Morgunblaðið - 29.05.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Kvartbuxur
frá
Str. 36-56
Bæjarlind 6 sími 554 7030
Opið í dag kl. 10-18
Eddufelli 2, sími 557 1730
Opið í dag kl. 10-18
ÚTSKRIFTARGJAFIR
Iittala - Georg Jensen - Rosendahl - Eva Solo
Normann - Menu - Stelton - Holmegaard
NORÐLINGAHOLTSSKÓLI, undir
stjórn Sifjar Vigfúsdóttur, hlaut ný-
lega Fjöreggið, verðlaun SAMFOKs.
Fjöregg SAMFOKs var fyrst veitt ár-
ið 2002. Tilgangurinn með veiting-
unni er fyrst og fremst að þakka fyr-
ir og vekja athygli á því sem vel er
gert í grunnskólum borgarinnar.
Norðlingaholtsskóli hóf störf í árs-
lok 2005. Þar hafa verið farnar
ótroðnar slóðir frá upphafi. Má þar
nefna að vinnutímaskipulag kennara
er með öðrum hætti en tíðkast víðast
hvar. Allt starfsfólk ber ábyrgð á öll-
um nemendum sameiginlega.
Fjöregg SAMFOK
árið 2009
LJÓSIÐ, endurhæfingar- og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir krabbameins-
greinda, fer af stað með námskeið í
12 spora kerfinu frá miðjum ágúst
nk. fyrir krabbameinsgreint fólk.
Námskeiðið er uppbyggt fyrir fólk
sem vilja auka lífsgæðin, bæði and-
lega og félagslega. Kynning-
arfundur um námskeiðið verður
haldinn á miðvikudag nk. kl. 11 í
húsnæði Ljóssins, Langholtsvegi 43.
12 spora námskeið
HINN 1. júní nk. fagnar Thorvalds-
ensbasar 108 ára afmæli sínu. Í til-
efni þess bjóða félagskonur upp á
kaffi og vöfflur í versluninni kl. 10-
16. Thorvaldsensbasar var upp-
runalega opnaður í Austurstræti 6
og fjórum árum síðar keypti Thor-
valdsensfélagið Veltusund 3 sem nú
er Austurstræti 4. Þar er verslun
félagsins enn í dag. Frá fyrstu tíð
hafa íslenskar vörur, og þá helst ís-
lenskt handverk, verið stolt versl-
unarinnar.
Thorvaldsensbasar
ÁGÚSTA G. Sigfúsdóttir
og Auður Andrésdóttir
úr Zontaklúbbi Reykja-
víkur færðu Krabba-
meinsfélagi Íslands ný-
verið 300.000 krónur að
gjöf úr Margrétarsjóði
félagsins. Styrkurinn er
framlag til eflingar kynn-
ingarstarfi um krabba-
meinsleit fyrir konur af
erlendum uppruna, með-
al annars með útgáfu
fræðslubæklings og
fræðsluefnis á heimasíðu
Krabbameinsfélagsins.
Gjöf Guðrún Agnarsdóttir tók við gjöfinni af
Ágústu G. Sigfúsdóttur og Auði Andrésdóttur.
Zontaklúbbur gefur gjöf
STUTT
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu handtók síðdegis í gær 22 ára karl-
mann, sem grunaður er um að hafa verið í vitorði með tveimur tvítugum
mönnum, sem brutust inn hjá úrsmiði á Seltjarnarnesi á mánudagskvöld,
börðu hann og bundu. Úr, keðjur og skargripir, sem mennirnir stálu, eru
komin í leitirnar, eins og sjá má á myndinni.
Mennirnir stálu 60 armbandsúrum, u.þ.b. 70-90 armbandskeðjum og 4
karlmannsgullhringum. Þegar mennirnir voru handteknir sögðust þeir
hafa sett þýfið upp í fíkniefnaskuld. Lögreglan fann það hins vegar í gær.
Grunur leikur á, að senda hafi átt munina úr landi og koma þeim þar í verð.
Tóku þann þriðja og fundu þýfið
Morgunblaðið/Júlíus
Með ránsfenginn Lögregluna grunar að mennirnir, sem brutust inn á Sel-
tjarnarnesi, hafi ætlað að senda þýfið úr landi. Sá þriðji náðist í gær.
MÚLALUNDUR, elsta öryrkjuvinnustofa landsins, fagnaði í gær hálfrar
aldar afmæli og var haft opið hús af því tilefni. Meðal gesta voru Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra
sem hér gerir að gamni sínu við Sigga Johnie, starfsmann Múlalundar. Heið-
ursgestir skoðuðu framleiðsluna sem er af margvíslegum toga.
Héldu upp á 50 ára
afmæli Múlalundar
Morgunblaðið/Heiðar