Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 H eimsmeistari í minni, Ben Pridmore, 32 ára bókhaldari frá Derby, er aðeins 30 sek- úndur að leggja röð spilastokks á minnið og klukkutíma 26 til viðbótar. Sem þýðir að hann man og getur þulið upp nákvæmlega röð 1.404 spila, sem stokkuð hafa verið af handahófi. Fyr- ir vikið varð hann heims- meistari í The World Memory Championship 2008, rétt eins og 2004 og 2006, en keppnin hef- ur árlega verið haldin síðan 1991. Samt segist Pridmore iðulega ganga inn í herbergi og steingleyma erindinu, opna ísskápinn og furða sig á að hverju hann sé að leita. Að eigin sögn er hann líka frægur fyrir að gleyma nöfnum og andlitum fólks. Hann bar fyrir sig minnisleysi þegar hann á dögunum mætti of seint til fundar við fréttamann fréttavefjar BBC. Honum þótti af- sökun heimsmeistarans þó frekar slök, einkum í ljósi þess að skömmu síðar var hann aðeins 10 mínútur að leggja á minnið röð spilanna í 7 spilastokkum, utan reyndar að hon- um fipaðist einu sinni í upptalning- unni á 364 spilum. Pridmore hefur margoft sýnt og sannað að minni hans er óbrigðulla en flestra. Hann hefur komið fram í sjónvarpi og þulið upp röðina í spila- stokki á 26,28 sekúndum, einnig lagt á minnið 819 tölustafi á korteri og tveggja stafa tölur með samtals 4.140 tölustöfum á hálftíma. Hann segir hæfileikann velta á að þjálfa minnið og slíkt útheimti alls ekki að menn séu snillingar að eðlisfari, sjálfur telur hann sig ekki í þeim hópi. „Hugsið í myndum vegna þess að heilinn man myndir betur en nokkuð annað,“ ráðleggur Pridmore. Þótt tækni þeirra sem keppa í minni sé mismunandi, byggist hún yfirleitt á að breyta upplýsingum í myndir. Pridmore hefur þróað kerfi með ólíkum myndum fyrir hverja hugsanlega samsetningu tveggja spila, sem þýðir að hann hefur búið til 2.704 myndlíkingar í huganum. Þótt meðaljóninum sé slíkt með öllu ofviða og vitagagnslaust í þokkabót, er aðferðafræðin sögð hafa margt sér til ágætis. „Við vitum að minni er afar sjón- rænt og að sjónrænar minningar eru sterkari. Ímynd- un er góð byrj- un,“ segir dr. Chris Moul- in, tauga- sálfræð- ingur við Leeds- háskólann. Núm- eralög- unarkerfi Sem dæmi um gagnlegar myndlíkingar, ekki óáþekkar þeim sem Prid- more hugsar sér, er svokallað númeralög- unarkerfi, sem Dominic O’Brien, átt- faldur heimsmeistari í minni, þró- aði og byggist á því að hann „þýðir“ tölustafi yfir í myndir, sem minna á lögun þeirra: 0 = Fótbolti, hringur, hjól. 1 = Kerti, götuljós, stafur. 2 = Svanur, snákur. 3 = Varir, handjárn. 4 = Seglbátur, flagg. 5 = Snákur, sæhestur. 6 = Fílsrani, einglyrni. 7 = Bjúgverpill, öxi, hamar. 8 = Snjókarl, stundaglas, kona. 9 = Blaðra í bandi, snara. Fyrrgreind dæmi eru úr bókinni How to Develop A Brilliant Memory (Hvernig á að þróa frábært minni) eftir O’Brien, en hann hefur skrifað nokkrar bækur um sama efni og starfar sem minnisþjálfari. Efalítið þætti mörgum langt seilst að tileinka sér aðferðir O’Briens til að muna pin-númerið sitt. Sé það til dæmis 1580, ráðleggur hann að ímynda sér að maður gangi inn í banka með kertastjaka (1) í hönd- Sumir hafa fílsminni. Minni í mörgum Hálfgert Obama-æði virðisthafa gripið Þjóðverja,sem hafa mikið dálæti áhinum nýkjörna forseta Bandaríkjanna. Kaupsýslumenn ganga í broddi fylkingar eins og við er að búast, en þeir hafa séð sér leik á borði og framleitt húfur, boli, könnur og flest sem nöfnum tjáir að nefna með myndum af forsetanum. Einnig krúttleg tuskudýr, sem eru nákvæm eftirlíking Bos, portúgalska hvolpsins, sem forsetahjónin gáfu dætrum sínum þegar fjölskyldan hreiðraði um sig í Hvíta húsinu. Leikfangaframleiðandi í Bad Kö- sen átti hugmyndina og gengur tuskuhundurinn því undir nafninu Bo frá Kösen. Einkaleyfið er tryggt og segir talsmaður fyrirtækisins að 500 stykki til viðbótar séu vænt- anleg í hillur verslana á næstu dög- um. Smekksatriði Æðið náði hæstu hæðum í vikunni þegar Barack Obama steig fæti á þýska grund. Hann staldraði þó svo stutt við að framleiðanda Bo frá Kö- sen gafst ekki ráðrúm til að hitta forsetann og færa honum tuskudýr- ið að gjöf. Myndir og styttur af öllum stærð- um og gerðum í líki Obama blasa víða við og eru misjafnlega smekk- legar eins og gengur með vörur af þessu tagi. Til að mynda sýnist sitt hverjum um Obama-fingur sem fást tilbúnir á pönnuna með karrý-dýfu. Þessir kjúklingastautar eru sagðir sannkallaður herramannsmatur og fást nokkrir saman, 500 grömm í pakka. Hrifningin á forsetanum end- ar ekki í verslunum, því í haust verð- ur settur upp í Frankfurt söngleikur- inn „Hope – Yes We Can“, sem hverfist um forsetann vinsæla. Þýskir Obama-fingur Sykursnúður Afgreiðslustúlka í bakaríi með sætabrauð sem bakað var í til- efni heimsóknar Obama til Þýskalands sl. föstudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.