Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 153. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «MENNING KLASSÍSKT ROKK OG RÓL ́I NASA-VEISLU «MEISTARINN HJÁ MILAN KAFLASKIL ER MALDINI KVEÐUR Íslenska íþróttafólkið kom heim með 81 verðlaun frá Smáþjóðaleik- unum á Kýpur. Guðmundur, Kári og Helga voru atkvæðamikil á loka- degi leikanna. ÍÞRÓTTIR Fengu 81 verð- laun á Kýpur Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálf- ari í knattspyrnu, kveðst hafa lært mikið af fyrri hálfleiknum gegn Hollandi. Hann hafi teflt fulldjarft og áætlanir sínar hafi hrunið. Lærði sína lexíu af fyrri hálfleiknum Fimm leikmenn eru horfnir út úr landsliðshópnum í knattspyrnu fyr- ir leikinn gegn Makedóníu. Þrír eru í leikbanni, Eiður Smári er meiddur og einn er hættur með landsliðinu. Fimm fóru ekki með til Makedóníu Eftir Þórð Snæ Júlíusson og Þorbjörn Þórðarson „ÉG held að við ráðum við þetta samkomulag. Ég held að það sé innan þolmarka íslenska hag- kerfisins,“ segir Svavar Gestsson, sem stýrði samninganefnd íslenska ríkisins vegna Icesave- reikninganna. Í ýtarlegu viðtali Morgunblaðsins við Svavar kemur meðal annars fram að ríkissjóður greiðir ekki eina krónu vegna Icesave-reikninganna í að minnsta kosti sjö ár. Þær greiðslur komi ein- ungis frá Landsbankanum í London. „Í fyrsta lagi komum við hagkerfinu í skjól í sjö ár í miðri kreppunni. Í öðru lagi er mikilvægt að hafa í huga að þessi ákvörðun opnar fjár- var auðvitað allt undir. Það var allt skjálfandi og titrandi hér fyrr í vetur að mér skilst, líka EES-samningurinn, þótt ég kunni þá sögu ekki nákvæmlega. Við stóðum einfaldlega frammi fyrir tveimur leiðum. Annars vegar leið A, sem snerist um að ná sátt við alþjóðasamfélagið. Hins vegar var leið B, sem var að brjóta sig frá því. Þá hefði hættan verið sú að Ísland myndi einangrast og þá held ég að fátæktin og erf- iðleikarnir hefðu orðið mun sárari en ella [...] Hvað mér finnst í þessum efnum er algjört aukaatriði. En ég get þó sagt að ég held að við höfum ekki átt neinn annan kost en að klára þetta mál.“ Icesave innan þolmarka  Hagkerfið kemst í skjól 8-9  Svavar Gestsson telur okkur ráða við Icesave-samkomulagið  Kemur Ís- landi í skjól í að minnsta kosti sjö ár  EES-samningurinn skalf og nötraði málaheiminn aftur fyrir Íslandi. Í þriðja lagi mun þetta samkomulag styrkja gengi íslensku krónunnar.“ EES-samningurinn skjálfandi og titrandi Svavar segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) hafi stutt við þá lausn sem Íslendingar lögðu fram. Það hafi skipt verulegu máli. „Það » Ríkið greiðir ekkert í sjö ár » Endurfjármagna má lánið » Eignir bankans fyrst notaðar STUÐNINGSMENN hollenska landsliðsins í knattspyrnu settu svip sinn á borgarlífið í góða veðrinu um helgina. Sumir þeirra höfðu uppi skýrar kröfur, þ.e. um sigur liðsins gegn Íslend- ingum og að peningum á Icesave-reikningum yrði skilað til hollenskra sparifjáreigenda. Segja má að þessum ágæta manni hafi orðið að ósk sinni. Holland vann Ísland 2:1 og samið var um Icesave-reikningana. | Íþróttir og 8-9 HOLLENDINGARNIR FENGU SITT Morgunblaðið/Golli  THEÓDÓR Elmar Bjarnason hefur ákveðið að draga sig út úr íslenska lands- liðshópnum í knattspyrnu sem hélt áleiðis til Makedóníu í gær. Í samtali við Morgunblaðið sagði hann ástæðuna vera mikinn skort á tækifærum undir stjórn Ólafs Jóhannessonar þjálfara og hyggst Elmar ekki gefa kost á sér með landsliðinu við óbreytt ástand, eins og hann kýs að orða það. »Íþróttir Theódór Elmar ósáttur og ekki með landsliðinu í bili  LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI Ís- lands á 12% hlut í fyrirtækinu ORF Líftækni, sem sækist nú eftir leyfi til að rækta erfðabreytt bygg á Suðurlandi. Því vakna spurningar um hagsmunatengsl þegar rann- sóknir frá skólanum eru notaðar til rökstuðnings við umsókn hjá Um- hverfisstofnun. Málið er hins vegar ekki svo einfalt, enda fyrirtækið sprottið upp úr háskólasamfélaginu og hlutur skólans til kominn af sér- stökum ástæðum. »14 Einn hluthafi ORF Líftækni er líka vísindalegur ráðgjafi  LIÐ úr franska og brasilíska hernum er við leit á Atlantshafi, þar sem frönsk farþegavél fórst í liðinni viku með 228 manns innan- borðs. Þegar hafa lík nokkurra manna fundist og fleiri hafa sést úr lofti. Vonir standa til að vísbend- ingar um tildrög slyssins finnist en getgátur eru uppi um að bilun í hraðamæli vélarinnar hafi valdið því að henni var flogið of hratt. Kjarnorkukafbátur franska sjó- hersins er væntanlegur á slysstað á miðvikudag og á hann með aðstoð ratsjár að leita að flugritum vél- arinnar sem gætu innihaldið gagn- legar upplýsingar fyrir rannsókn málsins. »12 Enn er unnið af kappi við leitarstörf á Atlantshafi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.