Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 32

Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 10. júní 1979: „Sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði og raunar víðar um landið hefur lagt mikið af mörkum í sambandi við ýmis hagsmunamál sjómanna. Þar munar mest um hið gífurlega átak, sem gert hefur verið í málefnum aldraðra og ekki má gleyma sum- arbúðunum í Grímsnesi. Á hinn bóginn er því ekki að leyna, að sá mikli skuggi hvílir yfir þessum sjómannadegi, að vinnu- stöðvun hefur verið á farskipaflot- anum um margra vikna skeið og engar verulegar líkur á, að úr ræt- ist í bráð. Jafnframt er svo komið vegna mikilla olíuverðshækkana að grundvöllurinn er brostinn undan útgerðinni, en ný fiskverðs- ákvörðun hefur látið á sér standa. Fyrir þessar sakir horfir nú svo sem allur fiskiskipaflotinn stöðvist á morgun. Vissulega er kreppan vegna ol- íuverðshækkana utanaðkomandi. En það breytir þó ekki því, að áfallið verður meira en ella vegna þeirrar óstjórnar, sem verið hef- ur.“ 11. júní 1989: „Sú skoðun hefur lengi verið uppi, að ein af for- sendum þess að skapa mætti hér heilbrigðara efnahagslíf væri sú, að draga úr þátttöku og áhrifum ríkisins í fjármálakerfinu. Á meðan ríkisvaldið væri svo áhrifamikið í bankakerfinu væri ekki hægt að búast við því, að útlánastefna bankanna markaðist eingöngu af sjónarmiðum heilbrigðs atvinnu- rekstrar. Þess vegna er ástæða til að fagna því sérstaklega, að rík- isstjórnin hefur nú undirritað sam- komulag um að selja einn rík- isbankanna til einkaaðila. Í annan stað er augljóst, að þessi kaup einkabankanna og fyr- irhuguð sameining þeirra fyrir mitt næsta ár styrkir mjög stöðu einkarekstrar í fjármálakerfinu. Hingað til hafa einkabankarnir verið of litlir og þess vegna ekki haft burði til þess að takast á við meiriháttar verkefni í atvinnulíf- inu. Nú verður til einkabanki, sem nálgast Landsbankann að stærð. Sú staðreynd á eftir að hafa áhrif í atvinnulífi hér á næstu árum.“ Úr gömlum l e iðurum Sjómannadag-urinn er núhaldinn há- tíðlegur um land allt. Sjómenn geta verið stoltir af þeim miklu áföngum sem náðst hafa í réttindum þeirra, aðbúnaði og öryggi á undan- förnum áratugum. Og í dag er sérstök ástæða til að fagna. Sjórinn við Ísland hefur tekið margan góðan drenginn, en enginn mannskaði varð á sjó hér við land á síðasta ári. Á þessu ári hefur heldur enginn sjómaður horfið í hafið. Þeir sem gerst þekkja telja að fara verði allt aftur á landnámsöld til að finna slysalaust ár á sjó hér við land. Sjómenn hafa orðið sér æ betur meðvitandi um hættur á sjó og allt kapp hefur verið lagt á að draga úr þeim hætt- um. Þar munar miklu, að sjó- menn eru skyldugir til að sækja námskeið í Slysavarna- skóla sjómanna og fá reglu- bundna endurmenntun. Skipafloti landsmanna er líka bæði öflugur og öruggur. Því miður verður aldrei tryggt að ekki verði hörmuleg slys á hafi úti, en þjóðinni ber skylda til að búa svo að sjó- mönnum sínum að hættan sé eins lítil og mögulegt er. Á þessum sjómannadegi er engin lognmolla í umræðu um sjávarútveg. Stjórnvöld vilja freista þess að leiðrétta hið mikla óréttlæti, sem fólst í því að útgerðarmönnum voru af- hent mikil verðmæti endur- gjaldslaust þegar kvótakerf- inu var komið á. Ríkisstjórnin vill fyrna aflaheimildir í skömmtum á 20 árum, en þar blasir við annars konar órétt- læti: Margir hafa selt kvóta sinn og þeir sem keyptu háu verði sjá enga sanngirni í að missa kvót- ann, en sitja uppi með skuldirnar. Sátt er því enn ekki í sjón- máli. Ríkisstjórnin telur líka rétt að heimila frjálsar hand- færaveiðar, en þar blasir líka við óréttlæti sem felst í að smábátasjómenn, sem hafa selt kvóta sinn, geta haldið aftur til veiða án endurgjalds. Við hlið þeirra róa menn, sem keyptu af þeim kvótann dýr- um dómum. Sjónarmið þess- ara manna verður án efa erfitt að sætta. Hvernig sem fer er ljóst að sjávarútvegurinn verður áfram grunnstoð íslensks at- vinnu- og efnahagslífs. Sjó- mennirnir, sem halda daginn sinn hátíðlegan í dag, geta verið stoltir af framlagi sínu og forvera sinna til þjóðar- búsins. Án þeirra væri enginn fiskur dreginn úr sjó. Harka þeirra og dugnaður hefur tryggt uppbyggingu nútíma- þjóðfélags og eftir hrun efna- hagskerfisins hafa margir átt- að sig á hver raunveruleg verðmæti eru. Íslenskir sjó- menn njóta virðingar og þakk- lætis þjóðarinnar. Mörgum stoðum hefur verið rennt undir atvinnulíf á Ís- landi á undanförnum áratug- um og ólíkt er um að litast á þeim velli nú og þegar sjó- mannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur. Sú fjöl- breytni hefur þó ekki megnað að draga úr mikilvægi sjávar- útvegsins. Morgunblaðið færir sjó- mönnum árnaðaróskir á sjó- mannadaginn. Sjómenn njóta þakklætis og virð- ingar þjóðarinnar} Hátíð sjómanna T alsvert uppnám hefur orðið í þjóð- félaginu út af ljósmynd Sigurðar Guðmundssonar, lykilverki á listamannsferli hans, sem Lista- safn Íslands keypti á 10 milljónir króna. Ýmsum sem tjáð hafa sig um málið þykir mikið í lagt að kaupa ljósmynd svo dýr- um dómum. Slíkt segir heilmikla sögu af afstöðu margra til ljósmyndarinnar sem listgreinar, sem og til kvikmyndarinnar og nú síðast til vídeósins. Verður þessum viðhorfum best lýst sem fordómum. Af einhverjum ástæðum rifjast upp fyrir mér saga sem Frank heitinn Ponzi, listfræð- ingur með meiru, sagði mér fyrir margt löngu. Ponzi var mikill fagurkeri, áhugamaður um ljós- myndir og ljósmyndun, en leiðir okkar lágu saman vegna sameiginlegs áhuga á kvikmyndum sem list- greinar. Sagan hans Ponzi hefst þegar hann starfaði sem list- ráðunautur hjá Guggenheim-safninu í New York nokkru áður en hann fluttist til Íslands seint á sjötta áratugnum með konu sinni, Guðrúnu Tómasdóttur söngkonu. Hann var að róta í gömlum plöggum í safninu og rakst þá fyrir tilviljun á skjöl um að safnið hefði talsvert löngu áður fengið ýmsa helstu nútímamálara Bandaríkjanna á þessum tíma, væntanlega listamenn á borð við Jackson Pollock, Willem De Kooning, Mark Rothko, Franz Kline, Frank Stella o.fl., til að gera tilraunir til að yfirfæra listsköpun sína á kvikmyndir. Guggenheim átti sem sagt vænt safn af til- raunakenndum kvikmyndum helstu nútíma- listamanna Bandaríkjanna fyrir seinni heimsstyrjöldina, en sér til furðu komst Ponzi að því að engin vitneskja var um þetta safn hjá Guggenheim. Ástæðan var vafalaust sú að kvikmynd- irnar voru teknar á filmur sem innihéldu mikið af efninu nítróglýseríni og þar af leið- andi stafaði af þeim sprengihætta. Mynd- unum var vegna þessa komið fyrir í eld- traustu byrgi úti á Long Island þar sem þær féllu í gleymsku sem segir auðvitað sína sögu um afstöðuna til þessarar tegundar listar á þessum tíma. Ponzi sagðist auðvitað hafa orðið óður og uppvægur við þennan fund og rokið út á Long Island til að huga að myndunum. Þar hitti hann einn varðanna sem gætt höfðu byrgisins um árabil og ekki séð starfsmann safns- ins fyrr en Ponzi birtist þarna óvænt. Saman fóru þeir niður í byrgið og opnuðu hirslurnar sem geymdu fjársjóðina. En viti menn – filmurnar voru allar orðnar að dufti, enginn hafði hirt um að yfirfæra þær í endingarbetra form. Verðirnir höfðu því vakað yfir dufti nótt sem nýt- an dag svo árum skipti. Mér hefur oft síðan orðið hugsað til þessara vörslu- manna duftsins.bsv@mbl.is Björn Vignir Sigurpálsson Pistill Vörslumenn duftsins Verkland riftir og hótar málaferlum FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is V erktakafyrirtækið Verk- land hefur krafið borg- ina um að greiða sér til baka, með vöxtum og verðbótum, lóð að Nönnubrunni í Úlfarsárdal sem fyr- irtækið keypti í útboði í maí 2006. Fyrir byggingarrétt á lóðinni greiddi Verkland rúmar 78,5 milljón króna en vill nú þremur árum síðar rúmar 120 milljónir króna endurgreiddar. Eins og kunnugt er hefur borgin hafnað því að taka við útboðslóðum, utan þess að borgarráð veitti fram- kvæmdasviði leyfi til að taka við sex lóðum greiddum með skuldabréfi frá borginni hefðu eigendur þeirra lent í vanskilum. Framkvæmdasvið hefur tekið við einni slíkri. Borgin tekur einungis við lóðum sem úthlutað var á föstu verði og greiðir út auk vaxta og verðbóta. Byggingarréttur á hverri lóð í út- boði í Úlfarsárdal kostaði milljónir, jafnvel tugi milljóna, og kappsmál fyrir þá sem keyptu og geta nú ekki byggt vegna efnahagsástandsins að skila þeim aftur. Í ýtarlegri greinargerð Verklands, sem lögmaður þess Einar Gautur Steingrímsson undirbjó og sendi til borgarstjórnar á fimmtudag, er rak- ið hvernig borgin hefur að mati þess ekki staðið við sinn hluta samnings- ins. Fallist hún ekki á að taka við lóð- inni á grundvelli söluskilmálanna sjálfra, reglna borgarinnar um skil á byggingarrétti á lóðum eða af jafn- ræðissjónarmiðum, rifti verktakinn samningnum. Það geri fyrirtækið á þeim forsendum að borgin hafi ekki afhent það sem hún seldi. En það sem hafi gert útslagið að Verkland keypti lóðina hafi verið frétt á frétta- torgi Reykjavíkurborgar. Þar stóð m.a. að skólar og þjónusta yrðu í göngufæri við íbúðir, byggðin þétt og íbúar gætu sótt vinnu í hverfinu og þyrftu sem minnst að sækja út fyrir hverfið. Þessar forsendur hafi allar brostið. Til dæmis sé nú engin at- vinnustarfsemi á svæðinu eftir að lögreglan stöðvaði þar kumpána með ólöglega plönturæktun! Þá hafi borgin með saknæmum hætti og af stórfelldu gáleysi valdið töfum á því að byggingarfram- kvæmdir gætu hafist, með því að hafa rangt deiliskipulag á vef sínum með ómældum kostnaði fyrir fyrir- tækið, sem þurfti af þeim sökum að láta endurhanna blokkina sem það hugðist reisa á lóðinni. Verktakinn náði því ekki að byggja í tíma áður en fasteignamarkaðurinn brast. Verkland ætlar að stefna borginni fallist hún ekki á að taka við lóðinni. Það gefur henni tíu daga til að svara. Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri framkvæmdasviðs borgarinnar, fékk bréfið ekki samdægurs í hendur en staðfestir að fyrirtækið hafi sent greinargerð fyrir mánuði með kröf- um um að skila lóðinni. Rök þess hefðu verið í skoðun hjá borginni og formlegt svar því ekki borist fyrir- tækinu. Hann telur málið þurfa úr- skurðar dómstóla því sannarlega sé ágreiningur um það: „Dómstóla- leiðin er opin.“ Nokkur mál séu einn- ig í samgönguráðuneytinu þar sem menn hafa kært synjun borgarinnar á að taka við útboðslóðum og hann staðfestir að þegar hafi eitt fyrir- tæki stefnt borginni vegna lóðar í Hádegismóum sem það vilji skila: „Því fyrr sem fæst niðurstaða, því betra fyrir alla.“ Morgunblaðið/RAX Úlfarsárdalur Sextán eigendur útboðslóða hjá borginni hafa formlega ósk- að eftir að fá að skila þeim en ekki fengið. Fleiri hafa óskað eftir að skila lóðum sínum og fengið neitun í gegnum síma. Einn hefur stefnt og annar hótar að stefna út af því að fá ekki að skila útboðslóð til borgarinnar. Því fyrr sem fæst niðurstaða því betra fyrir alla, segir skrifstofu- stjóri hjá Reykjavíkurborg. SAMFYLKINGIN lét bóka á fundi borgarráðs á fimmtudag að mik- ilvægt væri að útfæra tillögur um hvernig standa mætti að endur- greiðslu lóða til fjölskyldna sem fengu úthlutaðar lóðir eftir útboð, þannig að jafnræðis sé gætt. „Til að það verði hægt óska fulltrúar Samfylkingarinnar eftir því að framkvæmda- og eignasvið upplýsi borgarráð og leggi mat á hugsanleg fjárútlát borgarinnar vegna slíkrar tillögugerðar.“ Ástæðu þessarar fyrirspurnar segir Samfylkingin vera að nú hafi 85 einbýlishúsalóðum, 16 lóðum undir par- og raðhús (94 íbúðir) og fjórum lóðum undir fjölbýli með 216 íbúðum verið skilað. Alls 395 lóðum á föstu verði hafi verið skilað en þar til nýlega engri sem úthlutað var eftir útboð. FJÖLSKYLDUR FÁI AÐ SKILA›› Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.