Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 49

Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 49
Velvakandi 49 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Grettir ÉG ÆTLA AÐ KAUPA FLEIRI DISKA SVONA ER AÐ VERA PIPARSVEINN Kalvin & Hobbes SÉRÐU EITTHVAÐ, HOBBES? NEI! VIÐ VERÐUM AÐ HAFA AUGUN OPIN. GEIMVERUR MUNU LENDA HÉRNA INNAN SKAMMS HVAÐ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA ÞEGAR ÞÆR LENDA? SELJA PABBA OG MÖMMU Í ÞRÆLDÓM FYRIR GEIMSKUTLU Kalvin & Hobbes TAKK FYRIR ASNI! Kalvin & Hobbes KALVIN, ÞÚ MÁTT EKKI VERA UPPI Í TRÉ AF HVERJU EKKI? ÞVÍ SUMAR GREINARNAR ERU FÚNAR OG ÞÚ GÆTIR SLASAÐ ÞIG MAMMA SKEMMIR ALLTAF ALLT ÞETTA ER EKKI ALVEG JAFN GAMAN Hrólfur hræðilegi HRÓLFUR... JÁ ? GAT ÞÉR EKKI DOTTIÐ ÞETTA Í HUG ÁÐUR EN ÞEIR UMKRINGDU OKKUR?!? Gæsamamma og Grímur KANNSKI ÆTTIR ÞÚ AÐ SKRIFA BRÉF TIL JÓLASVEINSINS ÉG ER BYRJAÐUR Á ÞVÍ GOTT. ÞAÐ ER ALLTAF BETRA AÐ LÁTA HANN VITA AÐ ÞRÁTT FYRIR ALLT SÉ MAÐUR EKKI SVO SLÆMUR KÆRI SKEGGJAÐI FITU- HLUNKUR... ÉG HELD AÐ EINHVER FÁI KARTÖFLU Í SKÓINN! Ferdinand ÓÐINSHANAR eru litríkir vaðfuglar með örmjótt, beint nef, svarta fætur og með sérkennilega kvikar hreyfingar. Þegar hann aflar sér ætis í tjörn- um snýst hann í hringi og stingur nefinu ótt og títt í vatnsflötinn. Tekur hver snúningur eina sekúndu. Heiti óðinshana gæti tengst óði eða söng en þó eiga kunnugir erfitt með að tengja fuglinn við söng því hann tístir. Hins vegar er hinn syngjandi skógarþröstur kallaður óðinshani í Færeyjum og er því hugsanlegt að heiti fuglsins hafi brenglast á leið til Íslands. Við þetta má svo bæta að óðinshaninn er nauðalíkur þórshana sem er aftur á móti mjög sjaldgæfur á Íslandi Morgunblaðið/Ómar Óðinshani fær sér bað Hvar eru loforðin? ENN HRYNUR allt hér á okkar fagra landi. Nú er búið að taka ákvörðum um hvernig eigi að borga skuldir ríkissjóðs. Það á að láta þá sem áttu engan þátt í hruninu borga. Ekki á að draga saman seglin í opinbera geiranum, það á frekar að stækka hann og hækka bara skatta, gjöld og fleira á borg- ara þessa lands. Nýlega var haldinn ráðherrafundur Evrópuráðs í Reykjavík. Þar var aðallega fjallað um fjölmiðla og aðra miðla. Og hvað gerir menntamálaráðherra vor? Nú að sjálfsögðu, skipa nefnd sem á að vera á góðum launum, og á líklega að lesa fjölmiðla. Hef reyndar aldrei séð auglýsingu um nefndarstörf hjá ríkinu. Skipa ríkisstarfsmenn aðallega vini og kunningja í þessi nefnd- arstörf? Gamla setningin, Báknið burt, er gleymt og grafið. Og ekki bætir samgöngumála- ráðherra úr. Til að bæta og gera umferðina betri um jarðgöngin í Hvalfirði, þá vill hann smíða ný göng. Hann vill ekki nota einföld- ustu lausn sem til er, hvað umferð um göngin varðar. Lausnin felst í því, að taka burt hliðið sem rukk- ar enn, þrátt fyrir að búið sé að borga göngin. Nei, hann vill hafa fjórar ak- reinar undir Hval- fjörð, en tvær að og frá göngunum. Það eina sem orsakar um- ferðarþrengsli í göng- um er gjald- skylduhliðið. Hvaða vinur hans fær það góða verkefni að smíða ný göng? Er enginn í rík- isstjórninni að hugsa um hvað er að gerast hjá kjósendum? For- sætisráðherra og fjár- málaráðherra sögðu fyrir kosningar hvað ætti að gera. Fella verðtryggingu og slá skjaldborg um heimilin í landinu. En eftir kosningar þá er það ekki lengur hægt, heldur allt lagt undir að bjarga fyrirtækjum og stækka hið opinbera. Allt þetta staðfestir að eigi hafið þið samvisku. Hugsið bara um ykkar fólk en ekki fólkið á göt- unni. Virðist hafa gleymt því að þið starfið fyrir fólkið en ekki fyr- ir vini og kunningja. Þið ættuð að koma ykkur út úr ykkar vernduðu fílabeinsturnum og tala við fólkið á götunni. Eða viljið þið virkilega að fólk fari að rækta kartöflur á Aust- urvelli? Heimilin eru að sökkva og þið standið ekki við loforðin sem áttu að hjálpa heimilunum. Halldór Sigurðsson, verkamaður.          Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Ferð í Fljótshlíð 11. júní. Farið um Rangárþing m.a. í Hlíðarenda, Hlíðarendakot, Múlakot o.fl. Brottför kl. 8.30 frá Aflagranda, hádegismatur inni- falinn. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur í Stangarhyl 4 kl. 20-23.30. Dans- hljómsveitin Klassík leikur danslög við allra hæfi. Sjá feb.is. Félagsstarf Gerðubergi | Virka daga er dagskrá fyrir fólk á öllum aldri, m.a vinnustofur, spilasalur, stafganga o.fl. Mánud. 8. júní e.h. koma gestir frá Höfða á Akranesi í heimsókn. Þriðjud. 9. júní og miðvikud. 11. júní er gróðursetning með leikskólabörnum frá Hraunborg. Hrafnista, Reykjavík | Sjómannadag- urinn haldinn hátíðlegur í dag. Messa verður kl. 14 í samkomusalnum, prestur sr. Svanhildur Blöndal. Kaffisala á vægu verði og sýning og sala á handverki heimilismanna kl. 13-17 í iðjuþjálfun, 4. hæð og 8. júní kl. 9-16. Hraunbær 105 | Farið í Fljótshlíð 11. júní, brottför frá Hraunbæ kl. 9.30. Verð 6.300 og hádegismatur innifalinn. Skráning á skrifstofu eða í síma 411- 2730 fyrir þriðjudaginn 9. júní. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin, gönuhlaup og gáfumannakaffi og fé- lagsvist á mánudögum. Myndlistarsýn- ing Erlu og Stefáns. Matur og kaffi. Hóp- ar sem vilja starfa á eigin grundvelli velkomnir. Sími 411-2790. Fótaaðgerða- st., s. 897-9801, hárgreiðslust., s. 568- 3139. Vesturgata 7 | Farið í sameiginlega ferð með Aflagranda og Hraunbæ í Fljótshlíð fimmtud. 11. júní. M.a. verður farið í Hlíð- arenda og Múlakot. Hádegismatur er innifalinn. Leiðsögumaður er Guðjón Jónasson. Brottför frá Vesturgötu kl. 8.35. Nánari uppl. og skráning í síma 535-2740.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.