Morgunblaðið - 11.06.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HAFNSÖGUBÁTNUM Auðuni var lyft frá botni inn-
siglingarinnar til Sandgerðishafnar á flóðinu í gær-
kvöldi og hann dreginn að bryggju. Þar var unnið
við að dæla úr honum sjó og til stóð að hífa hann
upp á bryggjuna.
Auðunn sökk við björgun Sóleyjar Sigurjóns GK
200 í síðustu viku. Köfunarþjónusta Sigurðar keypti
belgi erlendis frá til að lyfta bátnum frá botni og
björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein dró það þannig
að bryggju. Stór krani var á staðnum til að hífa
skipið upp á þurrt. Skemmdir verða kannaðar næstu
daga. helgi@mbl.is
SJÓ DÆLT ÚR AUÐUNI
Morgunblaðið/Reynir
„Gleður alla að sjá hestvagn“
SÉRA Arnaldur Bárðarson í Glerár-
kirkju á Akureyri er heltekinn
hestakarl, að eigin sögn. Hann hefur
verið í hestamennsku í nærri 30 ár,
haldið reiðnámskeið fyrir börn mörg
sumur og ætlar nú að bjóða upp á
ferðir um Akureyri í hestvögnum.
„Sveinn í Kálfsskinni kom að máli
við mig fyrir þremur árum og vildi
endilega lána mér vagn til þess að
bjóða upp á svona ferðir. Ekkert
varð úr því þá, en nú ákvað ég að
vinda mér í þetta; ég geri þetta ekki
síst til þess að útvega nokkrum ung-
mennum verkefni,“ sagði séra Arn-
aldur við Morgunblaðið.
Ungmennin munu stjórna vögn-
unum en þrír slíkir verða á ferðinni
um höfuðstað Norðurlands. Arn-
aldur hyggst ekki síst höfða til gesta
á skemmtiferðaskipum; vagnarnir
verða á bryggjunni þegar skipin
leggja að landi og boðið verður upp á
ferðir þaðan; annars vegar um Odd-
eyrina og hins vegar inn í elsta bæj-
arhlutann, að Minjasafninu. Svo get-
ur auðvitað hver sem er tekið sér far
með vagninum í sumar. Ferð af
bryggjunni inn að Minjasafni kostar
5-6 evrur, um 1.000 krónur.
„Það gleður alla að sjá hestvagna.
Þeir hafa þegar vakið mikla lukku og
ég gleðst yfir því hve aðrir í ferða-
þjónustu eru jákvæðir gagnvart
þessu,“ segir Arnaldur.
skapti@mbl.is
Séra Arnaldur Bárðarson í Glerárkirkju býður upp á ferðir í hestvögnum um gömlu bæj-
arhlutana á Akureyri í sumar Heltekinn hestakarl og vill skapa ungmennum verkefni
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glæsilegir Séra Arnaldur Bárðarson með fólk í vagninum í Aðalstræti í gær, á leið inn að Minjasafni. Hesturinn sem
dregur þennan gamla, glæsilega vagn heitir Bylur. Sonur Arnaldar, Arnaldur Vilmar, stjórnaði aftari vagninum.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
og Andra Karl
NÚ sitja 27 einstaklingar í gæsluvarðhaldi
hér á landi og hafa aldrei verið fleiri, að sögn
Páls Winkels, forstjóra Fangelsis-
málastofnunar.
Á Litla-Hrauni eru 10 einangrunarklefar og
þeir hafa verið fullnýttir um langa hríð. Þurft
hefur að grípa til þess ráðs að vista 5 gæslu-
varðhaldsfanga í fangaklefum í lögreglustöð-
inni í Reykjavík þar sem allir klefar á Litla-
Hrauni hafa verið fullsetnir.
íkveikjur og kynferðisafbrotamál. Flestir
þeirra sem nú sitja í gæsluvarðhaldi eru Ís-
lendingar.
Fangelsin yfirfull
Öll fangelsi á Íslandi eru nú fullsetin. Páll
Winkel segir að bið eftir afplánun sé alltaf að
lengjast því fangelsisplássum hafi ekki fjölgað
í takt við fleiri dóma og þyngri refsingar. Bið
eftir afplánun geti tekið mánuði og allt upp í
ár. Segir Páll að segja megi að þessi bið sé
aukarefsing fyrir þá sem hlotið hafa dóma.
Menn vilji skiljanlega taka út refsingu sína
sem fyrst svo þeir hafi svigrúm til að bæta sig.
Búið var að setja 350 milljónir inn á fjárlög
til að stækka fangelsið á Litla-Hrauni en þeg-
ar kreppan skall á var þessi upphæð tekin af
fjárlögum.
Páll segir að mörg mál hafi komið upp á síð-
ustu vikum, þar sem gæsluvarðhalds-
úrskurðum hafi verið beitt. Nefnir hann fjöl-
mörg stór fíkniefnamál, líkamsrárásarmál,
Aldrei fleiri í gæsluvarðhaldi
Fjórir erlendir fangar sendir til síns heima til að ljúka afplánun frá árs-
byrjun 2008 Einangrunarklefar fullnýttir Bið eftir afplánun lengist
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Afplánun Öll fangelsi á Íslandi eru fullsetin.
BÆJARSTJÓRINN í Kópavogi
leggur til að skipuð verði viðræðu-
nefnd Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks um framhald meiri-
hlutasamstarfs flokkanna.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
gagnrýnir harðlega skýrslu endur-
skoðunarstofunnar Deloitte um við-
skipti Kópavogsbæjar við Frjálsa
miðlun ehf. Hann vekur athygli á því
að höfundar skýrslunnar virðast
ekki hafa áttað sig á því að ákvæði
laganna sem þeir vitna til um hugs-
anleg lögbrot gilda ekki um sveit-
arfélög. | 17, 29
Vill ræða
framhald
samstarfs
RÁÐSTEFNA um ábyrgar veiðar
Íslendinga var haldin í sendiráðinu í
London í gær. Þátttakendur voru
rúmlega 60 og meðal þeirra voru
fulltrúar fiskkaupenda í Bretlandi
og hagsmunaaðilar í breskum sjáv-
arútvegi.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, ávarpaði ráð-
stefnuna og fjallaði um ábyrgar fisk-
veiðar Íslendinga. Hann hefur jafn-
framt undanfarna daga heimsótt
fiskmarkaðina í Grimsby og Hull svo
og íslensk fyrirtæki á Humber-
svæðinu og segist hvarvetna hafa
mætt vinarhug í garð Íslendinga.
Ábyrgar veiðar
Íslendinga
Skipulega var byrjað að senda erlenda fanga
úr landi, þ.e. áður en þeir ljúka afplánun með
reynslulausn, í ársbyrjun 2008. Síðan þá hafa
fjórir fangar verið sendir til síns heima, þrír
Litháar og einn Hollendingur. Að sögn
Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra verða
tveir Litháar til viðbótar sendir út á næst-
unni þar sem samþykki hefur fengist frá
litháískum yfirvöldum að taka við þeim.
Spurð hvort undirbúningur sé hafinn
vegna fleiri fanga, s.s. vegna pólskra karl-
manna sem réðust á samlanda sína í mars á
síðasta ári og hlutu fyrir þunga dóma, segir
Ragna almennt, að ef öll skilyrði eru uppfyllt
verði áreiðanlega skoðað að óska eftir því
við pólsk yfirvöld að þau taki yfir afplán-
unina. Ragna bendir á að ferillinn sé gríð-
arlega tímafrekur, þýða þurfi öll gögn auk
þess sem stjórnsýslan erlendis geti gengið
hægt fyrir sig. Ennfremur vilja fangarnir yf-
irleitt ekki fara til síns heima og þá þarf að
vísa þeim úr landi og tæma allar kæruleiðir.
Erlendir fangar
sendir heim
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
42
04
0
04
.2
00
8