Morgunblaðið - 11.06.2009, Síða 44

Morgunblaðið - 11.06.2009, Síða 44
 Ekki mun það vera alls kostar rétt, eins og sagt var frá í gær, að Páli Óskari hefði verið kippt inn á þjóðhátíð í Eyjum eftir fésbók- arþrýsting. Tilkynning um að Páll myndi koma þar fram barst í upp- hafi vikunnar en þó var búið að ganga frá samningum fyrir einum og hálfum mánuði. Fésbókin er yndisleg, ó já, en mikið ólíkindatól um leið. Páll Óskar átti alltaf að fara til Eyja 44 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 2009  Kvikmyndin Home var heims- frumsýnd í 87 löndum síðasta föstu- dag, m.a. hér. Um er að ræða heim- ildarmynd eftir Yann Arthus- Bertrand en varpað er ljósi á stöðu jarðar í dag og skemmdir þær sem mannskepnan hefur valdið henni. Áhrifarík mynd en það sem stendur samt upp úr er að fjölþjóðakeðjan McDonalds, sem hefur verið sökuð um margvísleg umhverfisspjöll, auglýsti fyrir og eftir myndina eins og ekkert væri. Mammon verður seint sakaður um smekkvísi og hér var í raun hnykkt á því að við erum vitandi vits að grafa eigin gröf. McJörð Fólk Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is BORGARFULLTRÚI Samfylkingarinnar, Oddný Sturludóttir, leikur með Ensími á hljóm- borð í fjórum lögum á NASA í kvöld þegar sveit- in skríður úr skel sinni til að leika Kafbátamúsík í heild sinni. Framtakið er fyrsti hluti nostalg- ískrar tónleikaraðar er kallast Manstu ekki eftir mér? og fær sveitir til að leika eldri plötur sínar í gegn. „Þetta verður mjög nostalgíst kvöld,“ segir Oddný. „Ég á eflaust eftir að hitta fólk sem ég hef ekki séð lengi. Þetta verður örugglega svip- að og að fara á ættarmót.“ Oddný valdi sér fjög- ur lög af plötunni til þess að leika með í en þau segir hún að séu í sérstöku uppáhaldi. Þetta eru „Atari“, „Conga“, „Gaur“ og „Hrúgald“. „Það vill svo til að lögin eru öll í röð en sveitin ætlar að taka lögin í sömu röð og þau koma fyrir á plötunni. Þannig að ég kem upp á svið, klára mig af og fer svo að hlusta. Ég þurfti bara eitt rennsli með strákunum og þetta small.“ Oddný yfirgaf sveitina árið 1999 og var því ekki með á annarri breiðskífunni, BMX, er kom út það ár. „Ég fylgdi sveitinni út þessa plötu og hætti svo á toppnum eftir að við unnum verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaunum. Eftir það ákvað ég að þetta væri orðið gott.“ Eftir að Ensími lýkur við að leika Kafbáta- músík í kvöld verður talið í aðra útvarpsslagara af annarri og þriðju plötu sveitarinnar. Oddný Sturludóttir spilar með Ensími í kvöld Ljósmynd/Bjarni Gríms Oddný og Ensími Segist hafa hætt á toppnum.  Orðspor Ólafs Arnalds dýpkar með hverjum mánuði erlendis og næstu plötu hans er beðið með óþreyju víða um heim. Platan kem- ur út í haust, í síðasta lagi í febrúar á næsta ári. Enn er ekki vitað um útgefanda en Ólafur var á „ein- hverjum“ fundum í London fyrir stuttu. Í apríl samdi Ólafur eitt lag á dag í viku og gaf á Twittersíðu sinni. Lögunum var hlaðið niður 70.000 sinnum og lögunum verður safnað saman á vínylplötu sem kemur út í ágúst. Ólafur heldur svo tónleika hérlendis í haust ásamt For a Minor Reflection Ólafur Arnalds gefur út nýjar plötur Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is TENÓRINN Garðar Thór Cortes mun syngja fyrir framan 40 þúsund manns í Hyde Park-garði Lund- únaborgar þann 12. september næstkomandi. Þar kemur hann fram á lokakvöldi Proms-tónlist- arhátíðarinnar. Framkoma Garðars verður einnig í beinni útsendingu á útvarpsstöðinni BBC3 auk þess sem hægt verður að fylgjast með tón- leikunum í sjónvarpi í gegnum staf- rænar rásir Sky. Á meðal annarra flytjenda á sömu tónleikum eru Katherine Jenkins og Barry Mani- low. „Ég syng þarna fjórar óper- íuaríur og kem bara fram sem ég … það er að segja sem sólólistamað- ur,“ segir Garðar Thór en þetta mun vera stærsta mannhaf tón- leikagesta sem hann hefur sungið fyrir. Hann hefur þó sungið fyrir fleiri í einum rykk. „Ég hef aldrei sungið fyrir svona marga á tón- leikum en ég hef sungið á fótbolta- leikjum þar sem um 80 þúsund manns eru samankomnir. En það eru náttúrlega ekki tónleikar þar sem fólk er komið til þess að horfa á fótboltaleik. Þarna safnast fólk sam- an fyrir tónlistina auk þess sem margir eiga eftir að fylgjast með í gegnum útvarp og sjónvarp. En þetta er nú svo sem ekkert merki- legt … en það er gaman að þessu samt.“ Garðar á enn eftir að taka ákvörðun um hvaða óperuaríur hann syngur á tónleikunum. Viðskiptaferðir í sumarfríinu Garðar er nýkominn frá Finn- landi þar sem hann var með tón- leika en segist nú vera komin í sjálf- skipað sumarfrí. Eða eins nálægt og hann mögulega kemst því að eiga eðlilegt frí. Á dagskránni næstu vik- urnar eru viðskiptaferðir til Banda- ríkjanna, Bretlands og Þýskalands en Garðar ítrekar að þetta séu ekki söngferðir. Garðar hefur gefið út tvær plötur á ferli sínum en sú síðari fór í efsta sæti sölulistans yfir klassíska tónlist í Bretlandi sem samsvaraði 27. sæti heildarlistans. Platan var gefin út af Believer Music sem var íslenskt út- gáfufélag stýrt af Einari Bárðarsyni sem þá starfaði einnig sem umboðs- maður Garðars. Plötunni var dreift um Evrópu af Universal. Tvö ár eru liðin frá því að Garðar gaf út plötu og miðað við velgengni síðustu skífu hlýtur að teljast líklegt að söngvarinn sé að reyna tryggja sér nýjan plötusamning við einn af útgáfurisunum. Aðspurður hvort viðskiptaferðirnar tengist undirbún- ingi fyrir þriðju breiðskífu hans á heimsvísu gerir hann lítið úr því. „Nei, ég er ekki að gera plötu eins og er. Tvær plötur eru nóg í bili. Ég er að minnsta kosti ekki að vinna í því sem stendur, en það er aldrei að vita hvað gerist.“ Garðar undirbýr einnig tónleika hér á landi í ágúst og svo hefur hann ráðið sig til þess að syngja í Íslensku óperunni í haust. Cortes í Hyde Park  Garðar Thór syngur á lokatónleikum Proms-hátíðarinnar í Hyde Park í sept- ember  Búist er við 40 þúsund gestum  Syngur á undan Barry Manilow Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Garðar Thór Cortes Undirbýr stærstu tónleika ferils síns sem fara fram undir berum himni í Hyde Park í miðri Lundúnaborg um miðjan september. NÝR veitinga- og skemmtistaður verður brátt opnaður að Austur- stræti 7 og mun hann bera nafnið Austur. Athafnamennirnir Hallur Dan Johansen og Valgarð Þ. Sörensen eru eigendur staðarins og munu standa að daglegum rekstri hans en fjölmiðlamaðurinn góð- kunni, Ásgeir Kolbeins, er einnig í hópi fjárfesta. „Við erum að fara að opna veitingastað með smá-partí- ívafi líka,“ segir Hallur, brattur í kreppunni. Húsnæðið er á þremur hæðum en Hallur segir ætlunina að opna fyrstu tvær hæðirnar í lok júní, þann 26. eða 27. „Við ætlum að vera með hádegismat, kaffi og kvöldmat og svona „lounge“ með smá-partí um helgar. Við ætlum ekkert að vera með opið langt fram eftir nóttu, eins og margir staðir eru, ætlum ekki að vera með lengra leyfi,“ segir Hallur, um helgar verði lokað kl. 3. Þeir fé- lagar reikni með gestum á aldr- inum 25-40 ára. Staður með sál „Við ætlum að vera afskaplega skynsamir í verðlagi og vera með fjölbreyttan matseðil. Stefnum að því að opna stað með sál og karakt- er, “ segir Hallur og nefnir að yfir- kokkurinn sé Hinrik Karl Erlings- son en hann hefur m.a. kokkað á Radisson SAS í Noregi og Rauð- ará. Hallur er ekki óreyndur í brans- anum, fyrrum eigandi Players í Kópavogi en seldi þann stað árið 2007. Iðnaðarmenn vinna nú hörð- um höndum að því að innrétta Austur svo hægt verði að opna í lok mánaðarins en um hönnun stað- arins sáu arkitektarnir Björgvin Snæbjörnsson og Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir. helgisnaer@mbl.is Austur í Austurstræti Morgunblaðið/Kristinn Austurstræti 7 Veitinga- og skemmtistaður verður brátt opnaður í húsinu.  Ásgeir Kolbeins opnar veitingastað, bar og skemmtistað á tveimur hæðum ásamt félögum sínum í lok júní Proms-tónlistarhátíðin fer fram árlega um allt Bretland og er ein stærsta klassíska tónleika- hátíð heims, a.m.k. hvað um- fang varðar. Í ár fer hún fram dagana 17. júlí – 12. september og er samansett af um 80 uppá- komum og fjöldi tónleika verður síðan gefinn út á geisladiskum. Í ár koma m.a. fram Nigel Ken- nedy, Sir James Galway, Sir David Attenborough, Sarah Connolly, Jennifer Pike og The Ukulele Orchestra of Great Britain svo eitthvað sé nefnt. Proms 2009

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.