Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Garðar Túnþökusala Oddsteins Túnþökur og túnþökurúllur til sölu í garðinn eða sumarbú- staðinn! Steini, sími 663 6666, Kolla, sími 663 7666. Visa/Euro l t i Túnþökur og túnþökurúl ur til sölu í garðinn eða sumarbústaðinn! Kolla, sími 663 7 66, Steini, sími 3 6666. Visa/Euro Heilsa Smart Motion hlaupastíls- námskeið Viltu læra að hlaupa á léttari máta? Með minna álagi á fætur, liði og mjóbak? Komdu á hlaupastíls- námskeið. www.smartmotion.org s. 896 2300. Húsnæði í boði Íbúð til leigu í vesturbænum 3ja herbergja íbúð til leigu á góðum stað í vesturbænum, nál. Háskólanum. Góðar suðursvalir. Verð 110 þús. á mán. Geymsla fylgir. Laus strax. Upplýsingar í síma 669 1170. Sumarhús Sumarhúsalóðir í Kjósinni Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1 (Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í síma 561 6521 og 892 1938. Spennandi gisting Ættarmót, fyrirtækjahópar, golfhópar, saumaklúbbar, kínahópar, hvata- ferðir o.fl. o.fl. Bjóðum upp á frábæra aðstöðu fyrir alla hópa og fjölskyldur. Heitir pottar og grill. Stutt í sundlaug. Allar sjónvarpsstöðvar -líka ef þú ert boltanörd. www.minniborgir.is og Gsm 868-3592. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum.til sölu Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Óska eftir KAUPI GULL Ég Magnús Steinþórsson, gull- smíðameistari er að kaupa gull, gullpeninga og gullskartgripi og veiti ég góð ráð og upplýsingar. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Upplýsingar hjá demantar.is og í síma 699-8000, eða komið í Pósthússtræti 13. Bókhald Framtöl - Bókhald Bókhaldsþjónusta, ársreikningar, framtöl, stofnun ehf., VSK uppgjör, erfðafjárskýrslur, fjármálaráðgjöf. Hagstætt verð. s. 517-3977, netfang: framtal@visir.is Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. sími 897-9809. Garðsláttur á betra verði Gerum tilboð í garðslátt fyrir húsfélög og einstaklinga, eitt skipti eða fyrir allt sumarið. Gæði og gott verð fara saman hjá ENGI ehf. Sími: 857-3506. Brúðkaup á DVD Tek að mér HD vídeóupptökur á hátíðarstundum og klippi saman í fallega minningu á DVD. Nánari upplýsingar í síma 899-2320 eða á sigridur02@simnet.is Málarar Málningarvinna og múrviðgerðir Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. Tilboð eða tímavinna. Lítið Mál ehf. S. 896-5758. Bátar Óska eftir að kaupa lítinn bát til handfæraveiða, trillu eða hraðfiskibát. Upplýsingar í síma 694 9858 eða 694 5358. Bílar VW Touareg v-6 disel, árg ‘06. Þessi bíll er hlaðinn aukabúnaði. Ek. 62 þús. km. Nýskoðaður og ný- kominn úr 60 þús. km skoðun. Fæst á góðu staðgreiðsluverði. Upplýsingar í símum 557 2212 og 661 5806. Til sölu Subaru Impreza WRX Árgerð 2006, ekinn 78 þús. km. Upplýsingar í síma 862 8551. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 KRINGLUBÓN ekið inn stóri- litli turn. Opið mán.-fös. 8-18, lau. 10-18. S. 534 2455 GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj. Firðinum (undir verslunarm.) Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, mössun, teflon, bryngljái, djúphreinsun. Alþrif sértilboð - 8.-12. júní 4.500 kr. Erum með sértilboð í gangi 8.-12. júní: Alþrif aðeins 4.500 kr. Smábíll og mössun: 13.000 kr. Hringið strax: 690 3097, ekki missa af þessu frábæra tilboði - MAG BÓN - Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Húsviðhald Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Sisal teppi Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík. Sími 533 5800. www.strond.is Atvinnuauglýsingar Yfirvélstjóri Vantar yfirvélstjóra á mb.Skálafell ÁR-50 sem er 148,9 brl. og gerir út á humartroll í sumar frá Þorlákshöfn. Vélarstærð: 589 kW, 800 hö. Uppl. í síma: 897 3869 eða 852 4981. Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Vörustjórnunarfélag Íslands Aðalfundur Vörustjórnunarfélags Íslands verður haldinn á 9. hæð, í Húsi verslunarinnar, fimmtudaginn 18. júní 2009 kl. 17:00. Dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf. Elsku afinn okkar, þá er kallið komið og er ég viss um að kon- urnar í lífi þínu, Jóa amma og Júlíana amma, taka vel á móti þér og einnig strákarnir þínir.Við erum þakklát fyrir að hafa hitt þig um daginn á sjúkrahúsinu hér fyrir sunnan. Þá fékkstu að sjá Emil Elí, minnsta drenginn okkar, í fyrsta sinn og honum líkaði vel að vera hjá langafa. Jón Þór var spenntur að sjá þig og það er eins og hann hafi alltaf verið í kringum þig. Honum fannst þú svo sniðugur þegar þú sagðir að hann hefði frekar átt að kaupa kaf- bát með pabba sínum en lítinn fiski- bát. Þið Alli gátuð spjallað mikið um miðin og veðrið og ekki fannst þér það leiðinlegt. Jón Þór grét þegar ég sagði honum að þú værir farinn að hitta Jóu ömmu, hann langaði að hitta þig aftur. Við náðum þó að gera samkomulag um að gera um ykkur stórt og fallegt myndaalbúm þannig að minningarnar um þig, elsku afi, verði alltaf lifandi. Það koma margar fallegar minn- ingar upp í hugann þegar maður hugsar um stundirnar með þér og Jóu ömmu. Þið voruð yndisleg heim að sækja. Alltaf voruð þið að hugsa um að gefa og gleðja aðra. Þegar ég hugsa um ykkur sé ég þig fyrir mér í skyrtu með axlabönd og vasaklút í vasanum og ömmu í kjólnum sínum. Þú sast í stólnum og hún sá um að Högni Sturluson ✝ Högni Sturlusonfæddist á Látrum í Aðalvík 15. apríl 1919. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Ísafirði 27. maí 2009 og fór útför hans fram frá Hnífs- dalskapellu 6. júní. vera leiðsögumaður um Hlíf. Amma bauð upp á brjóstsykurs- mola í boxi og þú bauðst upp á ekta vestfirskan harðfisk, ekkert annað drasl. Þú leystir mann út með fallegum smíða- verkum og amma með handverkum. Þessa hluti hef ég alltaf hald- ið mikið upp á frá því ég var barn og fyrir það er ég þakklát í dag. Elsku afi minn, ég vona að þér líði vel núna, við munum varðveita góð- ar minningar um þig, elsku kallinn minn, það verður nóg að gera hjá ykkur að sveima yfir stóra afkom- endahópnum ykkar. Í lokin kveðjum við þig með bæn- inni sem tilheyrir ykkur svo sterkt. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Amen. Hvíl í friði, Júlíana Guðrún Þórðardóttir og fjölskylda. Elsku Högni afi, nú er kominn tími til að kveðja. Við systkinin, Júlla, Jói, Regína og Högni, eigum margar góðar minningar um ykkur Jóhönnu ömmu frá því að við vorum krakkar. Þú kenndir Högna að drekka kaffi með mikilli mjólk og sykri þegar hann var 6 eða 7 ára. Við munum eftir heimsóknum vestur í Hnífsdal og til Reykjavíkur þegar þið bjugguð þar. Alltaf áttuð þið til brjóstsykur eða kandís handa okkur, og við vissum að á jólunum fengjum við bók og eitthvað handprjónað frá ykkur ömmu. Eftir því sem árin liðu var meira tölvu- og símasamband á milli. Högni var mjög duglegur að tala við þig frá San Francisco á tölv- unni og er mjög þakklátur að þannig gátu stelpurnar hans fengið að kynnast þér örlítið. Þau börn okkar sem höfðu fermst fengu handunninn penna frá þér og varðveita hann til minningar um þig. Elsku Högni afi, nú hefurðu feng- ið hvíldina og ert með Júllu ömmu, Jóhönnu ömmu og Leifa. Hvíl í friði. Júlíana Guðrún Júlíusdóttir, Jó- hann Reimar Júlíusson, Guð- munda Regína Júlíusdóttir og Högni Þorsteinn Júlíusson. Elskulegur bróðir minn, Högni, er farinn í ferðina löngu. Á síðari árum reikar hugurinn æ oftar til æsku- stöðvanna norður við Dumbshaf. Ungur að árum kom hann á Horn- strandir með mömmu, sem þá var orðin ekkja. Þau settust að í víkinni fögru þar sem hún hóf sambúð með pabba. Þar fæddust þeim þrjár dæt- ur. En lífið gaf og tók, mamma lést þegar Högni var sextán ára og ég aðeins sex ára. Frá fyrstu stundu sýndi Högni hvaða mann hann hafði að geyma, hann var vakinn og sofinn yfir velferð okkar systra, Rúnu og mín. Má þar meðal annars nefna dagana og vikurnar sem hann ann- aðist okkur meðan pabbi var hjá mömmu á sjúkrahúsi á Ísafirði. Högni var „stór“ í orðsins fyllstu merkingu, ef til vill ekki á hæðina, þar var hann meðalmaður, heldur í einu og öllu sem hann sagði og tók sér fyrir hendur. Mér þótti afar vænt um hann og virti mikið. Ætt- rækinn var hann með afbrigðum, manni mínum vinur góður og fjöl- skyldunni allri. Hann var duglegur og heill. Sem dæmi um tryggð hans við sjálfstæðisstefnuna, þá kaus hann alla tíð sama flokkinn og hringdi ávallt fyrir kosningar til að minna okkur hjónin á að kjósa nú rétt, og ekki brást það nú í vor. Ég er mjög þakklát börnum Rúnu syst- ur sem buðu mér vestur til að vera við 90 ára afmælið hans Högna í vor, sá fundur okkar var mér mikils virði. En nú er hann Högni farinn og ég er þess fullviss að hann hefur litið við á æskustöðvar okkar í Rekavík bak Höfn á leiðinni til nýrra heim- kynna þar sem vel var tekið á móti honum. Samfylgdina sem aldrei bar skugga á í 80 ár þakka ég af heilum hug. Ég, Júlli og dætur sendum fjöl- skyldunni hans hugheilar samúðar- kveðjur. Farðu í friði minn elskulegi bróð- ir. Sigríður (Sigga systir). Högni Sturluson fæddist í Reka- vík bak Látur 15. apríl 1919. Seinna fluttist hann til Fljótavíkur þar sem hann kvæntist Júlíönu Júlíusdóttur, Geirmundssonar bónda á Atlastöð- um. Högni var einn fimm Fljótavík- urbænda sem brugðu búi og fluttust alfarnir úr víkinni árið 1946, og skildu nær allar veraldlegar eigur sínar eftir. Undirritaður átti því láni að fagna að kynnast Högna seinni árin, þó hann hafi reyndar þekkt hann alla tíð. Einstaklega ræðinn maður og mikill sögumaður. Þegar undirritað- ur safnaði saman fróðleik um lífið í Fljótavík í upphafi síðustu aldar, var Högni mikill sagnabrunnur og lýsti lífinu og tilverunni við harðneskju á nyrstu nöf við Dumbshaf. Högni tilheyrði kynslóð sem örugglega er einstök í mannkynsög- unni. Fæddur í torfkofa án rennandi vatns og rafmagns þar sem hand- aflið eitt var til að berjast fyrir lífinu við erfið skilyrði. Fyrir utan verk- kunnáttu voru kjör þessa fólks, á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar, með því lakasta sem þekktist í Evr- ópu, og þó víðar væri leitað. Veð- urfar með því versta sem þekkist á Íslandi þar sem snjóa leysti í júní og vetur skollinn á í september. Lang- varandi óþerrar sem gerðu heyskap og fjárhald erfitt og því treyst meira á sjóinn en víða annars staðar. Högni lifði mikla breytingartíma, sennilega meiri en nokkur önnur kynslóð í veröldinni hefur gert, að kynnast rafmagni, vélum og síðan og ekki síst, tölvuöld og veraldarvefn- um. Yfirleitt þegar ég leit við hjá honum á Hlíf, var hann að skoða heimasíður barna sinna, senda þeim tölvupóst eða nýbúinn að spjalla við einhvern í Ameríku á Skype. Fyrstu kynni mín af Högna voru þegar ég fór ungur að árum til Fljótavíkur í fyrsta sinn með for- eldrum mínum ásamt hópi fólks með Gunnhildi ÍS. Jói Júl var skipstjóri en Högni vélstjóri. Við lentum í hörku brælu fyrir Ritinn og Straum- nes og ég minnist þess að vera frá- vita að skelfingu, enda sannfærður um að dagar mínir væru taldir. Hnútarnir í röstinni köstuðu bátun- um ítrekað á hliðina og tók inn fyrir lunningar nokkrum sinnum. Þá var þessi hressi og málglaði maður spil- andi kátur, segjandi sögur og gant- ast við samferðafólkið áður en hann hvarf niður um lítinn hlera á brúar- gólfinu, niður í ærandi hávaða og ol- íustybbu vélarrúmsins. Þetta var sko karl í krapinu. Ég átti frí heima á Ísafirði um síð- ustu jól og leit við hjá Högna, ætl- unin var að fá hann til að koma með okkur feðgunum á jólaskemmtun Kiwanisklúbbsins Bása á Hlíf. En hann treysti sér ekki og sá ég þá í hvað stefndi. Tíðindi af brotthvarfi hans koma því ekki á óvart. Fjöl- skyldu hans vil ég senda bestu kveðjur og innilega samúð á þessum tíma. Gunnar Þórðarson, Kampala, Úganda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.