Morgunblaðið - 08.06.2009, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.06.2009, Qupperneq 21
Dagbók 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009 Sudoku Frumstig 7 9 6 1 4 5 3 6 6 3 7 8 7 4 7 4 2 9 5 2 5 1 3 9 9 3 6 5 1 4 2 2 8 2 7 3 9 7 4 6 1 1 4 6 2 5 4 3 6 9 3 1 7 4 8 2 4 4 8 3 1 7 2 5 7 1 3 8 4 5 7 6 8 6 5 9 4 2 3 1 7 3 2 9 1 7 6 8 4 5 4 1 7 8 5 3 6 9 2 7 4 6 5 2 8 9 3 1 5 9 1 6 3 4 2 7 8 2 8 3 7 1 9 4 5 6 9 5 8 3 6 7 1 2 4 1 3 4 2 8 5 7 6 9 6 7 2 4 9 1 5 8 3 4 5 9 1 3 7 6 2 8 2 8 1 5 9 6 7 4 3 6 3 7 8 2 4 9 5 1 5 6 4 2 1 8 3 9 7 1 7 2 3 4 9 8 6 5 3 9 8 7 6 5 4 1 2 7 1 6 9 5 3 2 8 4 9 2 3 4 8 1 5 7 6 8 4 5 6 7 2 1 3 9 5 3 2 4 6 9 1 8 7 4 7 9 8 2 1 5 6 3 6 8 1 7 3 5 2 4 9 8 5 4 3 1 2 7 9 6 7 2 6 5 9 4 3 1 8 9 1 3 6 7 8 4 2 5 2 4 5 9 8 3 6 7 1 1 9 7 2 5 6 8 3 4 3 6 8 1 4 7 9 5 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 8. júní, 159. dagur ársins 2009 Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) Víkverji er mikill aðdáandi félag-anna Franks Hvams og Caspers í dönsku þáttunum Klovn. Það tók Víkverja nokkurn tíma að komast inn í húmorinn og nenna að horfa á þenn- an aulalega karl með derhúfuna en þegar hindrunin var úr vegi varð ekki aftur snúið. Vonbrigðin voru því mikil í liðinni viku þegar Víkverji settist fyrir fram- an sjónvarpið og ætlaði að horfa á nýja seríu af Klovn. Sýning þáttanna hafði verið blásin út í auglýsingum hjá Ríkissjónvarpinu, en hvað gerðist? Það var fyrsta þáttaröðin endursýnd. RÚV hafði þá verið að auglýsa end- ursýningu þáttanna af miklu kappi. Eftir á að hyggja er auðvitað ósenni- legt að settar verði af stað sýningar á nýrri röð svo vinsælla þátta að sumri til þegar fæstir liggja fyrir framan sjónvarpið. En er ekki skrítið að auglýsa end- ursýningar með þessum hætti þar sem fæstir hlusta af athygli á slíkar auglýsingar … sjá bara Klovn og hugsa sér gott til glóðarinnar? x x x Víkverji er mikill fýlupúki þegarkemur að skipulögðum hátíðum eins og sjómannadeginum, menning- arnótt eða hverfishátíðum hverskon- ar. Hann þolir ekki troðninginn sem fylgir slíkum skemmtunum. Hoppu- kastalana sem kostar í og svekkelsið sem fylgir þegar börnin geta ekki fengið kandíflos eða farið í hoppukast- alana af því að buddan leyfir það ekki. Svo fær Víkverji alltaf svima þegar rýna skal í viðamiklar dagskrárnar og velja eitthvað úr. x x x Víkverji gerir þó undantekningu á17. júní og fer iðulega í bæinn. Hann gætir þess þó fyrirfram að gera þeim grein fyrir því hvernig nammi verði keypt og hvað verði ekki í boði. Annars eru börn Víkverja voðalega þæg og ekki heimtufrek. Þau eru heldur ekkert mjög spennt fyrir skipulögðum stórhátíðum og gerir það ákvörðunina um að gera eitthvað allt annað einfaldari. Fara bara í hjó- latúr þangað sem enginn er af því að allir aðrir eru í bænum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 geðvondur, 8 digurt, 9 tekur, 10 málmur, 11 slitni, 13 kjánar, 15 höfuðfats, 18 mannsnafn, 21 gerist oft, 22 bæli, 23 sætta sig við, 24 spjalla saman. Lóðrétt | 2 skræfa, 3 snáði, 4 ljúka, 5 mergð, 6 hæðir, 7 þrjóskur, 12 veiðarfæri, 14 ekki göm- ul, 15 hitti, 16 dragsúg, 17 al, 18 skriðdýr, 19 at- vinnugrein, 20 fuglinn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 rupla, 4 bugar, 7 móður, 8 rjótt, 9 sút, 11 annt, 13 fita, 14 erfir, 15 bull, 17 ílát, 20 þrá, 22 lofar, 23 bæt- um, 24 rúnir, 25 tjara. Lóðrétt: 1 rimpa, 2 peðin, 3 aurs, 4 bert, 5 glófi, 6 rétta, 10 útför, 12 tel, 13 frí, 15 bólur, 16 lyfin, 18 letja, 19 tomma, 20 þrír, 21 ábót. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Staðan kom upp á 8. asíska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Su- bic í Filippseyjum. Kínverski stór- meistarinn Weiqi Zhou (2.563) hafði hvítt gegn kollega sínum Niaz Murz- hed (2.407) frá Bangladesh. 50. Bxf7+! Kd8 svartur hefði einnig tapað eftir 50. …Kxf7 51. d7 Hb5+ 52. Ke4 Hb4+ 53. Kd3. Framhaldið varð: 51. Ra7 Hb2 52. Rc6+ Kd7 53. Rd4 Hb7 54. Be6+ Kd8 55. Rc6+ Ke8 56. Bc8 og svartur gafst upp. Sigurvegarar mótsins voru stór- meistararnir Shekhar Surya-Ganguly (2.625) frá Indlandi og Weiqi Zhou (2,563) frá Kína með 8 vinninga af 11 mögulegum. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Útlit og lykt. Norður ♠K5 ♥ÁK42 ♦K7652 ♣76 Vestur Austur ♠Á986432 ♠DG7 ♥D107 ♥G8653 ♦4 ♦DG109 ♣ÁG ♣D Suður ♠10 ♥9 ♦Á83 ♣K10985432 Suður spilar 5♣. Vestur gaf og vakti á 1♠, norður do- blaði og austur lyfti í 2♠. Suður stakk svo upp í alla við borðið með mynd- arlegu stökki í 5♣. Pass hringinn og ♦4 út. Eddie Kantar hefur þetta að segja um grunsamleg útspil: Ef það lítur út fyrir að vera einspil og lyktar sem ein- spil, þá er það einspil. Hvernig á að spila út frá þeirri forsendu að ♦4 sé einn á ferð? Vestur á svörtu ásana, en ♣Á er varla blankur. Né heldur á vestur ♣ÁD, því þá hefði hann ekki byrjað á tígli og sennilega doblað. Allt bendir til þess að vestur sé með ♣ÁG. Sé það rétt ályktað er leiðin til lífsins þessi: Fyrsti slagurinn er tekinn heima, spaða hent í háhjarta og hjarta trompað. Svo er ♣K húrrað út! Vestur lendir inni og kemst ekki hjá því að fría slag á ♠K. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú stendur andspænis uppgjöri við gamlan vin. Skoðaðu málið og þú færð námskeið og bækur á góðu verði. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú finnur fyrir hugrekki, sjálfstæði og ævintýraþrá í dag. Að breyta bara einum sið tekur mikinn aga og honum býrðu yfir nú. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú leggur mikið upp úr því að rækta samband við ættingja og vini og umvefur þá með kærleik þegar þeir þarfnast þess. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Samtal við ókunnuga mun leiða til góðs. Mundu að sönn vinátta byggist á gagnkvæmu trausti. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Til hvers að leita að lærimeistara í andlegum efnum? Þú veist að andleg göfgi er allt í kring. Nú er bara að sýna dirfsku og staðfestu og sigla málunum í örugga höfn. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert oft varaður við því að láta ekki tímann renna þér úr greipum. Not- aðu tækifærið og beittu zen-heimspeki í vinnunni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Að vera upptekinn er ekki það sama og að vera afkastamikill. Nú er rétti tím- inn til að biðja yfirmanninn um greiða eða launahækkun. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér mun veitast auðveldar að stjórna þínum mönnum ef þú kemur fram við þá eins og jafningja. En þú kemur málunum á hreint með lagni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú munt ná takmarki þínu ef þér tekst að virkja annað fólk til að bera sinn hluta byrðarinnar. Reyndu þá að bregðast við því þar, en láttu ekki pirr- inginn bitna á þínum nánustu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Varaðu þig á vini sem hefur bara áhuga á stöðu þinni og hverfur þegar syrtir í álinn. Ef þú sníður þér stakk eftir vexti mun þér ganga allt í haginn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú sérð félaga þinn í skýru og fersku ljósi sem er bæði jákvætt og nei- kvætt. Finndu lag til þess að vinsa úr það sem einhver veigur er í. Framandi slóðir heilla þig líka þessa stundina. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þótt aðstæður á vinnustað séu ekki alveg eftir þínu höfði skaltu ekki láta þær ergja þig. Vog og steingeit eru mikið í myndinni. Stjörnuspá 8. júní 1949 Hópur þýskra kvenna kom til landsins með Esju. Alls munu á fjórða hundrað konur hafa komið þetta vor til starfa á sveitabæjum um land allt. 8. júní 1951 Íslenska ríkið keypti „öll vatnsréttindi í Þjórsá og þver- ám hennar milli fjalls og fjöru,“ eins og það var orðað í Tímanum. Seljandi var Titan- félagið sem hafði eignast rétt- indin á árunum frá 1914 til 1924. 8. júní 1986 Styttan Björgun eftir Ásmund Sveinsson var afhjúpuð, á sjó- mannadaginn. Hún er á mót- um Faxaskjóls og Ægisíðu í Reykjavík. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Oddný Björg Stefánsdóttir og Helga Lind Magnúsdóttir, sem eru í fjórða bekk Kópavogsskóla, héldu tombólu fyrir utan Nóatún í Hamraborg og söfnuðu 6.832 kr. og færðu Rauða krossinum söfn- unarféð. Hlutavelta INGIMUNDUR Einar Grétarsson hyggst í dag hlaupa einn kílómetra fyrir hvert ár sem hann á að baki, en hann á fimmtugsafmæli. Vegalengdina hleypur Ingimundur ásamt hlaupafélaga sínum, Stefáni Gíslasyni. „Við ætlum að hlaupa þvert yfir Borgarbyggð. Við byrjum við Haffjarðará og end- um í Hvalfjarðarsveit, rétt fyrir sunnan við Borg- arfjörð,“ segir Ingimundur. Þeir Stefán hlaupa saman alla laugardagsmorgna árið um kring og vegalengdina gera þeir félagar ráð fyrir að fara á innan við fimm klukkustundum. Veisluhöldum ætlar Ingimundur hins vegar fresta til sumars. „Tvö af börnum mínum eru erlendis og koma heim í sumar,“ segir Ingimundur og kveðst þá munu halda betur upp á af- mælið. Fimmtugsaldurinn er þó ekki eini áfanginn sem Ingimundur fagnar um þessar mundir, því að á laugardag útskrifaðist hann úr frumgreinanámi frá Keili eftir að hafa staðið á krossgötum í fyrra. Hann stefnir nú á nám í hug- og félagsvísindum í háskóla í haust. „Það var gamall draumur að fara í nám og þegar ég stóð á þessum tíma- mótum ákvað ég að láta slag standa.“ annaei@mbl.is Ingimundur Einar Grétarsson 50 ára Kílómetri fyrir hvert ár ;) Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn foreldra, á netfangið barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.