Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 ✝ Bergþóra Bene-diktsdóttir fædd- ist á Egilsstöðum í Vopnafirði 30. apríl 1927. Hún lést á Drop- laugarstöðum 21. maí sl. Foreldrar Berg- þóru voru Benedikt Gíslason frá Hofteigi, f. í Vopnafirði 21. des- ember 1894, d. 1. októ- ber 1989, og Geir- þrúður Bjarnadóttir frá Akranesi, f. 30. október 1899, d. 8. febrúar 1978. Systkini Bergþóru eru Bjarni (d. 1968), Hild- ur, Lára, Sigríður, Árni, Auður, Hrafn, Gísli Egill (d. 1967), Sum- arliði Steinarr (d. 2008) og Einar (d. 1985). Bergþóra giftist Sveinbirni Bárð- arsyni flugumferðarstjóra frá Höfða í Mývatnssveit 10. ágúst 1956. Synir þeirra eru 1) Benedikt Geir, f. 18. febrúar 1957, kvæntur Sólveigu Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn: Gunnar, Jón Árna, Bergþóru og Bjarna; 2) Bárður Arnar, f. 2. júlí 1958, kvæntur Ingibjörgu Þór- isdóttur og eiga þau eina dóttur: Berglindi Ósk, en fyrir átti Ingi- björg þrjá syni: Þóri, Örvar Atla og Gunn- laug; 3) Gunnar Hrafn, f. 1. febrúar 1960, kvæntur Þórdísi Þórarinsdóttur og eiga þau fjóra syni: Kristján Þór, Sveinbjörn Ara, Freystein og Gunn- ar Þór og 4) Jón Egill, f. 1. febrúar 1960, hann var kvæntur Hönnu Eddu Halldórsdóttur, d. 21. desem- ber 2008, og á eina dóttur: Hönnu Dóru. Langömmubörnin eru þrjú. Útför Bergþóru verður gerð frá Garðakirkju í dag, 29. maí, og hefst athöfnin athöfnin klukkan 13. Ég kynntist Bergþóru haustið 1975 þegar við elsti sonur hennar vorum að draga okkur saman og laumuðumst stundum heim á Víg- hólastíginn eftir að fólk var gengið til náða. Þetta fannst Bergþóru ekki nógu gott svo hún bauð mér formlega í mat að kvöldlagi. Ég man þegar ég kom að húsinu og þau hjónin, Berg- þóra og Sveinbjörn, stóðu fyrir utan dyrnar og buðu mig velkomna með handabandi. Og maturinn var hátíða- matur; hryggur og brúnaðar kart- öflur. Ég var nítján ára og hafði aldr- ei fengið svo fínar og formlegar móttökur. Við Benni fluttum norður sumarið eftir og bjuggum í Mývatnssveit næstu tvö árin. Gunnar litli, fyrsta barnabarnið, fæddist þar og Begga amma sendi margan pakkann með alls kyns prjónlesi enda var hún mikil hannyrðakona. Hún hélt líka stóra veislu þegar við komum suður með drenginn tveggja mánaða til að sýna hann afa og ömmu – á þeim tíma var ekki verið að flengjast landshorna á milli til þess eins að skoða nýfædd börn. Bergþóra passaði Gunnar þegar ég stundaði nám við Kennaraháskól- ann og dagmamman sem við höfðum ráðið til að gæta hans brást okkur. Og amma leyfði honum allt. Við, ungu foreldrarnir, lærðum fljótt að allar uppeldisreglurnar sem við fór- um svo samviskusamlega eftir máttu sín lítils á Víghólastígnum og Begga amma gætti þess alltaf að eiga marga íspinna og klaka í frystinum og ömmudrengurinn mátti fá eins marga og hann lysti. Fyrir alla hjálp- ina þessi fyrstu búskapar- og skólaár í Reykjavík verðum við Bergþóru ævinlega þakklát. Henni var ekki létt um að ferðast en lagði þó á sig að heimsækja okkur nokkrum sinnum eftir að við fluttum til Akureyrar. Þá kom hún líka fær- andi hendi með útsaumaða púða eða handprjónaðar peysur handa börn- unum og gjarnan fallegan kjól fyrir litlu nöfnu sína. Bergþóra var skemmtileg kona og fróð en veikindi sem hún átti við að stríða komu oft í veg fyrir að hún nyti sín. Þegar henni leið vel þótti henni gaman að spjalla og oft hrutu af vörum hennar gullkorn sem gaman er að minnast. „Klaufinn þinn“ varð henni að orði þegar sonur hennar sagði frá væntanlegri barnseign helst til ungur. Ævi tengdamömmu var oft erfið en hún átti líka góða daga. Hún var gædd mörgum hæfi- leikum sem hún ræktaði á góðum tímum; hún saumaði á sjálfa sig og drengina sína alla fjóra þegar þeir voru ungir, málaði myndir og prjón- aði bæði á prjónavél og í höndunum. Hún las líka mikið og hafði sérstakt dálæti á ljóðum Einars Ben og Dav- íðs Stefánssonar. Hún gaf líka barna- börnum sínum perlur íslenskra bók- mennta. Það var sonum Bergþóru mikils virði að geta verið hjá henni síðustu stundirnar og kvatt hana áður en hún lést. Ég kveð líka tengdamóður mína með virðingu og þökk og bið góðan Guð að gæta hennar á ókunnum stig- um. Sólveig Jónsdóttir. Hjá ömmu var ég alla tíð prinsessa. Ein af skýrustu æskuminningum mínum sýnir þetta: ég er fimm ára, nýbúin að greiða á mér hárið og amma kemur í heimsókn. Gunnar stóri bróðir minn á að fermast á morgun og ég löngu búin að máta pilsið og blússuna sem ég ætla að vera í. En amma kallar mig til sín og dregur upp stóran kassa – í honum er fallegasti kjóll sem ég hef augum lit- ið, jafn fallegur og kjólarnir sem dúkkurnar mínar frá Edinborg klæð- ast. Daginn eftir er ég prinsessa í bleika prinsessukjólnum, sem enn þann dag í dag er aldrei kallaður ann- að. Og skýrast man ég brosið hennar þegar ég flögra alsæl um í veislunni, prinsessan hennar ömmu. Á svipuðum tíma átti ég snemmbú- ið og sem betur fer örstutt mótþróa- skeið. Ég var ekki par sátt við nafnið mitt sem mér fannst gamaldags, langt og erfitt og vildi miklu heldur heita Erla eða Rósa. Í dag og alveg síðan mótþróaskeiðinu lauk (tveimur vikum eftir að það hófst) þykir mér vænst af öllu um nafnið mitt, sem líka var nafnið ömmu minnar. Mér fannst það tengja okkur, eins og við ættum eitthvað sérstakt sem bara við tvær skildum. Þessi tenging hefur alltaf verið og mun um alla framtíð vera mér óendanlega dýrmæt. Ég kveð elsku Beggu ömmu mína með allar fallegu minningarnar sem hún gaf mér í huga. Dagur er liðinn, dögg skín um völlinn. Dottar nú þröstur á laufgrænum kvist. Sefur hver vindblær sólguðs við fjöllin. Senn hefur allt að skilnaði kysst. Dvel hjá oss guðssól hverf ei með hraða. Himneskt er kvöld í þinni dýrð. Ljósgeislum tendrast lífsvonin glaða. Lýs vorri sál er burt þú flýrð. (Steingrímur Thorsteinsson.) Bergþóra. Kleinuhringir og kókómjólk, svína- kótelettur, ristað brauð með hunangi, olsen-olsen á spil og nýbakaðar hafrakexkökur, sem voru uppáhaldið mitt. Þetta eru hlutir sem fyrst koma upp í hugann þegar ég sest niður og hugsa til baka um heimsóknir mínar til Beggu ömmu. Ég var tíður gestur hjá ömmu um árabil og á ég margar góðar minningar frá þeim tíma. Þeir sem voru fullorðnir þá hafa sennilega haldið að ég hafi sótt til hennar eingöngu vegna þess hversu auðvelt var fyrir mig að fá hana til að gefa mér aur fyrir sælgæti og fleira góðgæti. En það var síður en svo raunin. Við áttum mjög gott sam- band ég og amma og áttum margar góðar stundir sem ég gleymi aldrei. Við byrjuðum heimsóknir mínar yf- irleitt á því að rölta saman út í versl- unina Straumnes og versla fyrir helgina ofangreinda uppáhaldshluti. Oftast komum við líka við í sjoppunni og keyptum happaþrennur og lottó fyrir kvöldið. Við áttum svo huggu- legt kvöld ýmist við sjónvarpsgláp eða spiluðum á spil. Amma kenndi mér hin ýmsu spil en í uppáhaldi var olsen-olsen sem ég þreyttist aldrei á að spila og hún var alltaf til í eitt enn. Hún kenndi mér líka að leggja kapal og ég man vel hversu tilkomumikið mér fannst þegar kapall „gekk upp“. Amma var alltaf ákaflega góð við mig og sagði mér margar góðar sögur og fræddi mig um allt milli himins og jarðar. Ég man alltaf sérstaklega eft- ir síðkvöldunum þegar hún lá uppi í rúmi og ég á dýnu á gólfinu við hlið- ina og við lásum hvort sína bókina við ljóstýru frá lampa og hún svaraði hinum ýmsu spurningum frá mér inn á milli með glöðu geði. Þessum huggulegu kvöldstundum gleymi ég aldrei. Ég vil minnast góðrar konu sem kenndi mér margt og kveð ég þig í síðasta sinn, elsku amma Begga, með trega í hjarta en bros á vör og veit að þú ert á góðum stað. Þinn sonarsonur Kristján Þór Gunnarsson. Elskulega systir mín. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Þó ég sæti hjá þér dagstund síðasta daginn þinn hér á meðal okkar. Þá var svo af þér dregið, að við gátum ekki einu sinni talað saman. Flest var farið en samt varstu svo mild og fal- leg. Ég minnist æsku okkar heima í Hofteigi. Ellefu systkin, alltaf mikið um að vera. Þetta var góður tími og minningarnar ljúfar. Auðvitað stund- um í mörgu að snúast og þar varst þú oftast fremst í flokki, svo dugleg, glöð og góð. Þarna fór eins og annars staðar, hópurinn dreifðist og þá varð Reykjavík framtíðar-landið og þar hittirðu hann Sveinbjörn. Ég man það ennþá þegar þið komuð til mín í fyrsta skipti saman, að ég hugsaði hvað það væri gaman að vera svona fallegt fólk. Heimilið var stofnað í Reykjavík, síðan fluttust þið til Bandaríkjanna meðan Sveinbjörn var í námi. Svo fæddust 4 drengir á tæpum þremur árum. Þá var ekkert orlof, hvorki fyrir föður né móður, bara bjarga sér af eigin rammleik, og það gerðuð þið svo vel að afkomend- ur ykkar þurfa ekki að borga gamlar skuldir frá ykkur. Nú eruð þið bæði farin, en ég geymi minningarnar enn um sinn. Góðar minningar gera lífið betra. Ég votta samúð drengjunum ykkar, tengdadætrum og barnabörn- um. Svo kveð ég þig með söknuði og þakklæti. Blessuð sé minning Berg- þóru Benediktsdóttur og Sveinbjarn- ar Bárðarsonar. Lára M. Benediktsdóttir. Bergþóra Benediktsdóttir yndislegar minningar um þig, þá sérstaklega tengdar klifri og sem löggan í löggu og bófa þegar við vor- um yngri. Svo að sjálfsögðu um þinn innilega og smitandi hlátri þegar við skemmtum okkur konunglega sam- an þó nokkrum árum seinna. Þá verður maður að tilgreina sérstak- lega okkar æðislegu frændsystkina- bústaðaferðir, þar sem þú fórst á kostum. Þú, Kolla og Elli voruð að- alfólkið í Pictionary og þér tókst að hræða okkur upp úr skónum, sér- staklega Örnu Björg og Kollu, þegar þú slökktir á ennisljósinu og faldir þig í myrkrinu í næturgöngunni, læddist á eftir okkur og lést vera úlf- ur. Einnig var sérstakt hvað þú varst einstaklega laginn við að fara út og svo birtistu allt í einu uppi á lofti. Eru þetta bara brot af mörgum skemmtilegum tímum sem við höf- um átt með þér. Þú hefur alltaf verið rosalega gjaf- mildur og tilbúinn í að hjálpa öllum með hvað sem er, varst alltaf til taks. Það var alveg einstaklega gaman að vera í kringum þig, þú hefur gefið okkur svo margt og við þökkum þér fyrir allt saman og vonum að þú haldir áfram að hrekkja okkur, hehe. „Við reynum að halda áfram, elsk- um allt sem við minnumst. Í gegnum erfiða tíma þú lyftir okkur upp. Þú varst okkar vinur, við fylgdum þér alla leið. Og einn daginn hittumst við öll aftur, og skemmtum okkur sam- an á ný.“ Þú hafðir hjarta úr gulli og við söknum þín, hlökkum til að sjá þig aftur. Ragnar, Hans, Ólafur, Arna Björg, William, Ágúst, Jóhanna Elísabet, Kolbrún, Elísabet og fjölskyldur. Leiftrandi lífsorka og glettni í til- svörum og augnaráði einkenndu Kristján Fal Hlynsson. Hann sat á aftasta bekk í stofunni hjá mér og oft sá ég stríðnispúkann brjótast fram. Það var notalegt að hafa hann í tím- um hjá sér. Hann hafði allt til brunns að bera sem prýða má ungan mann. Heiðarlegur fram í fingur- góma. Ég nappaði hann aðeins einu sinni með óunna heimavinnu. Þá leit hann strákslega á mig og sagði: „Ég nennti þessu ekki í gær.“ Ég skildi hann vel og honum var fúslega fyr- irgefið. Hann hafði valið sér lífsstarf, ætlaði að verða smiður. Vitnisburður kennara í þeirri grein ber honum fagurt vitni, þeir segja hann einn af þeim albestu sem þeir hafa fengið í grunndeild tréiðna Á snöggu auga- bragði dregur ský fyrir sólu. Vinnu- slys! Ungur maður í blóma lífsins er að vinna við iðn sína og er hrifinn á brott. Eftir sitja syrgjandi ástvinir, hnípnir nemendur, vinir og kennar- ar. Kæru Helga, Hlynur og Ragnar. Hátt hefur verið reitt til höggs. Nístandi sársauki er hlutskipti ykk- ar og fjölskyldna ykkar nú. Megi góður Guð þerra tárin ykkar og styrkja ykkur í þessari sáru raun. Starfsfólk Fjölbrautaskóla Suður- nesja þakkar Kristjáni Fal ákaflega notaleg og góð kynni og biður góðan Guð að leiða hann til ljóssins. F.h. starfsfólks Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Rósa Sigurðardóttir. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Með fáum orðum langar okkur að kveðja góðan dreng, Kristján Fal, og þakka samfylgd í hestamennsku og ferðalögum. Minning um glaðan, broshýran og hlæjandi dreng líður seint úr minni, því hann var alltaf svo hress og kátur. Eins að ferðast með fjölskyldunni, þar sem oft var glatt á hjalla, og gaman að horfa á hversu fjölskyldan hans var sam- rýnd í öllum verkum. Voru bræðurnir og þau hjónin alltaf tilbúin að aðstoða og rétta hjálparhönd þessum tveim kerling- um, sem voru með í hópnum. Ekki settu þeir bræður það fyrir sig þó aldursmunur væri á ferðafélögun- um, og aldrei fann maður fyrir því að þeim leiddist félagsskapurinn. Þess- ar ferðir munu ávallt vera okkur ferskar í minni og minning liðinna tíma ógleymanleg. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Elsku Hlynur, Helga, Ragnar og fjölskylda, innilegar samúðarkveðj- ur og megi guð blessa ykkur og styðja í gegnum sorgina Svala Rún Jónsdóttir, Þórdís Þorvaldsdóttir. Líf kviknar, drengur fæðist vina- hjónum mínum fyrir rétt rúmum 18 árum. Drengurinn hlaut nafnið Kristján Falur. Ég fylgist með hon- um úr fjarlægð og hef af honum fréttir í gegnum árin. Drengurinn er léttur í lund og kátur. Hann kemur með hópi samnemenda úr Njarðvík- urskóla í kennslustofuna hjá mér í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar ræði ég um námið í húsasmíði og iðn- nám almennt og spyr svo hópinn eins og venjulega hvort einhver hugsi sér að læra húsasmíði eða aðra iðn. Einhverjir rétta upp hönd, þar á meðal hann. Ég spyr hann hvað hann hyggist læra, „húsasmíði“ seg- ir hann og ég brosi og býð hann vel- kominn í hópinn um haustið og hlakka til að fá að kynnast honum nánar. Hann hóf námið í FS haustið 2007 og sýndi strax að hann hafði mikinn áhuga á því sem honum var falið að gera. Hann lagði sig fram við að gera vel og spurði spurninga ef hann var ekki viss hvernig best væri að leysa hlutina. Það voru forréttindi að fá að hafa nemanda eins og Krist- ján í tíma hjá sér. Alltaf mættur á réttum tíma og tilbúinn í verkefni dagsins sama hver þau voru. Síðast- liðið haust hóf hann námið á 3. önn í húsasmíði en á þeirri önn reisa nem- endur timburhús og reynir þá mikið á samvinnu nemenda. Hann varð strax forustumaður í sínum hópi og dró oft samnemendur sína með sér til að klára hin ýmsu verk sem fyrir lágu. Ég sé hann fyrir mér hlaup- andi upp og niður þakið á sumarhús- inu, galandi í samnemendurna til að láta hlutina ganga og hann lagði örugglega sitt af mörkum til að svo yrði. Á vorönninni sýndi hann kunn- áttu sína þegar hann smíðaði vaska- húsinnréttingu fyrir foreldra sína. Samnemendum hans fannst umfang verkefnis Kristjáns nokkuð mikið og vorum við fljótir að telja þeim trú um að hann væri kominn í „bisness“ og hann hefði verið fenginn til að smíða í alla raðhúsalengjuna. Þessu trúðu drengirnir upp á hann. Kristján kvaddi okkur í lok apríl og sá fram á að ljúka vinnustað- anámi sínu á næstu 18 mánuðum og koma svo aftur til okkar í FS á vor- önn 2011 og ljúka námi sínu í húsa- smíði það vor með sveinsprófi. Það er vissa mín að í því hefði Kristján staðið sig með miklum sóma. En ekki ganga allar áætlanir upp, frétt um alvarlegt vinnuslys við byggingu í Garðinum morguninn 19. maí fyllti mig óhug og fékk ég fréttir af því í framhaldi að þar hefði Kristján orðið undir steypumóti sem verið var að hífa og hann væri mjög alvarlega slasaður. Þennan dag var maður hálflamaður og fékk fréttir af honum eftir því sem þær bárust. Morguninn eftir voru fréttirnar ekki góðar og mjög erfitt var að koma sér að verki því hugurinn var hjá Kristjáni og fjölskyldu. Seinnipart dags bárust fréttir um andlát hans, var mér þá öllum lokið. Kristján var alltaf kátur og hress, til í smásprell ef því var að skipta. Ég og samkennarar mínir í FS eigum eftir að sakna hans. Kæru Hlynur, Helga og Ragnar og aðrir aðstandendur Kristjáns, missir ykk- ar er mikill. Minning um góðan og ljúfan dreng lifir með öllum þeim sem kynntust Kristjáni. Megi góður Guð gefa ykkur styrk til að takast á við sorgina. Gunnar Valdimarsson. Þorsteinn Víðir Valgarðsson ✝ Þorsteinn VíðirValgarðsson fæddist í Reykjavík 29. maí 1983. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Reykja- vík 6. júlí 2005 og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 14. júlí. Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM OG FYLGIHLUTUM Sendum myndalista  Fleiri minningargreinar um Krist- ján Fal Hlynsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Minningar á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.