Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Stormar og styrjaldir - Sturlunga Einars Kárasonar
(Söguloftið)
Lau 30/5 kl. 16:00
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið - sýningum lýkur í vor)
Fös 29/5 kl. 20:00 U
síðasta sýn. !
Mið 3/6 aukas. kl. 20:00
Lau 6/6 aukas. kl. 20:00 U
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 31/5 kl. 16:00 Ö
Mið 3/6 aukas. kl. 17:00
Fös 5/6 kl. 20:00 U
Lau 6/6 kl. 16:00 U
Fös 19/6 kl. 20:00
Lau 20/6 kl. 20:00
Sun 21/6 kl. 16:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Ódó á gjaldbuxum (Síðustu sýningar)
Fös 29/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 20:00
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Ó, þú aftur - afmælissýning leikhópsins Hugleiks (Smíðaverkstæðið)
Frida... viva la vida (Stóra sviðið)
Vínland - athyglisverðasta áhugaleiksýningin 08/09 (Stóra sviðið)
Dreams 2009 - alþjóðleg döff leiklistarhátíð (Kassinn)
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Fös 29/5 kl. 20:00
Fös 11/9 kl. 20:00 Frums. U
Lau 12/9 kl. 20:00 2. sýn. Ö
Fös 18/9 kl. 20:00 3. sýn. Ö
Fös 12/6 kl. 20:00
Fös 29/5 kl. 20:00 Ö Lau 30/5 kl. 20:00 Ö
Lau 19/9 kl. 20:00 4. sýn. Ö
Fös 25/9 kl. 20:00 5. sýn.
Lau 26/9 kl. 20:00 6. sýn.
Fös 2/10 kl. 20:00 7. sýn.
Lau 3/10 kl. 20:00 8. sýn.
Lau 6/6 kl. 14:00 U
Lau 6/6 kl. 17:00 U
Sun 7/6 kl. 14:00 U
Sun 7/6 kl. 17:00 U
Lau 13/6 kl. 14:00 U
Fös 29/5 kl. 18:00 U
Lau 30/5 kl. 14:00 U
Lau 30/5 kl. 17:00 U
Fim 4/6 kl. 18:00 Ö
Fös 5/6 kl. 18:00 U
Lau 13/6 kl. 17:00 U
Sun 14/6 kl. 14:00 U
Sun 14/6 kl. 17:00 U
Sun 30/8 kl. 14:00 Ö
Sun 30/8 kl. 17:00 Ö
Í samstarfi við Draumasmiðjuna
Aðeins ein sýning, tryggið ykkur sæti í tíma
Snarpt sýningatímabil - miðaverð aðeins 1.500 kr.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið
Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið
Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið
Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið
Lau 18/7 kl. 19:00 stóra svið
Ökutímar (Nýja sviðið)
Fös 29/5 kl. 19:00 Ö
Síðustu sýningar.
Söngvaseiður. Sýningar haustins seljast hratt
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Fös 5/6 kl. 20:00 fors.
Lau 6/6 kl. 19:00 frums.U
Mið 10/6 kl. 20:00
Fim 11/6 kl. 20:00
Fös 12/6 kl. 20:00
Lau 13/6 kl. 20:00
Sun 14/6 kl. 20:00
Fim 18/6 kl. 20:00
Fös 29/5 kl. 20:00 U
Lau 30/5 kl. 20:00 U
Mán 1/6 kl. 16:00 ný aukaU
Mið 3/6 kl. 20:00 U
Fim 4/6 kl. 20:00 U
Fös 5/6 kl. 20:00 ný aukasU
Lau 6/6 kl. 16:00 U
Lau 6/6 kl. 20:00 U
Sun 7/6 kl. 16:00 U
Fim 11/6 kl. 20:00 U
Fös 12/6 kl. 20:00 ný aukasU
Lau 13/6 kl. 14:00 U
Sun 14/6 kl. 16:00 U
Fös 4/9 kl. 19:00
Lau 5/9 kl. 19:00
Sun 6/9 kl. 19:00
Fim 10/9 kl. 19:00
Fös 18/9 kl. 20:00
Lau 19/9 kl. 19:00 Ö
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Djúpið (Litla sviðið)
Fös 5/6 kl. 20:00 frums.
Lau 6/6 kl. 16:00
Fim 11/6 kl. 20:00
Fös 12/6 kl. 20:00
Fim 18/6 kl. 20:00
Fös 19/6 kl. 20:00
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200
Takmarkaður sýningafjöldi
Fim 4/6 kl. 20:00 Ný sýn U
Fös 5/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö
Lau 6/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö
Sun 7/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö
EF það er eitthvað sem mörlandinn
þarf á að halda núna þá er það
bylmingshratt og stuðvænt rokk af
þyngri gerðinni. Því hvað er betra
en að hrista hreinlega úr sér böl-
móðinn við sveitt, adrenalínskotið
rokk og ról – þó ekki sé nema
kvöldstund?
Bandaríska sveitin Ramming
Speed ætlar að reynast hvíti rokk-
riddarinn í þessum efnum, en hún
stendur fyrir tvennum tónleikum
nú um helgina. Sveitin leikur
„speed-metal“ af gamla skólanum,
er ekkert að flækja hlutina og
framreiðir eldsnöggt rokkið með
heilnæmum slatta af gáska og
gleði.
Fyrri tónleikar sveitarinnar
verða á Kaffi Hljómalind í kvöld
(ásamt Logni, Munnriði og Muck)
en á morgun leikur hún á Grand
Rokk (ásamt Manslaughter, Skít og
Celestine). Ekkert aldurstakmark
er á fyrri tónleikana en tuttugu ára
aldurstakmark er á þá síðari. Góða
flösuþeytingu!
Á hraða
ljóssins
Hraði Ramming Speed nenna engu
kjaftæði, eins og glögglega má sjá!
@
HÚN er um margt undarleg, sú
lenska að leiða saman í eina sæng
fulltrúa frá þeim tveimur heimum
tónlistar sem svo gjarnan er talað
um. Hver er tilgangurinn? Stundum
halda popp- og rokksveitir að þær
verði frekar teknar alvarlega ef þær
raða í kringum sig svo sem einu
stykki sinfóníuhljómsveit (og helst
kór líka). Útkoman úr slíkum æfing-
um hefur oft verið hálfgert stórslys,
tónlistin upphafin og tilgerðarleg.
Þá vilja hinir lærðu stundum gefa af
sér þá mynd að þeir séu nú „hipp og
kúl“ þrátt fyrir að þeir kunni að lesa
nótur og stíga því ólmir í vænginn
við „alþýðlegri“ tónlistarmenn. Út-
koman úr slíkum stefnumótum get-
ur verið ámóta klúðursleg.
Við sjáum því að þetta er alltaf
spurning um hvaða forsendur fólk
gefur sér. Er tilgangurinn sá að
þjóna tónlistargyðjunni? Eða er
hann einhver annar og vafasamari?
Ég viðurkenni að mér fylgdi dulít-
ill kvíðbogi þegar ég tyllti mér niður
í Íslensku óperunni í fyrradag. Var
ég að fara að upplifa uppskrúfaða
sýndarmennsku enn eina ferðina, til-
gangslausa flugeldasýningu þeirra
sem finnst svo „sniðugt“ að blanda
saman poppi og klassík?
En hvaða, hvaða ... er þessi ólund
ekki óþarfi. Því að hér erum við jú
með hljómsveit sem gerir beinlínis
út á samfléttun popps og klassíkur.
Þannig er hljómur hennar. Að bæta
kammersveit við kammerpoppið
ætti því varla að valda miklum ósk-
unda.
Andi tónleikanna – og sú sam-
fléttun sem áheyrendur áttu eftir að
upplifa – var undirstrikaður strax í
upphafi og það áður en nokkur nóta
var slegin. Hljóðfæraleikararnir og
stjórnandi stikuðu á sviðið, flestir í
hæfilega hirðuleysislegum klæðnaði.
Strigaskór og leðurbuxur í bland við
krumpaðar skyrtur og snjáða jakka.
Aðrir voru ögn „snyrtilegri“ en allur
mannskapurinn að sjálfsögðu
prúðbúinn. Bara hver á sinn hátt.
Svona kristallaðist heilnæmt skeyt-
ingarleysið gagnvart því sem má og
ekki má – hugsun sem hefur legið
Hjaltalín nokkuð til grundvallar.
Upphafslagið var „Trailer Music“,
af einu plötu Hjaltalín til þessa,
Sleepdrunk Seasons. Viss óöryggis
gætti í blábyrjun en það átti eftir að
brá af, hægt og örugglega. Leiðtog-
inn, Högni Egilsson, kynnti tónlist-
ina og þræddi hárnákvæmt jafnvægi
léttúðar og heilnæms ótta við að
hlutirnir gengju kannski ekki upp.
Leitun er að jafn sjarmerandi for-
vígismanni hljómsveitar í dag; það
bókstaflega stafar af þessum dreng.
Hjaltalín og sérstaklega samsettri
sveit Daníels óx fiskur um hrygg
með hverju lagi og þegar það var
komið að „The Trees Don’t Like The
Smoke“ fór útgangspunktur tón-
leikanna að verða mér ljós. Hér var
ekki verið að stilla upp hjálparsveit
sem myndi gera hvert og eitt lag
voldugra, kraft- eða hljómmeira.
Nei, það var þvert á móti verið að
vinna skapandi með þessa tvo hluti,
þ.e. kammersveitina og svo Hjalta-
lín. Og það sem meira er, húmorinn
var aldrei langt undan, eins og út-
setningin á nefndu lagi bar með sér,
sem fer best á að lýsa sem grall-
aralegri.
Í lokalagi fyrir hlé steig svo fjög-
urra manna drengjakór á svið; hljóð-
færaleikarar klöppuðu í takt á einum
tíma og flutningurinn allur helber
snilld. Þetta var farið að rúlla...
Eftir hlé fengum við m.a. að heyra
nýtt smáskífulag sveitarinnar, „Suit-
case Man“. Og nú var allt komið á
blússandi stím. Samhljómur popp-
og kammersveitar fullkominn og
ævintýralegt að fylgjast með því
sem fram fór á sviði; Högni sem
hamslaus í innlifuninni. Fleiri ný lög
fengu að hljóma, og það er greinilegt
að næsta plata sveitarinnar, sem nú
er unnið að, mun sæta einhverjum
meiriháttar tíðindum. Útsetningin á
„Traffic Music“ var líka enn eitt
skínandi dæmið um hvernig unnið
var með kosti sveitanna tveggja, og
það besta úr báðum heimum dregið
fram.
Fagnaðarlátunum ætlaði svo aldr-
ei að linna og uppklappslagið var
glæsileg útgáfa af Sjómannavalsi
Svavars Benediktssonar. Þegar hér
var komið sögu langaði mann ekkert
til að fara heim. Það var unaðslegur
ævintýrabragur yfir salnum og mað-
ur gekk út í nóttina með glóð í geði.
Þannig að samslátturinn tókst.
Það tókst að búa til eitthvað nýtt,
annað og meira úr þeim stórkostlega
efnivið sem þó var fyrir. Og ástæðan
er einföld. Hjaltalín, frambærileg-
asta dægurhljómsveit landsins í dag,
er á þvílíku flugi um þessar mundir
að henni er einfaldlega fyrirmunað
að taka feilspor. Segi og skrifa það.
Ævintýri enn gerast
Íslenska óperan
Hjaltalín ásamt kammersveit
Hljómsveitin Hjaltalín ásamt kamm-
ersveit undir stjórn Daníels Bjarnason-
ar. Tónleikarnir voru hluti af Listahátíð í
Reykjavík. Miðvikudaginn 27. maí.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Morgunblaðið/Kristinn
Á flugi „Leitun er að jafn sjarmerandi forvígismanni hljómsveitar í dag; það bókstaflega stafar af þessum dreng,“
segir gagnrýnandi um Högna Egilsson, leiðtoga hljómsveitarinnar Hjaltalín sem átti stórleik í Íslensku óperunni.
, ,