Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 24
24 Hönnun MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is N icole Nicolaus var að leita sér að áskorun eftir stúdentspróf og langaði að hleypa heimdraganum. „Mig langaði að fara til einhvers sérstaks lands og au-pair var góð leið til að gera það,“ segir Nicole, sem er fædd í Leipzig í þáverandi Austur- Þýskalandi fyrir tæpum 28 árum. Hún komst að því að mögulegt væri að fara til Íslands og eftir að hafa fengið þau svör hjá móður sinni að þar væri mjög kalt og allt á kafi í snjó fékk hún bara meiri áhuga. „Allir sem ég spurði höfðu nei- kvæðar skoðanir og það gerði mig bara ákveðnari í að fara. Svo kom landið mér skemmtilega á óvart og hér er ég búin að vera í átta ár með stuttum hléum,“ segir hún. „Ég ætlaði að vera hér í 11 mánuði en lenti hjá svo yndislegri fjölskyldu, sem hjálpaði mér mikið og styrkti mig í því sem mig langaði til að gera,“ segir Nicole, sem fór í Mynd- listaskóla Reykjavíkur og fékk síðar inngöngu í Listaháskóla Íslands. „Ég sótti líka um skóla í Þýska- landi en þar beið mín að taka inn- tökupróf með kannski þúsund öðr- um,“ segir Nicole, sem ílengdist hér. Til viðbótar komst hún sér til undr- unar einnig inn í Listdansskóla Ís- lands en ákvað að fara frekar í LHÍ. Þótt dansáhuginn væri mikill var draumurinn um að verða grafískur hönnuður sterkari. Eftir útskrift árið 2006 fékk hún vinnu hjá auglýsingastofunni Fíton, var þar í tvö ár og líkaði vel. „Mömmu fannst þetta reyndar orðið gott. Hún vildi fá stelpuna sína heim,“ segir Nicole, sem er í betri stöðu nú en áður ef hún hefði hug á því að flytja aftur til Þýskalands, þar sem hún hefur safnað áhugaverðri starfsreynslu í ferilskrána sína. Íslenskunámskeið í sjoppu Nicole talar fyrirtaks íslensku og auk þess að læra hana af eins og átta ára börnunum, sem hún var að passa þegar hún kom fyrst til landsins, lærði hún málið í hinum ýmsu vinnum sem hún var í samhliða námi. „Meðan ég var í Myndlistaskól- anum þurfti ég að útvega mér pen- ing og vann á vídeóleigusjoppu. Þetta var besta íslenskunámskeið sem ég hefði getað fengið. Þarna þurfti ég virkilega að tala og af- greiða nammi og pulsur. Svo vann ég líka á upplýsingamiðstöðinni niðri í bæ.“ Hún var ennfremur eini útlend- ingurinn í Myndlistaskólanum og í bekknum sínum í LHÍ. „Það var ekki í boði annað en að tala málið. Ég þurfti að halda kynningarnar mínar á íslensku.“ Síðustu mánuði hefur Nicole starf- að hjá 66° Norður en skrifstofur fyr- irtækisins eru í Miðhrauni í Garða- bæ. Hún er ánægð í vinnunni og er núna að vinna að því að hanna merki og umbúðir fyrir tvær nýjar prjóna- línur. Nicole vann eftir útskrift sem nemi hjá grafíska hönnunarfyritæk- inu Buero Destruct í Bern í Sviss og var síðan í nokkra mánuði hjá aug- lýsingastofunni ddb í Berlín í heima- landinu í haust. Hún flutti aftur til Íslands í janúar og fannst mörgum vina hennar það óðs manns æði að koma hingað í kreppuna. Frá Berlín beint í kreppuna „Það var þvílík áskorun að reyna að komast aftur inn í samfélagið, að finna vinnu á meðan aðrir voru að missa vinnuna. Ég sótti um á öllum stöðum sem mér þóttu skemmtilegir og fór ekki eftir atvinnuauglýs- ingum,“ segir Nicole, sem telur að jákvætt viðhorf hafi skipt máli. „Mig langaði til að láta á þetta reyna. Og þetta tókst, ótrúlegt en satt. Það þýðir ekkert að grafa sig ofan í holu og hugsa að allt sé ömurlegt.“ Segja má að 66° Norður sé mjög íslenskt fyrirtæki á sama tíma og það er alþjóðlegt. Hún segir vini sína í Þýskalandi hafa þekkt vörumerkið þegar hún sagði þeim frá nýju vinnunni. Hún segir að Ísland hafi haft áhrif á hönnun sína. „Ég hugsa minna þýskt en áður,“ segir Nicole, sem jafnframt hefur tileinkað sér vinnu- brögðin úr Listaháskólanum, „að hugsa út frá hugmyndum og vinna út frá þeim,“ en önnur vinnubrögð tíðk- ist jafnan í Þýskalandi. „Svo hefur það áhrif á mann að vera við sjóinn. Hérna finnst mér heldur ekki of mikið stress í vinnu. Gefin fyrir áskoranir Nicole Nicolaus kom til Íslands sem au-pair fyrir nær átta árum. Dvölin varð lengri en til stóð en hún fór í nám, lærði grafíska hönnun við Listahá- skóla Íslands og vinnur nú hjá 66° Norður. Æv- intýraþráin dró þessa ungu, þýsku konu hingað til lands en hún hefur skemmtilega sýn á landann og veit að hlutirnir eiga það til að reddast. ‘‘MÉR FINNST ÍSLEND-INGAR MJÖGÓSTRESSAÐIR. ÞEIRERU KANNSKI STRESS- AÐIR MILLI NÍU OG FIMM EN ÞAÐ GÓÐA VIÐ AÐ VERA HÉR ER AÐ ÞÚ VEIST AÐ ÞETTA REDDAST ALLT Á END- ANUM. Morgunblaðið/Ómar Grafíski hönnuðurinn frá Þýskalandi Nicole Nicolaus lærði íslensku með barnapössun, sjoppuvinnu og námi. Henni líkar vel hér og hefur kynnst landinu vel. Hún hefur þegar lært að hlutirnir reddast, á íslenska vísu. Geisja-tvíburar Veisluskreytingar eftir Nicole með japönsku þema. Hvað er Seðlabankinn að hugsa? HAGFRÆÐIDEILD TB W A \R EY K JA V ÍK \ SÍ A \0 9 4 7 9 1 FÉLAGSVÍSINDASVIÐ Í fyrirlestri sínum mun Gylfi fjalla um þá efnahagsáætlun sem samin var í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og hlutverk peningastefnunnar í henni. Hann mun einnig fjalla um vaxtaákvarðanir peninga- stefnunefndarinnar nú í vor og þau sjónarmið sem hafa verið lögð til grund- vallar þessum ákvörðunum. Fyrirlesturinn verður haldinn þriðjudaginn 9. júní í HT 102 kl. 12-13.30 Ókeypis aðgangur – allir velkomnir Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og nefndar- maður í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands www.hag.hi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.