Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Söngvaseiður. Aukasýning 13. júní
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Djúpið (Litla sviðið)
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið
Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið
Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið
Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið
Lau 18/7 kl. 19:00 stóra svið
Fim 11/6 kl. 20:00 U
Fös 12/6 kl. 20:00 U
Lau 13/6 kl. 14:00 U
Lau 13/6 kl. 18:00 Ný aukasÖ
Sun 14/6 kl. 16:00 U
Fös 4/9 kl. 19:00 Ö
Lau 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 19:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 Ö
Fim 11/6 kl. 20:00
Fös 12/6 kl. 20:00
Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00
Mið 10/6 kl. 20:00 Ö
Fim 11/6 kl. 20:00 Ö
Fös 12/6 kl. 19:00 Ö
Lau 13/6 kl. 19:00 Ö
Sun 14/6 kl. 20:00 Ö
Fim 18/6 kl. 20:00
GREASE – Vinsælasti rokksöngleikur allra tíma!
Þri 9/6 kl. 20:00 forsýn.U
Mið 10/6 kl. 20:00 forsýn.U
Fim 11/6 kl. 20:00 frums. U
Fös 12/6 kl. 20:00 2. sýn Ö
Lau 13/6 kl. 20:00 3.sýn U
Sun 14/6 kl. 16:00 4. sýn Ö
Lau 20/6 kl. 16:00 5. sýn Ö
Sun 21/6 kl. 16:00 6.sýn Ö
Fös 26/6 kl. 20:00 7.sýn
Lau 27/6 kl. 20:00 8.sýn
Sun 28/6 kl. 16:00 9.sýn
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200
Sýningum lýkur í júní
Fim 11/6 kl. 20:00 Ný aukas. Fös 12/6 kl. 20:00 Ný aukas
Það er eðlilegt að Jón Atlihafi hugsað sér frá upp-hafi að Ingvar Sigurðs-son léki hlutverk sjó-
mannsins í Djúpinu. Fáir leikarar
eru jafn beintengdir við íslenskan
veruleika og Ingvar; hann sækir
ekki fyrirmyndir sínar í erlendar
kvikmyndir heldur notar athygl-
isgáfuna á umhverfi sitt. Auk þess
sem Ingvar hefur þá sterku ná-
lægð og útgeislun sem nauðsynleg
er til að halda utan um heilan sal í
eintali. Tími verksins verður líka
afstæður þegar hann, miðaldra,
segir frá í nútíð ungs manns. Upp-
brot í verkinu þegar leikið er á pí-
anó, almanak á vegg frá 1964, ár-
gerð bifreiðar leggja einnig sitt af
mörkum til þess að undirstrika
óvissu stundarinnar.
Það er aðeins einn stóll, skuggi
af píanói sem Árni Páll setur á
hringsviðið og eintal leikarans er
annars aðeins stutt af snilldarlýs-
ingu Björns Bergsteins og tónlist
Hilmars Arnar en þeir búa jafnvel
til andartök þar sem áhorfanda
finnst hann hverfa inn í „alheims-
geim“.
Af mikilli kyrrð, í knöppum
setningum, án skreytinga byrjar
Ingvar epíska frásögn í fyrstu
persónu nútíðar af því er hann
vaknar í dögun í litlu húsi, í litlu
þorpi, kveður foreldra sína og
gengur til skips. Hann segir frá
ástinni sinni, draumi um bíl, skips-
félögunum, bátnum, káetunni sem
hann deilir með öðrum. Í þessum
fyrsta hluta tekst honum það sem
er afar sjaldgæft í íslensku leik-
húsi; að sýna sjálfum sér og áhorf-
endum þá virðingu að treysta
þeim fullkomlega. Hann býr til
sinn eigin hæga tíma og dregur
áhorfandann áreynslulaust inn í
hann, áreynslulaust inn í mynd af
þorpi þar sem fátt er hugsað og
fátt gerist nema það að karlmaður
dregst að konu, það fæðast börn,
mæður hafa áhyggjur af sonum
sem ganga til skips, synirnir geta
rakið af nákvæmni lokin á kvik-
mynd fyrir káetufélaga, sem verð-
ur að nokkurs konar forspá um
það sem koma skal: Dögun hverf-
ist í nótt, hlýja í kulda, ró í ofsa,
ótta, epík í dramatík. Þar býr
Ingvar einnig til myndir sem sitja
í huganum.
Þessi óður Jóns Atla til íslenska
sjómannsins byggist sumpart á
lýsingum Guðlaugs Friðþórssonar
á þeirri nóttu er hann þreytti
kapp við dauðann, samtalið við
sjófugla er ágætt dæmi um það.
En þessi sjómaður er ekki Guð-
laugur, hann hefur almennari skír-
skotun. Leikurinn með tímann,
aldur, bygging eintalsins er
áhugaverð og aldrei hefur mér
þótt Jón Atli vinna betur og
kannski djarfar en hér: kyrralífs-
mynd þorps sem teflt er gegn ein-
staklingnum einum í baráttu við
náttúruöflin og sú mynd rofin í
eitt skipti með píanóleik og söng í
nútíð áhorfandans. Myndin sem
dregin er upp af hinum „týpíska“
fáorða sjómanni hefði þó mátt
vera dýpri, blæbrigðameiri, lokin
sömuleiðis. Textann undir orðfær-
inu, sem hljómar ákaflega eðlilega
af munni, hefði einnig mátt vinna
betur. Sumt hefði líka mátt stytta.
Eins og vofa útrásarvíkinganna
stæði aftast í salnum og öskraði:
Koma svo! þá risu menn úr sætum
og fögnuðu aðstandendum í lokin.
Ég stóð upp af tregðu. Svo oft hef
ég verið neydd til að rísa úr sæti
fyrir hvers kyns vitleysu og sjálf-
umgleði í leikhúsum undanfarin ár
að mér þótti ég nánast óvirða
þessa sýningu með því. Það hefði
verið einhvern veginn meira við
hæfi að strákarnir hefðu bara
gengið fram og sest á sviðs-
brúnina og Ingvar hefði spurt:
Jæja? Kannski hefðu áhorfendur
ekki verið tilbúnir til að hefja ró-
legt samtal um þessa flottu til-
raun, sem hver leiksýning ætti
ávallt að vera. Kannski við hefðum
bara setið og íhugað hvað okkur
fannst; sumir jafnvel bara brosað
innan í sér eins og oft var hægt að
gera á þessari sýningu, þar til ein-
hver hefði staðið kurteislega upp
og farið. Það hefði rímað betur við
stundina og þá nýju tíma sem leik-
húsið þarf að eiga þátt í að skapa.
Kyrrð
Borgarleikhúsið
Djúpið
Höfundur og leikstjóri: Jón Atli Jón-
asson. Leikmynd: Árni Páll Jóhannsson.
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmunds-
son. Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson.
Leikari: Ingvar E. Sigurðsson.
Litla sviðið, föstudaginn 5. júní kl.
20.00
MARÍA
KRISTJÁNSDÓTTIR
LEIKLIST
Morgunblaðið/Ómar
Djúpið „Auk þess sem Ingvar hefur þá sterku nálægð og útgeislun sem
nauðsynleg er til að halda utan um heilan sal í eintali,“ segir í dómnum.
Leikritið Við borgum ekki,við borgum ekki (Non Sipaga! Non Si paga!) varskrifað af ítalska nób-
elsverðlaunahafanum Dario Fo árið
1974. Á Ítalíu í byrjun áttunda ára-
tugarins voru átök í þjóðfélaginu, loft
var lævi blandið og lítið um traust og
í Mílanó kom til átaka milli uppreisn-
armanna og lögreglu. Fo er þekktur
fyrir sín pólitísku gamanleikrit og fá-
ir eru jafn beittir í gagnrýni sinni á
valdníðslu og óréttlæti í þjóðfélag-
inu. Það er því ekki furða, í ljósi at-
burða síðustu mánaða hér á Íslandi,
að aðstandendur sýningarinnar hafi
hugsað til Dario Fo og verksins Við
borgum ekki, við borgum ekki, þar
sem þessi orð hafa verið hrópuð á
Austurvelli í Búsáhaldabyltingunni
fyrir nokkru. Einnig hefur verið opn-
uð síða á Facebook sem heitir: Við
neitum að borga skuldir sem við ber-
um ekki ábyrgð á!
Leikritið fjallar um tvær fjöl-
skyldur sem eiga í fjárhagserfið-
leikum sökum kreppunnar. Kon-
urnar taka til sinna ráða, ræna
vörum úr hverfisversluninni og
reyna að koma ránsfengnum undan
án þess að eiginmenn og lögregla
komist að athæfi þeirra. Þær taka
það til ráðs að stinga vörunum inn á
sig og líta út fyrir að vera ófrískar.
Það vekur að sjálfsögðu grunsemdir
lögreglu að konurnar í hverfinu
verða allar kasóléttar á undra-
skömmum tíma. Lygavefurinn verð-
ur æ flóknari og útskýringarnar
langsóttari.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi
verkið og í samvinnu við leikhópinn
staðfærði hún gamanleikinn upp á
Ísland í dag og eiga skírskotanir í ís-
lenskan samtíma furðuvel við.
Farsar af þessu tagi eru ekki auð-
veldir viðureignar fyrir leikara. Þeir
verða að hafa hárfínar tímasetningar
og ýkt látbrag en samt þarf allt að
líta út fyrir að þetta sé veruleiki og
alvara. Lítið má út af bera svo að
leikurinn verði of eða van. Hér hefur
tekist vel til. Atburðarásin er bráð-
fyndin og vitleysan er hreint út sagt
yfirgengileg.
Með hlutverk hjónanna Antoníu
og Jóhanns fara Maríanna Clara
Lúthersdóttir og Ari Matthíasson.
Antonía er kona sem er einstaklega
útsjónarsöm, sérstaklega þegar
kemur að því að tala sig út úr vand-
ræðum og er sú persónan sem er
„primus motor“ í atburðarásinni.
Maríanna hefur greinilega lag á
kómík og fer vel með hlutverkið. Það
er gaman að sjá Ara Matthíasson
aftur á sviði. Hann hefur sterka
sviðsframkomu og látbragðið sveifl-
ast frá því að vera barnslega einlægt
og dýrslegt. Með hlutverk vinahjón-
anna Margrétar og Lúlla fara Þrúð-
ur Vilhjálmsdóttir og Jóhann G. Jó-
hannsson. Margrét og Lúlli eru
trúgjörn og einföld og átta sig stund-
um engan veginn á því sem er að ger-
ast. Þrúður og Jóhann gera þessu
góð skil. Stundum er Þrúður þó full
lágstemmd miðað við aðra í sýning-
unni. Síðast en ekki síst fer Halldór
Gylfason með nokkur hlutverk. Hall-
dór er gamanleikari af guðs náð.
Hann nær að sýna breidd í per-
sónum sínum með einföldum radd-
breytingum og látbragði. Hann fer á
kostum sem sérsveitarmaður lög-
reglunnar og er atriðið þar sem hann
bregður sér í hlutverk útfararstjóra
óborganlega fyndið. Leikstjórinn
Þröstur Leó Gunnarsson hefur feng-
ist töluvert við gamanleik og er
greinilegt að hans eigin reynsla kem-
ur að góðum notum við uppsetningu
þessa leikrits.
Leikmynd Stígs Steinþórssonar er
hefðbundin og lýsir venjulegu heim-
ili. Hún er skemmtileg og þjónar
verkinu ágætlega og ekki verður sett
út á lýsingu Magnúsar Helga Kjart-
anssonar. Tónlistin var í höndum
Halldórs Gylfasonar og ómaði meðal
annars frumsamið lag hans á milli
þátta.
Þessi sumarsmellur Borgarleik-
hússins verður settur upp á Akur-
eyri í haust en verkið er samstarfs-
verkefni Borgarleikhússins, Nýja
Íslands og Leikfélags Akureyrar.
Við borgum ekki, við borgum ekki
er bráðfyndinn sumarsmellur sem
léttir lund á tímum óvissu og efna-
hagsþrenginga.
Kreppusmellur
Borgarleikhúsið
Við borgum ekki, við borgum ekki!
Höfundur: Dario Fo. Leikarar: Ari Matt-
híasson, Halldór Gylfason, Jóhann G.
Jóhannsson, Maríanna Clara Lúth-
ersdóttir og Þrúður Vilhjálmsdóttir.
Leikmynd og búningar: Stígur Stein-
þórsson. Lýsing: Magnús Helgi Kjart-
ansson. Tónlist: Halldór Gylfason. Þýð-
ing: Magnea J. Matthíasdóttir.
Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson.
Frumsýning á Nýja sviðinu laugardag-
inn 6. júní 2009.
INGIBJÖRG
ÞÓRISDÓTTIR
LEIKLIST
Morgunblaðið/Ómar
Við borgum ekki „Hér hefur tekist vel til. Atburðarásin er bráðfyndin og
vitleysan er hreint út sagt yfirgengileg,“ segir m.a í gagnrýninni.
KARLAGRÚPPAN Take That hóf
risastóra tónleikaferð um England
og Írland um helgina og ætlar að
leika á tuttugu tónleikum á íþrótta-
leikvöngum fyrir milljónir manna á
næstu vikum.
Miðasala hefur gengið mjög vel
og allt lítur út fyrir að þetta verði
stærsta tónleikaferð sem farin hef-
ur verið um Bretland. Túrinn nefn-
ist Circus Live og hófst með tón-
leikum í Sunderland um helgina
þar sem 94.000 miðar voru seldir á
tvenna tónleika. Yfir milljón miðar
hafa selst í heild á túrinn.
Komið hefur nokkuð á óvart
hvað miðasala á Take That hefur
gengið vel með tilliti til þess að
miklu stærri nöfn í tónlistarheim-
inum halda líka tónleika í Bretlandi
í sumar. Má þar nefna Oasis, Jack-
son, Britney Spears, Coldplay og
Madonnu.
Tónleikaferðinni lýkur á Wem-
bley-leikvanginum í London með
fernum tónleikum eftir mánuð.
Sívinsælir
Reuters
Take That Jason Orange, Howard
Donald, Mark Owen og Gary Barlow.