Morgunblaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 23
Umræðan 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Líklegt er að í aðildarsamning við
ESB fengjust tímabundnar undan-
þágur eða aðlögunartími að ýmsum
kvöðum sambandsins. En til fram-
búðar litið munu lög og reglur ESB
gilda hér sem annars staðar í sam-
bandinu. Ísland kæmi ekki lengur
fram sem fullvalda ríki, hvorki gagn-
vart eigin þegnum né í samskiptum
við aðrar þjóðir, s.s. í samningum um
sameiginlega fiskstofna eða viðskipt-
samningum við önnur ríki. Hinn nýi
fríverslunarsamningur sem Ísland,
Noregur, Liechtenstein og Sviss
(EFTA) hafa nú gert við Kanada
mundi til dæmis falla úr gildi, en hann
markar tímamót í nýþróun viðskipta-
samninga okkar við Vesturheim sem
hafa setið á hakanum árum saman en
eru forsenda þess að Ísland geti verið
í fararbroddi í tækni- og atvinnuþró-
un.
Auðlindir nýttar fyrir ESB
ESB þróast í átt að bandaríkjum
þar sem völd yfir auðlindum aðildar-
ríkja eru að færast til miðstjórnar-
kerfis sambandsins. Fiskimiðin eru
þegar undir yfirstjórn ESB og mundu
fiskimið Íslands líka færast þar undir
með aðild og þau verða nýtt með hag
ESB að leiðarljósi. Stærstur hluti
teknanna af fiskimiðunum mun þann-
ig með tímanum færast til ESB sem
þýðir mikið gjaldeyristap fyrir ís-
lenska þjóðarbúið og mikla hrörnun
íslensks sjávarútvegs, sem er gjöful-
asta útflutningsgrein Íslands. Svíar
eru að missa óskoraðan yfirráðarétt
yfir sinni stóru auðlind, skóginum, og
ESB hefur þegar forræði á nýtingu
sænskra úrannáma. Náttúruauðlindir
gömlu heimsveldanna sem ráða ESB
eru á þrotum, s.s. málmar, olía og gas.
Vaxandi orkukreppa er að þróast í
ESB þar sem uppbygging orkuvera
hefur verið vanrækt í áratugi og
ennþá eru uppi áætlanir um að loka
orkuverum. Nú er þó að renna upp
fyrir ESB að kjarnorkuvinnsla er eina
raunhæfa leiðin til eigin orkufram-
leiðslu en mestallt nýtilegt úran ESB
er í Svíþjóð. Augljóst er að ESB verð-
ur annars að auka innflutning jarð-
efnaeldsneytis og raforku.
Orkulindir á forræði ESB
Ný stjórnarskrá ESB (heitir núna
Lissabonsáttmálinn) kveður á um að
ESB fái yfirstjórn á orkulindum aðild-
arlanda sem skulu nýttar í þágu sam-
bandsins. Í grein 100(1) er kveðið á
um að ESB muni tryggja afhendingu
orku verði skortur á henni í aðildar-
löndum. Í grein 176A segir að tryggja
skuli virkni orkumarkaðar og öryggi í
orkuafhendingu innan ESB. Einnig
skulu orkukerfi landanna tengd sam-
an. Þetta þýðir að ESB mun hafa yfir-
stjórn á hvar og hvernig raforka, olía
og gas er afhent. ESB gæti því ákveð-
ið að Ísland verði að afhenda orku til
ESB verði Ísland meðlimur. Þetta
þýðir til framtíðar litið að hagkvæmir
virkjanakostir á Íslandi yrðu nýttir til
framleiðslu raforku fyrir ESB. Raf-
magnið yrði leitt til ESB gegnum sæ-
strengi, voru gerðar áætlanir um það
fyrir einum og hálfum áratug en voru
lagðar á hilluna þá. Árangurinn yrði
að frekari atvinnusköpun af orkulind-
um hér yrði lítil og orkufrekur iðnaður
landsins mundi smám saman hrörna.
Mögulegar olíu- og gaslindir yrðu
sömuleiðis nýttar með hag ESB að
leiðarljósi og mikilvægar ákvarðarnir
um markaði, stjórnun og skattlagn-
ingu færast til ESB.
Aðildarsamningur
marklítið skjal
Samningsatriði sem samþykkt eru í
aðildarsamningi gætu þurft að víkja
fyrir lögum og reglum sem í framtíð-
inni verða sett af ESB. Með inngöngu
í ESB fær sambandið löggjafarvald
yfir aðildarlandinu, yfirsterkara valdi
landsins, sem þýðir að eftir samnings-
undirritun geta forsendur hans breyst
og þar með efndir. Ágreiningsatriði
færu til æðsta dómsvalds sem yrði þá
ekki í aðildarlandinu heldur ESB-
dómstóllinn sem dæmir að lögum
ESB. Bretar sömdu um sérákvæði um
sín fiskimið sem voru afnumin með
dómi; vinnumarkaðskerfi Svía á nú í
vök að verjast, svo dæmi séu tekin.
Áhrif Íslands á löggjöf og stjórn-
valdsaðgerðir ESB yrðu hverfandi og
fengi annar samningsaðilinn, ESB,
því í raun sjálfdæmi um efndir samn-
ingsins. Aðildarsamningur við ESB
yrði ekki samningur tveggja bærra
aðila með jafnræði og því marklítill.
Aðildarviðræður
mundu rýra traust
Fjárfestar og samstarfsaðilar Ís-
lendinga við nýtingu auðlindanna vita
að efnahagur landsins
byggist á einkaafnota-
rétti og fullu forræði
þjóðarinnar á þessum
auðlindum. Traust
þessara aðila á Íslandi
þarf að haldast til þess
að uppbyggingin geti
haldið áfram. Aðild-
arviðræður við ESB
yrðu túlkaðar sem upp-
gjöf þeirrar stefnu að
íslenska ríkið hafi
óskoraðan umráðarétt
yfir auðlindunum og
sem yfirlýsing um að Ísland ætli að
gefa frá sér yfirstjórn fiskimiða og
orkulinda til erlends yfirvalds. Þetta
mundi þýða að erlendir samstarfs-
aðilar, sem flestir koma frá Vest-
urheimi en ekki ESB, mundu síður
taka þátt í verkefnum og uppbygg-
ingu hérlendis á for-
sendum Íslendinga.
Samningar yrðu erf-
iðari og ekki að fullu á
forræði íslenskra aðila
né á grunni íslenskra
laga. Ísland nýtur
trausts sem rótgróið og
friðsælt fyrsta heims
réttarríki frá fornu fari,
mun rótgrónara en
helstu ESB-lönd. Það
er ein ástæða þess að
erlendir aðilar fjárfesta
hér. Skattlagning auð-
lindanna yrði ekki heldur að fullu á ís-
lensku forræði gengi landið í ESB
sem veikja mundi traust á getu ís-
lenska ríkisins til að standa við skuld-
bindingar sínar.
Eftir Friðrik Daníelsson
Friðrik Daníelsson
» Aðildarviðræður við
ESB yrðu túlkaðar
sem yfirlýsing um að Ís-
land ætli að gefa frá sér
yfirstjórn fiskimiða og
orkulinda til erlends yf-
irvalds
Höfundur er verkfræðingur.
Aðildarviðræður við ESB mundu
rýra traust á Íslandi erlendis
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
Við framleiðum sófasett,
hornsófa og tungusófa eftir
óskum hvers og eins.
Mikið úrval af áklæðum
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
50%afsláttur
af völdum sýningareintökum
Chersterfield 3+1+1
DL-634 3+1+1
roma
Aspen
m-87 sws
nice
man-8356 3+1+1
fusite 3+1+1
Man-8205
tilboðverð: 299.900 kr
Fullt verð: 469.000 kr
tilboðverð: 269.900 kr
Fullt verð: 319.900 kr
tilboðverð: 199.950 kr
Fullt verð: 399.900 kr
tilboðverð: 199.950 kr
Fullt verð: 399.900 kr