Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 23
Umræðan 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009 Líklegt er að í aðildarsamning við ESB fengjust tímabundnar undan- þágur eða aðlögunartími að ýmsum kvöðum sambandsins. En til fram- búðar litið munu lög og reglur ESB gilda hér sem annars staðar í sam- bandinu. Ísland kæmi ekki lengur fram sem fullvalda ríki, hvorki gagn- vart eigin þegnum né í samskiptum við aðrar þjóðir, s.s. í samningum um sameiginlega fiskstofna eða viðskipt- samningum við önnur ríki. Hinn nýi fríverslunarsamningur sem Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss (EFTA) hafa nú gert við Kanada mundi til dæmis falla úr gildi, en hann markar tímamót í nýþróun viðskipta- samninga okkar við Vesturheim sem hafa setið á hakanum árum saman en eru forsenda þess að Ísland geti verið í fararbroddi í tækni- og atvinnuþró- un. Auðlindir nýttar fyrir ESB ESB þróast í átt að bandaríkjum þar sem völd yfir auðlindum aðildar- ríkja eru að færast til miðstjórnar- kerfis sambandsins. Fiskimiðin eru þegar undir yfirstjórn ESB og mundu fiskimið Íslands líka færast þar undir með aðild og þau verða nýtt með hag ESB að leiðarljósi. Stærstur hluti teknanna af fiskimiðunum mun þann- ig með tímanum færast til ESB sem þýðir mikið gjaldeyristap fyrir ís- lenska þjóðarbúið og mikla hrörnun íslensks sjávarútvegs, sem er gjöful- asta útflutningsgrein Íslands. Svíar eru að missa óskoraðan yfirráðarétt yfir sinni stóru auðlind, skóginum, og ESB hefur þegar forræði á nýtingu sænskra úrannáma. Náttúruauðlindir gömlu heimsveldanna sem ráða ESB eru á þrotum, s.s. málmar, olía og gas. Vaxandi orkukreppa er að þróast í ESB þar sem uppbygging orkuvera hefur verið vanrækt í áratugi og ennþá eru uppi áætlanir um að loka orkuverum. Nú er þó að renna upp fyrir ESB að kjarnorkuvinnsla er eina raunhæfa leiðin til eigin orkufram- leiðslu en mestallt nýtilegt úran ESB er í Svíþjóð. Augljóst er að ESB verð- ur annars að auka innflutning jarð- efnaeldsneytis og raforku. Orkulindir á forræði ESB Ný stjórnarskrá ESB (heitir núna Lissabonsáttmálinn) kveður á um að ESB fái yfirstjórn á orkulindum aðild- arlanda sem skulu nýttar í þágu sam- bandsins. Í grein 100(1) er kveðið á um að ESB muni tryggja afhendingu orku verði skortur á henni í aðildar- löndum. Í grein 176A segir að tryggja skuli virkni orkumarkaðar og öryggi í orkuafhendingu innan ESB. Einnig skulu orkukerfi landanna tengd sam- an. Þetta þýðir að ESB mun hafa yfir- stjórn á hvar og hvernig raforka, olía og gas er afhent. ESB gæti því ákveð- ið að Ísland verði að afhenda orku til ESB verði Ísland meðlimur. Þetta þýðir til framtíðar litið að hagkvæmir virkjanakostir á Íslandi yrðu nýttir til framleiðslu raforku fyrir ESB. Raf- magnið yrði leitt til ESB gegnum sæ- strengi, voru gerðar áætlanir um það fyrir einum og hálfum áratug en voru lagðar á hilluna þá. Árangurinn yrði að frekari atvinnusköpun af orkulind- um hér yrði lítil og orkufrekur iðnaður landsins mundi smám saman hrörna. Mögulegar olíu- og gaslindir yrðu sömuleiðis nýttar með hag ESB að leiðarljósi og mikilvægar ákvarðarnir um markaði, stjórnun og skattlagn- ingu færast til ESB. Aðildarsamningur marklítið skjal Samningsatriði sem samþykkt eru í aðildarsamningi gætu þurft að víkja fyrir lögum og reglum sem í framtíð- inni verða sett af ESB. Með inngöngu í ESB fær sambandið löggjafarvald yfir aðildarlandinu, yfirsterkara valdi landsins, sem þýðir að eftir samnings- undirritun geta forsendur hans breyst og þar með efndir. Ágreiningsatriði færu til æðsta dómsvalds sem yrði þá ekki í aðildarlandinu heldur ESB- dómstóllinn sem dæmir að lögum ESB. Bretar sömdu um sérákvæði um sín fiskimið sem voru afnumin með dómi; vinnumarkaðskerfi Svía á nú í vök að verjast, svo dæmi séu tekin. Áhrif Íslands á löggjöf og stjórn- valdsaðgerðir ESB yrðu hverfandi og fengi annar samningsaðilinn, ESB, því í raun sjálfdæmi um efndir samn- ingsins. Aðildarsamningur við ESB yrði ekki samningur tveggja bærra aðila með jafnræði og því marklítill. Aðildarviðræður mundu rýra traust Fjárfestar og samstarfsaðilar Ís- lendinga við nýtingu auðlindanna vita að efnahagur landsins byggist á einkaafnota- rétti og fullu forræði þjóðarinnar á þessum auðlindum. Traust þessara aðila á Íslandi þarf að haldast til þess að uppbyggingin geti haldið áfram. Aðild- arviðræður við ESB yrðu túlkaðar sem upp- gjöf þeirrar stefnu að íslenska ríkið hafi óskoraðan umráðarétt yfir auðlindunum og sem yfirlýsing um að Ísland ætli að gefa frá sér yfirstjórn fiskimiða og orkulinda til erlends yfirvalds. Þetta mundi þýða að erlendir samstarfs- aðilar, sem flestir koma frá Vest- urheimi en ekki ESB, mundu síður taka þátt í verkefnum og uppbygg- ingu hérlendis á for- sendum Íslendinga. Samningar yrðu erf- iðari og ekki að fullu á forræði íslenskra aðila né á grunni íslenskra laga. Ísland nýtur trausts sem rótgróið og friðsælt fyrsta heims réttarríki frá fornu fari, mun rótgrónara en helstu ESB-lönd. Það er ein ástæða þess að erlendir aðilar fjárfesta hér. Skattlagning auð- lindanna yrði ekki heldur að fullu á ís- lensku forræði gengi landið í ESB sem veikja mundi traust á getu ís- lenska ríkisins til að standa við skuld- bindingar sínar. Eftir Friðrik Daníelsson Friðrik Daníelsson » Aðildarviðræður við ESB yrðu túlkaðar sem yfirlýsing um að Ís- land ætli að gefa frá sér yfirstjórn fiskimiða og orkulinda til erlends yf- irvalds Höfundur er verkfræðingur. Aðildarviðræður við ESB mundu rýra traust á Íslandi erlendis Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Patti Húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum Við framleiðum sófasett, hornsófa og tungusófa eftir óskum hvers og eins. Mikið úrval af áklæðum ísle nsk fra mle iðsl a ísle nsk fra mle iðsl a ísle nsk fra mle iðsl a ísle nsk fra mle iðsl a 50%afsláttur af völdum sýningareintökum Chersterfield 3+1+1 DL-634 3+1+1 roma Aspen m-87 sws nice man-8356 3+1+1 fusite 3+1+1 Man-8205 tilboðverð: 299.900 kr Fullt verð: 469.000 kr tilboðverð: 269.900 kr Fullt verð: 319.900 kr tilboðverð: 199.950 kr Fullt verð: 399.900 kr tilboðverð: 199.950 kr Fullt verð: 399.900 kr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.