Morgunblaðið - 11.06.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009
LÖGREGLAN verst allra frétta af
framgangi rannsóknar á umfangs-
miklu fíkniefnamáli og peningaþvætti
sem teygir anga sína til þrettán
landa. Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirmaður rannsóknardeildar, sagði í
samtali við Morgunblaðið að nokkrir
dagar gætu liðið þar til frekari upp-
lýsingar um málið verður að fá. Fleiri
handtökur hafa þó ekki farið fram.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa mennirnir þrír sem
sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins
allir verið dæmdir áður fyrir stór-
felldan fíkniefnainnflutning. Einn
þeirra var stjórnarmaður Vélasöl-
unnar – R. Sigmundssonar þar til í
gær er hann vék úr stjórninni. Hann
er einnig einn eigenda fyrirtækisins,
en hann keypti fyrirtækið ásamt
þremur öðrum í desember síðast-
liðnum.
Í yfirlýsingu frá Vélasölunni kem-
ur fram að rannsókn lögreglu beinist
ekki á nokkurn hátt að fyrirtækinu
heldur persónulegri starfsemi
mannsins sem hafði skrifstofu til af-
nota í húsi fyrirtækisins.
Stjórnarmaðurinn hefur verið um-
svifamikill á fasteignamarkaði hér á
landi og erlendis um árabil og rekur
nokkur eignarhaldsfélög. Þá er hann
skráður fyrir fatamerkjunum Crim-
inal Record, Inmate og Bastille sem
tengjast fyrirhugaðri atvinnu-
starfsemi fanga á Íslandi. Fötin átti
að hanna og framleiða í íslenskum
fangelsum undir merkinu Made in
Jail.
Fleiri mál í uppsiglingu?
Reynist grunur lögreglu réttur um
að mennirnir hafi stundað pen-
ingaþvætti með fíkniefnagróða hefur
mat greiningardeildar ríkislög-
reglustjóra verið rétt. Deildin metur
reglulega umfang skipulegrar glæpa-
starfsemi hér á landi og hættu á
hryðjuverkum. Eftir því sem heim-
ildir Morgunblaðsins herma má telja
víst að fleiri mál af svipuðum toga –
en öðru umfangi – séu einnig til rann-
sóknar.
Vék úr stjórn vegna
rannsóknar lögreglu
Fyrirtæki stjórnarmanns tengt fyrirhugaðri starfsemi fanga
Lögregla rannsakar meðal annars tengsl mannanna við alþjóðleg glæpa-
samtök. Þar hefur tengifulltrúi ríkislögreglustjóra hjá Europol, löggæslu-
stofnun Evrópusambandsins, reynst ómetanlegur – líkt og í öðrum stórum
fíkniefnamálum sem upp hafa komið undanfarin misseri. Staða tengi-
fulltrúans hefur verið í uppnámi vegna mikils kostnaðar sem henni fylgir
en að sögn Friðriks Smára hefur staðan verið tryggð út þetta ár. Þá verður
aftur tekið stöðumat.
Staða tengifulltrúa í uppnámi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fíkniefni Rannsókn lögreglunnar
teygir anga sína til þrettán landa.
Stjórnarmaðurinn sem grunaður
er um fíkniefnainnflutning hefur
verið umsvifamikill á fasteigna-
markaði hér á landi og erlendis
um árabil. Hann rekur einnig
nokkur eignarhaldsfélög.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
UNNAR hafa verið strangar siða-
reglur á vettvangi Alþýðu-
sambands Íslands um starfsemi
lífeyrissjóða og fjárfestingarstefnu
þeirra. Verða þær kynntar á ráð-
stefnu ASÍ um hlutverk og ábyrgð
stjórnarmanna í sjóðunum í dag.
Fjallað var sérstaklega um trú-
verðugleika þátttöku fulltrúa
launamanna í lífeyrissjóðunum á
aukaársfundi ASÍ í mars sl. í
framhaldi af fréttum af þátttöku
fulltrúa sjóða í boðsferðum. Í
framhaldi af því samþykkti mið-
stjórn ASÍ að óska eftir að
Fjármáleftirlitið kannaði sér-
staklega hvort lífeyrissjóðir hafi á
umliðnum árum starfað eftir lög-
um og samþykktum. Þeirri könn-
un er ólokið. Jafnframt var ákveð-
ið að semja tillögur að siðareglum
um fjárfestingar sjóðanna og
fyrirmyndarreglur um daglega
starfsemi þ.m.t. starfskjör, risnu,
gjafir og ferðalög.
Eftir því sem næst verður kom-
ið er meðal annars lagt til að sett-
ar verði skýrar reglur sem í reynd
banni fulltrúum launafólks í
stjórnum lífeyrissjóðanna að taka
þátt í skemmtiferðum í boði ann-
arra en viðkomandi sjóðs. Þá eru
tillögurnar sagðar fela í sér leið-
beinandi reglur um fjárfestingar
lífeyrissjóðanna.
Bann á boðs-
ferðir hjá líf-
eyrissjóðunum
Fjárfesting sé samfélagsleg ábyrgð
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ábyrgð Setja á fulltrúum launafólks
í lífeyrissjóðunum strangari reglur.
Í HNOTSKURN
»ASÍ ákvað að afla upplýs-inga, og birta opinberlega,
um þátttöku í ferðum og mót-
töku gjafa og hvort um
skemmtiferðir í boði annarra
eða hreinar fagferðir væri að
ræða.
»Fjallað verður um siðferðií fjárfestingum á ráðstefnu
ASÍ í dag og kynntar tillögur
um starfsemi sjóðanna.
„ÞEGAR tilkynningin barst frá
ráðuneytinu á mánudag vorum við
búin að innheimta 9 milljónir króna
í oftekinn bensínsskatt af okkar
viðskiptavinum,“ segir Hermann
Guðmundsson, forstjóri N1, að-
spurður hvers vegna fyrirtækið
hafi aðeins greitt 9 milljónir króna
til góðgerðarmála vegna oftekins
bensínskatts. Kunnáttumenn sögðu
að greiðslan ætti að nema um 25
milljónum.
„Við erum auðvitað einnig með
tugþúsundir af reikningshafandi
viðskiptavinum og þeir hafa engan
reikning fengið ennþá. Við erum að
vinna í því núna að bakfæra og leið-
rétta það. Þess vegna var upphæðin
ekki hærri – það eru svo margir
sem eru með reikning hjá okkur og
greiða því eftir á. Það verður lag-
fært. Aðeins 9 milljónir voru inn-
heimtar á mánudaginn. Það er
prinsippmál að það verði ekki ein
króna af ofteknum gjöldum eftir
hjá félaginu.“ haa@mbl.is
Upphæðir verða bakfærðar
Í SVEITARSTJÓRN Borg-
arbyggðar hefur nú verið myndaður
nýr meirihluti allra flokka. Sjálf-
stæðisflokkur og
Borgarlisti mynd-
uðu áður sveit-
arstjórn en hafa
nú boðið Fram-
sóknarflokki að
ganga til liðs við
stjórnarsam-
starfið og mynda
þannig nokkurs
konar „þjóð-
stjórn“.
„Það hefur verið ágætt samstarf
milli meirihluta og minnihluta í
sveitarstjórn. Við höfum jafnframt
unnið vel saman frá áramótum að
því hvernig við getum brugðist við
nýjum aðstæðum. Við teljum að við
séum með þessu að sýna ábyrgð með
því að leggja hið pólitíska þjark til
hliðar og standa þétt saman,“ segir
Björn Bjarki Þorsteinsson, forseti
sveitarstjórnar Borgarbyggðar.
haa@mbl.is
„Þjóðstjórn“ allra
flokka mynduð
í Borgarbyggð
Björn Bjarki
Þorsteinsson
RÚM 76 prósent landsmanna vilja
þjóðaratkvæði um hvort sótt skuli
um aðild að Evrópusambandinu.
Þetta kemur fram í nýrri skoðana-
könnun sem Capacent Gallup gerði
fyrir Heimssýn. Samkvæmt könnun-
inni leggja tæp 18 prósent litla
áherslu á að gengið verði til þjóðar-
atkvæðis um hvort sækja eigi um að-
ild, en tæp 6% taka ekki afstöðu.
Spurt var: „Hversu miklu eða litlu
máli finnst þér skipta að fram fari
þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ís-
land eigi að sækja um aðild að Evr-
ópusambandinu?“ Af þeim 76,3%
sem töldu það skipta miklu máli
sagðist 61,1% telja það skipta mjög
miklu máli. 13% töldu það skipta
mjög litlu máli.
Könnunin var gerð 28. maí til 4.
júní og var úrtakið 1.264 manns.
Svarhlutfall var 62,3%. ben@mbl.is
Vilja kjósa um umsókn
HVALVEIÐAR UNDIRBÚNAR
Morgunblaðið/Kristinn
ÁHÖFNIN á Hval 9 lagði á haf út í æfingarferð í gær. Ekki er talið að veiðar hefjist fyrr en í fyrsta lagi eftir viku
eða 10 daga enda er samningum um fast kaup milli útgerðar og sjómanna ennþá ólokið.
VIÐSEMJENDUR í Karphúsinu vilja fá nánari upplýs-
ingar frá ríkisstjórninni um forgangsröðun aðgerða í
ríkisfjármálum sem ráðast á í. Þeir vilja að ríkis-
stjórnin opni meira á það ferli sem í gangi er í ráðu-
neytum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir margar
hugmyndir uppi en ríkisstjórnin hafi ekki sett þær
fram sem tillögur. „Mér finnst að ríkisstjórnin eða
hvert ráðuneyti ætti að vinna svona lista og það eigi
einfaldlega að birta þá á heimasíðum þeirra, þannig að
landsmenn geti séð hvað verið er að skoða. Það er al-
veg ljóst að sumt er viðkvæmara en annað.“ Gylfi Arnbjörnsson
Vilja nánari upplýsingar