Morgunblaðið - 11.06.2009, Page 25

Morgunblaðið - 11.06.2009, Page 25
Daglegt líf 25ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 Oft birtast skemmtilegar sendingar í pósthólfi tölvunnar minnar. Mér finnst t.d. alltaf jafn gaman að ljúka lestri orðsendinga frá einum kenn- ara VMA: „Bara átta kveðjur. Guð- jón Ólafsson forfallinn framhalds- skólakennari.“    Hermann Jón Tómasson tók við starfi bæjarstjóra á þriðjudaginn af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, eins og fram kom í blaðinu í gær. Nokkur fjöldi fólks mætti til að fylgjast með fundinum. Yngsti áhorfandinn var aðeins fjögurra mánaða; Dagbjört Bára Hallgrímsdóttir, dótturdóttir Hermanns Jóns.    Nýi bæjarstjórinn fæddist árið 1959 og ólst upp á Dalvík, eins og sá næst síðasti. Hann varð stúdent frá MA og stundaði síðan nám við Háskóla Íslands og í Texas Tech University. Hermann er kvæntur Báru Björns- dóttur leikskólakennara og eiga þau þrjú börn; Tómas er fæddur 1981, Harpa 1988 – móðir Dagbjartar Báru, sem nefnd var hér að framan – og Bjarki 1996.    Fulltrúar VG og Framsóknarflokks- ins gagnrýndu að skipt væri um bæjarstjóra nú, eins og ástandið væri í þjóðfélaginu. Handboltaþjálf- arinn Jóhannes Bjarnason, bæjar- fulltrúi Framsóknar, sagði ekki skynsamlegt að skipta leikstjórn- anda handboltaliðs út ef hann stæði sig vel, jafnvel þó annar góður væri á varamannabekknum.    Jóhannes og Kristín Sigfúsdóttir, VG, sögðu að gagnrýni þeirra sner- ist ekki um persónur Hermanns Jóns og Sigrúnar. Jóhannes sagði Sigrúnu hafa vaxið í starfi eftir tölu- verða ágjöf í upphafi og hefði komið erfiðum verkefnum frá með sóma. Og Jóhannes tók fram að hann hefði mikið álit á Hermanni Jóni; nýi bæj- arstjórinn væri heiðarlegur stjórn- málamaður.    Þegar Sjálfstæðisflokkur og Sam- fylking mynduðu meirihluta eftir síðustu kosningar var samið um að sjálfstæðismenn skipuðu bæjar- stjóra fyrstu þrjú árin en samfylk- ingarmaður settist í stólinn síðasta árið.    Kristján Þór Júlíusson hélt starfi bæjarstjóra eftir kosningarnar en eftir að hann ákvað að fara í framboð til Alþingis, tók Sigrún Björk við af honum. Bæjarstjórarnir verða því þrír á kjörtímabilinu.    Bæði Hermann Jón og Sigrún Björk afsöluðu sér biðlaunum sem þau munu hafa átt rétt á. Þó það nú væri! Mér finnst ekki einu sinni þurfa að taka það fram.    Shoeboxtour er hópur heims- þekktra sirkuslistamanna sem nú er á ferð um landið og kemur fram í Verksmiðjunni á Hjalteyri á laug- ardagskvöld kl. 21. Hópurinn sýnir ljóðrænan, spennandi sirkus eins og það er orðað í tilkynningu. Með í för eru sirkuslistamenn frá Finnlandi sem taka þátt í spunanum og tveir alíslenskir töframenn koma einnig fram. Aðgangur er ókeypis.    Nú eru til sýnis á Amtsbókasafninu gömul skólaspjöld úr Gagnfræða- skóla Akureyrar. Sýningin stendur út mánuðinn og tengist útgáfu bókar um sögu skólans.    Forvitnilegt er að kíkja á spjöldin; fyrir okkur sem aldrei vorum í Gagganum er gaman að sjá hvernig hinir og þessir voru í den tid og fyrir aðra getur verið fyndið að rifja upp hvernig skólafélagarnir litu út, nú eða fyrsta kærastan...    Hverfishátíð Naustahverfis verður haldin í dag frá kl. 17 til 19 í Nausta- borgum ofan Sómatúns. Íbúar hverfisins grilla saman og boðið verður upp á margs konar skemmt- un fyrir unga sem aldna.    Í dag verður einnig opið hús í hinum nýja Naustaskóla frá kl. 18.30 til 20 þar sem fólki gefst kostur á að skoða bygginguna.    Á kaffihúsinu Bláu könnunni, í húsi sem kallað er París, stendur nú yfir ljósmyndasýningin Flandur um Par- ís. Þar sýnir Einar Jónsson, blaða- maður og ljósmyndari, mannlífs- myndir frá höfuðborg Frakklands. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stoltur afi! Hermann Jón Tómasson ásamt Hörpu dóttur sinni og fjögurra mánaða afastelpu, Dagbjörtu Báru Hallgrímsdóttur. Mæðgurnar komu á bæjarstjórnarfundinn á þriðjudag þegar Hermann Jón varð bæjarstjóri. Bónus Gildir 11. jún - 14. jún verð nú áður mælie. verð K.f grill grísarif ........................... 498 598 498 kr. kg K.f grill grísalærisneiðar.............. 798 898 798 kr. kg Frosnar grísalundir, innfluttar ...... 1.198 1.398 1.198 kr. kg K.f kofareykt sveitabjúgu ............ 398 449 398 kr. kg Móa grill kjúklingalæri ................ 539 698 539 kr. kg Bónus ferskar kjúklingabringur .... 1.498 1.998 1.498 kr. kg Bónus ferskar kjúklingalundir...... 1.598 1.798 1.598 kr. kg Grandos instantkaffi, 100 g........ 359 398 3.590 kr. kg Euroshopper bitakökur, 150 g..... 129 139 860 kr. kg Egils kristall plús, rauður ............ 98 139 98 kr. ltr Fjarðarkaup Gildir 11. jún - 13. jún verð nú áður mælie. verð Nauta-innralæri ......................... 2.395 2.995 2.395 kr. kg Lambafille m/fitu....................... 2.898 3.498 2.898 kr. kg Hamborgarar, 80 g, 4 stk í pk. .... 456 548 114 kr. stk. Ofnafugl kjúklingur..................... 748 890 748 kr. kg Fjallalamb fjallalæri kryddað....... 1.583 2.473 1.583 kr. kg Kjarnafæði grillpylsur ................. 799 1.041 799 kr. kg FK grill svínakótelettur ................ 1.198 2.098 1.198 kr. kg Ali svínakótelettur jurtakryddaðar 1.574 2.098 1.574 kr. kg BBQ læri/leggur ........................ 582 831 582 kr. kg Krónan Gildir 11. jún - 14. jún verð nú áður mælie. verð Grísakótelettur lúxus, beinlausar . 1.199 1.998 1.199 kr. kg Lambalæri kryddað.................... 1.189 1.798 1.189 kr. kg Grísahnakki úrb. sneiðar............. 849 1.698 849 kr. kg Ungnautasnitsel ........................ 1.489 2.298 1.489 kr. kg Ungnautagúllas ......................... 1.489 2.198 1.489 kr. kg Krónu kjúklingur, ferskur heill ...... 498 698 498 kr. kg Grillborgarar með brauði, 4 stk.... 499 569 499 kr. pk. Krónu vanilluís........................... 299 299 299 kr. pk. Vínber rauð ............................... 229 449 229 kr. kg Nóatún Gildir 11. jún - 14. jún verð nú áður mælie. verð Grísalund krydduð að eigin vali ... 1.439 2.398 1.439 kr. kg Lambalærissn. m/aðalbláberjam 1.749 2.498 1.749 kr. kg Ungnautalund heil/hálf ísl. ......... 3.749 4.998 3.749 kr. kg Steinbítsflök krydduð/marineruð. 1.189 1.698 1.189 kr. kg Ísl m. kjúklingabr. skinnlausar..... 1.698 2.698 1.698 kr. kg Goða vínarpylsur, 10 stk............. 359 599 359 kr. pk. SS kryddlegnar lærissneiðar ....... 2.158 2.698 2.158 kr. kg Melónur cantalópe .................... 449 489 449 kr. kg Tómatar kirsuberja ísl. ................ 249 338 249 kr. pk. Pepsi, 2 ltr. ............................... 149 193 149 kr. stk. helgartilboðin Grillkjöt fyrir helgina Morgunblaðið/ÞÖK RÍKISVÍXLASJÓÐUR Þér býðst ekki meira öryggi en ríkisábyrgð Kynntu þér Ríkisvíxlasjóð á www.kaupthing.is, hafðu samband við Ráðgjöf Kaupþings í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi. Víxlar og stutt skuldabréf með ábyrgð íslenska ríkisins. Sjóðnum er heimilt að fjárfesta allt að 10% í innlánum. Hentar þeim sem vilja fjárfesta í þrjá mánuði eða lengur. Litlar sveiflur í ávöxtun og enginn binditími. Lágmarkskaup aðeins 5.000 kr. Hægt að vera í mánaðarlegum sparnaði. Ríkisvíxlasjóður er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrar- félag sjóðsins er Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða, t.d. getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Fyrri ávöxtun verðbréfasjóða gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarávöxtun þeirra. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þ.á m. nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum þeirra, má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðanna sem nálgast má á www.kaupthing.is/sjodir. Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta tryggir innlán að lágmarki fjárhæð sem samsvarar EUR 20.887. Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 6. október 2008 eru „innstæður í innlendum viðskiptabön- kum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi tryggðar að fullu“. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ekki kveðið á um gildistíma, en yrði hún felld úr gildi þá tæki við lágmarksvernd samkvæmt lögum nr. 98/1999, sem greinir frá að ofan. Tryggingarsjóðurinn tryggir ekki tjón sem verður vegna taps á undirliggjandi fjárfestingum verðbréfasjóða s.s. skuldabréfum eða víxlum. Sjá nánar lög nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, og heimasíðu sjóðsins, www.tryggingarsjodur.is. 10% innlán 90% ríkisvíxlar og ríkisskuldabréf Nýr og traustur kostur fyrir einstaklinga, fyrirtæki og aðra fjárfesta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.