Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 159. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SKOÐANIR» Ljósvakinn: Lengi lifir í gömlum glæðum Pistill: Bragðið af Íslandi Staksteinar: Ógnvaldurinn Dalai Lama Forystugreinar: Myndin skýrist | Lýst eftir afstöðu ráðherra Heitast 13° C | Kaldast 6° C Hæg, suðlæg eða breytileg átt og víða skýjað og súld af og til, einkum um landið vestanvert. » 10 Ingvar hefur þá sterku nálægð og út- geislun sem nauð- synleg er til að halda utan um heilan sal í eintali. »25 LEIKLIST» Ingvar í Djúpinu TÍSKA» Sumartískan 2010 í Bras- ilíu er litrík. »28 Við borgum ekki er bráðfyndinn sum- arsmellur sem léttir lund á tímum óvissu og efnahagsþreng- inga. »25 LEIKLIST» Bráðfyndinn smellur FLUGAN» Flugan var á ferð og flugi um borg og bæ. »24 KVIKMYNDIR» Óvenjuleg rómantísk gamanmynd. »28 Menning VEÐUR» 1. Stærsta svikamál frá stríðinu 2. Fundu lík úr flugslysinu 3. Í uppnámi vegna ljósmynda 4. Obama var með smakkara »MEST LESIÐ Á mbl.is ÞAÐ borgar sig að spyrja um verð áður en ákveðið er að kaupa vöru – jafnvel þótt það sé jafn hvers- dagsleg vara og brauð. Um daginn stóð ég mig að því að hafa borgað 525 krónur í Bak- arameistaranum fyrir hvítlauks- brauð. Þetta var ekki stórt brauð, né nokkuð merkilegra en önnur hvítlauksbrauð. Í Krónunni í sama húsnæði fæst hveiti í tveggja kílóa pokum, sem kosta 189 krónur. Það mætti því fá tæp sex kíló af hveiti fyrir verð eins brauðs. Ef ég léti mér fjögur kíló af hveiti duga, og léti mismuninn milli þess og brauðsins dýra upp í ger, olíu og hvítlauk, telst mér til að hægt væri að baka átta til tíu sam- bærileg brauð í eldhúsinu heima. Það munar um minna. begga@mbl.is Auratal ALDREI hefur verið jafngóð sæta- nýting á Listahátíð í Reykjavík og í ár. Uppselt var á nánast hvern ein- asta viðburð að sögn Hrefnu Har- aldsdóttur, listræns stjórnanda há- tíðarinnar. „Við höfðum úr minna að spila nú en í fyrra og hitteðfyrra, en við vinnum hátíðina hverju sinni inn í þann ramma sem fyrir liggur. Heildarvelta Listahátíðar á ári er í kringum 100 milljónir,“ segir Hrefna en hátíðin missti marga af sínum dyggustu stuðningsaðilum í haust. | 23 Góð aðsókn að Listahátíð í ár SJÓMENN flykktust í land til þess að halda upp á hátíð- isdag sinn, sjómannadaginn, í gær. Víða um land var boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni dagsins og tók almenningur virkan þátt í hátíðahöldunum. Í Hafn- arfirði var fólki meðal annars boðið í útsýnissiglingu og tóku margir því boði fegins hendi. | 13 Öllum boðið í siglingu Sjómannadagur með fjölbreytta dagskrá Morgunblaðið/Golli Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „ÉG er mjög kátur með silfrið, þótt ég hefði viljað fá gullið, en ég verð stundum að sætta mig við að tapa,“ segir Gunnar Nelson, sem varð í öðru sæti í millivigt á heimsmeist- aramótinu í brasilísku jiu-jitsu í Los Angeles um helgina. Þrenna í ár Í apríl sl. vann Gunnar til gull- og bronsverðlauna á Opna New York-meistaramótinu í jiu-jitsu og bætti nú silfri í safnið. Rúmlega 40 keppendur voru í millivigt með brúnt belti og segir Gunnar að hann hafi verið mjög nálægt sigri í úrslitaglímunni, en á leiðinni þang- að hafði hann meðal annars betur gegn heimsmeistaranum Ryan Beauregard. Hann tapaði hins veg- ar fyrir honum í opnum flokki. „Það munaði engu að ég næði hon- um í lás, þegar um hálf mínúta var eftir af glímunni, en hann komst úr lásnum, fékk tvö stig og vann á þeim,“ segir Gunnar um úrslita- glímuna við Brasilíumanninn Gabr- iel Goulart. Gunnar segir að árangurinn opni sér nýja möguleika og þá ekki síst á mót, þar sem keppt sé í blandaðri bardagalist (MMA). „Ég hefði gam- an af því að keppa á heimsmeist- aramótinu næsta ár en takmarkið hjá mér er að verða heimsmeistari í blandaðri bardagalist,“ segir hann. „Kátur með silfrið“ Bardagalistaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson vann til silfur- verðlauna á heimsmeistaramótinu í jiu-jitsu í Los Angeles Silfurdrengur Gunnar Nelson bætti silfri í verðlaunasafnið sitt. Í HNOTSKURN » Brasilískt jiu-jitsu á upp-runa sinn í kodokan-júdói og flokkast undir bardagalist. » Gunnar Nelson, sem ertvítugur, var í karate og kynntist íþróttinni á Íslandi fyrir um fjórum árum, en hef- ur æft og keppt í New York frá áramótum. Hann vill sjá íþróttina á Ólympíuleikum. TVEIR liðsmenn hljómsveitarinnar Rökkurróar láta ekki atvinnuleysi sumarsins plaga sig. Þau nýta at- vinnuleysisbæturnar sem lista- mannslaun og eyða dögunum í að hljóðrita lög eftir þekkta erlenda listamenn, taka upp myndbönd og setja á YouTube í von um að gleðja aðdáendur og eignast nýja. Liðsmenn sveitarinnar semja nú einnig lög af kappi með það í huga að hljóðrita aðra breiðskífu Rökk- urróar í lok september. | 26 Rökkurró hljóðritar þekkt erlend lög ’En nú bregður svo við að þeir semláta í ljós þá skoðun að rétt sé aðskoða vel hvað sé í húfi og hvort eitt-hvað sé að varast í sambandi við rækt-un erfðabreyttra lífvera utan dyra eru teknir fyrir á persónulegum nótum, kallaðir mótmælendur, andstæðingar og jafnvel bendlaðir við kukl. » 16 EINAR BERGMUNDUR ARNBJÖRNSSON ’En hver er galdurinn að bakiþessu pólitíska afreki og hinni við-skiptalegu snilld? Jú, að auðveldaþeim sem höfðu búið við tekjur semstaðið höfðu í stað síðan 1980 að auka neyslu sína með aukinni lántöku, þ.e. með yfirdráttarheimildum, kred- itkortum, húsnæðislánum, endur- fjármögnun húsnæðis og ýmsum öðr- um snilldarlegum nýjungum fjármálaiðnaðarins. » 16 SIGURBJÖRG SIGURGEIRSDÓTTIR ’Um er að ræða órökstuddar ograkalausar ásakanir sem eru ekkieingöngu til þess fallnar að rýra trú-verðugleika allra stjórnarmanna, held-ur er okkur beinlínis gefið að sök sér- staklega ófyrirleitin háttsemi, ef ekki refsiverð. » 16 STJÓRNARMENN Í GILDI OG LÍFEYRISSJÓÐI VERSLUNARMANNA GILDI ’Dollarinn er mun öflugri en evranog sést það best á krepputímumþegar dollarinn styrkist gegn evrunni.Það er auðveldara að taka upp dollara,þar sem ekki þarf að ganga í ESB, auk þess sem við gætum tekið aftur upp krónuna þegar öldurnar lægir. Ekkert er því til fyrirstöðu að ganga í ESB með dollara sem gjaldmiðil. » 17 SVERRIR GARÐARSSON OG BRYNJAR VALDIMARSSON ’Það mun sannast að vogskorinstrandlengja Íslands er gósenlandfyrir siglingafólk. Djúpivogur hefurstaðsetninguna og aðstöðuna. Þaðkostar tiltölulega litla fjármuni að bæta hana frekar. Höfnin í Gleðivík býður upp á að gera þar fyrsta flokks þjónustuaðstöðu fyrir skemmtibáta- þjónustu. » 18 PÉTUR RAFNSSON ’Síðar í sömu grein hefur Stein-grímur áhyggjur af lýðræðishallainnan ESB, þar sem reynt væri að kom-ast hjá því ef þess væri nokkur kosturað spyrja almenning álits. Það er hugg- un harmi gegn að Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur ekki breytt sinni grundvallarstefnu í Evrópumálum, eins og formaður hreyfingarinnar staðfesti í ræðustól Alþingis fyrir stuttu. » 18 VIGDÍS HAUKSDÓTTIR Skoðanir fólksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.