Morgunblaðið - 11.06.2009, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 1. J Ú N Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
DR. BARRIE ER EKKI TALS-
KONA SKOTTULÆKNINGA
«MENNING
GERPLA DREGUR
LEIKARA MILLI HÚSA
Eftir Bergþóru Njálu Guðmunds-
dóttur og Ómar Friðriksson
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir að ef það sé mat
Evu Joly að meira fjármagn þurfi til
rannsóknar sérstaks saksóknara á
bankahruninu, þá verði að skoða
það. „Þó það sé hart í ári þá finnst
mér að þetta megi ekki stranda á
fjárskorti,“ segir hann.
Ragna Árnadóttir dómsmála-
ráðherra segist einnig taka gagn-
rýni Joly á rannsóknina mjög alvar-
lega, en í Kastljósi Sjónvarps í gær
sagðist Joly telja að þrjár milljónir
evra þyrfti árlega til að rannsóknin
bæri árangur. Aðeins hefði verið
lagður til þriðjungur þeirrar upp-
hæðar. „Ef hún segir þetta hlýtur að
vera eitthvað til í því,“ segir Ragna
um þetta. Ríkisstjórnin þurfi þó að
taka ákvörðun um aukið fjármagn
til embættisins, en slíkar bónir séu
erfiðar um þessar mundir. „En það
er auðvitað algjört forgangsatriði að
þessi rannsókn sé með fullnægjandi
hætti og gott betur.“
Varðandi vanhæfi Valtýs Sigurðs-
sonar ríkissaksóknara, sem Joly vill
að víki að fullu, segir Ragna: „Rík-
issaksóknari er æðsti handhafi
ákæruvaldsins og hann ákveður
hvort hann er vanhæfur eða ekki.
Það er ekki ég sem get ákveðið
það.“ Hún muni þó skoða málið
frekar, en í gær greindi hún frá því
að Valtýr hefði sjálfur ákveðið að
víkja í öllum málum er varða banka-
hrunið.
Má ekki stranda á fjárskorti
Ráðherrar segja rannsóknina á
bankahruninu þurfa að hafa forgang
Stærsta mál Evrópu | 14
Eitt af öðru risu þau á örskömmum tíma, glerhýsin í Borgartúninu og
leystu af hólmi fyrirtæki á borð við Sindrastál og Vöruflutningamiðstöð-
ina. Samhliða varð hrokinn og hraðinn á fólki meiri í götunni þar sem
mannlífið gleymdist á teikniborðinu. Hvorutveggja stendur þó til bóta. Eft-
ir fjármálahrunið er eins og fólkið sé orðið auðmýkra og nýtt skipulag fyr-
ir götuna bíður þess að verða að veruleika. ben@mbl.is | 18
FRAMTÍÐIN Í FJÁRMÁLAHVERFINU
Morgunblaðið/Heiddi
MINNSTU mátti muna að fáliðuð
sveit lögreglumanna yrði ofurliði
borin í þeim miklu mótmælum sem
brutust út við Alþingishúsið aðfara-
nótt 22. janúar. Á þeim tímapunkti
voru birgðir piparúða lögreglu
næstum á þrotum og hún neyddist
því til að beita táragasi.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri BA-ritgerð Vilborgar
Hjörnýjar Ívarsdóttur í félagsfræði
við Háskóla Íslands.
Ritgerðin ber heitið „Að baki
skjaldborgarinnar“ og er að mestu
leyti byggð á viðtölum við fimm
lögreglumenn í óeirðasveit lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. »8
Lögreglan var ekki búin
undir mótmælin miklu
FYRRUM ráðuneytisstjórar í
fjármála- og forsætisráðuneytinu,
Baldur Guðlaugsson og Bolli Þór
Bollason, neituðu að láta af störfum
þegar ný ríkisstjórn Samfylkingar
og Vinstri grænna tók við nema að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum,
skv. heimildum Morgunblaðsins.
Þeir voru heldur færðir um set
fremur en að greiða þeim full laun í
takt við samningsbundin réttindi.
»16
Ráðuneytisstjórar neituðu
að láta af störfum
KOSIÐ verður í dag um tíunda
forseta Írans frá íslömsku bylting-
unni sem gerð var árið́ 1979.
Heiftúðugri kosningabaráttu lauk
í gær og átti sitjandi forseti,
Mahmoud Ahmadinejad, síðasta
skotið. Á kosningafundi í gær-
kvöldi sakaði hann keppinauta
sína um að hafa rekið rógs-
herferðir gegn sér, svipaðar þeim
sem reknar voru af áróðursmeist-
ara Adolfs Hitlers. Talið er að
baráttan um forsetaembættið
verði hörð og hún er talin munu
standa á milli Ahmadinejads og
Mir Hossein Mousavi, fyrrverandi
forsætisráðherra landsins. »22
Íranar ganga til forseta-
kosninga í tíunda sinn
Fjármálaeftirlitið (FME) mun á
næstunni vísa viðskiptum tengdum
Stím til viðeigandi ákæruvalds
vegna grunsemda um markaðs-
misnotkun.
VIÐSKIPTI
Stím á leið til
ákæruvalds
Fjölskylda sjeiksins sem keypti hlut
í Kaupþingi hefur tengsl við spill-
ingu og peningaþvætti. Sjeikinn er
sagður hafa skotið skjólshúsi yfir
eiginkonu Saddams Husseins.
Skaut skjóli yfir
konu Husseins
Þorvaldur Gylfason kvartaði við
forsætisráðuneytið vegna hæfnis-
mats í stöðu seðlabankastjóra.
Nefndin hefur tíma út vikuna til að
svara athugasemdum.
Kvartaði við for-
sætisráðuneytið
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
7
3
7
8