Morgunblaðið - 29.05.2009, Side 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Bækur til sölu
Kollsvíkurætt, Sléttuhreppur,
Ólafur Snóksdalín ættartölur 1-
3, Bergsætt 1-3.
Uppl. í síma 898 9475.
Dýrahald
LABRADOR TIL SÖLU
Af óviðráðanlegum ástæðum er 9
mánaða gamall labrador rakki til
sölu. Myndir inn á www.pointing-
lab.tk Ættbók frá HRFÍ. Uppl. í síma
824 4184 og 567 1844.
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
STREITU- OG KVÍÐALOSUN.
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694-5494,
www.EFTiceland.com.
Húsnæði óskast
Reglusamur, reyklaus og góður
leigjandi
Ég er 24 ára kona sem leita að ein-
staklingsíbúð í Vestur-, mið- eða
Austurbænum. Hámarksleiga 90.000
(allt innifalið). Vinsamlegast hringdu í
s: 695 7263 ef þér líst á þetta.
Húsnæði óskast, pnr. 101 eða 107
Norðm. reyklaust par v/Háskóla Ísl.
1.8.09 - 1.7.10, vantar 3ja herb. íb. m.
húsg. og sturtu. Vinsaml. sendið
símanr. m. SMS í 0047-98 64 82 77
Einnig E-mail með upplýsingum á
gunhildrf@hotmail.com
Atvinnuhúsnæði
Til leigu 416 fm atvinnuhúsnæði
með 16 fm millilofti og glæsilegri
aðstöðu fyrir framan, gott auglýs-
ingagildi á besta stað við Smiðjuveg.
Tvær stórar innkeyrsludyr og 5 metra
lofthæð, 2 bílalyftur, loftpressur og
fleira getur fylgt. Hentar vel undir
bílaverkstæði eða þess háttar.
Uppl. í s. 820 5207.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðaland til sölu
Sölusýning á laugardag kl. 13-16 í
landi Kílhrauns á Skeiðum. Kalt vatn,
sími og rafmagn að lóðarmörkum.
Verið velkomin. Hafið samband í síma
824 3040 eða 893 4609.
www.kilhraunlodir.is
Spennandi gisting
Ættarmót, fyrirtækjahópar, golfhópar,
saumaklúbbar, kínahópar, hvata-
ferðir o.fl. o.fl. Bjóðum upp á frábæra
aðstöðu fyrir alla hópa og fjölskyldur.
Heitir pottar og grill. Stutt í sundlaug.
Allar sjónvarpsstöðvar -líka ef þú ert
boltanörd.
www.minniborgir.is
og Gsm 868-3592.
Rotþrær-siturlagnir
Heildarlausnir - réttar lausnir.
Heildarfrágangur til sýnis á staðnum
ásamt teikningum og leiðbeiningum.
Borgarplast, www.borgarplast.is
s. 561 2211 - Völuteigi 31 -
Mosfellsbæ.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
All kinds of everything
Jarðskjálftahús Sigurðar Ágústs ehf.
www.sigurhus.is
Einnig ýmislegt annað.
Iðnaðarmenn
Pípulagningaþjónusta
Jónas pípulagningameistari.
S: 896-0074.
Pípulagnaþjónusta - Stillingar
kerfa - Get bætt við smáverkefnum í
pípulagnaþjónustu, ásamt stillingum
stjórnb. o.fl. Vönduð vinnubrögð.
Föst verðtilboð. Lögg. pípul.meistari.
Sími 893 7124.
Til sölu
Matador og Sava vörubíladekk
Tilboð 295/80 R 22.5 DR 1
kr. 59.000 + vsk.
12 R 22.5 kr. 49.000 + vsk.
13 R 22.5 kr. 55.000 + vsk.
215/75 R 17.5 kr. 29.000 + vsk.
Kaldasel ehf.
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
sími 544 4333.
Óska eftir
KAUPI GULL
Ég Magnús Steinþórsson, gull-
smíðameistari er að kaupa gull,
gullpeninga og gullskartgripi og
veiti ég góð ráð og upplýsingar.
Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og
illa farið. Upplýsingar hjá
demantar.is og í síma 699-8000,
eða komið í Pósthússtræti 13.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
sími 897-9809.
Garðsláttur á betra verði
Gerum tilboð í garðslátt fyrir húsfélög
og einstaklinga, eitt skipti eða fyrir
allt sumarið. Gæði og gott verð fara
saman hjá ENGI ehf. Sími: 857-3506.
Brúðkaup á DVD
Tek að mér HD vídeóupptökur á
hátíðarstundum og klippi saman í
fallega minningu á DVD. Nánari
upplýsingar í síma 899-2320 eða á
sigridur02@simnet.is
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari getur bætt við sig
verkefnum. Inni og úti. Vönduð og
öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð.
Uppl. í síma 897 2318.
Málningarvinna og múrviðgerðir
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og
góð umgengni. Tilboð eða tímavinna.
Lítið Mál ehf. S. 896-5758.
Ýmislegt
Teg. 11007 - stækkar brjóstin um
númer, fæst í BC skálum á kr. 3.850,-
buxur í stíl á kr. 1.950,-,
Teg. 11001 - flottur fyrir þær
"brjóstgóðu" fæst í CDEF skálum á kr.
3.850,- buxur í stíl á kr. 1.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Sumargallar
Sumargallar fyrir konur
á öllum aldri. Str. frá 8 - 22.
Sími 568 5170
Blómaskór. Margir litir.
Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Reiðhjól
Rafmagnsreiðhjól
Rafmagnsreiðhjól, verð 98.900,-
engin tryggingariðgjöld/bensín-
kostnaður. Allt að 25 km/klst. án
þess að stíga hjólið, ca. 20 km á
hleðslunni. www.el-bike.is
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
Námskeið
Byrjendanámskeið í tennis
Skemmtileg byrjendanámskeið í
tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar-
skráning hafin. Tíu tíma námskeið.
Upplýsingar í síma 564 4030 og á
tennishollin.is
✝ Anna María Guð-mundsdóttir
Bachmann fæddist á
Hólmum við Reyð-
arfjörð 1.1. 1930.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands
á Selfossi 17.5. sl.
Foreldrar hennar
voru Guðmundur
Jónsson, f. 27.8.
1880, d. 4.5. 1939, og
Guðrún Jónína Ól-
sen, f. 6.10. 1898, d.
9.7. 1949. Systkini
Önnu: Valborg, f.
1918, d. 1993; Óskar, f. 1919, d.
1972; Magnús Sigurjón, f. 1921, d.
2004; Lára Ingibjörg, f. 1923; og
Jens Ásgeir, f. 1924.
Sonur Önnu með Stefáni Sig-
björnssyni, f. 16.3. 1924, d. 27.3.
2009, er 1) Ingi Kristinn, f. 24.4.
1949, kvæntur Valgerði Jónu
Gunnarsdóttur. Börn þeirra eru:
a) Gunnar Trausti, synir hans
Tristan Ingi og Alexander Helgi;
b) Jón Kristinn, í sambúð með
Fidu Abu Libdeh, dóttir þeirra
Ragnheiður Tahrir. Fósturdóttir
Jóns og dóttir Fidu er Watan
Amal; c) Hanna Ragnheiður.
Anna giftist 16.12. 1950 Hall-
dóri Bachmann járnsmiði, f. 2.10.
1921, d. 10.4. 2000. Foreldrar hans
voru Halldór Bachmann Jónsson,
f. 22.4. 1893, d. 29.5. 1921, og Guð-
laug Narfadóttir, f. 8.10. 1897, d.
14.2 1984. Börn Önnu og Halldórs
eru: 2) Fjóla, f. 13.9.
1950, í sambúð með
Vígsteini Gíslasyni.
Börn Fjólu með
Ágústi Inga Ágústs-
syni eru: a) Anna
Dóra, gift Jóni Karli
Jónssyni. Börn Önnu
Dóru: Ágúst Freyr
Guðmundsson,
Friðný Fjóla Jóns-
dóttir og Erika Mjöll
Jónsdóttir; b) Ingi
Þór, í sambúð með
Rósamundu Bald-
ursdóttur. Börn Inga
Þórs: Andrea, Kristófer Snær og
Katrín Lóa; c) Gylfi Már, unnusta
Unnur Pálmarsdóttir. 3) Guðlaug,
f. 26.1. 1952, gift Þórhalli Árna-
syni. Börn þeirra eru: a) Kristín, í
sambúð með Manolito van Haren.
Börn Kristínar: Margrét Halldóra
Harðardóttir, Tómas Theodór M.
van Haren og Íris María M. van
Haren; b) Rannveig, gift Ólafi
Erni Péturssyni. Börn Rann-
veigar: Kolbeinn Þór Nökkvason,
Grímur Ólafsson og Sigrún Ólafs-
dóttir; c) Anna María, gift Bene-
dikt Ólasyni. Dóttir þeirra er Guð-
laug Björk; d) Guðný Rós. 4) Rósa,
f. 3.3. 1953, gift Sigurgeiri Árna
Aðalsteinssyni. Börn þeirra eru: a)
Steindór, kvæntur Huldu Þóreyju
Garðarsdóttur. Börn þeirra:
Starri, Freyja og Saga; b) Anna
Sigríður, í sambúð með Hafþóri
Gylfa Jónssyni. Börn Önnu Sigríð-
ar: Telma Rós Hallsdóttir og Al-
mar Hannes Hafsteinsson; c) Að-
alsteinn, í sambúð með Dagnýju
Ágústsdóttur. Synir Aðalsteins:
Sigurgeir Árni, Alexander Gauti
og Gabríel Darri. 5) Inga Lára, f.
3.1. 1955, gift Ólafi Haraldssyni.
Börn þeirra: a) Jósep, f. 30.6.
1974, d. 6.1. 1990; b) Anna María,
f. 17.2. 1977, d. 30.3. 2003. Anna
María var í sambúð með Árna
Friðrikssyni. Sonur hennar er Ró-
bert Steindór Steindórsson; c)
Katrín, í sambúð með Friðriki
Helgasyni. Sonur þeirra er Kor-
mákur Hólmsteinn. 6) Jónína, f.
1.6. 1957, gift Eyþóri Geirssyni.
Sonur þeirra Halldór Gunnar. 7)
Halldór, f. 29.3. 1965, kvæntur
Hönnu Guðbjörgu Birgisdóttur.
Sonur Halldórs og Kristbjargar
Magnúsdóttur: Fannar, f. 6.6.
1989, d. 22.10. 1989. Synir Hall-
dórs og Hönnu: Hrannar og Breki.
Anna María ólst upp á Hrauni
og Klöpp í Reyðarfirði, en um
fermingaraldur byrjaði hún í
vinnumennsku, fyrst á Reyðarfirði
og síðan á Norðfirði. Þau Halldór
hófu búskap á Selfossi, en bjuggu
síðar lengst í Mosfellssveit, á Pat-
reksfirði og á Akureyri. Hringn-
um lokuðu þau svo er þau fluttu
aftur á Selfoss árið 1992. Þar
bjuggu þau lengst í þjónustuíbúð
fyrir aldraða í Grænumörk 5 og
nutu þar góðrar umönnunar.
Anna vann við heimilisstörf, en
auk þess við sauma og oft hafði
hún kostgangara og leigjendur.
Hún átti og rak ennfremur hann-
yrðaverslanir bæði á Akureyri og
Selfossi.
Anna María verður jarðsungin
frá Selfosskirkju í dag, 29. maí, kl.
13.30.
Svanir fljúga hratt til heiða,
huga minn til fjalla seiða.
Vill mér nokkur götu greiða?
– Glóir sól um höf og lönd.
Viltu ekki, löngun, leiða
litla barnið þér við hönd?
(Stefán frá Hvítadal)
Þetta fallega erindi úr kvæðinu
Vorsól eftir Stefán frá Hvítadal
finnst mér einkar viðeigandi sem
upphaf minningargreinar um
tengdamóður mína, Önnu Bach-
mann. Hún kvaddi södd lífdaga á
fallegum og sólríkum vordegi þar
sem náttúran skartaði sínu fegursta
og ég sé hana fyrir mér svífa til him-
inhæða með bros á vör. Anna var
einstaklega vel skapi farin frá nátt-
úrunnar hendi, – alltaf stutt í brosið
og dillandi hláturinn. Því veit ég að
henni var þetta draumaskapadægur
að hverfa inn í vorið.
Önnu og Dóra, mann hennar, hitti
ég fyrst þegar við Ingi giftum okk-
ur. Þá bjuggu þau Anna og Halldór
Bachmann á Patreksfirði og eðlilega
var lítið um samgöngur við Reykja-
víkurliðið. Ég minnist spenningsins
vegna giftingarinnar og ekki síður
þess að berja þessa tengdaforeldra
mína augum í fyrsta skipti. Er
skemmst frá því að segja að ekki
varð ég fyrir vonbrigðum með þau
hjónin og áttum við eftir að eiga
margar skemmtilegar samveru-
stundir. Anna og Dóri fluttu til Ak-
ureyrar skömmu síðar og þangað
fórum við Ingi á hverju sumri í sum-
arfríinu. Þar var gleðin og léttleik-
inn í fyrirrúmi því Dóri var enginn
eftirbátur konu sinnar í því að sjá
spaugilegar hliðar mannlífsins. Á
Akureyri var okkur alltaf tekið með
kostum og kynjum. Ekkert var til
sparað og farið með okkur eins og
kóngafólk. Ég finn enn bragðið í
munninum af kjúklingaréttinum
góða sem Anna dreif í að útbúa þeg-
ar hún vissi að okkar var von. Þá er
skemmst að minnast allra sumarbú-
staðaferðanna í Borgarfjörðinn þar
sem þau Anna og Dóri voru með op-
ið hús í KEA-bústaðnum góða og
allt krakkastóðið mætti með börn og
buru og hávaðinn og ærslin tóku út
yfir allan þjófabálk! Anna var ein-
staklega handlagin kona, jafnvíg á
sauma, prjón og hekl. Hún lét þann
draum sinn rætast á Akureyri að
eignast handavinnubúð, hannyrða-
verslunina Maríu. Þar undi hún sér
löngum og naut sín í botn í spjalli við
akureyrskar húsfrúr. Komin á eft-
irlaunaaldur fluttu þau Anna og
Dóri til Selfoss og ákváðu að eyða
þar ævikvöldinu. Hún lét ekki deig-
an síga í verslunarrekstrinum og
fékk inni í húsnæði hjá Fjólu dóttur
sinni og Vígsteini manni hennar og
þá verslun kallaði hún Maríuhornið.
Í lífi Önnu tengdamóður minnar
skiptust á skin og skúrir eins og í lífi
flestra. Hennar einstaka geðslag
varð þess valdandi að hún brotnaði
aldrei heldur tók boðaföllum tilver-
unnar með reisn. Síðustu æviárin
átti Anna við vanheilsu að stríða eft-
ir að hafa fengið heilablóðfall síðla
árs 1999. Hún gafst þó ekki upp og
bjó til dauðadags í fínu íbúðinni
sinni í Grænumörk 5. Er á engan
hallað þótt ég nefni til sögunnar
Fjólu dóttur hennar sem sýndi í
margra ára veikindum móður sinnar
og reyndar föður líka fádæma fórn-
fýsi og ræktarsemi. Það verður seint
fullþakkað. Nú eru þau heiðurshjón
Anna og Halldór gengin á vit feðra
sinna. Blessuð sé minning þeirra
beggja.
Valgerður J. Gunnarsdóttir.
Anna María Guðmunds-
dóttir Bachmann