Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 18

Morgunblaðið - 11.06.2009, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is A ðeins er rúmur áratugur frá því að Borgartúnið var heimavöllur trukkabílstjóra, iðnaðarmanna, bifvélavirkja og dekkjaviðgerðarmanna. Smám saman hurfu bygg- ingar eins og Vöruflutn- ingamiðstöðin, Sögin, Sindri og Bílanaust en í staðinn komu Höfðatorg og Höfðaborg og aðrar háreistar nýbyggingar sem hýsa fjármálafyrirtæki, lögfræðistofur, opinberar stofnanir og ráðgjafarfyrirtæki. Þar er vinnuklæðnaðurinn jakkaföt og stíf- pressuð skyrta en ekki olíublautir vinnugall- ar. Samhliða hafa sprottið upp fyrirtæki sem þrífast á viðskiptum við jakkafatafólkið – veitingahúsum hefur fjölgað ört í götunni á allra síðustu misserum, þarna er að finna snyrti- og hárgreiðslustofur, fatahreinsun og bílþvottastöð svo eitthvað sé nefnt. Fast- eignafélög og byggingafyrirtæki sátu um lóð- ir við götuna þar sem reisa mætti enn fleiri nýbyggingar í miðri hringiðu góðærisins. Ekkert virtist sparað við byggingu og inn- réttingar þessara húsa – menn hvískruðu sín á milli um flatskjái sem hurfu ofan í gólf þeg- ar enginn var að horfa og tilkomumikla inn- anhússfossa. Síðasti minnisvarðinn, og ótví- rætt sá hæsti, 19 hæða turninn á Höfðatorginu við Borgartún 12-14, var í miðri uppsteypu þegar allt breyttist. Og hvað gerist svo þegar grunnurinn fyrir starfsemina í götunni, fjármálakerfið, hrynur eins og það leggur sig í einni svipan? Hvern- ig er umhorfs þar sem miðja skjálftans var, ef marka má fiðrildakenningu spekinganna? Berjast við að lifa af Segja má að nýbyggingaraldan í Borg- artúninu hafi byrjað fyrir áratug, þegar haf- ist var handa við byggingu Höfðaborgar, 8000 fermetra stórhýsis við Borgartún 21, á lóðinni þar sem Vöruflutningamiðstöðin og Sendibílastöðin höfðu áður verið. Á svipuðum tíma reis hús Nýherja austar í götunni eða við Borgartún 37 og í framhaldinu spruttu nýbyggingarnar upp ein af annarri við Borg- artún 17-19, 23, 25, 26, 27, 30A og B, 35, 39 og loks Höfðatorgið og turninn við Borgartún 12-14. Því fer þó fjarri að þessar byggingar standi auðar, þótt vissulega hafi umsvifin í þeim minnkað nokkuð frá því fyrir hrun. Þótt engin starfsemi sé í Höfðatorgsturninum enn eru einhver fyrirtæki væntanleg þangað í haust og ýmis svið og stofnanir borgarinnar nýflutt í Höfðatorgið sjálft. Þá eru hlutar Borgartúns 26 auðir og sjá má skilti með áletruninni „Til leigu“ víðar í götunni. Þar með er sagan þó ekki öll sögð því ljóst er að starfsemi í mörgum öðrum byggingum er ekki nema hluti þess sem var þegar góð- ærið reis sem hæst. Þannig reisti Kaupþing sínar aðalstöðvar í Borgartúni 17-19 og menn þekkja þá fækkun starfsmanna sem þar varð við bankahrunið í haust. Spron var með útibú í götunni en eftir stutta lokun þess í kjölfar falls bankans í apríl hefur MP banki opnað þar útibú á sama stað. Þá er fjárfesting- arbankinn Straumur Burðarás, sem hefur verið til húsa í Borgartúni 25 (niðri við Sæ- braut), í greiðslustöðvun. Eignarhaldsfélagið Gnúpur, sem áður var meðal stærstu eigenda í FL Group og hugðist hafa aðsetur sitt í Borgartúni 26, er gjaldþrota og flutti aldrei inn í húsið. Sviptivindar hafa blásið um starfsemi fleiri fyrirtækja í götunni. VBS fjárfestingarbanki, sem einnig er til húsa í Borgartúni 26, fékk í mars síðastliðnum aðstoð frá ríkissjóði í formi 26 milljarða króna láns, trygginga- félagið Vörður, sem er til húsa að Borgartúni 25, starfar á undanþágu frá Fjármálaeftirlit- inu og óljóst er hvað verður um eignarhald Icelandic Group, sem áður var Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Fyrirtækið er í eigu Grettis, fjárfestingarfélags Björgólfs Guð- mundssonar, sem rambar á barmi gjaldþrots, að eigin sögn. Þá má ekki gleyma Byr spari- sjóði, sem er með höfuðstöðvar sínar í Borg- artúni 18 og glímir einnig við mikla erf- iðleika. Ýmis fyrirtæki tengd bygginga- og verk- takastarfsemi eru einnig til húsa í Borg- artúninu en horfur í þeim atvinnuvegi eru síður en svo bjartar. Í Borgartúni 31 eru höf- uðstöðvar Byggingafélags Gylfa og Gunnars sem í haust sagði upp nálega öllum sínum starfsmönnum. Að sögn annars eigandans, Gunnars Þorlákssonar, er ekkert útlit fyrir að verkefnastaðan sé að glæðast en starfs- mönnum fyrirtækisins hefur fækkað úr tæp- lega 300 í 37. Eignarhaldsfélagið AV sem er til húsa í Borgartúni 28, er eigandi annars stórs verktakafyrirtækis, Íslenskra að- alverktaka, en rekstur fyrirtækisins er í járn- um, og er það nú í endurskipulagningarferli hjá Kaupþingi. Þar sem hallir kaupahéðna risu Fiðrildið sem hratt af stað þeirri ógnarsveiflu sem nú ríð- ur yfir hagkerfi heimsbyggð- arinnar með vængjablaki sínu átti heima á Íslandi, segja sumir efnahagsvitringar í fjöl- miðlum – og brosa út í annað. Sé þetta rétt má kannski leiða að því líkum að lögheimili þess hafi verið í Borgartúninu, „Wall Street Íslands“ eins og það hefur verið kallað; götunni sem breyttist á örskömmum tíma úr sundurleitu iðnaðarhverfi í glerglansandi fjármálamiðstöð. Borgartúnið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.