Morgunblaðið - 29.06.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
EMBÆTTI sérstaks saksóknara
beitir nú öllum tiltækum ráðum til að
kalla sjeik Mohamed Bin Khalifa Al-
Thani, bróður emírsins af Katar, til
yfirheyrslu í tengslum við rannsókn á
hlutabréfakaupum hans í Kaupþingi
fyrir bankahrunið, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins.
Ólafur Ólafsson og Hreiðar Már
Sigurðsson hafa þegar verið yf-
irheyrðir vegna málsins. Grunur leik-
ur á að um sýndarviðskipti hafi verið
að ræða. Verið er að skoða hvort þau
kunni að varða annars vegar við
ákvæði um markaðsmisnotkun í lög-
um um verðbréfaviðskipti og hins
vegar við ákvæði auðgunarbrotakafla
hegningarlaga.
Nauðsynlegur vitnisburður
Vitnisburður Al-Thanis er talinn
nauðsynlegur til að varpa frekara
ljósi á málavexti. Íslenska ríkið hefur
ekki boð- og löggæsluvald í öðrum
löndum og því þarf að fylgja við-
urkenndum samskiptareglum. Beiðni
um yfirheyrslu fer í gegnum svokall-
aða gagnkvæma réttaraðstoð við
meðferð sakamála milli landa (e. mu-
tual assistance). Stjórnvöld í Katar
taka síðan sjálfstæða ákvörðun um
hvernig fara skuli með beiðni emb-
ættis sérstaks saksóknara, en málið
varðar bróður valdamesta manns
landsins. Ekki er útilokað að embætti
sérstaks saksóknara muni fá aðra
sem hafa stöðu grunaðra í málinu til
að hlutast til um vitnisburð Al-
Thanis, t.d. Ólaf Ólafsson, en þeir eru
vinir. Ef vitnisburður sjeiksins fæst
ekki þarf ákæruvaldið samt að sýna
fram á að öllum tiltækum úrræðum
hafi verið beitt til að fá slíkan vitn-
isburð fram. Allur vafi við hugsanlega
meðferð málsins fyrir dómstólum
yrði túlkaður sakborningum í hag.
Ekki áhættulaus viðskipti
Stjórnendur Kaupþings segja að
kaup sjeiksins hafi ekki verið áhættu-
laus og að hann hafi tapað á viðskipt-
unum. Því haldi allar ásakanir um
sýndarviðskipti ekki vatni.
Sem kunnugt er hófst rannsókn
málsins þegar Davíð Oddssyni, þá-
verandi seðlabankastjóra, barst nafn-
laus ábending um tilhögun við-
skiptanna sem hann sendi síðan
efnahagsbrotadeild RLS hinn 2. des-
ember sl. Saksóknari efnahagsbrota
staðfesti það í samtali við Morg-
unblaðið, en efnahagsbrotadeildin
sendi málið síðan til FME.
Ekki auðvelt að ná Al-Thani
Rannsókn sérstaks saksóknara á hluta-
bréfakaupum sjeiksins í fullum gangi
Stjórnvöld í Katar taka sjálfstæða
afstöðu til beiðni embættis sér-
staks saksóknara um vitnisburð
sjeiks Al-Thanis en hann er bróðir
valdamesta manns landsins.
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„SVÍAR eru jákvæðir gagnvart
umsókn að Evrópusambandinu frá
Íslandi. Ef Íslendingar vilja að Sví-
ar aðstoði í umsóknarferlinu og
komi að því að Ísland verði um-
sóknarríki þá tel ég að umsókn
þurfi að berast fljótlega; fyrir fund
ráðherraráðsins í lok júlí næstkom-
andi,“ segir Beatrice Ask, dóms-
málaráðherra Svíþjóðar.
Svíar taka við forsæti í Evrópu-
sambandinu hinn 1. júlí næstkom-
andi. Ask segir að Svíar gætu
hugsanlega aðstoðað Íslendinga
verði ákveðið að leggja fram um-
sókn um aðild að sambandinu en
hún tók þó ekki fram með hvaða
hætti Svíar gætu hugsanlega að-
stoðað Íslendinga í umsóknarferl-
inu ef til þess kæmi.
Svíþjóð tekur við forsæti í Evr-
ópusambandinu 1. júlí næstkom-
andi og mun gegna því hlutverki
næstu sex mánuði á eftir.
Gæti styrkt samstarf
þjóðanna
„Afstaða Svía er alveg ljós, við
viljum sjá fleiri Norðurlandaþjóðir
í Evrópusambandinu og stuðningur
Norðurlandanna getur reynst Ís-
landi mikilvægur. Við vinnum þeg-
ar mikilvægt starf saman utan
Evrópusambandsins. Dóms-
málaráðherrar Norðurlandanna
eru einmitt að funda hér þessa
dagana. Það gæti jafnframt styrkt
samstarf okkar á norrænum
grunni ef fleiri Norðurlandaþjóðir
yrðu aðilar að Evrópusambandinu.
Stóra spurningin fyrir Ísland er
hins vegar auðvitað hvað það
græðir á sambandsaðild og hvers
vegna það ætti að gerast meðlimur
í þessum klúbbi. Því geta Íslend-
ingar einir svarað.“
Skilur reiði almennings
Hér á landi hafa margir gagn-
rýnt hversu litla aðstoð Íslend-
ingar fengu frá Evrópusambandinu
og öðrum Norðurlandaþjóðum í
Icesave-deilunni. Ask segir að
sænska ríkisstjórnin hafi sýnt
vandræðum Íslendinga mikinn
áhuga.
„Evrópusambandið hefur auðvit-
að fleiri en eitt ríki í miklum vand-
ræðum. Alþjóðlega fjármálakrepp-
an hefur þróast þannig að það
berast fregnir af nýjum atburðum
nánast daglega og það leiðir til
þess að flestir stjórnmálamenn
hafa verið mjög varkárir,“ segir
Ask.
„Ég skil vel reiði almennings á
Íslandi vegna Icesave-deilunnar og
við í sænsku ríkisstjórninni höfum
talað mikið um málefni Íslands.
Fjármálaráðherra okkar hefur
skoðað ýmsar leiðir til að hjálpa
Íslandi og við gerum okkar besta í
þessum málum. Þetta er mjög
slæm og erfið staða.“
Aðspurð segist Ask ekki geta
svarað því hversu langur tími gæti
liðið þar til Ísland yrði aðili að
Evrópusambandinu ef lögð yrði inn
umsókn á næstunni.
„Það getur farið eftir hvers kon-
ar umsókn þið leggið inn. Því færri
vandamál sem henni fylgja, því
hraðar gæti umsóknarferlið gengið
fyrir sig. Það hafa jafnframt fleiri
þættir áhrif, t.d. er ákveðin óvissa
varðandi Lissabon-sáttmálann og
svo er nú verið að endurnýja Evr-
ópuþingið. En því fyrr sem Íslend-
ingar sækja um því betra.“
Ask segir afar mikilvægt að ef
til aðildarviðræðna kæmi þyrftu Ís-
lendingar að rækta vel pólitísk
tengsl við önnur aðildarríki.
„Ég hef sagt mörgum íslenskum
þingmönnum að það sé mikilvægt
fyrir Íslendinga að vera í sambandi
við önnur aðildarríki og ræða við
þau um spurningarnar sem þarf að
svara um aðildina og sýna þeim
áhuga. Pólitískur stuðningur er
einkar mikilvægur í aðild-
arviðræðum.“
Hér á landi fer nú fram fundur
allra norrænu dómsmálaráðherr-
anna og er Beatrice Ask stödd hér
á landi af því tilefni.
Umsóknin þarf að berast fljótt
Dómsmálaráðherra Svíþjóðar segir Svía geta aðstoðað Íslendinga en umsókn um aðild að ESB þurfi að
berast fyrir lok júlí Segir Svía hafa lagt Íslandi hjálparhönd í Icesave „Viljum fleiri Norðurlönd inn“
Ráðherra Beatrice Ask, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, segir að Svíar vilji fá fleiri Norðurlandaþjóðir inn í ESB.
Morgunblaðið/Ómar
Svíar verða í forsæti í Evrópusambandinu frá og með 1. júlí næstkomandi
í sex mánuði. Aðspurð hverjar áherslur Svía verða sagði Beatrice Ask:
„Fjármálakreppan í Evrópu og í raun í heiminum öllum er auðvitað for-
gangsatriði hjá okkur. Það þarf að taka ýmsar mikilvægar ákvarðanir í
þeim efnum. Þá teljum við einnig mjög mikilvægt að sporna eins og hægt
er við loftslagsbreytingum og við vonumst eftir alþjóðlegri samstöðu í
þeim efnum á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í ár.
Í þriðja lagi er mikilvægt að auka samstarf á sviði dómsmála.“
Fjármálakreppan og loftslagsmál í forgrunni
Eins og kaup sjeiks Mohameds Bin
Khalifa Al-Thanis voru kynnt hinn
22. september á síðasta ári var
um að ræða hefðbundin kaup á
fimm prósenta hlut í Kaupþingi
með þeirri áhættu sem slíku
fylgir, en litið var á kaupin sem
mikla traustsyfirlýsingu fyrir
bankann.
Síðar kom í ljós að fjármögnun
viðskiptanna fór í gegnum Kaup-
þing, en bankinn lánaði tveimur
félögum sem skráð eru á Tortóla-
eyju fjármagn sem þau lánuðu
síðan Q Iceland Finance ehf., eign-
arhaldsfélagi sjeiksins, sem keypti
síðan hlutinn.
Félögin á Tortóla-eyju voru ann-
ars vegar í eigu Ólafs og hins veg-
ar í eigu Al-Thanis, sem gerði
framvirkan gjaldeyrissamning við
uppgjör. Hagnaður af þeim samn-
ingi var síðan notaður til að greiða
skuld Al-Thanis við Kaupþing.
Mikil traustsyfirlýsing rétt fyrir bankahrunið
Ljósmynd/Hanna Lilja Valsdóttir
Sjeikinn Al-Thani við þyrlu Ólafs
Ólafssonar í Flatey sumarið 2008.
„VIÐ erum búin
að vera með
þessar tvær til-
lögur í mánuð
og vinnan hefur
gengið út á að
sameina þær í
eina. Það starf
hefur gengið
ágætlega en ég
get ekki sagt al-
veg til um hve-
nær það klárast. Ég reikna með
að við fundum daglega í þessari
viku,“ segir Árni Þór Sigurðsson,
formaður utanríkismálanefndar
Alþingis.
Tvær tillögur um aðild-
arumsókn að Evrópusambandinu
eru nú til meðferðar í utanrík-
ismálanefnd Alþingis.
Árni Þór og tveir aðrir fulltrú-
ar úr utanríkismálanefnd áttu
fund með Beatrice Ask, dóms-
málaráðherra Svíþjóðar, í gær
„Hún var með stóran fund þar
sem hún gerði grein fyrir
áherslum Svía í formennskutíð
þeirra sem hefst núna 1. júlí. Við
úr utanríkismálanefnd hittum
hana stuttlega fyrir fundinn þar
sem við ræddum ýmislegt við
hana, meðal annars Evrópu-
málin.“
Unnið að því að
sameina tvær
tillögur í eina
Árni Þór
Sigurðsson