Morgunblaðið - 11.06.2009, Page 37

Morgunblaðið - 11.06.2009, Page 37
Minningar 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009 ✝ Sigurlaug ArndísJóhannesdóttir fæddist að Miðfelli í Þingvallasveit 30. ágúst 1916. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jóhannes Krist- jánsson, bóndi í Mið- felli, f. 18. sept. 1857, d. 18. nóv. 1918 og Kristbjörg Kristjánsdóttir, f. 4. maí 1879, d. 9. júní 1921. Arndís var yngst 6 systk- ina, en þau voru Vilhjálmur Hin- rik, f. 1904, Kristján, f. 1905, Jó- hann Kristbjörg, f. 1908, Valgerður, f. 1909 og Magnús Gísli, f. 1914, en þau eru öll látin. Arndís giftist Guðmundi Ein- arssyni, f. 17. sept. 1913, þann 6. október 1934, en hann lést 25. nóv. 1996. Foreldrar hans voru Einar Guðmundsson, f. 21. des- ember 1868, d. 17. nóvember 1934, og Guðríður Guðmunds- dóttir, f. 18. október 1869, d. 1. Einar og Stellu sem er í sambúð með Jóni Þór Magnússyni, dóttir þeirra er Guðrún María. b) Guð- mundur, hann á 2 syni, Pedro og Andra. c) Kjartan sem á dóttur og son, Tuvu og Bjarka. 4) Örn Guðmundsson, f. 21. janúar 1947, kvæntur Margréti Ellertsdóttur og eiga þau 3 dætur. a) Elín Lind gift Trevor C. Hodgson og eiga þau 2 dætur, Esju May og Sólu May. Þau búa í Englandi. b) Arn- dís Dögg. c) Tinna Björk, í sam- búð með Pete David Clark. Arndís var send í fóstur eftir lát foreldra sinna. Var hún fóstr- uð af Guðríði Ófeigsdóttur, hálf- systur föður síns, sem bjó ásamt manni sínum Pétri Fjeldsted Kristjánssyni á Guðnabakka í Borgarfirði. Þegar Arndís var 10 ára brugðu þau búi og fluttu til Reykjavíkur. Þar gekk hún í Mið- bæjarskólann og vann ýmis störf fram að giftingu. Guðmundur og Arndís byrjuðu sinn búskap í Reykjavík en 1951 fluttu þau í Kópavog og bjuggu þar síðan, fyrst að Nýbýlavegi 18 en síðar í Furugrund 73. Arndís var alla tíð heimavinnandi hús- móðir en vann við sauma og um tíma á saumastofu og svo í heim- ilishjálp í Kópavogi. Útför Sigurlaugar verður gerð frá Digraneskirkju í dag, 11. júní, og hefst athöfnin kl. 15. apríl 1959. Börn Arndísar og Guð- mundar eru: 1) Jó- hanna Kristbjörg Guðmundsdóttir, f. 16. febr. 1937, gift Magnúsi Guðmunds- syni. Þeirra börn: a) Magnús, kvæntur Auði Margréti Sig- urðardóttur og eiga þau 3 börn, Jóhönnu Kristbjörgu, Magnús Ingva og Sigurð Heiðar. b) Guð- mundur, kvæntur Elísabetu Ármannsdóttur og eiga þau 2 börn, Ármann og Hildi. 2) Auður Guðmundsdóttir, f. 4 apríl 1941, gift Sumarliða Ingvarssyni, sonur þeirra er Hlynur Sum- arliðason, í sambúð með Michellie Steller. Hlynur á soninn Michel Jóhann. Eldri sonur Auðar er Arnar Bernhard, kvæntur Jacqi- lien Bernhard og búa þau öll í Kanada. 3) Einar Guðmundsson, f. 11. mars 1944, kvæntur Ólöfu Maríu Kjartansdóttur og eiga þau 3 börn: a) Elín og á hún 2 börn, Við sjáumst ekki í sumar – og þó sé ég þig: er blómin horfa himins til og hneigja sig þá yfir í þinn huliðsheim þú heillar mig. Því vetrarstríð á enda er nú undrumst við hve dauðinn veitir dýra hvíld og djúpan frið og heyrum lífið líða hjá sem lækjarnið. Og allt það sem var auður þinn og yndi þitt það leitar eins og lóukvak í ljóðið mitt er signir þig hin breiða byggð við brjóstið sitt. Og allir þeir sem unnir þú og unnu þér þeir sjá hvar logi lífs þíns rís og lyftir sér í þessa lygnu líknarnótt sem ljómar hér. Er birtan sendir bláan draum í bæinn inn og geislaflugið fellur létt á fagurkinn það vermir litlar ljúfur þrjár sem lófi þinn. (Jóhannes úr Kötlum.) Elsku amma, hafðu þökk fyrir allt, Guð geymi þig. Magnús Magnússon. Okkur systurnar langar með nokkrum orðum að minnast ömmu okkar sem lést fyrir stuttu. Amma Dísa var alveg ótrúleg kona, hún var langt á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um heilsu- far, heilsuvörur og hollustu. Hún og afi voru reyndar vön að blanda hóstasaft og hin ýmsustu meðul við kvillum barna sinna og barna- barna í gegnum tíðina, allt úr ís- lenskum jurtum og grösum en mjög mis-gott á bragðið þó. Í seinni tíð bakaði hún úr spelti, hrásykri, kókosfeiti, heilhveiti og öllu því sem hollast var og heil- brigðast. Hver man ekki eftir heil- hveitivöfflum, speltpönnsum og ótrúlega undarlega útlítandi ávaxtakökum sem þó allt bragð- aðist ljómandi vel! Amma og afi ræktuðu grænmeti, tré, runna og blóm þar sem þau bjuggu á Nýbýlaveginum um langt skeið og eru einhverjar skemmti- legustu minningar okkar og frændsystkina okkar þegar við lékum okkur í skóginum sem um- lék húsið. Amma var dugleg að gefa smáfuglunum og hröfnunum á veturna og án þess að láta nokk- urn vita laumaði hún stundum smáræði að köttunum í hverfinu líka. Hún hélt áfram að gefa fugl- unum á svölunum sínum í blokk- inni þegar þau afi fluttu í Furu- grundina. Amma var mikil handavinnu- og saumakona og saumaði, prjónaði og heklaði ým- islegt fatakyns á ástvini sína, háa sem lága, auk þess sem hún prjónaði lengi vel dásamlega fal- lega dúka til styrktar dvalar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavog- inum. Það var alltaf gaman að taka upp gjafir frá ömmu Dísu því í þeim leyndist oftast eitthvað fallegt handgert sérstaklega ætl- að manni sjálfum og því einstakt í alla staði, enginn annar átti til dæmis eins fallegar lopapeysur og við systur en amma tók upp saumamunstur og prjónaði í þær sérstaklega handa okkur. Eins áttu ýmsar dúkkur og bangsar hátískuföt sem engin önnur börn gátu státað af, allt handgert af ömmu. Alltaf gat maður sagt henni nokkurn veginn hvað mann langaði í og hún án undantekn- ingar töfraði fram eitthvað aðeins betra en maður gat ímyndað sér. Amma studdi líka alltaf vel við bakið á okkur í öllu sem við tók- um okkur fyrir hendur og mun- um við sakna mest spjallsins í eldhúsinu yfir kaffi eða tebolla og kannski einum kapli eða svo. Guð geymi ömmu Dísu um alla tíð, hennar er sárt saknað. Elín Lind, Arndís Dögg og Tinna Björk Amma mín er farin til guðs og til afa á himnum – til drauma- landsins. Á meðan hún var á meðal okkar markaði hún líf okk- ar allra. Hún var góð og ljúf kona, sem alltaf hugsaði fyrst um aðra. Mörgum árum eftir að ég fluttist til Kanada sýndi vinur minn mér vers úr Biblíunni á þessa leið: Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður; kærleikurinn öfund- ar ekki; kærleikurinn er ekki raup- samur; hreykir sér ekki upp; hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin; hann reiðist ekki, tilreiknar ekki hið illa; hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en sam- gleðst sannleikanum; hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, um- ber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. (1. Korintubréf 13. kafli 4.-8.vers). Þetta lýsir ömmu minni eins og hún var. Uppáhaldsminningar mínar um ömmu og afa eru um hinar mörgu helgarferðir, sem ég fór með þeim í uppvexti mínum. Oft fórum við afi líka tveir niður á höfn til að skoða skipin og kanna sjávarföllin. Þá seildist hann oft í hanskahólfið á bílnum og náði sér í sígarettu, skrúfaði niður gluggann og átti það til að reykja eina eða tvær sígarettur í bíltúr okkar. Svo stakk hann upp í sig fullt af piparmintu á heim- leiðinni í von um, að amma fyndi ekki lyktina. Stundum, þegar við amma vorum ein átti hún til með að spyrja hvort afi væri stundum að reykja. Ég hafði lofað að kjafta ekki frá, en svipurinn kom upp um mig og þá hristi hún höf- uðið og sagði: hvenær skyldi hann læra að þetta gerir bara astmann verri. Ég man líka hvað ég eyddi oft löngum tíma í saumaherberginu hennar ömmu, þar sem hún kenndi mér að sauma og alls konar föndur, sem hefur komið sér vel á lífsleiðinni; bæði get ég gert við fötin mín og lagað ýmislegt bæði í leik og starfi. Ég mun sakna ömmu, en allt það sem hún kenndi mér um lífið, kærleikann og virðingu fyrir öðrum mun fylgja mér allt mitt líf. Arnar. Elsku amma mín. Ég vildi óska að ég hefði getað átt fleiri stundir með þér, en sá tími sem ég átti með þér mun aldrei gleymast. Þú varst besta amma í heimi, ávallt svo góð og blíð og jafnframt kát og glöð, og brosið þitt var eins og sólskin. Ég mun alltaf muna faðmlögin þín og snertingu handa þinna, þegar þú straukst mér um kinn. Ljúfar eru minningarnar þegar ég kom í heimsókn til ís- lands og fékk hjá þér kókó og snúð eða vínarbrauð í eldhúsinu. Ég mun sakna þess að fá það ekki aftur, en ég mun aldrei gleyma þeim stundum. Ég vildi að ég hefði átt fleiri stundir með þér, en nú ert þú farin til afa. Þakka þér fyrir að hafa verið hluti af lífi mínu. Ég mun ávallt geyma það í hjarta mínu. Hlynur. Sigurlaug Arndís Jóhannesdóttir Kvaddur er einstak- ur drengur, Kristján Falur Hlynsson, er fékk kallið hinn 20. maí sl. Elsku Kristján, mig langar til að þakka þér fyrir þær góðu stundir sem við áttum saman í hestamennskunni. Ekki varstu hár í loftinu þegar þú varst far- inn að koma í hesthúsið og kominn á hestbak með pabba, mömmu og Kristjáni föðurafa og fljótlega bættist Ragnar yngri bróðir þinn í hópinn og var þá öll fjölskyldan komin á fullt í hestamennskuna. Svona minnist ég Kristjáns Fals, alltaf á fullu, glaður, hlæjandi og stutt í sprellið. Einkunnarorð hans voru: „Já ekk- ert mál ég redda þessu“ ef hann var beðinn um eitthvað eða þegar hann sá að þörf var á hjálp. Ófáar hestaferð- irnar höfum við fjölskyldurnar farið Kristján Falur Hlynsson ✝ Kristján FalurHlynsson fæddist í Keflavík 15. janúar 1991. Hann lést af slysförum 20. maí síð- astliðinn og var jarð- sunginn frá Keflavík- urkirkju 29. maí. saman ásamt fleiri fé- lögum úr Mána, enda voru hestaferðirnar hans yndi og var hægt að treysta honum al- gjörlega í öllu er við- kemur hestaferðum, hvað varðar með rekst- urinn á hrossunum, eða þegar eitthvað bjátaði á hjá einhverjum þá var hann kominn til að hjálpa, enda var Krist- ján með 10 fyrir vilja, fjölhæfni og geðslag. Eitt er víst að á þeim stað sem þú ert á núna hefur örugg- lega þurft að taka til hendinni með þinni einstöku jákvæðni, brosi, dugn- aði og skemmtilega hlátri þínum. Hvíl í friði, elsku Stjáni. Ljósið á himnum lýsi þér litli fallegi drengur. Í hjarta mér og fleiri hér brostinn er einn strengur. (Höf. ók.) Elsku Hlynur, Helga og Ragnar, við fjölskyldan vottum ykkur samúð og megi guð varðveita og gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Lárus, Hrönn og fjölskylda. Jóhann Friðrik Sigurbjörnsson ✝ Jóhann FriðrikSigurbjörnsson fæddist á Akureyri 30. október 1932. Hann lést á heimili sínu 25. maí 2009 og fór útför hans fram frá Dalvík- urkirkju 5. júní. ingnum“ í okkur hin- um og sagðist ekki skilja að við hefðum áhuga á að þvælast til útlanda því á Íslandi væri best að vera. Það var alltaf stutt í stríðn- isglottið þó hann gæti staðið mjög fast á skoðunum sínum. Það hefur alltaf ver- ið gott að koma til ömmu og afa í sveit- inni og það verður erf- itt að venjast því að afi verði ekki þar líka til að taka á móti okkur. Hans er sárt saknað. Lena Rut, Kristbjörn Elmar, Sandra Björk, Fannar Smári, Ásgrímur Örn, Heba Karítas og Birgir Orri. Okkur langar að minnast afa okkar í ör- fáum orðum. Við erum svo lánsöm að hafa al- ist upp við að eiga afa og ömmu í sveit og dvalist þar mörgum stundum og þá sérstaklega Kiddi sem var þar í mörg sumur. Afi var heimakær og leið best heima í Svarfaðardalnum. Hann átti það til að hrista hausinn yfir „þvæl- ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN INGÓLFSSON frá Skálholtsvík, Sléttuvegi 13, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtu- daginn 4. júní. Kveðjuathöfn verður í Grensáskirkju föstudaginn 12. júní kl. 13.00. Jarðsungið verður frá Prestbakkakirkju laugardaginn 13. júní kl. 15.00. Sigfríður Jónsdóttir, Þorgerður Sigurjónsdóttir, Gunnar Benónýsson, Anna Sigurjónsdóttir, Guðjón Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, FRANCH MICHELSEN úrsmíðameistari, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 12. júní kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningar- sjóð Franch Michelsen til uppbyggingar skáta- heimilis Skátafélags Eilífsbúa á Sauðárkróki, bankareikningur 0161-15-380156,kt. 640288-3379. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðný Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.