Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009 Vöruhótelþjónusta Eimskips Vöruhótelið býður upp á heildarþjónustu frá því vara kemur til landsins þar til viðskiptavinur þinn fær hana í hendurnar. EIMSKIP VÖRUHÓTEL Frekari upplýsingar eru veittar í síma 525 7600 eða sendið fyrirspurnir á netfangið vh@eimskip.is P IP A R • S ÍA • 9 0 2 9 6 Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870 – www.friendtex.is ÚTSALA Opið mánudaga frá kl. 11.00-18.00 laugardaga frá kl. 11.00-16.00 Útsalan er hafin á vor- og sumarlista Friendtex Rýmum fyrir nýjum vörum Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið. Sími 533 2220 www.lindesign.is Rúmfatnaður, púðar, dúkar, baðsloppar, lök ásamt mörgu öðru með 20–50% afslætti. Tilboðin gilda fram á laugardag. Íslensk hönnun á frábæru verði! Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn 2006 10. október Icesave-reikningarnir fyrst kynntir í Bretlandi. Þótt Lands- bankinn eigi þarlent dótturfélag, Her- itable-bankann, eru reikningarnir opnaðir sem útibú. Þeir eru því tryggðir af hinum íslenska trygg- ingasjóði innstæðueigenda. 2007 15. október Fjöldi Icesave-reikninga nær því að verða 105 þúsund. 2008 29. maí Icesave-reikningarnir opn- aðir sem útibú í Hollandi. Markmiðið er að ná inn 500 milljónum evra fyrir árslok. Fjórtán þúsund reikningar opnaðir fyrstu vikuna. 7. október FME tekur yfir Landsbank- ann og Icesave-reikningunum er lok- að. Fjöldi þeirra var þá 343.306 í Bretlandi og Hollandi. Heildar- innstæður á Icesave voru þá 1.156 millljarðar króna og af þeim mun 650 milljarða króna höfuðstóll lenda á Ís- lendingum. 8. október Bresk yfirvöld ákveða að beita ákvæðum hryðjuverkalaga gegn Landsbankanum, setja bankann á válista vegna hryðjuverkaógnar og frysta eignir hans þar í landi. 4. desember Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn að leiða til lykta samninga vegna Icesave-innstæðna. Viðræður hefjast samstundis. Baldur Guð- laugsson, þáverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, stýrir þeim fyrir Íslands hönd. 2009 24. febrúar Fjölmiðlar skýra frá því að Svavar Gestsson hafi verið skip- aður til að veita nýrri samninganefnd Íslands vegna Icesave-reikninganna forystu. 15. apríl „Landsbankaaðferðin“ svo- kallaða kynnt fyrir fulltrúum Breta og Hollendinga í viðræðunum. Und- irtektir dræmar. 3-5. júní Aðilar málsins funda stíft. samkomulag næst að kvöldi föstu- dagsins 5. júní um „Landsbanka- aðferðina“. 6. júní Forsætis- og fjármálaráðherra kynna samkomulagið sem náðst hef- ur vegna Icesave-reikninganna. 15. júní Frystingu eigna Landsbank- ans verður aflétt og Landsbankinn verður tekinn af lista yfir hryðju- verkamenn. SKIPTAR skoðanir eru um hvort ís- lenska ríkið eigi yfirleitt að ábyrgj- ast nokkuð vegna reikninganna. Svavar segir það enda liggja fyrir að regluverk Evrópusambandsins (ESB) sé mjög ófullkomið þegar kemur að innstæðutryggingum. Ís- lendingar hafi þó tæplega átt neitt val. „Öll aðildarríkin að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), öll Norð- urlöndin, Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn (IMF). Allir þessir aðilar voru sammála um að við ættum að standa við þessa skuldbindingu okkar. Við vorum fjarska ein í heiminum á þessari stundu. Það hefði verið úti- lokað að virða ekki vilja alþjóða- samfélagsins. Þegar seðla- bankastjóri [Davíð Oddsson innsk. blm.] kom fram í fjölmiðlum og sagði „við borgum ekki“ þá var það ekkert skrýtin afstaða miðað við þær að- stæður sem uppi voru. Ég er í raun sammála henni en það kom í ljós að leiðin var ekki fær. Spurningin var aldrei hvort við borguðum, heldur hvernig við gerðum það.“ EES-samningurinn titraði Mikið hefur verið rætt um það að Bretar og Hollendingar hafi beitt áhrifum sínum innan IMF gegn Ís- lendingum í þessu máli. Aðspurður hvort nefndin hafi fundið fyrir því svarar Svavar ekki afdráttarlaust. „Ég mun greina nákvæmlega frá því síðar hvernig þetta gerðist. Ég get þó sagt að á lokasprettinum var það stuðningur Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins við okkar lausn sem skipti veru- legu máli, en ekki öfugt. Það var auðvitað allt undir. Það var allt skjálfandi og titrandi hér fyrr í vetur að mér skilst, líka EES-samning- urinn, þótt ég kunni þá sögu ekki ná- kvæmlega. Við stóðum einfaldlega frammi fyrir tveimur leiðum. Ann- ars vegar leið A, sem snerist um að ná sátt við alþjóðasamfélagið. Hins vegar var leið B, sem var að brjóta sig frá því. Þá hefði hættan verið sú að Ísland myndi einangrast og þá held ég að fátæktin og erfiðleikarnir hefðu orðið mun sárari.“ Spurður hvort hann hafi fengið innsýn í hvað hefði gerst ef Íslend- ingar hefðu valið leið B segir Svavar það aldrei hafa verið valmöguleika frá því að hann kom að viðræðunum. Því hafi sú leið aldrei verið rædd. „Það lá fyrir samþykkt Alþingis og ríkisstjórnarinnar um að við ættum að fara leið A. Að við ættum að gera upp þessa skuldbindingu með einum eða öðrum hætti. Ég tók við verkinu á þeim forsendum. Að neita að borga var ekki í þeim kortum sem umboð þessarar nefndar byggðist á. Hvað mér finnst í þessum efnum er algjört aukaatriði. En ég get þó sagt að ég held að við höfum ekki átt neinn ann- an kost en að klára þetta mál. Þegar Bretar settu Ísland á hryðjuverka- listann og frystu eignir Landsbank- ans kviknaði rautt ljós á Íslandi á öll- um heimskortum og öllum kaup- höllum. Það rauða ljós þýddi „ekki skipta við Ísland“.“ Samkvæmt samkomulaginu verða eignir Landsbankans í Bretlandi af- frystar mánudaginn 15. júní. Svavar telur skilaboðin sem það muni senda ekki síður mikilvæg en aðgengi að eignunum. „Þá mun ljósið breytast úr rauðu í grænt. Það verður orðið í lagi að skipta við Ísland og því fylgir stórkostleg breyting, sérstaklega fyrir íslenskt efnahagslíf, sem hefur verið svelt lengi. Ég er til dæmis viss um að gengið mun styrkjast fljót- lega.“ Morgunblaðið/Golli Órói „Allt var skjálfandi og titrandi hér […] líka EES-samningurinn.“ EES-samstarfið var í töluverðri hættu  Annaðhvort að borga eða einangrast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.