Morgunblaðið - 08.06.2009, Qupperneq 23
Menning 23FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009
KAMMERKÓR Tónlistarháskólans í Bre-
men heldur tónleika á vegum Listvinafélags
Hallgrímskirkju í kvöld, mánudag, kl. 20 í
Hallgrímskirkju.
Stjórnandi kórsins, Friederike Woebcken,
er meðal virtustu kórstjóra Þýskalands og
nam m.a. hjá hinum heimsfræga Erik Er-
iksson. Kammerkórinn er skipaður úrvals-
söngvurum háskólans, þar sem Friederike
Woebcken er prófessor í kórstjórn.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir
Mendelsohn, Schumann, Brahms, Þorkel
Sigurbjörnsson, Mäntyjärvi, Hillborg, Nyberg og Whitacre.
Miðasala er við innganginn.
Tónlist
Kammerkór í
Hallgrímskirkju
Friederike
Woebcken
GRADUALEKÓR Lang-
holtskirkju vann til gull-
verðlauna í kórakeppninni
Festival of songs sem
haldinn var í bænum
Olomouc í Tékklandi, á
laugardaginn. Í keppninni tóku þátt 117 kórar frá 12 löndum.
Í fréttatilkynningu frá kórnum segir að Gradualekór Lang-
holtskirkju hafi fengið 96 stig af 100 í flokki kirkjutónlistar og
unnið þar með til gullverðlauna. Að auki fékk hann silf-
urverðlaun í flokki yfirburðaæskukóra með 88 stig af 100.
Kórinn hefur verið í Tékklandi í viku og eyddi fyrstu dög-
unum í Prag þar sem hann söng á tónleikum og í messu í
Salvator dómkirkjunni.
Tónlist
Vann til gullverð-
launa í kórakeppni
Gradualekór Langholtskirkju
BRÚÐUBÍLLINN, leikhús yngstu
barnanna, verður með sýningu í dag í Hall-
argarðinum við Fríkirkjuveg kl. 14 og á
morgun, þriðjudag, í Árbæjarsafninu kl. 14.
Þetta er 29. sumarið sem leikhúsið starfar
undir stjórn Helgu Steffensen sem hannar
brúður og semur handrit ásamt Sigrúnu
Eddu Björnsdóttur sem er leikstjóri sýning-
arinnar. Leikritið sem sýnt verður heitir
Leikið með liti og samanstendur af þremur
leikþáttum. Hver sýning tekur hálfa klukku-
stund.
Brúðubíllinn starfar á vegum ÍTR og eru allir velkomnir á
sýningar.
Leiklist
Brúðubíllinn er
kominn á stjá
Helga
Steffensen
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík lauk
að kvöldi hvítasunnudags. Hátíðin
fór nú fram í 23. sinn, en hún var
fyrst haldin árið 1970.
Á dagskrá voru um 70 list-
viðburðir með þátttöku um 500
listamanna, íslenskra og erlendra.
Hrefna Haraldsdóttir, listrænn
stjórnandi Listahátíðar, segir að
hátíðin í ár hafi gengið ótrúlega
vel. „Sætanýting á hátíðinni hefur
aldrei verið betri, aðsóknin mjög
góð og uppselt á nánast hvern
einasta viðburð.“
Margt skapaði
gott gengi
Það er stundum sagt að þegar
að kreppir leiti fólk í listir og
aðra andlega nautn. Því eru ekki
allir sammála. Árangur Listahá-
tíðar í ár kann þó að styðja þá
hugmynd. Margt hjálpaðist að við
gott gengi hátíðarinnar, að mati
Hrefnu, og segir hún alveg ljóst
að nú sé bæði þörf og markaður
fyrir menningu og listir. „Við
virðumst hafa náð í gegn. Kynn-
ingin á hátíðinni heppnaðist vel
og við notuðum t.d. netið meira í
kynningum en áður og við settum
á stofn klúbb listahátíðar fyrir þá
sem vilja fylgjast með starfi há-
tíðarinnar. Þá fengum við líka
strax mjög góð viðbrögð við dag-
skrá hátíðarinnar, það var greini-
lega mikill áhugi á því sem í boði
var.“
Hrefna segir að hófstillt miða-
verð hafi líka átt sinn þátt í góðri
aðsókn. „Það hafa margir haft
orð á því að miðaverð hafi verið
hagstætt. Það hækkaði ekki milli
ára og í sumum tilfellum lækkaði
það. Þetta var ákvörðun okkar og
með henni tókum við ákveðna
áhættu, en miðað við þær for-
sendur sem við gáum okkur gekk
þetta upp og við náðum mark-
miðum okkar í tekjum og gjöld-
um.“
Styrktaraðilar
sumir horfnir
Listahátíð eins og aðrar menn-
ingarstofnanir hafa ekki farið
varhluta af efnahagskreppunni og
við stóra skellinn í haust missti
hún marga dyggustu stuðnings-
aðila sína frá liðnum árum, auk
þess sem allur erlendur kostn-
aður tvöfaldaðist frá því sem var.
„Við fengum því minni peninga
frá einkageiranum nú en áður,
eins og gefur að skilja, en miða-
salan skiptir líka töluverðu máli
hjá okkur, og hún var meiri en
reiknað hafði verið með. Auk
þessara tekna höfum við grunn-
framlög frá ríki og borg. Við vit-
um nokkurn veginn í upphafi úr
hverju við höfum að spila og við
reyndum að nýta það eins vel og
kostur var. Það sýnist mér okkur
hafa tekist.“
Hvað kostar Listahátíð?
Listahátíð í Reykjavík hefur
verið misdýr milli ára, að sögn
Hrefnu og ekki endilega gefið að
kostnaður hækki jafnt og þétt
milli ára. „Við höfðum úr minna
að spila í ár en í fyrra og hitteð-
fyrra, en við vinnum hátíðina
hverju sinni inn í þann ramma
sem fyrir liggur. Heildarvelta
Listahátíðar á ári er í kringum
100 milljónir. Þá er allt meðtalið,
ekki bara hátíðin sjálf, heldur líka
allt starf í kringum hana á árs-
grundvelli.“
Það er erfitt á Íslandi dagsins í
dag að setja þá upphæð í raun-
hæft samhengi. Hún jafngildir
annars vegar kostnaði við ársvist
400 barna á leikskóla í Reykjavík
og hins vegar sex nýjum Land
Cruiser-jeppum úr búð, svo ólík
dæmi séu tekin.“
Ekki eingöngu
fyrir Íslendinga
Íslendingar eru í miklum
meirihluta þeirra sem sækja við-
burði Listahátíðar. Þó er nokkuð
um það að útlendingar komi
hingað gagngert í þeim tilgangi.
„Hingað koma bæði einstaklingar
og litlir hópar, sem skipuleggja
komu sína á Listahátíð með
löngum fyrirvara, ýmist í gegn-
um erlendar ferðaskrifstofur eða
á eigin vegum. Þetta fólk sækir
ólíkustu viðburði og setur tungu-
málið ekki fyrir sig. Ég get nefnt
sem dæmi Breta sem kom gagn-
gert á hátíðina í vor og hefur
komið á allar Listahátíðir í tutt-
ugu ár. Við erum í góðri sam-
vinnu við Höfuðborgarstofu,
Ferðamálastofu, sendiráðin er-
lendis og ferðaskrifstofur, gegn-
um Iceland Express, þannig að
hátíðin er ágætlega kynnt erlendis
og við höfum áhuga á að efla það
starf enn frekar.“
Góðir áheyrendur
Þeir erlendu listamenn sem
komu fram á hátíðinni í ár voru
allir að sögn Hrefnu ánægðir með
dvölina á Íslandi. „Þeir hafa und-
antekningarlaust orð á því hvað ís-
lenskir áheyrendur eru góðir og
vel upplýstir og hvað það er gam-
an að koma fram fyrir þá. Margir
þeirra eru hissa á því hvað hér er
rekin metnaðarfull listahátíð.
Margir þeirra dvelja hér áfram,
ferðast um og mynda sterk tengsl
við landið.
Víða um heim eru listahátíðir á
þrengra sviði, t.d. helgaðar
ákveðnum listgreinum, en hjá okk-
ur helgast fjölbreytnin af smæð
þjóðarinnar, við verðum að hafa
allar listgreinarnar með. Fjöl-
breytnin er sérstaða Listahátíðar í
Reykjavík og sjarmi hennar um
leið.“
Uppselt á flesta viðburði
Aldrei betri sætanýting á Listahátíð sem var nú haldin í 23. sinn Styrkjum einkaaðila fækkaði
Orðsporið erlendis gott Hófstillt miðaverð átti sinn þátt í góðri aðsókn Fjölbreytnin er sérstaðan
Tiger Lillies Meðal þeirra erlendu listamanna sem komu fram á hátíðinni.
Hrefna Haraldsdóttir tók við starfi listræns stjórn-
anda Listahátíðar í Reykjavík í fyrra. Þetta er því
fyrsta hátíðin sem hún stýrir í því starfi.
„Starf stjórnanda listahátíðar felst í að velja þau
verkefni sem eru á dagskrá hverrar hátíðar. Í sumum
tilvikum koma listamenn til mín með hugmyndir að
verkefnum sem ég vel úr. Í öðrum tilvikum bý ég til
verkefni með því að leiða saman listamenn og loks
leita ég uppi listamenn gagngert til að fá þá á hátíð-
ina. Það sem ég legg til grundvallar við valið er list-
rænn metnaður, fagmennska og hæfileikar þeirra
listamanna sem fram koma.“
Listrænn metnaður leiðarljós
Hrefna
Haraldsdóttir
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg virka daga 10–18, laugard. 11–16 og sunnud. 14–16
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 8. júní,
kl. 18.15 í Galleríi Fold,
á Rauðarárstíg
Óli G. Jóhannsson
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd í dag kl.12–17