst vel upp er unun að fylgjast með honum. Hann hefur fullkomið vald á boltanum og næmt auga fyrir meðspilurum sínum og gangi leiksins. Hann er martröð hvers varnarmanns, marka- skorari af guðs náð og getur með einfaldri sendingu splundr- að vörn andstæðingsins. Eiður Smári hefur fyrir löngu skipað sér á bekk með helstu knattspyrnumönnum Íslands og það verður bið á því að annar Ís- lendingur komist á sama stall og hann hefur gert hjá Barce- lona. Í liði með bestu knattspyrnumönn- um heims} Eiður Smári í fremstu röð R íkisstjórnin stendur frammi fyr- ir verkefni sem þarf mikinn dugnað til að leysa. Skera þarf niður í ríkisfjármálum um a.m.k. 50 milljarða fyrir næsta fjárlagaár. Um málið hefur verið rætt í all- an vetur. Þó tókst stjórnmálaflokkunum að segja ósköp lítið um þetta mál í aðdraganda kosninga enda er óvinsælt að tala um nið- urskurð rétt áður en þjóðin gengur að kjör- borði. Ríkisstjórnarflokkarnir eyddu meiri tíma og orku í að lýsa því yfir hvar ætti ekki að skera niður heldur en hvar sparn- aður ætti að fást. Í kosningabaráttunni kom til dæmis skýrt fram að ekki ætti að skera niður í menntamálum, málefnum fatlaðra, umhverfismálum og þetta var svo allt toppað með lof- orði um „velferðarbrú“ sem hljómar frekar eins og eitthvað sem kallar á aukin útgjöld í stað nið- urskurðar. Að mínu mati hafa ráðandi stjórnarflokkar ekki enn tekið af skarið um hvar eigi að skera niður. Ég vil leyfa mér að líkja Samfylkingu og Vinstri grænum við lækni sem fær til sín fársjúkan mann. Læknirinn skoðar sjúklinginn og segir kumpánalegur: „Heyrðu félagi. Við erum bara í góðum málum. Við þurfum ekki að skera úr þér lifrina, hjartað, magann né augun. Við þurfum ekki einu sinni að klippa þig því þú ert með svo rosalega flotta klippingu!“ Eftir situr sjúklingurinn fársjúkur, mögulega með eitt eða tvö óstarfhæf líffæri sem læknirinn þorði ekki að snerta á, en frábært hár. Á næstu dögum þarf rík- isstjórnin að sanna sig. Er hún George Clooney að leika lækni eða er hún alvöru skurðlæknir sem fær kekkjóttar blóðgusur í andlitið? Alvöru læknar þurfa að lykta af alvöru blóði. Ég verð örugglega óvinsæll fyrir að segja þetta, en að mínu mati eiga hin svo- kölluðu samræðustjórnmál síst við um ákvörðun um niðurskurð. Umræðurnar geta aldrei náð því plani að vera málefna- legar. Það er fáránlegt að fá álit stjórnsýsl- unnar eða starfsmanna hennar á því hvar eigi að skera niður. Hvert einstakt stjórn- sýsluembætti hugsar einungis um eigin hagsmuni þegar kemur að áliti um nið- urskurð. Þetta hefur verið margítrekað af fræðimönn- um. Ákvarðanir um niðurskurð eru, því miður fyrir umræðuflokkana Samfylkingu og Vinstri græna, hreinar pólitískar ákvarðanir. Pólitískar ákvarðanir sem þarf að taka hratt og örugglega eftir skýrri pýra- mídaleið. Jóhanna Sigurðardóttir getur ekki komist upp með að láta undirmenn sína taka ákvarðanir um niðurskurð. Hún mun þurfa að taka þessar ákvarðanir sjálf og bera ábyrgð á þeim. Að öðrum kosti er hún ekki leiðtogi þjóðarinnar. Ég gef lítið fyrir yfirlýs- ingar hennar um hvaða hluta velferðarkerfisins eigi að vernda ef hún getur ekki sagt skýrum orðum hvar eigi að skera niður um 50 milljarða fyrir næsta fjárlagaár. bergur.ebbi.benediktsson@gmail.com Bergur Ebbi Pistill Upp með hnífinn FRÉTTASKÝRING Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is B ágt efnahagsástand, at- vinnuleysi og örvænting eru aðstæður sem auka hættu á ofbeldisbrotum og ránum af ýmsu tagi, að sögn afbrotafræðings. Hins vegar ber að forðast að draga of víðtækar ályktanir af nýlegum innbrotum í Garðabæ og á Seltjarnarnesi þar sem ráðist var með fólskulegum hætti á eldri borgara á heimilum sínum. Friðrik Smári Björgvinsson, yf- irmaður rannsóknardeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að umrædd tilvik séu ekki sambæri- leg nema að litlu leyti. „Á Arnarnes- inu var ásetningur að ráðast inn á fyr- irfram ákveðið fólk með valdi og því m.a. hótað lífláti en á Seltjarnarnes- inu kom húseigandinn að mönnum sem voru að athafna sig við innbrot. Ég held því að við ættum ekki að draga þær ályktanir af þessum mál- um að ofbeldi sé að aukast sér- staklega.“ Undir þetta tekur Helgi Gunn- laugsson, afbrotafræðingur og pró- fessor í félagsfræði við Háskóla Ís- lands. „Það má segja að ákveðnar tegundir rána komi í bylgjum. Á tímabili virtust pitsusendlar verða mikið fyrir barðinu á ræningjum, svo voru það bankaránin og þá klukku- búðaránin. Núna gæti svo virst sem heimilin væru í skotlínunni. Séu þessi tvö tilvik skoðuð kemur hins vegar í ljós að á þeim eru vissar skýringar. Í öðru málinu virðast vera ákveðin fjöl- skyldutengsl og í hinu er um að ræða úrsmið sem er með verkstæði heima hjá sér sem gerði hann e.t.v. að ákveðnu skotmarki.“ Friðrik Smári segir að innbrotum og þjófnuðum hafi klárlega fjölgað undanfarið og einnig séu merki um að handrukkarar komi við sögu í tengslum við aðrar kröfur en fíkni- efnaskuldir. „Það er orðrómur um það þótt ekkert sé staðfest í þeim efn- um,“ segir hann. Áhrifin óbein og koma seint Helgi bendir á að í tíðaranda eins og nú ríkir, þegar atvinnuleysi og ör- vænting fari vaxandi, sé aukin hætta á afbrotum. „Þessi mál hafa þó alltaf verið til staðar, líka þau sem eru fólskuleg. Við megum því ekki skella skuldinni á bankahrunið eingöngu enda sýna rannsóknarniðurstöður og reynsla annarra þjóða að þessi áhrif eru ekki svona bein. Hins vegar seytla aðstæður á borð við efnahags- hrun, atvinnuleysi eða breytingar í efnahagsumhverfi inn í þjóðfélagið. Það skapar áhættuþætti sem í sam- spili við annað geta smám saman grafið undan trausti og virðingu og valdið ákveðinni örvæntingu og spennu sem brýst út í fjölgun mála af þessu tagi. Það veldur þó ekki mikilli aukningu strax heldur fara áhrifin lengri leið og eru óbein.“ Hann bætir því við að það sem ein- kennir ofbeldisrán hérlendis er að þau hafa ekki verið mjög fagleg. „Þau eru nær alltaf mjög örvæntingarfull og tengjast vímuefnum með ein- hverjum hætti. Stóri kosturinn er hins vegar að lögreglunni hefur tekist mjög vel að upplýsa þessi mál fljótt og örugglega, sem slær mjög á her- miáhrifin af þeim.“ Morgunblaðið/Þorkell Afbrot Innbrotum og þjófnuðum hefur klárlega fjölgað en lögregla telur sig þó ekki verða vara við aukið ofbeldi í þeim málum sem hún kemur að. Afbrotahætta eykst er illa árar hjá fólki Tvö fólskuleg innbrot á heimili eldri borgara nýlega vekja spurn- ingar um hvort aukin harka sé að færast í afbrot. Sérfræðingar segja þó ekki hægt að draga of víðtækar ályktanir af málunum. LÖGGÆSLA verður efld úti í hverfum samkvæmt skipulags- breytingum sem tóku gildi um síð- ustu mánaðamót. Að sögn Friðriks Smára felast breytingarnar í því að fimm lögreglustöðvar sjá nú hver um sitt svæði. „Með þessu erum við að efla löggæsluna og færa hana nær íbúunum. Á þessum stöðvum eru rannsóknardeildir eða einingar sem rannsaka þau brot sem koma upp í hverfunum og þannig teljum við að lögreglumenn verði í nánari tengslum við sitt svæði og íbúana.“ Við breytingarnar voru lög- regluþjónar færðir frá aðalstöðinni og út á hverfastöðvarnar að hans sögn. En eru þessar breytingar við- brögð við aukningu á innbrotum og þjófnuðum að undanförnu? „Kannski ekki sérstaklega en í og með,“ er svarið. Þá sé stöðugt unn- ið að öðrum verkefnum, s.s. við efl- ingu nágrannagæslu í hverfunum. LÖGGÆSLA Í HVERFUM ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.