Morgunblaðið - 29.05.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Þingmenn Vinstri grænna hafaflutt ófáa reiðilestra yfir þing-
heimi og kvartað sáran yfir því að
Alþingi sé ekki upplýst um mikilvæg
mál.
Þeir hafa talað manna hæst umhversu veikt þingið er gagnvart
framkvæmdavaldinu og að virðing
þess hafi farið þverrandi.
Oft hefur sú gagnrýni hitt í mark ogátt rétt á sér. Því var spennandi
að sjá breytingar til betri vegar þegar
VG kæmist til valda í ríkisstjórn.
Í ljósi þess biðu þingmenn í gærspenntir eftir því að fá upplýs-
ingar úr skýrslum Deloitte og Oliver
Wyman um eignasöfn nýju bank-
anna á fundi viðskiptanefndar.
Málið varðar mikla hagsmunifólksins í landinu og gefur vís-
bendingar um hversu illa stödd fyr-
irtækin eru.
Þegar þingmenn mættu á fundinnkom í ljós að það mátti ekki upp-
lýsa þá um eitt né neitt. Þeim er
áfram haldið úti í kuldanum.
Guðlaugur ÞórÞórðarson,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins,
sagðist aldrei hafa
farið á fund þar sem
ekki mætti kynna
einn dagskrárliðinn
eða ræða hann.
Það var mjög erfitt að ræða þanndagskrárlið fundarins sem eng-
ar upplýsingar fengust um, sagði
hann í samtali við mbl.is.
Mun Álfheiður Ingadóttir, þing-maður VG og formaður við-
skiptanefndar, verða trúverðug
næst þegar hún kvartar yfir upplýs-
ingagjöf til þingmanna.
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Leynd yfir dagskrárliðnum
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 10 skýjað Lúxemborg 18 skýjað Algarve 26 heiðskírt
Bolungarvík 10 rigning Brussel 18 skýjað Madríd 29 heiðskírt
Akureyri 13 léttskýjað Dublin 20 skýjað Barcelona 22 léttskýjað
Egilsstaðir 14 léttskýjað Glasgow 16 skýjað Mallorca 26 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 8 rigning London 21 skýjað Róm 25 léttskýjað
Nuuk 2 alskýjað París 18 skýjað Aþena 28 heiðskírt
Þórshöfn 12 skúrir Amsterdam 17 léttskýjað Winnipeg 12 léttskýjað
Ósló 16 heiðskírt Hamborg 14 léttskýjað Montreal 15 alskýjað
Kaupmannahöfn 16 heiðskírt Berlín 16 heiðskírt New York 16 alskýjað
Stokkhólmur 13 skúrir Vín 18 skýjað Chicago 15 alskýjað
Helsinki 14 skýjað Moskva 24 léttskýjað Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
29. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.00 0,5 10.11 3,4 16.12 0,7 22.35 3,7 3:30 23:22
ÍSAFJÖRÐUR 6.11 0,3 12.13 1,7 18.17 0,4 2:53 24:08
SIGLUFJÖRÐUR 1.49 1,3 8.15 0,1 14.46 1,2 20.27 0,3 2:34 23:53
DJÚPIVOGUR 1.06 0,6 6.57 1,9 13.12 0,4 19.43 2,1 2:50 23:00
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag og sunnudag
(hvítasunnudagur)
Suðvestan 5-10 m/s og skúrir
um vestanvert landið, annars
víða bjart. Hiti 6 til 12 stig, hlýj-
ast á Austfjörðum.
Á mánudag (annar í hvíta-
sunnu), þriðjudag og mið-
vikudag
Útlit fyrir vestlæga átt með dá-
lítilli vætu af og til vestanlands
og á annesjum norðantil, ann-
ars bjart með köflum. Áfram
milt í veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Sunnan 10-18 og væta sunnan-
og vestanlands en annars bjart.
Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norð-
austantil.
VEGAGERÐIN hefur á undanförnum dögum
opnað tilboð í vegagerð á fjórum stöðum á landinu.
Eins og í fyrri útboðum á þessu ári hafa flest til-
boðin verið undir kostnaðaráætlun.
Hið stærsta af þessum fjórum verkum er gerð
hringvegar í Skriðdal nálægt Egilsstöðum, frá
Litla-Sandfelli að Haugaá. Átta tilboð bárust í
verkið og voru öll undir kostnaðaráætlun, sem var
494 milljónir. Lægsta tilboðið átti Héraðsverk ehf.
á Egilsstöðum, 321 milljón, sem er 65% af kostn-
aðaráætlun.
Hin þrjú verkin eru minni í sniðum. Sextán til-
boð bárust í endurgerð 3,6 kílómetra kafla Lax-
árdalsvegar í Dölum. Lægsta tilboðið átti Bíla-
drangur ehf., Nykhóli, 37,5 milljónir, sem er 57,9%
af kostnaðaráætlun. Í verkið færsla hrinvegarins
við Hellu bárust 11 tilboð. Hið lægsta kom frá
Þjótanda ehf., Hellu. Það hljóðaði upp á 39,7 millj-
ónir og er 86,7% af kostnaðaráætlun. Loks bárust
15 tilboð í 3,2 kílómetra endurgerð Langholtsveg-
ar á Suðurlandi, frá hringvegi að vegamótum Ár-
móta og Langholtsbæja. Lægsta tilboðið átti fyr-
irtækið Ísgröfur ehf., Flúðum, 32,5 milljónir, sem
er 57,9% af kostnaðaráætlun. sisi@mbl.is
Enn berast lág tilboð í vegagerð
Lægstu tilboðin sem bárust námu 59,7% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
Morgunblaðið/Sverrir
Ferðinni er heitið til Tíróls í Austurríki og Bæjaralands í Suður-Þýskalandi með
viðkomu í Sviss. Þetta er ferð fyrir alla þá sem hafa áhuga á að njóta fjöllóttra
byggðalaga Alpanna, kynnast sérstæðri menningu og einstöku landslagi. Hér
hafa innfæddir búið við erfiða búskaparhætti í gegnum aldirnar og er sérstök
upplifun að koma í sel. Flogið er til München og haldið sem leið liggur til
Austurríkis þar sem gist er í 2 nætur. Siglt verður yfir vatnið Bodensee, sem er
á meðal stærstu vatna í Evrópu. Seinni hluta ferðar verður gist í 5 nætur í
syðstu borg Þýskalands, Kempten. Í ferðinni verða heimsfrægir
ferðamannastaðir skoðaðir, en auk þess munum við njóta einstaks
ævintýralandslags og notalegrar menningar og mannlífs.
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Verð: 158.200 kr. á mann í tvíbýli Örfá sæti laus!
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu,
hálft fæði og íslensk fararstjórn.
SUMAR 7
6. - 13. ágúst
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Í fjallasölumAlpanna