Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 48
48 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
Sudoku
Frumstig
3 1 8
5 9 4
7 9
3 1 2
8 7
7 3 1 2
5 4 8
2 3 6
9 1 3 6
8 7 5
5 6 2 4
8 4 6
6 5 7
2 3
4 3 8
5 6
1 7
8
1 9 2
2 3 1 6
8 5 4
2 3 5
9 6 1
3 7
3 7 9 5 6 8 4 2 1
6 8 1 7 2 4 3 9 5
2 5 4 1 3 9 8 7 6
4 6 3 9 7 2 5 1 8
9 2 8 6 5 1 7 4 3
5 1 7 4 8 3 2 6 9
1 3 2 8 9 7 6 5 4
8 9 6 2 4 5 1 3 7
7 4 5 3 1 6 9 8 2
2 1 4 7 9 8 5 3 6
3 8 5 1 6 4 7 9 2
9 6 7 2 3 5 8 1 4
8 5 1 3 2 7 6 4 9
6 3 9 5 4 1 2 7 8
4 7 2 6 8 9 3 5 1
1 2 3 4 5 6 9 8 7
7 9 6 8 1 3 4 2 5
5 4 8 9 7 2 1 6 3
6 4 9 7 8 5 3 1 2
2 8 5 3 9 1 7 4 6
7 3 1 4 2 6 9 5 8
3 7 8 5 1 9 2 6 4
5 2 4 6 7 8 1 9 3
1 9 6 2 4 3 8 7 5
8 6 2 9 5 7 4 3 1
9 1 3 8 6 4 5 2 7
4 5 7 1 3 2 6 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er sunnudagur 7. júní, 158. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í saman-
burði við þá dýrð, sem oss mun opin-
berast. (Rm. 8, 18.)
Víkverji er á því að frétt um aðupplýsingaflæði nútímans sé
að útrýma samúð í samfélaginu sé
frétt vikunnar. Hann er sannfærður
um að þarna séu orð í tíma töluð.
Upplýsingaflæðið er svo gríðarlegt
að fólk hefur ekki tíma til að staldra
við, hugsa og meta hlutina. Hvað þá
að finna til með fólki sem upplýsing-
arnar snerta. Víkverji fær á hverj-
um degi fleiri tugi tölvupósta -
stundum skipta þeir hundruðum.
Hann eyðir því mörgum dýrmætum
mínútum (stundum klukkutímum) í
starfi sínu við að fara í gegnum
þessi ósköp. Flestir póstarnir eru
rusl - en inn á milli eru t.d. góðar
ábendingar frá lesendum um frétta-
mál og skemmtilegar uppákomur.
x x x
Víkverja finnst stundum að hannsé að leika sér í tölvuleiknum
tetris allan daginn. Jafnóðum og
hann eyðir póstum út, sendir áfram
eða setur í möppur til geymslu hlað-
ast nýir póstar inn. Og rauði lit-
urinn sem merkir að pósturinn sé
ólesinn er stundum æpandi!
x x x
Það er ekki nema von að Víkverjisé stundum úrvinda. Og hann
saknar þeirra tíma þegar engir far-
símar voru og enginn tölvupóstur,
þó það sé algjör klisja! Auðvitað
auðvelda þessir samskiptamátar
margt í starfi Víkverja en þar sem
taugarnar eru farnar að þenjast í
hvert sinn sem síminn hringir og
hjartað að taka kipp í hvert skipti
sem tölvupóstur berst, hefur Vík-
verji nokkrar áhyggjur af ástand-
inu. Og er sannfærður um að alltof
margir tölvupóstar séu sendir. Allt-
of margir.
x x x
Sérstaklega er eftirtektarvert aðstundum hringir fólk, stuttu
eftir að senda póstinn, og spyr:
„Fékkstu tölvupóstinn frá mér?“
Víkverji á stundum bágt með sig
þegar hann fær svoleiðis símtöl.
Þarna sameinast líka tveir verstu
óvinir hans, símtalið og tölvupóst-
urinn. Nógu slæmir eru þeir sitt í
hvoru lagi. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ræna, 4 sligar,
7 baráttuhugur, 8 rauð-
leitt, 9 sorg, 11 umhug-
að, 13 spik, 14 minnugur
á misgerðir, 15 þvætt-
ingur, 17 ker, 20 sterk
löngun, 22 hrósar, 23
ráðum bót á, 24 let-
urtákn, 25 bik.
Lóðrétt | 1 staga, 2 litlu
mennirnir, 3 forar, 4
klæðlaust, 5 hanski, 6
handlanga, 10 greftrun,
12 álít, 13 leyfi, 15 blöðr-
ur, 16 meðulin, 18 ráða
frá, 19 lengdareining, 20
tölustafur, 21 ábætir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 moðreykur, 8 öndin, 9 gætin, 10 níu, 11 gerpi,
13 remma, 15 svelg, 18 skart, 21 ráp, 22 nagli, 23 alveg,
24 þrekvirki.
Lóðrétt: 2 oddur, 3 renni, 4 ylgur, 5 ultum, 6 högg, 7
snúa, 12 púl, 14 eik, 15 sund, 16 elgur, 17 grikk, 18
spaki, 19 atvik, 20 tign.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 g6 2. Rc3 c5 3. g3 Bg7 4. Bg2 Rc6
5. d3 e6 6. e4 Rge7 7. Rge2 d6 8. O-O
O-O 9. Hb1 a5 10. b3 Hb8 11. Bb2 b6
12. Dd2 Bb7 13. h3 Ba8 14. f4 Dd7 15.
Rd1 e5 16. Re3 f5 17. Rd5 Rxd5 18.
exd5 Rd4 19. Rxd4 cxd4 20. Hbe1 b5
21. Ba3 b4 22. Bc1 Da7 23. Kh1 Bb7 24.
He2 Bc8 25. Hfe1 He8 26. Dc2 Bd7 27.
a4 Dc5 28. Bd2 h6 29. Dc1 Kh7 30. h4
h5 31. Dc2 Hbc8 32. Bc1 He7 33. Dd1
Hce8 34. fxe5 dxe5 35. Bg5 Hf7 36. Dd2
Dd6 37. Kh2 Hef8 38. Hf1 Hc8 39. De1
He8 40. Dd2 Bf8 41. Bf3 Dc7 42. Hfe1
Bd6 43. Hg2
Staðan kom upp á 8. asíska meist-
aramótinu í Subic á Filippseyjum.
Stigahæsti keppandi mótsins, ind-
verski stórmeistarinn Krishnan Sasik-
iran (2682), hafði svart gegn stórmeist-
aranum og heimamanninum Darwin
Laylo (2509). 43… e4! 44. dxe4 f4! 45.
gxf4 Hxf4 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Slæm tromplega.
Norður
♠8643
♥–
♦K10952
♣Á876
Vestur Austur
♠– ♠DG10
♥K1097652 ♥D84
♦G7 ♦D43
♣DG92 ♣K1053
Suður
♠ÁK9752
♥ÁG3
♦Á86
♣4
Suður spilar 6♠.
Slemman er borðleggjandi í 2-1
tromplegu (78%), en hér á austur
öruggan trompslag og því þarf ein-
hvern veginn að komast hjá því að gefa
slag á tígul. Er það hægt? Útspilið er
♣D.
Kit Woolsey var í sagnhafasætinu og
fann lausnina við borðið. Þegar spaða-
legan kom í ljós í slag tvö, hreinsaði
Woolsey upp hjarta og lauf með víxl-
trompun. Sendi loks austur inn á
tromp og lét hann hreyfa tígulinn í
þriggja spila endastöðu. Líkurnar eru
mestar á skiptum mannspilum, svo það
er einfalt mál að verka tígulinn tap-
slagalaust – jafnvel þótt austur spili
♦D.
Legan í hliðarlitunum er vissulega
heppileg, en það kom Woolsey ekkert á
óvart. Vestur hafði hindrað í hjarta og
þegar laufið reyndist falla 4-4 lá tígul-
staðan ljós fyrir.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ýmsir möguleikar eru í stöðunni
svo þú skalt ekki skrifa undir neitt fyrr
en þú hefur kynnt þér alla málavöxtu.
Reyndu að taka hlutunum létt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það sem þú aðhefst hefur áhrif á
það sem þú átt ógert. Njóttu þess að vera
í sambandi við annað fólk en forðastu
mikilvægar ákvarðanir og skuldbind-
ingar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur þörf fyrir að taka það
rólega. Stundum leggur maður of mikla
áherslu á að finna út hver hún er. Taktu
til í kringum þig svo að þér líði betur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Notaðu daginn til þess að rann-
saka, ljóstra upp leyndarmálum eða finna
lausnir á gömlum vanda. Skipulag getur
aukið sjálfsöryggi þitt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það getur verið skemmtilegt að
krydda hversdagsleikann með smávægi-
legum uppátækjum. Vertu sérstaklega á
verði með það hvað þú segir öðrum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þó að þú vitir ekki af því, skín það
sem þú trúir og hver þú ert í gegnum
vinnuna þína. Þú ert með margt á þinni
könnu og ætlar að koma miklu í verk.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er engu líkara en einhverju
moldviðri hafi verið þyrlað upp í kring um
þig. Hverjar væru afleiðingarnar ef
leyndarmálið kæmist í hámæli? Hugsaðu
það til enda og láttu svo kyrrt liggja.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þótt það sé alltaf auðvelt að
leita uppi gamlar lausnir er það lélegt til
lengdar. En þú sættir fólk með ráðsnilld.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hamingjan felst í því að gera
greinarmun á því sem maður vill og því
sem maður þarfnast. Hafðu andvara á
þér, fyrr en varir geturðu þurft að hafa
fyrir hlutunum aftur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að gefa sjálfum þér
hressilega hvatningu. Gerðu þér far um
að koma vel fyrir strax í byrjun og láttu
fólk ekki grufla í því hver þú ert.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þetta er góður dagur til að
semja um fasteignir. Betur sjá augu en
auga og margar hendur vinna létt verk.
Þú ræður ferðinni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Óvæntir möguleikar til að ferðast
munu bjóðast, en einnig gætu aðrir kostir
á sviði menntunar eða útgáfu komið fram.
Allir leggja spilin á borðið.
7. júní 2004
Haukur Tómasson tónskáld
hlaut tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir óp-
eruna Fjórði söngur Guð-
rúnar.
7. júní 2008
Vatnajökulsþjóðgarður var
formlega opnaður. Hann er
stærsti þjóðgarður Evrópu
og nær yfir áttunda hluta
landsins. Í samtali við
Morgunblaðið sagði Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverf-
isráðherra að garðurinn
væri einstakur á heimsvísu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ólafur Péturs-
son, fyrrverandi
bóndi á Giljum í
Mýrdal, verður
hundrað ára
föstudaginn 12.
júní næstkom-
andi. Hann tekur
á móti gestum
ásamt Þórunni
eiginkonu sinni á afmælisdaginn á
Hótel Höfðabrekku frá kl. 18 til 21.
100 ára
Una Ólafs-
dóttir Thorodd-
sen, fyrverandi
hjúkrunarfræð-
ingur á Ísafirði,
verður níutíu og
fimm ára á
morgun, 8. júní.
Una dvelst nú á
öldrunardeild
Sjúkrahúss Ísafjarðar. Heitt verður
á könnunni á afmælisdaginn í sal
sjúkrahússins milli kl. 14 og 17.
95 ára
Páll R. Magn-
ússon, starfs-
maður Samein-
aða lífeyris-
sjóðsins, verður
sjötugur í dag, 7.
júní. Eiginkona
hans er Kristín
M. Hafsteins-
dóttir. Þau hjón-
in verða að heiman á afmælisdag-
inn.
70 ára
„ÉG treysti því að veðrið verði gott og stefni að því
að vera með smá grillveislu fyrir fjölskylduna og
nánustu vini,“ segir Gerður Aagot Árnadóttir,
heimilislæknir í Garðabæ og formaður Þroska-
hjálpar, sem fagnar 45 ára afmæli sínu í dag.
„Mér hafa alltaf þótt afmæli skemmtileg og er
mikið afmælisbarn í mér, þótt ég sé nær aldrei með
mikið tilstand. Þetta er hins vegar nokkurs konar
hátíð og ástæða til að gleðjast og gera eitthvað
skemmtilegt,“ segir Gerður.
Spurð um eftirminnileg afmæli í tímans rás nefn-
ir Gerður fertugsafmæli sitt þegar hún dvaldi með
fjölskyldunni í sumarbústað í Danmörku. „Svo hélt ég stóra veislu í
góðu veðri þegar ég varð 35 ára sem var ofsalega gaman. Ég bauð þar
gömlum vinum sem ég hafði ekki séð lengi,“ segir Gerður og bætir við:
„Maður á að nota tækifærið sem gefst á afmælinu til að gera eitthvað
skemmtilegt, hóa saman fólki og aðeins að lífga upp á tilveruna. Ég
held að það sé mjög nauðsynlegt, ekki síst á þessum síðustu og verstu
tímum.“ Gerður er þegar byrjuð að leggja drög að fimmtugsafmælinu.
„Þegar ég verð fimmtug ætla ég að gera eitthvað mjög eftirminnilegt í
tilefni dagsins, fara t.d. í heimsreisu.“ silja@mbl.is
Gerður Aagot Árnadóttir læknir 45 ára
Afmæli lífga upp á tilveruna
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is