Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 47
Auðlesið efni 47 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Dalai Lama, trúar-leiðtogi Tíbeta, kom í þriggja daga heim-sókn til Íslands í síðustu viku og er þetta í fyrsta skipti sem Dalai Lama heim-sækir landið. Hann tók þátt í sam-trúarlegri bæna-samkomu í Hallgríms-kirkju í boði biskups Íslands. Þá kom Dalai Lama á sérstaka sam-komu í Háskóla Íslands þar sem mikið fjölmenni var. Hann sagði meðal annars í ræðu sinni að hann teldi að menntun væri mann-kyninu afar mikil-væg en nauðsynlegt væri að vekja meiri athygli á siðferði-legum gildum. Einnig heim-sótti Dalai Lama Alþingi þar sem forseti Alþingis tók á móti honum og færði honum heklað sjal og hraun-mola frá Þing-völlum. Dalai Lama færði forsetanum fallegan síðan trefil. Leiðtoginn hitti einnig utanríkis-mála-nefnd Alþingis og þar með fulltrúa allra stjórn-mála-flokka á Alþingi. Í Laugardals-höll var sneisa-fullur salur af fólki sem hlýddi á og með-tók vísdóms-orð Dalai Lama. Boð-skapurinn var kærleiks-ríkur, fléttaður saman við kímni og gátu áheyrendur í sal borið fram spurningar. Dalai Lama í heimsókn á Íslandi Morgunblaðið/Kristinn Mat-vöru-verð hefur hækkað um fjórðung til þriðjung undan-farið ár, skv. verð-mælingum ASÍ á vöru-körfu lág-verðs-verslana frá apríl í fyrra. ASÍ birti saman-burð á verð-könnun sem gerð var í síðustu viku í lág-verðs-verslunum við verð-könnun frá í febrúar. Þar kom m.a. fram að verð á ung-nauta-hakki hafði hækkað um allt að 67% á þessu tíma-bili. Hins vegar lækkuðu vörur á borð við ávexti, grænmeti og fisk. Verð á mat- vöru hækkar Airbus A330 flug-vél flug-félagsins Air France, sem hvarf yfir Atlantshafi síðastliðinn mánudag, fór yfir þekkt óveðurs-svæði nálægt mið-baug þar sem vindar frá norður- og suður-hveli jarðar mætast. Flug-vélin lenti í ókyrrð um fjórum stundum eftir að hún fór frá Rio de Janiero í Brasilíu. 14 mínútum síðar sendi vélin frá sér sjálf-virk boð um bilun í raf-kerfi. Air France segir lík-legt að flug-vélin hafi orðið fyrir eldingu. Brasilíski flug-herinn hefur fundið brak á floti í Atlants-hafinu úti fyrir norð-austur-strönd Brasilíu. Sam-kvæmt upp-lýsingum Miklir haf-straumar eru á þessu svæði og að-stæður neðan-sjávar mjög erfiðar. 228 manns voru um borð í vélinni, þar á meðal var einn Íslendingur. Hann hét Helge Gustafsson, fæddur árið 1964. Helge var bú-settur í Björgvin í Noregi um ára-tuga-skeið en er íslenskur ríkis-borgari. Hann bjó síðastliðin fimm ár í Brasilíu, þar sem hann á eigin-konu og eitt barn. Fyrir átti hann tvö börn í Noregi. Helge starfaði hjá fyrirtækinu FMC Technologies og var á leiðinni frá Rio de Janiero til Angóla þar sem hann átti að stýra verk-efnum á vegum fyrir-tækisins. brasilíska flug-hersins er brakið á um 5 km svæði. Þar hefur m.a. sést 7 metra málmbútur og um 20 km olíu-brák. Talið er að flak flug-vélarinnar geti legið á allt að 3,700 metra dýpi. Þota hrapaði í Atlants-hafið Reuters Efnahags-brota-deild ríkis- lögreglu-stjóra hefur tekið til rannsóknar aðkomu FL Group, sem síðar varð Stoðir, að kaupunum á danska flug-félaginu Sterling. Verið er að rannsaka hvort við-skipti með Sterling hafi brotið í bága við lög um hluta-félög og hvort kaup og sala á Sterling milli tengdra aðila stangist á við umboðs-svika-ákvæði almennra hegningar-laga. Hús-leit fór fram í húsnæði tengdu Hannesi Smárasyni og Logos lög-manns-stofu. Rannsóknin kemur í kjölfar þess að embætti skatt-rannsóknar-stjóra vísaði bókhalds-gögnum frá FL Group til efna-hags-brota- deildarinnar. Lagt var hald á gögnin í hús-leit í nóvember. Rannsaka kaup FL Gro- up á Sterling Lista-safn Íslands hefur gengið frá kaupum á verki eftir Sigurð Guðmundsson, Mountain. Um er að ræða ljós-mynd af gjörningum lista-mannsins frá upp-hafi níunda ára-tugarins. Kaup- verðið er tíu milljónir, og segir Halldór Björn Runólfsson að hærra verð hafi safnið ekki greitt fyrir verk til þessa en verkið sé eitt af helstu verkum íslenskrar sam-tíma- listar á síðustu öld. Hug- myndin að baki Mountain er endur-sköpun á kjörum og til-vist verka-mannsins, en á myndinni liggur Sigurður undir hrúg-aldi af slitnum skóm, bókum og brauði. Dýrasta verkið Ólafur Stefánsson, lands-liðs-maður í hand-knattleik og leik-maður Ciudad Real, lék sinn síðasta leik með spænska liðinu um síðast-liðna helgi þegar liðið mætti Alfreð Gíslasyni og læri-sveinum hans í Kiel í seinni úrslita-leik liðanna um Evrópu-meistara-titilinn. Ólafur og félagar höfðu betur í leiknum, unnu 33:27 og samtals 67:66 þar sem Kiel sigraði 39:34 í fyrri leiknum sem fram fór í Þýska-landi. Ólafur átti fínan leik með Ciudad og var marka-hæsti maður liðsins og gerði síðasta mark leiksins og gull-tryggði þar með sigurinn. Guðmundur Guðmundsson, landsliðs-þjálfari í hand-knattleik, sagði við Morgun-blaðið að íþrótta-ferill Ólafs væri glæsilegur enda var þetta fjórði Evrópu-meistara-titill Ólafs, þrisvar hefur hann orðið meistari með Ciudad og einu sinni með Magdeburg, þá undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Meistarakveðja Til-kynningum í barna- verndar-málum hefur fjölgað um 21,9% milli ára. Hlut-fall til-kynninga er hæst í Reykja- vík en þar er aukningin tæp 40% sé borið saman við fyrstu fjóra mánuði 2008. Flestar til-kynninganna, 48,1%, voru vegna vegna neyslu vímu-efna, af-brota, of-beldis eða slæ-legrar skóla-sóknar. Í rúmum 32% tilfella var til-kynnt um van-rækslu á börnum. Að sögn Braga Guðbrands- sonar, forstjóra Barna- verndar-stofu, er ekki hægt að segja að að-stæður barna hafi versnað sam-fara efna-hags- kreppunni en að ástæða sé til að fylgjast vel með þeim sem minna mega sín og þá ekki síst börnum, sem kannski búa við erfið- leika. Fjölgun barna- verndar-mála
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.