Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 17

Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 17
Fréttir 17INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÓMAR Stefánsson, oddviti framsóknarmanna, kveðst hafa gert sjálfstæðismönnum grein fyr- ir hver næstu skref eigi að vera vegna skýrslu Deloitte um viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun. Hann mun gera fulltrúaráði Framsóknarflokksins grein fyrir stöðunni á fundi í kvöld. Ómar sagðist í samtali við Morg- unblaðið ekki vilja ræða um það sem fór hon- um og sjálfstæðismönnum á milli í fjölmiðlum, fyrst vildi hann ræða stöðuna við fulltrúaráðið. Fundurinn í fullltrúaráðinu hefst klukkan 20. Ungir framsóknarmenn í Kópavogi sendu í gær frá sér yfirlýsingu um að ekki væri leng- ur grundvöllur eða traust til að starfa með forystu sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Kópa- vogs. Í ályktun frá stjórn Ungra framsókn- armanna í Kópavogi segir, að augljós hags- munatengd viðskipti bæjarins við Frjálsa miðlun séu líklega gróft brot á stjórn- sýslulögum eða í það minnsta frávik frá eðli- legum viðskiptaháttum og auk þess siðlaus með öllu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, neitaði að tjá sig um málið fyrr en bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefðu lokið sínum fund- arhöldum. „Tilfallandi hér og þar“ Í skýrslu Deloitte eru m.a. gerðar athuga- semdir við að reikningar frá Frjálsri miðlun fyrir ýmis konar útgáfustörf séu færðir á ranga bókhaldslykla, m.a. eru 2,8 milljónir færðar á lykilinn „Styrkir vegna menningar- mála“ og 1,8 milljónir á lykilinn „Aðrir styrkir og framlög“. Alls séu 17 reikningar bókaðir með þessum hætti og er í skýrslunni útilokað að um tilfallandi mistök sé að ræða. Þessar misfærslur komu ekki í ljós við innri endur- skoðun bæjarins en hún er í höndum stjórn- sýslu- og fjármálasviðs Kópavogsbæjar. Ing- ólfur Arnarson, fjármála- og hagsýslustjóri, benti á að þessir reikningar hefðu borist á um sex ára tímabili. Á hverju ári væru um 70.000 reikningar afgreiddir, auk þeirra sem af- greiddir eru með rafrænum hætti. „Það er óhjákvæmilegt að eitthvað gerist sem þarf að leiðrétta,“ sagði hann. „Þetta er tilfallandi hér og þar. Bæði hjá okkur og hjá öðrum getur mönnum sést yfir einstaka færslur.“ Í skýrslu Deloitte um málið er m.a. gagn- rýnt að ekki hafi verið gerðir skriflegir verk- samningar eða verðkannanir vegna verka sem FM vann fyrir Kópavogsbæ. Að sögn tveggja sviðsstjóra eru verkefni af þessu tagi of smá til að það borgi sig að halda útboð. Á hinn bóginn séu alloft gerðar verðkannanir. Næstu skref rædd á fulltrúaráðsfundi  Sviðsstjóri hjá Kópavogsbæ bendir á að um 70.000 reikningar séu samþykktir á hverju ári Gunnar Birgisson Ómar Stefánsson 39 MILLJÓNIR Á SEX ÁRUM »Í skýrslunni kemurfram að lausleg skoðun gefi til kynna að Kópa- vogsbær hafi verið stærsti viðskiptaaðili Frjálsrar verslunar. Fyrirfram áprentuð númer á reikn- ingum félagsins gefi til kynna að á umræddu tíma- bili, 2003-2008, hafi félagið notað í allt 294 reiknings- eyðublöð, þar af séu 185 gjaldfærð í bókhaldi Kópa- vogsbæjar. Þá eigi eftir að taka tillit til eyðablaða sem hafa verið ógilt á einhvern hátt. Alls námu viðskiptin rúmum 39 milljónum króna á sex ára tímabili. FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „NIÐURSTAÐA forsætisnefndar á fundi í dag [8. júní innsk. blm.] var að í ljósi eðlis og sjálfstæðis rann- sóknarnefndarinnar sé það ekki hlutverk forsætisnefndar Alþingis að meta hæfi nefndarmanna í rann- sóknarnefndinni og sendir því málið á ný til nefndarinnar.“ Svona svaraði forsætisnefnd Al- þingis erindi rannsóknarnefndar Al- þingis um bankahrunið vegna kröfu Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins (FME), um að dr. Sigríður Bene- diktsdóttir víki úr rannsókn- arnefndinni. Rannsóknarnefndin og forsætisnefndin eru ekki sammála um hvor nefndin eigi að taka ákvörðun um hvort Sigríður eigi að víkja. Páll Hreinsson, formaður nefndarinnar, segir stjórnsýslulög segja til um að sá sem skipi í rann- sóknarnefndina, sem er Alþingi, eigi að taka ákvörðun um slíkt, en for- sætisnefndin vill að rannsókn- arnefndin geri það sjálf. Í byrjun mánaðarins sendi forsætisnefnd er- indi þess efnis aftur til rannsókn- arnefndarinnar. Boltanum hefur því verið kastað aftur til rann- sóknarnefndinnar, og málið bíður umfjöllunar þar öðru sinni. Viðtal við skólablað Krafa Jónasar byggist á orðum sem Sigríður lét falla í viðtali við skólablað Yale-háskólans 31. mars. Þar sagði Sigríður: „Mér finnst sem þetta [hrunið innsk. blm.] sé niður- staðan af öfgakenndri græðgi margra sem hlut eiga að máli og tómlátu andvaraleysi þeirra stofn- ana sem hafa áttu eftirlit með fjár- málakerfinu og sjá áttu um fjár- málalegan stöðugleika í landinu.“ Jónas telur með þessu að Sigríður hafi gert sig vanhæfa til þess að fjalla um málefni er varðaði störf eftirlitsstofnana, þar á meðal FME. Í greinargerð segist Sigríður engan persónulegan hag hafa af því að komast að einhverri ákveðinni nið- urstöðu í skýrslunni sem rannsókn- arnefndin vinnur að. „Því síður hef ég hag af því, starfsframa míns vegna, þar sem það eina sem skiptir máli í fræðilegu rannsóknar- umhverfi er að nýta fyrirliggjandi gögn til að komast að hlutlægum niðurstöðum.“ Í greinargerðinni segist Sigríður ekki hafa lesið yfir það sem eftir henni var haft í skólablaðinu áður en það birtist. Sigríður segir margar augljósar rangfærslur vera í því, en hún hafi strax tekið afstöðu um að rökræða ekki hvort það væri rétt eftir henni haft, þar sem nemendur hennar hefðu tekið viðtalið við hana. Hún standi við það sem komi fram í viðtalinu. Byggð á lögfræðiáliti Sú afstaða forsætisnefndar Al- þingis, sem stýrt er af Ástu R. Jó- hannesdóttur, forseta Alþingis, að láta rannsóknarnefndina sjálfa um að ákveða hvort Sigríður sé hæf til þess að sitja í nefndinni byggist á lögfræðiáliti Ragnhildar Helgadótt- ur og Margrétar V. Kristjánsdóttur. Í áliti þeirra segir: „Við erum þeirr- ar skoðunar að ummæli Sigríðar séu svo almenn að meiri vafi leiki á því hvort þau valdi vanhæfi hennar á grundvelli þessa lagaákvæðis held- ur en minnisblaðið gefur til kynna.“ Er þar vitnað til minnisblaðs sem Ásmundur Helgason, aðallögfræð- ingur Alþingis, vann, en þar kemur fram að forsendur fyrir því að Sig- ríður sé vanhæf séu fyrir hendi. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Ásta að hún teldi nauðsynlegt að halda afskiptum Alþingis af starfi nefndarinnar í algjöru lágmarki. Hún þyrfti að vera sjálfstæð og starfa án afskipta stjórnmálamanna. Þess vegna væri mikilvægt að rann- sóknarnefndin sjálf gæti tekið af- stöðu til hæfis nefndarmanna. Kasta boltanum á milli  Aðallögfræðingur Alþingis telur Sigríði Benediktsdóttur ekki hæfa til að sitja í rannsóknarnefnd  Forsætisnefnd Alþingis vill að rannsóknarnefndin meti hæfi Morgunblaðið/Ómar Rannsóknarnefndin Rannsóknarnefnd um bankahrunið tók til starfa í byrjun árs og mun skila skýrslu sinni 1. nóvember nk. Deilt er um hvort Alþingi eigi að meta hæfi nefndarmanna rann- sóknarnefndar um bankahrunið. Orð Sigríðar Benediktsdóttur í skólablaði Yale-háskóla eru upp- spretta deilna. VEGNA styrkveitingar úr Velferð- arsjóði barna lækkar gjaldið fyrir vikunámskeið á vegum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur, ÍTR, úr 5.130 krónum í 2.130 krónur. Ekki var búið að senda út reikninga fyrir sumarið áður en styrkveit- ingin barst, að sögn Soffíu Páls- dóttur, skrifstofustjóra tómstunda- mála hjá ÍTR. Heilsdagsnámskeið á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Kópa- vogs, ÍTK, lækka úr 7.000 krónum í 3.500 krónur vegna styrkveitingar úr Velferðarsjóði barna. Gjald fyrir hálfsdagsnámskeið lækkar einnig um helming. Þeir sem þegar hafa greitt ÍTK fá endurgreitt. Senda á skriflega beiðni um endurgreiðslu en berist ekki slík beiðni verður málinu fylgt eftir, að sögn Örnu Margrétar Erlingsdóttur, verkefn- isstjóra tómstundamála hjá ÍTK. ingibjorg@mbl.is Helmingslækk- un sumarnám- skeiðsgjalda FUNDUR verður í kjarnorkumála- nefnd NATO á ráðstefnu varnar- málaráðherra aðildarríkjanna, sem haldin er í Brussel í dag og á morgun. Össur Skarp- héðinsson utan- ríkisráðherra fer ekki á fundinn, en að sögn Urðar Gunnarsdóttur, upp- lýsingafulltrúa í utanríkis- ráðuneytinu, mætir Þorsteinn Ing- ólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá NATO, á fundinn í hans stað. Samkvæmt dagskrá á fundurinn að standa í um klukkustund og er þar ekki gert ráð fyrir að fulltrúar annarra ríkja en kjarnorkuvelda taki til máls. Er því ekki búist við að vænt- anleg friðlýsing Íslands fyrir kjarn- orkuvopnum verði rædd þar. Frið- lýsingin er á stefnuskrá ríkis- stjórnarinnar, en vafamál er hvernig hún samræmist stefnu NATO í málefnum kjarnorkuvopna. Ekki hefur verið vikið frá því á vettvangi kjarnorkumálanefnd- arinnar að vopnin þjóni þeim til- gangi að viðhalda friði og koma í veg fyrir valdbeitingu og hvers kyns hernað. Ekki náðist tal af ut- anríkisráðherra við vinnslu fréttar- innar. onundur@mbl.is Friðlýsing Íslands ekki rædd á kjarna- vopnafundi NATO Þorsteinn Ingólfsson Hvað rannsakar rannsókn- arnefndin? Rannsóknarnefndinni um banka- hrunið er að ætlað að draga upp heildstæða mynd af því, hvað leiddi til þess að bankakerfið í landinu hrundi í byrjun október í fyrra. Hún mun skila skýrslu um málið af sér 1. nóvember á þessu ári. Nefndin hefur víðtækar heimildir til þess að fá er- lenda og innlenda sérfræðinga til þess að skoða einstaka þætti rann- sóknarinnar. Hver er menntun þeirra sem sitja í nefndinni? Í rannsóknarnefndinni um banka- hrunið eru þrír fulltrúar, Tryggvi Gunnarsson, Páll Hreinsson og Sig- ríður Benediktsdóttir. Tryggvi og Páll eru lögfræðingar að mennt. Sigríður er með doktorspróf í hagfræði frá Yale-háskóla, en hefur auk þess BS- próf í tölvunarfræði. Þau skipta með sér verkum eftir ákveðnum sviðum. Páll er formaður nefndarinnar. S&S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.