Morgunblaðið - 29.06.2009, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 29.06.2009, Qupperneq 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009 Morgunblaðið/Ómar Íslandsmeistari Valdimar Bergstað með bikarana. Þátttaka var nokkuð góð á Íslandsmóti ungmenna, en 302 keppendur tóku þátt á um 500 hestum. VALDIMAR Bergstað úr hesta- mannafélaginu Fáki í Reykjavík, sigraði um helgina í fimmgangi og gæðingaskeiði á Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna í hesta- íþróttum, á hestinum Orion frá Lækjarbotnum. Valdimar varð fjór- faldur Íslandsmeistari að þessu sinni, en hann sigraði í tölti á hest- inum Leikni frá Vakurstöðum, en það er hestur úr ræktun fjölskyldu hans. Valdimar sigraði einnig í samanlögðum fimmgangsgreinum, en það er samanlögð einkunn úr forkeppni í tölti, gæðingaskeiði og fimmgangi. „Þetta gekk allt vonum framar,“ segir Valdimar, en hann segist æfa fimm til sex sinnum í viku. Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ var mótshaldari að þessu sinni. Þátttaka var nokkuð góð en 302 keppendur kepptu á mótinu á tæplega 500 hestum, að sögn Þóris Arnar Grétarssonar mótsstjóra. Valdimar Bergstað, sem er nítján ára, og Linda Rún Pétursdóttir, tví- tug, munu keppa á Heimsmeistara- móti íslenskra hesta í Sviss dagana 5.-9. ágúst, en íslensk hross fyrir- finnast um víða veröld. „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Valdimar sem er að fara í þriðja sinn á Heimsmeistaramót íslenskra hesta. thorbjorn@mbl.is Fjórfaldur Íslandsmeistari  Valdimar Bergstað vann fjórfalt á Íslandsmóti ungmenna í hestaíþróttum  Fer á Heimsmeistaramót íslenskra hesta APPLICON í Sví- þjóð, sem er í eigu Nýherja, hefur gert samn- ing við tvo af stærri bönkum Svíþjóðar, Swed- bank og Nordea, um innleiðingu á hugbúnaðinum Calypso sem var þróaður fyrir viðskipti á verðbréfamörkuðum. Samningurinn við Nordea og Swedbank felur í sér víðtæka inn- leiðingu á ákveðnum fjármála- afurðum fyrirtækjanna og meðal annars er gert ráð fyrir að Nordea taki búnaðinn í notkun í nokkrum löndum þar sem bankinn er með starfsemi. Applicon er norrænt ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki í viðskipta- hugbúnaði, með starfsemi í Dan- mörku og Svíþjóð, auk Íslands. Hjá Applicon-félögunum starfa um 170 ráðgjafar. thorbjorn@mbl.is Sænskir bankar velja Applicon Nýherji í Borgartúni FLUGVÉL Iceland Express frá Billund fékk forgang til lendingar á öðrum tímanum í fyrrinótt vegna gruns um bilun í bremsu- kerfi vélarinnar. Lendingin gekk áfallalaust fyrir sig samkvæmt upplýsingum frá Flugmálastjórn og engan sakaði. Á leið vélarinnar til Keflavíkur kviknaði ljós í flugstjórnarklefa sem tilkynnti um bilun í vatnsafls- kerfi bremsubúnaðar vélarinnar. Tvö varakerfi eru til staðar í vél- búnaði flugvélarinnar sem taka sjálfkrafa við og var því ekki um mikla hættu að ræða. Flugstjórinn óskaði þó, til að gæta fyllsta ör- yggis, eftir forgangi til lendingar á Keflavíkurflugvelli. Í samræmi við þetta var nokkur viðbúnaður á flugvellinum og það voru fyrstu merkin um að ekki hefði allt verið með felldu sem far- þegar urðu varir við. Í vélinni voru um 200 manns. Við lendingu var þeim tilkynnt um að tækni- legir örðugleikar hefðu verið við lendinguna. Ekki var talin þörf á að bjóða farþegunum áfallahjálp. Matthías Imsland, framkvæmda- stjóri Iceland Express, segir bil- unina hafa verið minniháttar. Vél- in hafi verið yfirfarin og hún sé komin aftur í áætlunarflug. skuli- as@mbl.is Forgangur til lend- ingar vegna bilunar RÖNG mynd var birt með „Agnes segir“ á bls. 10 í Morgunblaðinu í gær. Birt var mynd af Tryggva Tryggvasyni, framkvæmdastjóra fjarstýringar hjá Saga Capital, en með pistlinum átti að vera mynd af alnafna hans, Tryggva Tryggva- syni hjá Lífeyrissjóðnum Gildi. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Röng mynd í grein í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.