Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 22
eins eðlilegt og mögulegt er. Klæð-
ast samanpressuðum fötum og hafa
fínt í tjaldinu sínu. Halda reisninni.
Þegar komið var að því að fæða
litlu stúlkuna hossaðist Rowayda í
næsta þéttbýli: 160 kílómetra í
burtu. Þó ekki til að finna borg með
hátæknisjúkrahúsi, heldur heilsu-
gæslu í 25.000 manna bæ, Rutbah.
Rutbah er vestasti bærinn á leiðinni
frá Bagdad til Damaskus í ná-
grannaríkinu Sýrlandi – fjarri
byggðum bólum. Svona um það bil á
enda veraldar. Al Waleed er við
sama þjóðveg – enn dýpra inni í
eyðimörkinni, flatneskjunni, enda-
lausu landflæminu. Næsta sjúkra-
hús er 400 kílómetra í burtu frá
flóttamannabúðunum.
Litla stúlkan fæddist klukkan sex
á föstudagsmorgni og seinna sama
dag hossaðist móðir hennar til baka
alla 160 kílómetrana, inn í tjaldið
sitt. Í Al Waleed er lítil heilsugæsla
sem er opin frá klukkan 10-13 og
17-19 en þar skortir allan aðbúnað.
Bráðadeildin er á stærð við með-
alsvefnherbergi á Íslandi.
„Rutbah er svo langt í burtu héð-
an – fólk gæti verið dáið þegar það
loksins kemst alla leið þangað!“ seg-
ir læknirinn í Al Waleed, Jakob Yu-
sef, og ranghvolfir í sér augunum.
„Svo erum við ekki einu sinni með
sjúkrabíl hérna.“
Yusef bendir á að það sé ekkert
sem segi að fæðandi konur í Al Wa-
leed nái endilega að fara í tæka tíð
alla leið til Rutbah, hvað þá á al-
mennilegt sjúkrahús.
Tvöfaldur flóttamaður
Daginn eftir að litla stúlkan fædd-
ist var sterkur sandstormur í Al
Waleed og ekki hægt að sjá út úr
augum. Rowayda stundi, enn dauð-
þreytt eftir fæðinguna. Gat ekkert
gert annað en vafið stúlkuna sína í
teppi, mörg teppi, og vonað að veðr-
ið skánaði. Vonað að tjaldfesting-
arnar losnuðu ekki í vindhviðunum.
Að tjaldið legðist ekki saman. Ekki
einu sinni enn.
Beðið inni í tjaldi – beðið eins og
venjulega, hvenær myndi hún losna
héðan, myndi hún einhvern tímann
fá lausn sinna mála? Hún var þegar
búin að hírast í tjaldi í tvö ár. Upp-
lifa tvö steikjandi sumur og tvo
ískalda vetur.
Litla stúlkan stóð af sér fyrsta
sandstorminn en það koma fleiri
stormar og fleiri vetur. Foreldr-
arnir eru áhyggjufullir. Hvað verð-
ur um hana, hvað verður um þau,
hvernig gerðist það að ríkið Ísrael
var stofnað í miðri Palestínu?
Hvernig stóð á því að Palest-
ínumönnum var útskúfað úr Írak?
Hvernig meðhöndlar maður ung-
barn í tjaldi?
Sú litla er alls grunlaus um
áhyggjur foreldra sinna og drekkur
mjólkina hraustlega. Hún hefur
ekki hugmynd um að hún er fædd
flóttamaður. Tvöfaldur flóttamaður.
Þriðju kynslóðar flóttamaður frá
Palestínu að reyna að koma sér í
burtu frá Írak.
Á flótta frá Palestínu, á flótta frá
Írak. Undarlegt? Enn undarlegra er
að stúlkan kemst ekki í burtu frá
landinu sem útskúfaði henni: Hún
er föst í Írak – vegabréfslaus eins
og allir hinir Palestínumennirnir og
kemst því ekki yfir landamærin.
Hún mun alast upp langt frá næsta
byggða bóli, ef frá er talin banda-
rísk herstöð nærri búðunum, en
þangað má hún heldur ekki fara.
Í eyðimörkinni geta írösku Pal-
estínumennirnir verið í friði fyrir of-
beldinu í Bagdad, ofsóknunum gegn
þeim – haldið lífi.
Verst að í eyðimörkinni er ekkert
líf.
Fædd ríkisfangslaus
En stúlkan veit það auðvitað ekki
ennþá. Hvernig ætti lítið barn líka
að skilja það sem fullorðnum reynist
erfitt að botna í?
Hún veit ekki enn að hún er fædd
ríkisfangslaus – að það er ekkert
land í veröldinni sem hún getur gert
tilkall til og sagt: hér á ég heima,
þetta er mitt, ég er þegn í þessu
landi með öllum þeim réttindum og
skyldum sem því tilheyra. Sú litla
getur ekki verið í Írak og kannski
mun hún aldrei geta farið til Palest-
ínu – ekki meðan sjálfstætt ríki Pal-
estínu hefur ekki enn verið stofnað,
áratugum eftir að átti að gera það.
Jafnvel þótt slíkt ríki verði ein-
hvern tímann stofnað á hernumdu
svæðunum á Vesturbakkanum og
Gaza þá er borg ömmu hennar og
afa, Haifa, langt inni í Ísrael í dag.
Munu hún og fjölskyldan fá að fara
þangað aftur eða er húsið þeirra að
eilífu horfið inn í ríki sem þeim er
meinað að búa í – ríki sem þau mega
ekki einu sinni heimsækja?
Litla stúlkan opnar annað augað,
grætur örlítið og drekkur síðan
meira – alls grunlaus um að hún er
strandaglópur í eyðimörk, peð á
pólitísku taflborði. Hún hefur ekki
hugmynd um alla hina landlausu
Palestínumennina, eða árásina árið
2003 sem átti að frelsa Íraka en
færði Palestínu-Íraka á hinn bóginn
í fjötra. Hvað þá bjölluna sem hang-
ir í mötuneytinu í bandarísku her-
búðunum með áletruninni „Let
Freedom Ring“.
Enginn póstur í eyðimörk
Seinni daginn sem ég hitti ný-
fæddu stúlkuna í Al Waleed hringir
gemsi í tjaldinu hennar. Þetta er
móðursystirin Lína, hringjandi af
Akranesi. Hún vill vita allt um þá
litlu, vita hvernig gangi, vita hvort
umslagið sem ég tók með frá Íslandi
komst til skila – það er engin póst-
þjónusta í einskismannslandinu.
Ég fæ gemsann í hendurnar og
við Lína ræðum málin. Systur Línu
fylgjast stoltar með símtalinu. Lína
þeirra flutti til Íslands ekki alls fyr-
ir löngu en er farin að tala það góða
íslensku að við getum auðveldlega
spjallað saman í síma.
Allt í einu verður tengingin á milli
Al Waleed og Íslands nánast yf-
irþyrmandi. Sagan of lifandi. Kunn-
ugleikinn í framandleikanum of
mikill. Systur Línu eru sláandi líkar
henni – þetta gæti raunar verið hún
þarna í eyðimörkinni. Það var eftir
allt saman hér sem hún hírðist í
nærri tvö ár eftir háskalegan flótta
frá Bagdad. Það þarf ekkert smá-
vegis hugrekki og viljastyrk til að
takast á við slíkt. Rífa sig svo upp
frá eftirlifandi fjölskyldumeðlimum
og halda mörg þúsund kílómetra í
norðurátt.
Í heimabæ mínum, á Akranesi,
höfum við Lína setið og spjallað
klukkutímum saman í vetur. Í fjör-
unni rétt fyrir neðan íbúðina hennar
skellur Atlantshafið á Langasandi
en í hina áttina ber Akrafjall við
himin. Á köldum vetrardegi er gott
að sitja í stofunni hjá Línu og horfa
á snjókomuna út um gluggann.
Hugurinn hvarflar ósjálfrátt yfir
hafið, til gluggalausra tjaldanna í Al
Waleed.
Aðstæðurnar eru gjörólíkar en
þegar öllu er á botninn hvolft er
eyðimörkin einungis einu símtali frá
ísnum – og Lína hinum megin á lín-
unni. Ættingjarnir eru eftir, strand
í sandi. Vonlitlir velta þeir fyrir sér
hvort þeir sjálfir munu enn vera
þarna eftir eitt ár, fimm ár, tíu.
Munu þeir einhvern tímann sjá dæt-
ur sínar og systur aftur? Munu fleiri
lönd gera eins og Ísland og taka fólk
frá Al Waleed?
Kossar til Íslands
Það er tilfinningaþrungin stund
þegar kveðjurnar frá Akranesi ber-
ast í tjaldbúðirnar. Systir Fatin bið-
ur fyrir kossa og kveðjur, systkini
Wafa tárast, ættingjar Manal sömu-
leiðis, mágar og frændsystkini Línu
– dóttir Aydu.
Dóttir? Elsta dóttir Aydu varð
eftir í Al Waleed því hún er gift og
íslenski hópurinn samanstóð ein-
göngu af einstæðum mæðrum og
börnum þeirra. Dóttirin Sama var
hins vegar einungis 17 ára þegar
móðir hennar fékk boð um að koma
til Íslands, ásamt yngri systkinum
hennar, Ahmed sem þá var 15 ára
og Aseel 11 ára. Faðir barnanna lést
nokkrum árum áður. Móðirin Ayda
stóð frammi fyrir vali um áfram-
haldandi líf í eyðimörkinni ásamt
öllum börnunum sínum – eða för til
Íslands þar sem tvö af þremur ættu
kost á framtíð án sandstorma og
sporðdreka, kost á menntun og lífi
án sprengjutilræða og líflátshótana.
Ayda spjarar sig vel á Íslandi en
engan skyldi undra að hugurinn er
hálfan daginn hjá elstu dótturinni
og tengdasyninum unga. Hvernig er
veðrið í Al Waleed í dag? Var Sömu
kalt í nótt? Hvað verður um þau?
Þegar ég kveð Sömu í Al Waleed
biður hún fyrir stóran koss til móð-
ur sinnar og systkina, marga kossa,
öll heimsins faðmlög, hjartans
kveðjur.
Síðan laumar hún að mér litlum
böggli til að taka með heim til fjöl-
skyldunnar á Íslandi. Kveðju úr
einskismannslandinu.
22 Flóttamenn
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
L AU S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð
Er greiðslubyrðin
að þyngjast?
Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
4
6
7
Landsbankinn býður upp á mörg úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika
að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir.
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.
Nærri Al Waleed-flótta-mannabúðunum er banda-rísk herstöð. Það er þar sem
ég gisti ásamt starfsmönnum Flótta-
mannastofnunar SÞ. Ég get valið um
margar tegundir af gosi, margar teg-
undir af muffins og skóflað í mig
snakki að vild. Langar mig ef til vill
heldur í Honey Nut Cheerios eða ör-
bylgjupitsu?
Ég á erfitt með að velja, hugurinn
er í tjöldunum nokkra kílómetra frá.
Strákarnir í eldhúsinu skellihlæja og
velja fyrir mig: Pasta með rækjum. Ég
sest niður undir bandaríska fánanum
og glápi annars hugar á sjónvarpið.
Miðað við tjöldin í Al Waleed eru
bandarísku bíómyndirnar og allur
innflutti maturinn, fluttur sér-
staklega til Íraks alla leið frá Banda-
ríkjunum, út úr kú. Eða kannski er
það bara ég sem er út úr kú.
Tölvuleikir og vídeó
Ég maula múslístöng í eftirmat og
velti fyrir mér hvort hermennirnir séu
allir í alvörunni 18 ára eða hvort þeir
líti bara út fyrir að vera það. Þetta er
eins og að vera í skólaferðalagi.
Strákarnir á næsta borði reynast
vera 21 og 22 ára og segjast ýmist
spila tölvuleiki á kvöldin sér til dund-
urs eða horfa á vídeó. Allt hefur verið
með kyrrum kjörum hér um nokkurra
mánaða skeið og lítið fyrir hermenn-
ina að gera annað en að vakta At
Tanf-landamærastöðina rétt hjá.
Fyrst eftir innrásina voru sýr-
lensku landamærin galopin og
bandarísk stjórnvöld kvörtuðu yfir
því að erlendir bardagamenn
streymdu til Íraks í gegnum Sýrland.
Nú hefur allt eftirlit verið hert og
hver sá sem fer yfir landamærin þarf
að fara í gegnum augnskanna og ít-
arlegt eftirlit.
Ég býð strákunum í mötuneytinu
góða nótt og er strax komin með val-
kvíða um hvort ég eigi að fá mér
beyglu, kók, beikon eða egg í morg-
unmat daginn eftir.
Honey Nut Cheerios í eyðimörkinni
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Amerísk fæða Ungir og glaðlegir hermenn í matsal bandarísku her-
stöðvarinnar nærri Al Waleed flóttamannabúðunum.
Frá því að tjöld byrjuðu að
hrannast upp í Al Waleed í des-
ember 2006 hafa samtals farið
þaðan 187 flóttamenn til 6
landa:
Til Svíþjóðar: 54
Til Noregs: 48
Til Íslands: 29
Til Danmerkur: 26
Til Hollands: 24
Til Frakklands: 6
Flóttamannastofnun SÞ hefur
lýst yfir ánægju með móttöku
hópsins á Íslandi og verkefnið
fengið margvíslega athygli á al-
þjóðavísu.
Stofnunin bindur vonir við að
Bretland bjóði til sín 28 manna
hópi á næstunni, sem og að
Bandaríkin taki við stórum hópi.
Enn er 1531 í Al Waleed.
Þar sem fólkið í Al Waleed er
vegabréfslaust getur enginn í
búðunum yfirgefið þær og farið
sem flóttamaður til annars
lands án utanaðkomandi hjálpar.
29 konur
og börn
til Íslands