Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 6
6 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
S
umarið 1967 var ólga í loft-
inu í Vestur-Þýskalandi.
Nýir straumar fóru um
þjóðfélagið og ríkjandi
viðhorf voru dregin í efa.
Margt varð til þess að ýta undir rót-
tækni á þessum tíma. Einn af þeim
viðburðum var morðið á Benno
Ohnesorg. Ohnesorg var einn af fjöl-
mörgum, sem tóku þátt í mótmælum
gegn Íranskeisara, sem þá var í
heimsókn í Vestur-Berlín, 2. júní.
Hann var á ferð með konu sinni,
Christu. Þau voru nýgift og áttu von
á barni. Henni fannst ástandið ógn-
vekjandi og fór heim. Honum hafði
blöskrað ofbeldi lögreglu og vildi sjá
hvað væri á seyði þar sem lögregla
rak mótmælendur á undan sér. Á
torgi í hverfinu Charlottenburg slógu
þrír lögregluþjónar Ohnesorg niður.
Svo gall skotið við og Ohnesorg lá í
blóði sínu. Skotið kom úr byssu lög-
reglumannsins Karl-Heinz Kurras
og hæfði Ohnesorg í hnakkann.
Vitni heyrðu lögregluþjón ganga
að Kurras og hrópa: „Ertu galinn að
skjóta hérna?“ „Skotið hljóp af,“ á
Kurras að hafa svarað.
Morðið á Ohnesorg hafði víðtækar
afleiðingar og Kurras var í huga
margra birtingarmynd hins fasíska
eðlis að baki þýska stjórnkerfinu.
Það var því sem eldingu hefði lost-
ið í þýskt samfélag þegar greint var
frá því í fréttum í Þýskalandi fyrir
hálfum mánuði að Kurras hefði leikið
tveimur skjöldum. Hann hefði verið
útsendari Stasi, þýsku öryggis-
lögreglunnar, og félagi í austurþýska
kommúnistaflokknum, SED. Um
árabil hafði hann stundað njósnir fyr-
ir Austur-Þýskaland.
„Maðurinn, sem að því er virðist
skaut á meinlausan mótmælanda án
þess að honum væri ógnað, var inn-
blásinn af sósíalískri hugmynda-
fræði,“ sagði í vikublaðinu Der
Spiegel. „Skyndilega spurðu sig
margir hvort þeir hefðu lifað fölsku
lífi. Hvort þeir hefðu breytt nákvæm-
lega eins hefðu þeir vitað að draumar
Kurras voru ekki brúnir á litinn,
heldur rauðir?“
Í kvikmyndinni Baader Meinhof
Komplex, sem sýnd var hér á landi
fyrr á þessu ári, er áhersla lögð á af-
leiðingarnar af morðinu á Ohnesorg.
En nú er komið í ljós að forsend-
urnar voru rangar.
2. júní 1967 var upphafið að þeirri
bylgju, sem náði hámarki 1968.
Morðið á Ohnesorg átti stóran þátt í
þeirri djúpu gjá, sem myndaðist á
milli stúdenta og stjórnvalda í Vest-
ur-Þýskalandi. Það hafði mikil áhrif á
forsprakka hryðjuverkahreyfing-
arinnar, sem kennd var við Andreas
Baader og Ulrike Meinhof og á átt-
unda áratugnum hélt Vestur-
Þýskalandi í greipum ógnar. „Kúlan
úr byssu þessa lögreglumanns, Kurr-
as, sem myrti Ohnesorg – hún breytti
raunverulega öllu,“ sagði Bommi
Baumann, sem var viðriðinn hryðju-
verkahreyfinguna.
„2. júní 1967 var fæðingardagur
stúdentahreyfingarinnar,“ skrifar
Bernd Ulrich í vikublaðið Die Zeit,
„nú er ljóst að hún var með fæðing-
argalla.“
Ekki er hægt að ráða af gögn-
unum, sem fundist hafa um störf
Kurras fyrir Austur-Þjóðverja, að
hann hafi skotið Ohnesorg að þeirra
undirlagi, þótt ljóst sé að austurþýsk
stjórnvöld hafi séð sér hag í að kynda
undir ólgu í grannríkinu.
Eins og bent er á í Der Spiegel
skaut Kurras eftir sem áður Ohne-
sorg, „en það er ekki lengur hægt að
kalla hann strengjabrúðu ríkis með
fasískar tilhneigingar. Hann var
strengjabrúða sósíalísks ríkis …“
Það er því eðlilegt að menn spyrji
sig hvað hefði gerst ef strax hefði
komið í ljós að Kurras væri félagi í
SED og útsendari Stasi? Hefði það
breytt þýskri sögu? Hefðu mótmælin
1968 ekki átt sér stað?
Ógerningur er að segja til um það,
en óhætt er að fullyrða að tekið hefði
verið á máli Kurras með öðrum
hætti. Á sínum tíma stóð borgarstjóri
Berlínar með honum og sömuleiðis
forusta lögreglunnar. Sagt var að
hann hefði „farið rétt að“. Fjölmiðlar
forlags Axels Springers sögðu að
Kurras væri tryggur vörður vest-
ræns frelsis. Ohnesorg hefði verið
fórnarlamb skrílsláta. Rannsakað
hefur verið að 83% frétta fjölmiðla
Springers fjölluðu um mótmæli stúd-
enta með niðrandi hætti árið 1967.
Ljóst var að kerfið stóð með lög-
reglumanninum. Sönnunargögn
hurfu og hann var sýknaður af ákæru
um að hafa myrt Ohnesorg. Hefðu
réttarhöldin farið á annan veg ef vit-
að hefði verið að Kurras léki tveimur
skjöldum?
Kurras var sem sagt birting-
armynd fasismans í augum vinstri-
afla og brjóstvörn lýðræðisins í aug-
um hægriafla. Nú geta vinstrimenn
farið í naflaskoðun út af skoð-
anabróðurnum, sem var gerður að
skotskífu, og hægrimenn nagað sig í
handarbökin yfir því að hafa varið
manninn, sem vildi grafa undan mál-
stað þeirra. Engin svör eru til við
spurningunni um það hvað hefði
gerst ef sannleikurinn um Kurras
hefði strax komið fram. Sagan verður
hins vegar ekki skrifuð með sama
hætti og áður.
Á fölskum forsendum
Morðið á Benno Ohnesorg var kveikjan að stúdentahreyfingunni og hryðjuverkasam-
tökum 8. áratugarins í Vestur-Þýskalandi Nú er ljóst að morðinginn var útsendari Stasi
Fórnarlambið Benno
Ohnesorg borinn á
brott eftir að lögreglu-
þjónn skaut hann 2.
júní 1967. Ohnesorg
lést af sárum sínum.
AP
K arl-Heinz Kurras sýndi aldreineina iðrun eftir atburðina átorginu í hverfinu Charlot-
tenburg í Vestur-Berlín 2. júní 1967.
Þá varð skot úr byssu hans Benno
Ohnesorg, 26 ára gömlum háskóla-
stúdent, að bana.
Nú hafa fundist gögn um að hann
hafi verið á mála hjá þýsku öryggis-
lögreglunni, Stasi, og félagi í þýska
kommúnistaflokknum, SED. Gögnin
fylla sautján möppur.
Starfsemi Kurras fyrir Austur-
Þjóðverja hófst 19. apríl 1955. Þá
var Kurras 27 ára og yfirmaður í
lögreglunni í Vestur-Berlín. Þennan
dag bankaði hann upp á hjá mið-
stjórn SED í Austur-Berlín og bað
um að fá að tala við fulltrúa örygg-
islögreglunnar.
Samkvæmt gögnum hélt Kurras
því fram að hann væri ósáttur við
pólitíska þróun mála í Vestur-Berlín
og myndi fremur vilja helga krafta
sína „hinu betra Þýskalandi“. Við-
mælandi hans sá strax fyrir sér
hvernig lögregluþjónninn gæti nýst
og sannfærði hann um að hann
kæmi að mun meira gagni með því
að vera áfram vestan megin og
veita Stasi upplýsingar á laun.
Nokkrum dögum síðar hitti hann
tengilið sinn og skrifaði þá: „Þótt
ég sé pólitískt ólærður er ég þeirrar
skoðunar að leið austursins er hin
rétta pólitíska leið. Til að aðstoða
við þessa þróun er ég tilbúinn að
greina fulltrúa öryggislögreglunnar
frá atburðum innan lögreglunnar
sannleikanum samkvæmt. Ég lýsi
mig reiðubúinn til algerrar þagnar
gagnvart hverjum sem er um störf
mín. Ég mun undirrita skýrslur mín-
ar með dulnefninu „Otto Bohl“.
Karl-Heinz Kurras.“
Kurras reyndist í áranna rás
drjúg uppspretta upplýsinga um
innra starf lögreglunnar og gat iðu-
lega varað aðra útsendara við. Árið
1965 var hann meira að segja
kvaddur í sérhóp, sem hafði það
hlutverk að finna uppljóstrara, sem
vitað var að væri innan lögregl-
unnar. Aðgerðin hét „kvöldroði“ og
Kurras lét hana ekki koma sér úr
jafnvægi. Áfram hélt hann að senda
upplýsingar og gögn til Stasi.
Stasi sleit sambandinu við Kur-
ras eftir morðið á Ohnesorg. Hon-
um var vikið tímabundið frá störf-
um, en fór aftur til vinnu eftir að
hafa verið sýknaður í réttarhöldum
og var í lögreglunni til ársins 1987.
Kurras er nú 81 árs. „Hvað með það
þótt ég hafi unnið fyrir Stasi,“
sagði hann í viðtali við Bild fyrir
nokkrum dögum. „Það breytir
engu.“
Andlit fasismans reyndist útsendari Stasi
AP
Félagi Félagaskírteini Kurras í austur-þýska kommúnistaflokknum.
Austur-þýska öryggislögreglan,
Stasi, eitraði austur-þýskt samfélag
með linnulausum persónunjósnum.
Hún hafði einnig sín áhrif á gang
mála í Vestur-Þýskalandi. Mál
Karls-Heinz Kurras þykir sýna hve
ófullkomna mynd menn hafa gert
sér af störfum Stasi í vestrinu.
Ýmislegt er þó vitað. Stasi mút-
aði þingmönnum og breiddi út fals-
aðar upplýsingar um forystumenn í
stjórnmálum. Stasi hjálpaði einnig
hryðjuverkamönnum, sem voru eft-
irlýstir í Vestur-Þýskalandi, að
hverfa sporlaust í Austur-
Þýskalandi.
Eitt þekktasta málið varðaði
Günter Guillaume, sem kom til
Vestur-Þýskalands sem flóttamað-
ur árið 1956 og gekk í flokk sósíal-
demókrata. Árið 1970 fékk hann
stöðu í skrifstofu kanslarans og var
orðinn einn af nánustu samstarfs-
mönnum Willys Brandts 1972. 1973
vöknuðu grunsemdir um að hann
væri njósnari fyrir Austur-
Þýskaland og í apríl 1974 voru
hann og kona hans handtekin.
Brandt sagði af sér skömmu síðar.
Stasi skildi eftir sig slóð
mála í Vestur-Þýskalandi
Otto Schily,
fyrrverandi
ráðherra, var
lögfræðingur
fjölskyldu Ben-
nos Ohnesorgs
í málinu gegn
Karl-Heinz
Kurras. Hann
segir að hann
hefði aldrei
getað gert sér í hugarlund að Kur-
ras hafi verið útsendari Stasi. Í við-
tali við þýska vikublaðið Der Spie-
gel vill hann þó ekki gera of mikið
úr hlut Kurras. Horfa verði á hlut-
ina í heildarsamhengi. „Sá sem seg-
ir að nú þurfi að skrifa sögu ’68-
hreyfingarinnar upp á nýtt hefur
rangt fyrir sér,“ segir hann.
Hann segir hins vegar að hefði
sannleikurinn verið kominn fram á
sínum tíma hefði það breytt gangi
réttarhaldanna og dauði Ohnesorgs
upplýstur að fullu. Schily á ekki von
á að málið verði tekið upp að nýju
þar sem engar vísbendingar sé að
finna um að Stasi hafi skipað Kur-
ras að skjóta stúdent í mótmælum.
Ekki ástæða til að skrifa
söguna upp á nýtt
Karl-Heinz Kurras virðist ekki
aðeins hafa verið á mála hjá Stasi,
heldur einnig sovésku leynþjónust-
unni. Kurras barðist fyrir nasista.
Sovétmenn tóku hann til fanga og
var hann í haldi í Buchenwald.
Kurras er á lista MVD, forvera
KGB, yfir fanga. Af honum má ráða
að Kurras hafi verið félagi í komm-
únistaflokknum, KPD, frá 1945, en
samkvæmt gögnum Stasi byrjaði
hann ekki að vinna fyrir Austur-
Þjóðverja fyrr en 1955. 1946 var
Kurras dæmdur í tíu ára fangelsi
fyrir að vera með vopn, en var lát-
inn laus 1950, mun fyrr en aðrir
fangar Sovétmanna, og þykir það
vísbending um að hann hafi þegar
verið kominn á mála.
Einnig á mála hjá
sovéskum yfirvöldum?