Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009
ÞÆR Veronika Von og Brynja Sól tóku tæknina í sína þágu þegar þær fóru
á hornsílaveiðar í andapollinum í Seljahverfi. Voru þær með myndarlegan
háf og hann skilaði sínu, nokkrum hornsílum, enda gat ekki farið hjá því,
að þær fengju eitthvað, jafneinbeittar og þær voru við veiðiskapinn.
Ungar og efnilegar veiðiklær
Morgunblaðið/Ómar
Sílin í Seljahverfi háfuð
upp úr andapollinum
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„ÞÓTT aðeins
standist ein af
hverjum tíu ásök-
unum á hendur
íslensku útrásar-
víkingunum, er
líklega um að
ræða stærsta
svikamál Evrópu
frá síðari heims-
styrjöld.“ Þetta
segir í grein sem
birtist í vefútgáfu viðskiptablaðs
Berlingske Tidende í gær. Greinin
ber heitið „Leitin að milljörðum
útrásarvíkinganna“.
Í greininni segir m.a. að Glitnir
hafi ráðið til sín erlenda einka-
spæjarafyrirtækið Kroll.
Fyrirtækið er þekkt fyrir að hafa
grafið upp fé sem einræðisherrar á
borð við Saddam Hussein höfðu
komið undan. Verkefni fyrirtækisins
hér á landi mun vera að rannsaka
útlán Glitnis og hafi eitthvað
athugavert verið við þau á fyr-
irtækið að reyna að endurheimta
hluta fjárins.
Blaðið fer einnig yfir meðhöndlun
Hannesar Smárasonar og Pálma
Haraldssonar á málefnum flug-
félagsins Sterling og tengslum þess
við FL Group. Þá segir að málið sé
alls ekki eina dæmið um að fyrirtæki
á hlutabréfamarkaði í eigu Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar hafi gert sér-
kennilega lélega samninga en Jón
Ásgeir eða einhver úr hans innsta
hring hafi grætt gríðarlega.
Samlíking við
Enron-hneykslið
Í grein blaðsins er ennfremur haft
eftir Gylfa Magnússyni viðskipta-
ráðherra, að hruni íslensks efnahags
megi líkja við Enron-hneykslið
margfræga í Bandaríkjunum. Því
hefði verið haldið að fólki að íslensk-
ir bankar hefðu búið til magnað við-
skiptamódel sem skýrt gæti gríðar-
legan og óvenjulegan vöxt þeirra.
Slíkar staðhæfingar hefðu auðvitað
verið á sandi byggðar.
Greinarhöfundur tekur undir með
orðum Gylfa og segir í lokin að eng-
inn vafi sé á því að hér á landi sé
þörf á aðstoð einkaspæjara sem
venjulega starfi við að eltast við
falda fjársjóði einræðisherra.
Stærsta svika-
mál Evrópu frá
heimsstyrjöld
Rannsókn á hruninu til umfjöllunar í BT
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
JÖKULSÁRLÓN er nánast fullt af
ís, en Einar Björn Einarsson, eig-
andi og framkvæmdastjóri sam-
nefnds fyrirtækis, sem býður upp á
siglingar á lóninu, segir að ísinn
hafi ekki enn haft áhrif á við-
skiptin.
Einar Björn er með fjóra báta á
lóninu og framundan er helsti
annatími ársins. Hann segir að
meðan austlægar áttir ríki sé allt í
lagi að sigla á lóninu þrátt fyrir ís-
inn. Reyndar hafi vestanáttin ekki
heldur hreyft ísinn og því hafi sigl-
ingaleiðin haldist
opin. „Við höfum
sloppið til
þessa,“ segir
hann en bætir við
að ekki þurfi
mikið að breytast
til þess að sigl-
ingarnar leggist
af. Hins vegar sé
ekkert hættuástand á svæðinu.
„Við förum ekki inn í ísinn heldur
siglum meðfram honum,“ heldur
hann áfram. Einar Björn segir að
fari allt á versta veg geti það gerst
yfir nótt, „en við vonum það besta“,
segir hann.
Siglingaleiðin á Jökuls-
árlóni er ennþá opin
EITT björgunarskipa Slysavarna-
félagsins Landsbjargar sigldi
stjórnlaust af stað frá bryggjunni í
Grindavík á laugardaginn á hátíðinni
Sjóaranum síkáta.
Björgunarmenn sýndu mikið
snarræði með því að stökkva um
borð í skipið og ná aftur stjórn á því.
Þannig komu þeir í veg fyrir hugs-
anlegt slys því í höfninni voru fleiri
bátar á siglingu, meðal annars með
börn. Þá var mikið af fólki saman-
komið á bryggjunni sjálfri.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélag-
inu Landsbjörgu segir að gangsetn-
ing skipa fari fram í vélarrúmi og
fyrir hana var farið yfir stjórntæki í
brú. Ekkert hefur komið fram sem
gefur til kynna að stjórntækin hafi
verið í ólagi og líklegast er talið að
einhver hafi átt við þau þar sem mik-
ill gestagangur var í skipinu.
haa@mbl.is
Átt var
við tækin
Björgunarskip sigldi
stjórnlaust af stað
Skip Björgunarskip fór óvænt af stað.
MAÐUR á fimmtugsaldri var fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur í
gær eftir að hann hafði ekið bifreið
sinni á brúarstólpa við Ljósavatns-
skarð rétt austan við Stórutjarnir
um áttaleytið á laugardagskvöld.
Ekki fengust nánari upplýsingar um
líðan mannsins.
Þá flutti þyrla Landhelgisgæsl-
unnar mann á þrítugsaldri, sem slas-
ast hafði á Snæfellsjökli, á Landspít-
alann í Fossvogi á laugardag.
Maðurinn hafði lent í hremmingum
á vélsleða. Björgunarsveitarmenn
sóttu manninn.
Maðurinn náði sjálfur að hringja í
neyðarlínu úr gsm-síma og láta vita
af sér. Hann var talinn fótbrotinn en
ekki í lífshættu að sögn talsmanns
björgunarsveitarinnar. haa@mbl.is
Tveir með
sjúkraflugi
Í TILEFNI af opnun bílaverkstæðisins Eðalbílar í B&L-
húsinu var þar til sýnis um helgina breskur MG TF
1500-sportbíll frá árinu 1955. Aðeins 17 eintök voru
framleidd með stýri vinstra megin í bifreiðinni. Sport-
bíllinn fágæti er í eigu Erlu Gísladóttur en upphaflega
var það Thor Thors, fyrrverandi sendiherra, sem flutti
bílinn til landsins. Á þeim tíma voru bílar háðir svo-
nefndum innflutningsleyfum og þótti mörgum kynlegt
að Thor skyldi eyða leyfinu í einungis tveggja manna
bíl. Fyrrverandi starfsmenn B&L hafa stofnað Eðalbíla.
Morgunblaðið/Ómar
Aldinn eðalvagn í B&L-húsinu
FRANCH Michelsen
úrsmíðameistari lést í
gærmorgun eftir stutt
veikindi. Franch var 95
ára, fæddur 31. desem-
ber árið 1913. Saga
úraverslunar Franchs
Michelsens úr-
smíðameistara spann-
ar nær heila öld. Jörg-
en Frank Michelsen,
faðir Franchs, stofnaði
fyrirtæki kennt við sig
hinn 1. júlí árið 1909 og
nú situr sonarsonur
hans, Frank Ú. Mic-
helsen, við stjórnvölinn.
Franch lærði úrsmíðar hjá föður
sínum og fór í framhaldsnám til
Danmerkur. Að námi loknu starfaði
hann hjá konunglega hirðúrsmiðn-
um Carl Jonsén í Kaupmannahöfn.
Þegar nasistar hertóku Dan-
mörku sneri hann heim til Íslands og
sigldi með Esjunni frá Petsamo í
Finnlandi. Hann gekk á land hinn
15. október 1940.
Árið 1943 opnaði hann úr-
smíðaverkstæði og
verslun á Vesturgötu
21a í Reykjavík. Faðir
hans, Jörgen Franch,
rak þá verslun á Sauð-
árkróki og þeir samein-
uðu reksturinn þegar
Jörgen fluttist suður
árið 1946. Þeir störfuðu
saman uns Jörgen
Franch féll frá árið
1954. Síðar var versl-
unin flutt að Laugavegi
39 og þar rak Franch
fyrirtækið í 49 ár.
Franch hafði frum-
kvæði að mörgu innan skátafélag-
anna hér á landi. Hann sat í 18 ár í
varastjórn og aðalstjórn Bandalags
ísl. skáta, stofnaði Skátablaðið og
var ritstjóri Foringjablaðs skáta um
átta ára skeið. Hann var einnig rit-
stjóri Bálsins, málgagns eldri skáta
á Íslandi. Hann sat jafnframt í
stjórn Úrsmiðafélagsins í sex ár.
Franch lætur eftir sig eiginkonu,
Guðnýju Guðrúnu Jónsdóttur, og
sex börn á lífi.
Andlát
Franch Michelsen
úrsmíðameistari