Morgunblaðið - 11.06.2009, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009
Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur
sigrunerna@mbl.is
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Fells-
endi í Dölum hóf nú í vor, fyrst ís-
lenskra hjúkrunarheimila, eigin
grænmetisræktun. Ætlunin er að
virkja bæði heimilisfólk og starfs-
fólk.
Gróðurreitir og fiskikör
„Það er kominn stór garður og við
settum í hann kartöflur og blað-
grænmeti,“ segir Anna Margrét
Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri
Fellsenda. „Við eigum síðan eftir að
skipta honum upp. Svo ætlum við að
gróðursetja í fiskikör fyrir þá sem
ekki geta beygt sig,“ segir Anna.
Mikill áhugi hefur verið á verkefninu
á heimilinu og áætlar hún að um
fjórðungur heimilismanna eigi eftir
að taka í því virkan þátt, en þar búa
26 manns.
Fyrsta verkefnið hérlendis
„Að því er ég best veit er svona
ræktunarverkefni einstakt hérlendis
þótt það sé orðið mjög vinsælt til
dæmis í Svíþjóð,“ segir Anna. Verið
er að íhuga dýrahald og eru íslensk-
ar hænur á óskalistanum sem og
gæludýr. „Við erum með mikla
kattakonu hérna sem væri mjög til í
að taka að sér kött.“ Á Fellsenda er
mikil áhersla lögð á að hlutirnir séu
vistvænir. „Við erum úti í sveit og í
miklum tengslum við náttúruna. Allt
í kring eru kindur, lömb, kýr og kálf-
ar og við förum mikið út,“ segir
Anna.
Tengsl við héraðið
Á heimilinu er talið mikilvægt að
tengjast menningu héraðsins, en
heimilisfólkið kemur alls staðar að af
landinu. „Það er því mikilvægt að
fólk finni hér rætur og fái þá tilfinn-
ingu að það eigi heima hér.“ Í því
skyni hefur verið bryddað upp á
ýmsu, svo sem kórtónleikum, versl-
unarferðum í Búðardal og kaffi-
húsadögum. Anna segir að allt
starfsfólkið taki þátt í uppbygging-
arstarfinu sem byggist á húm-
anískum hugsunarhætti og hospice-
meðferð. Manneskjan sem ein-
staklingur sé í fyrirrúmi og sjálfræði
hvers og eins sé virt.
Hjúkrunarheimili með eigin grænmetisgarð
Grænmetisrækt Kartöflur og grænmeti sett niður á Fellsenda í vor.
Fyrsta íslenska hjúkrunarheimilið
með eigin ræktun Vistvæn hugsun
í fyrirrúmi Dýrahald íhugað
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
„ÞETTA er gagnrýni sem við verð-
um að taka alvarlega,“ segir Ragna
Árnadóttir dómsmálaráðherra um
ummæli Evu Joly, ráðgjafa sérstaks
saksóknara, í Kastljósinu í gær-
kvöld. Þar sagði hún m.a. að hún
vildi ekki leggja nafn sitt við rann-
sóknina yrði umgjörð hennar ekki
bætt, og gefa fólki þannig falskar
hugmyndir um að hún væri í lagi.
Joly gagnrýndi harðlega að Valtýr
Sigurðsson ríkissaksóknari sæti enn
en hann væri vanhæfur þar sem son-
ur hans er annar tveggja forstjóra
Exista. Í gær tilkynnti Ragna um að
Valtýr hefði sjálfur ákveðið fyrir
nokkru að víkja sæti í öllum málum
er varðar bankahrunið vegna þessa
og að hún hygðist skipa Björn
Bergsson í hans stað í þeim málum.
Joly sagði hins vegar í þættinum í
gær að hún teldi ekki nægjanlegt að
Valtýr viki að hluta. „Ríkissaksókn-
ari er æðsti handhafi ákæruvaldsins
og hann ákveður hvort hann er van-
hæfur eða ekki. Það er ekki ég sem
get ákveðið það,“ segir Ragna um
þetta. Spurð hvort Valtýr hafi verið
beðinn um að víkja að fullu segist
hún þurfa að skoða málið betur.
Fimm sinnum stærra
en Elf málið
Í þættinum lýsti Joly rannsókn-
inni sem mikilvægustu rannsókn
allra tíma í Evrópu. Hún væri fimm
sinnum mikilvægari en rannsóknin
sem hún stýrði á Elf málinu svokall-
aða, einu stærsta spillingarmáli í
Evrópu á síðari tímum. Engar líkur
væru þó á að árangur næðist ef um-
fang embættis sérstaks saksóknara
væri ekki stækkað. „Þá munum við
enda uppi með einhver leyst mál en
það er mikilvægt að ná heildar-
myndinni.“
Fjölga þyrfti lögfræðingum úr
fimm í tíu auk þess sem þörf væri á
að fá endurskoðendur til starfa fyrir
embættið. Hún vill að skipaðir verði
þrír sjálfstæðir saksóknarar til að
rannsaka þau mál sem tengjast
hverjum banka fyrir sig.
Joly sagðist hafa áætlað að þrjár
milljónir evra þyrfti árlega til rann-
sóknarinnar en embættið hefði ein-
ungis fengið þriðjung þeirrar upp-
hæðar. Yrði ekki úr því bætt væru
litlar líkur á að með rannsókninni
fengist heildarmyndin upp á borðið.
„Það gengur ekki. Auðvitað verð-
ur rannsóknin að vera með fullnægj-
andi hætti,“ segir Ragna og að málið
þurfi að taka upp í ríkisstjórn. „Ég
tel að undir núverandi aðstæðum í
ríkisfjármálunum sé erfitt að fara
fram með slíkar bónir, en auðvitað
fagna ég því ef ríkisstjórnin tekur
slíka ákvörðun.“
Auki líkur á að ná földu fé
Hún tekur undir að rannsóknin
þurfi að hafa forgang. „Við getum
ekki frestað henni og það er auðvitað
algjört forgangsatriði að hún sé með
fullnægjandi hætti og gott betur.“
Ragna bætir því við að Joly bendi
á ákveðna þætti sem þurfi að laga.
„Ég hef fulla trú á að það verði
hægt. Mín afstaða er sú að vanda-
málin eru til að leysa þau.“
Loks lagði Joly áherslu á að með
því að setja meiri kraft í rannsókn-
ina ykjust líkur á því að hafa hendur
á fjármunum sem hefðu verið faldir,
stolið eða komið undan með öðrum
hætti. Þannig myndi rannsóknin
skila aftur þeim kostnaði sem við
hana yrði, og meira til.
Stærsta mál Evrópu
Getum ekki frestað rannsókninni, segir dómsmálaráðherra
Ríkissaksóknari þarf sjálfur að ákveða hvort hann víkur
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
NÁTTÚRUSTOFA Suðurlands tel-
ur að rétt sé að banna lundaveiðar í
Vestmannaeyjum þar sem veið-
arnar geti ekki orðið sjálfbærar
vegna bágrar stöðu stofnsins. Hann
hefur dregist saman um 25% síðast-
liðin fjögur ár og veiðistofninn, 2-4
ára fuglar, er nánast horfinn vegna
lélegrar nýliðunar.
Er þetta talið vera vegna ætis-
skorts, en sandsíli, sem er aðalfæða
lundans, hefur átt erfitt uppdráttar
við Eyjar undanfarin ár. Miðað við
tölur bjargveiðifélaga í Eyjum sem
ná allt aftur til ársins 1944 hefur
viðkomubrestur aldrei verið eins
mikill og langvinnur.
Þetta kemur fram í bréfi Nátt-
úrustofu til Vestmannaeyjabæjar. Í
því segir einnig að lundaveiðar í
Eyjum séu ekki sjálfbærar eins og
málum sé nú háttað. Er veiðum við
núverandi aðstæður líkt við rán-
yrkju og lagt til að þær verði bann-
aðar frá og með þessu ári. Einnig
er mælst til að veiðar verði ekki
teknar upp aftur fyrr en „eftir að
tveir árgangar yfir meðallagi að
stærð hafi náð tveggja og þriggja
[ára] aldri og að veiðin verði þá háð
takmörkunum“.
Reiknar síður með banni
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjabæ, segir að ekki
hafi verið ákveðið hvernig brugðist
verði við bágri stöðu lundastofns-
ins. Þó segir hann ljóst að nú stefni
í enn frekari hömlur á veiðunum,
en undanfarin sumur hefur veiðin
verið miklum takmörkuðum háð.
„Lundaveiði í Vestmannaeyjum
er í rauninni ekki á veiðiforsendum,
hún er á menningarlegum for-
sendum, [...] það er enginn sem lifir
á þessu og þetta er ekki spurning
um tekjur af veiðinni,“ segir Elliði.
Segir hann að reynt verði að sætta
hina vestmanneysku hefð og sjón-
armið um vernd lundastofnsins.
Hann reiknar ekki með að veiðum
verði hætt eins og Náttúrustofa
Suðurlands telur rétt. Lundinn
verði þó að fá að njóta alls vafa.
Hræðist algert veiðibann
„Það þarf enginn að segja okkur
hér í Vestmannaeyjum að ástandið
sé ekki eins og það á að vera,“ segir
Magnús Bragason lundaverkandi í
Eyjum. „Þess vegna fórum við út í
það sjálfir, veiðimennirnir, að
draga verulega úr veiðum í fyrra.“
Magnús telur vel koma til greina
að veiðimenn í Eyjum taki sig sam-
an, sýni ábyrgð og dragi enn frekar
úr veiðunum eða hætti þeim alveg
um tíma. Honum hugnast ekki al-
gert veiðibann að ofan og segist ótt-
ast að erfitt væri að fá því aflétt
þegar lundinn hefði náð sér á strik.
Byggir hann það á því að friðun
lundans hafi verið orðið mönnum
tilfinningalegt baráttumál áður en
vísindalegar rannsóknir á stofn-
inum hófust.
Mælt með algeru
lundaveiðibanni í
Vestmannaeyjum
Stofninn hefur dregist saman um 25%
Morgunblaðið/Ómar
Lundinn Veiðin er hluti ríkrar
menningarhefðar Eyjamanna.
Í HNOTSKURN
» Í Vestmannaeyjum erstærsta einstaka varpstöð
lunda í heiminum.
» Lundastofninn í Eyjumuppfyllir skilyrði veru á
válista Alþjóðanáttúruvernd-
arsamtakanna undir skilgrein-
ingunni „í yfirvofandi hættu“.
» Lundaholufjöldi í Vest-mannaeyjum er 1.136.000
±253.000.
» Hlutfall varphola í ábúð2008 var 62%, en sam-
kvæmt því er varpstofninn
704.000 ±127.000 lundapör.
Í ljósi slæmrar stöðu og ískyggi-
legrar þróunar lundastofns Vest-
mannaeyja vill Náttúrustofa Suð-
urnesja banna lundaveiðar í
Eyjum. Bæjarstjóri telur hæpið
að veiðum verði með öllu hætt.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir sjálf-
sagt að skoða hvort auka þarf útgjöld vegna rann-
sóknar sérstaks saksóknara eins og Eva Joly fer fram á.
„Ég vona að við njótum hennar krafta áfram. Það var
mjög mikilvægt að fá hana og það hefur þegar skilað
sínu,“ segir Steingrímur. „Við tókum í vetur ákvörðun
um að stórefla rannsóknirnar, meðal annars á grund-
velli tillagna hennar, en ef það er mat hennar og ann-
arra núna að það þurfi að gera betur, þá bara skoðum
við það,“ segir hann.
„Þó það sé hart í ári þá finnst mér að þetta megi ekki
stranda á fjárskorti,“ bætir hann við. „Ég er því alveg
tilbúinn að skoða þetta þó ég sé nú ekki mikið á þeim buxum í fjár-
málaráðuneytinu þessa dagana að skrifa upp á aukin útgjöld. En í þessu til-
viki finnst mér það gegna alveg sérstöku máli. Þegar upp er staðið er þetta
ekki bara spurning um peninga, þó það megi í sjálfu sér réttlæta það þann-
ig að kannski mun rannsóknin skila fjármunum ef hún leiðir til þess að það
endurheimtast fjármunir. En þetta er líka spurning um réttlæti. Ég held að
við hljótum að hafa efni á réttlætinu og ef þarf meira til þá verður það
skoðað,“ segir fjármálaráðherra.
Við hljótum að hafa efni á réttlætinu
Steingrímur J.
Sigfússon
Morgunblaðið/Ómar
Íhugar að hætta Eva Joly segir litlar líkur á að rannsóknin á bankahruninu beri árangur verði hún ekki efld.